Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Qupperneq 8
Jón fagnar
útnefningu
„Ég fagna því innilega að Reykjavík
skuli hafa verið valin bókmennta-
borg UNESCO. Þetta er mikill heið-
ur fyrir Reykjavík. Íslendingar eru
þekktir fyrir listir og menningu úti
um allan heim og þetta er staðfest-
ing á því hvað menning okkar er
verðmæt. Af öllum okkar auðæfum
er menningin dýrmætust,“
segir Jón Gnarr borgar-
stjóri.
Í útnefningunni
kemur fram að Reykjavík
státi af framúrskarandi
bókmenntahefð
og eru þar Ís-
lendingasögurn-
ar, Eddukvæði
og Íslendinga-
bók nefnd sér-
staklega. Þessi
rótgróna hefð
sýni sig í varð-
veislu, miðlun,
bókmennta-
kennslu og
kynningu bók-
mennta í dag,
að því er segir
í tilkynningu frá
Borginni.
8 | Fréttir 8. ágúst 2011 Mánudagur
Spurningar Lilju
Þingmaðurinn Lilja Mósesdóttir
hefur óskað eftir fundi með seðla-
bankastjóra í efnahags- og skatta-
nefnd. Þar vill
hún ræða ný-
leg útboð sem
Seðlabankinn
réðst í sem lið í
afnámi gjald-
eyrishafta. Hún
vill líka ræða
gagnrýni OECD
á peningastefnu
bankans, sem fram kom í nýlegri
skýrslu, en þar segir meðal annars
að ekkert land eyði meiru í banka-
kerfið en Ísland, að Írlandi frátöldu.
Þá vill Lilja ræða kosti þjóðarinnar í
gjaldmiðilsmálum í ljósi vandans á
evrusvæðinu.
É
g á engan aur lengur, það er
bara búið að hreinsa reikn-
inginn,“ segir Einar Bjarna-
son sem hugðist taka út líf-
eyrissparnað sem hann átti
inni hjá Lífeyrissjóðnum Gildi, í síð-
ustu viku. Hann greip hins vegar í
tómt. Í ljós kom að kona, sem hann
kann engin deili á, hafði tekið út all-
an sparnað á hans nafni þann 16.
ágúst árið 1967. „Ég hef aldrei nokk-
urn tíma heyrt um þessa konu. Ég
veit ekki hver þetta er. Ég sagði svona
í gríni við starfsmanninn að þetta
gæti heldur ekki verið neitt ævin-
týri úr Glaumbæ. Ég hef aldrei verið
það drukkinn að ég hafi skrifað und-
ir eitthvert umboð fyrir einhverja
konu,“ segir Einar hlæjandi. Hann
getur ekki annað en slegið á létta
strengi vegna málsins, svo fáránlegt
er það.
Greiddi í Lífeyrissjóð sjómanna
Einar hefur búið og starfað er-
lendis nánast allt sitt líf. Honum
reiknast til að hann hafi unnið í 32
löndum, lengst af fyrir þýska ferða-
skrifstofu. Hann býr núna í Mar-
okkó þar sem hann rekur gisti-
heimilið Villa Zahara. Á sumrin á
menntaskólaárunum starfaði Einar
þó sem háseti hjá Eimskipafélaginu
og greiddi hann þá í Lífeyrissjóð sjó-
manna. Sá sjóður hefur nú verið
sameinaður Lífeyrissjóðnum Fram-
sýn undir nafninu Gildi.
„Nú er ég komin heim því það
þarf að vesenast í þessum lífeyris-
sjóðsmálum áður en ég kemst á elli-
laun. Mér hafði ekki dottið í hug að
kanna þetta fyrr, en það var búið að
ráðleggja mér að gera þetta svolítið
áður,“ segir Einar sem átti 65 ára af-
mæli á sunnudaginn þegar blaða-
maður ræddi við hann.
Konan skráð maki Einars
Einar fór á nokkra staði til að
grennslast fyrir um inneign sína í
lífeyrissjóðum á Íslandi og síðasti
staðurinn sem hann fór á var Gildi.
Á þeim stöðum sem Einar hafði farið
á var eingöngu flett upp í gögnum á
tölvutæku formi. Starfsmaður Gildis
var hins vegar sá fyrsti sem vildi at-
huga málið frekar í eldri gögnum frá
því fyrir tíma tölvunnar. „Ég skal bara
fara niður í kjallara, sagði aumingja
maðurinn, og leita í þessum gögn-
um.“ Einar ber starfsmanni Gildis
vel söguna og segir hann hafa verið
allan af vilja gerðan til að aðstoða
hann. „Svo komum við daginn eft-
ir og þá var maðurinn búinn að fara
niður í kjallara og fletta í þessum
milljónum af skjölum og var með
eitt skjal í höndunum þar sem búið
var að færa inn á allar inngreiðslur
mínar í lífeyrissjóðinn. Þar var skrif-
að inn á að ákveðin kona hefði feng-
ið útborgaðar þessar greiðslur þann
16. ágúst 1967. Það er ári áður en ég
fór til útlanda að læra og vinna.“ Kon-
an er skráð sem maki Einars á skjal-
inu, en hann hefur aldrei verið gift-
ur. Nafn konunnar kemur eingöngu
fram en ekki nafnnúmer hennar eða
kvittun fyrir úttektinni. Starfsmaður
sjóðsins á þeim tíma virðist hafa fært
nafn hennar inn á skjalið.
Kvittun ætti að vera til
Starfsmaður Gildis ætlar á næstu
dögum að fara í gegnum fleiri gömul
skjöl fyrir Einar og reyna að komast
til botns í málinu. Hann tjáði Einari
að konan hlyti að hafa skrifað und-
ir einhverja kvittun. „Hann sagði
að konan hefði aldrei getað fengið
þessa peninga án þess að að skrifa
undir eitthvað.“
Upphæðin sem um ræðir er ekki
há en Einar greiddi í sjóðinn í þrjú og
hálft ár. Þetta voru 4.089 krónur og
68 aurar. Sé miðað við gengi dagsins
í dag er upphæðin margföld og nem-
ur hundruðum þúsunda sé gert ráð
fyrir vöxtum á upphæðina.
Ætlar að kæra málið
Þrátt fyrir að 44 ár séu síðan um-
rædd kona sveik lífeyrissparnað Ein-
ars út úr sjóðnum ætlar hann ekki
að láta kyrrt liggja. Starfsmaðurinn
sagði að Einar yrði að kæra málið
og það hyggst hann gera. „Við vitum
náttúrulega ekki ennþá hver þessi
kona er en hann ætlar að reyna að
grafa það upp fyrir miðvikudaginn
hver þessi manneskja gæti verið og
hvernig hún komst inn í minn lífeyr-
issjóð,“ segir Einar. Starfsmaðurinn
var, að sögn Einars, alveg jafn gáttað-
ur á málinu og hann. „Hann sagði að
á öllum sínum starfsferli hefði hann
aldrei séð neitt þessu líkt.“
Aðeins sést í eitt dekk rútunnar sem
sökk í Blautulónum á laugardag.
Tuttugu og tveir tékkneskir ferða-
menn voru á ferðalagi þegar slysið
varð en helmingur þeirra var í rút-
unni þegar hún sökk. Þeir farþeg-
ar sem voru í rútunni komust út af
sjálfsdáðum en ljóst er að ekki mátti
miklu muna að mjög illa færi. Rauði
krossinn í Vík kom upp fjöldahjálp-
arstöð og tók á móti fólkinu á laug-
ardagskvöld. Voru farþegar meðal
annars látnir fá þurr föt og gefinn
kostur á að hringja heim til Tékk-
lands og segja ættingjum og vinum
frá því sem gerðist.
Farangur fólksins var í rút-
unni þegar hún sökk, en aðfaranótt
sunnudags var hópur kafara kallaður
út og köfuðu þeir eftir farangrinum.
Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni
á Hvolsvelli, sem fer með rannsókn
málsins, gekk það ágætlega, en aðal-
atriðið var að ná í það sem fólkið get-
ur illa verið án, svo sem föt og slíkt.
Í samtali við DV síðdegis á sunnu-
dag sagði varðstjóri lögreglu að
rannsókn væri á algjöru frumstigi.
Stefnt var að því á sunnudag að taka
skýrslu af fararstjóra hópsins og öku-
manni rútunnar, en varðstjóri sagð-
ist ekki getað tjáð sig um tildrög þess
að rútan ók út í lónið. Blautulón eru
á Fjallabaksleið nyrðri en um er að
ræða smávötn skammt frá fjallinu
Gretti. Rútan liggur á botni lónsins
en stefnt er að því að ná henni á þurrt
eins fljótt og kostur er.
Dekkið sést Eins og sést á þessari mynd
stendur einungis eitt dekk rútunnar upp úr
lóninu. MynD ODDur EiríKssOn
Hópur tékkneskra ferðamanna hætt kominn við Blautulón:
Kafarar sóttu farangurinn
skjalið Starfsmaður Gildis fann gögn um
lífeyrissparnað Einars í gömlum skjölum.
Í ljós kom að reikningurinn hafði verið
tæmdur fyrir 44 árum.
Gáttaður Einar Bjarnason varð heldur betur hissa þegar hann ætlaði að taka út lífeyris-
sparnaðinn. Ókunnug kona, skráð sem maki Einars, var búin að tæma reikninginn.
H&n-MynD Gunnar GunnarssOn
Óþekkt kona rændi
lífeyrissparnaðinum
n Einar Bjarnason greip í tómt þegar hann ætlaði að taka út lífeyrissparnað
n í ljós kom að kona sem hann kann engin deili á tæmdi reikninginn árið 1967
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Ég hef aldrei nokk-
urn tíma heyrt um
þessa konu. Ég veit ekki
hver þetta er.
safnað fyrir sveltandi börn:
„Þakka þér
fyrir að rusla
mér upp“
„Þakka þér fyrir að rusla mér upp.
Þetta var eins og gott lag – 3 mínút-
ur,“ sagði glaðbeittur Geir Ólafsson
söngvari eftir skák sína við Doniku
Kolica í Ráðhúsi Reykjavíkur. Geir
lagði sitt af mörkum í söfnun fyrir
sveltandi börn í Sómalíu og hrósaði
börnunum í Ráðhúsinu fyrir frábæra
frammistöðu. Á hádegi á sunnu-
dag höfðu fimm hundruð þúsund
krónur safnast í átakinu sem renna
óskiptar til Rauða krossins. Í heild-
ina hafa safnast hátt í 30 milljónir.
Tilgangur maraþonsins var að
safna fé fyrir sveltandi börn í Sómal-
íu þar sem mikil hungursneyð ríkir.
„Það er gaman að sjá hversu margir
hafa mætt hérna í morgun og tekið
daginn snemma. Það gekk mjög
vel í gær [laugardag], við höfðum
sett okkur það takmark að ná hálfri
milljón, en það náðist næstum hálf
milljón í gær,“ segir Stefán Bergsson,
framkvæmdastjóri Skákakademíu
Reykjavíkur, á sunnudag.
Hæsta einstaka framlagið nam
40 þúsund krónum, en það kom frá
Daða Guðmundssyni, gamalli skák-
kempu.
Allir peningar sem safnast renna
til kaupa á vítamínbættu hnetu-
smjöri, sem notað er til að hjúkra
sveltandi börnum í Sómalíu.