Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Qupperneq 13
Fréttir | 13Mánudagur 8. ágúst 2011
L
ánsloforð Byggðastofnunar til
Ökugerðis Íslands grundvall-
ast, samkvæmt heimildum
DV, á fyrra lánsloforði stofn-
unarinnar til Motopark-skýja-
borgarinnar sem átti að rísa á sama
svæði. Stofnunin hafði lofað há-
marksláni til framkvæmda við gerð
Motopark-svæðis við Grindavíkur-
veginn þar sem byggja átti kappakst-
ursbrautir og hótelmannvirki. Ekkert
varð úr áformunum.
Eins og DV hefur greint frá stofn-
uðu þeir Páll Guðfinnur Harðarson,
eigandi Nesbyggðar ehf., og Sturla
Böðvarsson, fyrrverandi samgöngu-
ráðherra, fyrirtækið Ökugerði Ís-
lands í júlí 2010. Fyrirtækið vinnur
nú að gerð ökugerðis á sama land-
svæði og Motopark átti að rísa.
Heimildir DV herma að fyrra lánslof-
orð Byggðastofnunar standi óhagg-
að, það hafi einungis færst á milli
fyrirtækja. Sturla Böðvarsson situr
í stjórn Byggðastofnunar sem og í
lánanefnd stofnunnarinnar á sama
tíma og hann er stjórnarformaður
Ökugerðis Íslands.
Fjöldi gjaldþrota
Páll Guðfinnur Harðarson, eigandi
Ökugerðis Íslands, í gegnum félögin
Nesbyggð ehf. og Nesbyggð eignar-
haldsfélag, er með að minnsta kosti
átta gjaldþrot á bakinu. Byggða-
stofnun hefur gefið Ökugerði Íslands
lánsloforð að andvirði 200 milljón-
ir króna, en það er hámarkslán frá
stofnuninni. Samkvæmt eigin lána-
reglum ber Byggðastofnun að skoða
viðskiptasögu fyrirtækja og eigenda
þeirra. Heimildir DV herma að láns-
loforðið til Ökugerðis Íslands standi
þrátt fyrir fjölmörg gjaldþrot fyrir-
tækja í eigu sama aðlila.
Auk þess að hafa tekið þátt í
stofnun Ökugerðis Íslands var Sturla
Böðvarsson fyrsti framkvæmdastjóri
félagsins og eini prókúruhafinn þeg-
ar það var stofnað í júlí í fyrra. Sturla
var skipaður í stjórn Byggðastofn-
unar rétt rúmum mánuði áður en
Ökugerði Íslands var stofnað og situr
ennþá í stjórn. Þá hefur Sturla nýlega
setið í nefnd sem skipuð var af iðn-
aðarráðuneytinu og var falið að end-
urskoða lánastarfsemi stofnunarinn-
ar. Heimildir DV herma að Sturla sé
leppur fyrir eigendur Nesbyggðar.
Óvanalegt sé að fyrirtæki með slíka
viðskiptasögu fái lán frá stofnuninni.
Sturla á móti breytingum
„Ég get ekkert sagt um það og
ekki mitt að svara því,“ sagði
Sturla í samtali við DV fyrir
stuttu þegar hann var inntur
eftir því hvaða veð verði lögð
fram fyrir láninu. Byggða-
stofnun hefur legið undir
ámæli í gegnum tíðina fyr-
ir að veita lán gegn ótrygg-
um veðum. Þetta var á
meðal þess sem rætt var í
lánanefndinni sem Sturla
sat í en heimildir DV herma
að hann hafi ásamt fleiri stjórnar-
mönnum úr Byggðastofnun viljað
stíga varlega til jarðar í breytingum á
lánastefnu stofnunarinnar. Svo virð-
ist sem áherslur þeirra hafi náð yfir-
höndinni.
Áætlað er að nemendur muni
greiða að minnsta kosti 35 þúsund
krónur fyrir að nota aðstöðu Öku-
gerðis Íslands. Sem samgönguráð-
herra barðist Sturla fyrir því að sett
yrðu lög sem skylduðu ökunema til
þess að læra í ökugerði. Árið 2010
tóku slík lög gildi. Ökukennarafélag
Íslands sótti um lán hjá Byggða-
stofnun fyrir starfsemi ökugerðis úti
á landi árið 2008 en þeirri umsókn
var hafnað. Í niðurlagi í svarbréfi
stofnunarinnar sagði: „Þá virðist
verkefnið við fyrstu sýn ekki falla vel
að starfssviði stofnunarinnar.“
Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri
Byggðastofnunar, hefur sagt í samtali
við DV að það sé ekkert athugavert
við setu Sturlu í stjórn Byggðastofn-
unar á sama tíma og fyrirtæki sem
hann er stjórnarformaður í þiggi lán
frá stofnuninni.
Motopark-draumur lifir
Motopark-skýjaborgin skildi eftir
sig miklar skuldir þrátt fyrir að ekk-
ert yrði úr draumunum. Einkahluta-
félagið Toppurinn innflutningur
ehf. og Reykjanesbær gerðu með sér
samkomulag um lóðarleigusamn-
ing á byggingarlandinu til 75 ára, frá
og með 1. júní 2006. Þann 26. júní
sama ár gaf VBS út 200 skuldabréf,
samtals virði eins milljarðs króna,
til tryggingar á lánum bankans til
Toppsins. Árni Sigfússon, bæjar-
stjóri í Reykjanesbæ, skrifaði undir
lóðarleigusamninginn við Toppinn.
Eigendur Toppsins, sem eiga
sér langa sögu gjaldþrota og van-
skila, fengu þannig milljarð króna
í lán frá VBS, sem ekki var greitt til
baka. Tryggingin fyrir láninu var
veð í landinu sem Reykjanesbæ hef-
ur aftur verið afhent veðlaust. Óljóst
er hvort byggingarlandið sjálft verði
aftur sett að veði, nú fyrir láni hjá
Byggðastofnun.
Motopark-draumurinn er ekki
dauður úr öllum æðum. Í kynn-
ingarbæklingi fyrir æfinga- og öku-
nema á Íslandi sem gefinn var út
af Ökugerði Íslands í mars í fyrra
segir orðrétt: „Í framtíðinni verður
hægt að nota svæðið sem þjónustu-
svæði fyrir kappakstur og bílastæði
ef svo færi að kappakstursbraut sem
hönnuð hefur verið og var áætlað að
yrði staðsett fyrir neðan ökugerðið á
sínum tíma yrði byggð.“
Engar breytingar Heimildir DV herma að Sturla Böðvarsson hafi haft lítinn áhuga á því að breyta lánafyrirkomulagi Byggðastofnunar
þegar hann sat í lánanefnd stofnunarinnar.
n Lánsloforð Byggðastofnunar til Ökugerðis Íslands grundvallast á loforði til Motopark-draumóramanna
n Viðskiptasaga lántakenda í báðum tilfellum svört n Motopark-draumurinn lifir enn í gegnum Ökugerði Íslands
Motopark-skýjaborg
færir Sturlu lánsloforð
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
„ Í framtíðinni verð-
ur hægt að nota
svæðið sem þjónustu-
svæði fyrir kappakstur og
bílastæði ef svo færi að
kappakstursbraut sem
hönnuð hefur verið og var
áætlað að yrði staðsett
fyrir neðan ökugerðið á
sínum tíma yrði byggð.
Mögulegt veð? Óljóst er hvort byggingarlandið sjálft
verði aftur látið sem veð fyrir láni Byggðastofnunar.
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun