Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Side 3
Fréttir | 3Mánudagur 8. ágúst 2011
n Íslendingar fjárfestu í 72.000 m2 svæði í Berlín árið 2007 n Hilmar Steinar Sigurðsson, þáverandi starfsmaður
Glitnis, tók persónulega þátt n Þýskir fjárfestar hafa óskað eftir rannsókn hjá sérstökum saksóknara
Glitnistoppar voru
í braski í Berlín
Í
samtali við DV segir Hilmar
Steinar Sigurðsson, núverandi
starfsmaður Klasi Investment
Services og fyrrverandi starfs-
maður Glitnis, að ásakanir Þjóð-
verjanna á hendur honum og
öðrum Íslendingum sem koma
að fasteignafélaginu R.E.D. Berlin
Development séu fráleitar. Hann
segir að sérstakur saksóknari hafi
ekki haft samband við sig né aðra
Íslendinga tengda félaginu. Enda
hafi engin brot átt sér stað. Hér að
neðan birtast nokkrar spurningar
sem DV sendi Hilmari. Einnig er
birt athugasemd frá honum.
Hvernig kom það til að Glitnir tók
þátt í fjármögnun á þessu verkefni
og hversu mikið lánaði bankinn
út á það?
Svar: „Einhver á vegum Glitnis
þarf að svara þessari spurningu.“
Nú stofnaðir þú félagið Kvarter
ehf. sem fer með 8,5 prósenta hlut
í R.E.D. Berlin Development. Setti
Glitnir ekkert út á það að þú skyld-
ir sjálfur persónulega taka þátt í
umræddu verkefni?
Svar: „Ég sótti um leyfi hjá bankan-
um að félagið mitt Kvarter fjárfesti
í verkefninu og var það samþykkt
af yfirmönnum bankans.“
Hvað varð um 800.000 EUR
greiðslu sem Glitnir sendi inn á
reikning Winter þann 25.03.2008?
Svar: „Einhver á vegum Glitnis
verður að svara þessari spurningu.“
Samkvæmt fyrirtækjaskrá sett-
ist þú og Axel Ómarsson í stjórn
Winter þann 01.06.2011. Hver er
skýringin á því?
Svar: „Vegna langrar reynslu okkar
í verkefninu vorum við beðnir um
að setjast í stjórn Winter ehf.“
Nú stofnaðir þú félagið Mynt ehf.
ásamt Axel Ómarssyni og Jóhanni
Ómarssyni. Í hvaða rekstri hefur
umrætt félag verið?
Svar: „Félagið hefur ekki verið í
rekstri um nokkurt skeið.“
Hver er staðan á umræddu R.E.D.
Berlin Development verkefni í
dag?
Svar: „Verkefnið er í biðstöðu
vegna hluthafadeilna milli ís-
lensku hluthafanna sem eiga
75,5% og Þjóðverjanna sem eiga
24.5%. Eignin er að mestu í útleigu
til ýmissa aðila.“
Er það rétt að búið sé að höfða
20 dómsmál gegn þér og Guð-
jóni Haukssyni í Þýskalandi vegna
málefna R.E.D. Berlin Develop-
ment?
Svar: „Mér er ekki kunnugt nein
dómsmál gegn mér persónulega.“
Hvaða fasteignir eru í dag undir
Klasi Investment Services?
Svar: „Engar.“
Nú hafa þeir Moritz Müller og
Klaus Wagner farið fram á að sér-
stakur saksóknari á Íslandi rann-
saki málefni R.E.D. Berlin Deve-
lopment. Telja þeir að þú, Axel
Ómarsson, Jóhann Ómarsson og
Guðjón Hauksson hafið brotið
lög. Hver er afstaða þín til ásakana
þeirra?
Svar: „Þetta er fjarstæða og leik-
flétta að hálfu þýsku hluthafanna
til þess að beina athyglinni frá
þeirri staðreynd að 17 dómsmál
eru ýmist unnin gegn þeim eða
í vinnslu. Samkvæmt minni vit-
und hafa engin lög verið brotin
hvorki hér né í Þýskalandi, hvað
þetta félag varðar af íslensku að-
ilunum.“
Hilmar Steinar Sigurðsson þvertekur fyrir brot:
Segir Íslendinga
fórnarlömbin
„Samkvæmt minni vitund
hafa engin lög verið brotin
hvorki hér né í Þýskalandi, hvað
þetta félag varðar af íslensku
aðilunum.
„Fyrir neðan
allar hellur“
n Neyðarhnappur konu á níræðisaldri óvirkur yfir helgina
n Engir tæknimenn hjá Vodafone sinntu málinu
B
ilun varð í símabúnaði
84 ára gamallar konu um
helgina. Bilunin olli því að
neyðarhnappur Guðnýjar
Sigurðardóttur varð óvirkur.
Hún býr ein og því olli bilunin skilj-
anlegum áhyggjum hjá aðstandend-
um Guðnýjar. Neyðarhnappurinn
gerir henni kleift að láta aðra vita af
sér ef að hún lendir í háska eða slas-
ast. Aðstandendur Guðnýjar höfðu
samband við Vodafone og báðu um
að tæknimenn myndu gera við bún-
aðinn. Engir tæknimenn hafa verið
kallaðir út og því var neyðarhnapp-
urinn óvirkur yfir helgina.
Þungar áhyggjur
„Hún býr ein og maður veit nátt-
úrulega aldrei hvað gæti gerst,“ seg-
ir Klara Harðardóttir, barnabarn
Guðnýjar, í samtali við DV. Neyðar-
hnappur Guðnýjar er fenginn frá Ör-
yggisþjónustunni, en hnappurinn er
tengdur við símalínur Vodafone og
því olli bilun í heimasíma Guðnýjar
því að hnappurinn varð óvirkur. Það
olli aðstandendum hennar þungum
áhyggjum enda aldrei að vita hve-
nær vá ber að garði. Á laugardag-
inn hafði frændi hennar samband
við þjónustuver Vodafone og vildi
hann að ráðist væri í að gera við sím-
ann hjá Guðnýju. „Honum var þá til-
kynnt að það væru engir tæknimenn
sem ynnu um helgar,“ segir Klara um
málið. Það var því ekki reynt að gera
við bilunina fyrr en eftir helgina.
Líta málið alvarlegum augum
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi hjá Vodafone, segir að mál-
ið sé litið mjög alvarlegum augum.
„Okkur þykir þetta að sjálfsögðu
ekki léttvægt á nokkurn hátt,“ segir
Hrannar í samtali við DV. Hann segir
að bilunin sé líklegast í búnaði sem
er að heimili Guðnýjar. Þá segir hann
að þetta sé einangrað tilvik. „Þetta
er allavega ekki bilun í símkerfinu,“
segir hann, en á vef Morgunblaðsins
kom meðal annars fram að bilunin
hefði verið í símkerfi Vodafone.
Hann segir að að tæknimenn
fyrirtækisins hafi ekki getað skoð-
að þetta tiltekna tilvik um helgina.
En tæknimenn séu jafnan kallað-
ir út þegar bilanir verði í símkerfinu
sjálfu. Á sunnudeginum sagði hann
að ráðist væri í að skoða búnaðinn að
heimili Guðnýjar strax eftir helgi. Þá
munu menn frá annað hvort Voda-
fone eða samstarfsaðilum fara í mál-
ið.
Gremst lítil viðbrögð
Klara segir að frændi sinn hafi lítil
viðbrögð fengið hjá Vodafone vegna
málsins. „Það var sama hvað hann
reyndi að útskýra fyrir þeim að það,
að skilja rúmlega áttræða konu eftir
eina án þess að hafa neyðarhnapp-
inn, geti haft alvarlegar afleiðing-
ar í för með sér. Það var bara ekki
hlustað á hann,“ segir Klara. Að-
standendum Guðnýjar gremst það
að ekki hafi verið komið til móts við
þau vegna þessa máls. „Mér finnst
þetta bara fyrir neðan allar hellur og
fólk á ekki að geta komist upp með
svona.“
Hrannar segir að málið verði
skoðað vandlega. „Við reynum að
greina svona mál vandlega og skoða
hvað við getum lært af þeim.“
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
„Hún býr
ein og
maður veit nátt-
úrulega aldrei
hvað gæti gerst.
Tengt í símalínu Neyðarhnappar líkt og sá sem er á heimili Guðnýjar eru tengdir í
símalínu. Ef símasamband rofnar verður hnappurinn óvirkur. MyNdiN TENGiST EfNi fréTTariNNar Ekki BEiNT.
Óvirkur neyðarhnappur Klara Harðardóttir og amma
hennar, Guðný Sigurðardóttir. Neyðarhnappur Guðnýjar var
óvirkur yfir helgina þar sem að tæknimenn frá Vodafone
komust ekki í að sinna bilun í símabúnaði hennar. aðSENd MyNd