Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Síða 14
Gott verðlag n Viðskiptavinur Allans á Siglufirði vildi senda lof en þar keypti hann sér hamborgara á 1.200 krónur en með honum fylgdu franskar og kokteil- sósa. Hún kvaðst hafa verið mjög ánægð með matinn og fannst verð- lagið gott. „Sérstaklega í ljósi þess að á veitingastað sem er hinum megin við götuna kost- aði sambærileg máltíð 1.750 krónur. Ég sá ekki betur en það væri svipaður borgari og fékkst á All- anum en tek þó fram að hef ekki smakkað ham- borgarann hinum megin við götuna.“ Sælgæti í tíma og ótíma n Lastið að þessu sinni fær N1 fyrir vegabréfaleik sinn. „Þetta er í sjálfu sér ágætishugmynd en hún er hræðilega framkvæmd. Börn sem verða sér úti um vegabréf geta farið í tíma og ótíma og náð sér í stimpil og góðgæti með sem verðlaun. Ef verðlaunin væru dót eða eitthvað hollt væri þetta í lagi en þau geta valsað út á næstu bensínstöð og náð sér í sælgæti og koffínríka drykki að vild. Ég er alls ekki sátt við þetta fyrirkomulag,“ segir ósáttur neytandi. 14 | Neytendur 8. ágúst 2011 Mánudagur E ld sn ey ti Bensín Dísilolía Algengt verð 239,8 kr. 239,8 kr. Algengt verð 239,6 kr. 239,6 kr. Höfuðborgarsv. 239,5 kr. 239,5 kr. Algengt verð 239,8 kr. 239,8 kr. Algengt verð 242,8 kr. 240,7 kr. Melabraut 239,6 kr. 239,6 kr. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Þrífum krukkurnar vel Sultugerð er eitt af haustverkunum á mörgum heimilum. Þótt sumarið sé ekki alveg búið þá fara berin brátt að spretta og þá er gott að vera búinn að undirbúa sig. Þeir sem hafa safnað glerkrukkum til að setja sultur í geta farið að þrífa þær en það er ýmis- legt sem þarf að huga að. Á heima- síðu Leiðbeiningastöðvar heimil- anna segir að nauðsynlegt sé að þvo og hreinsa krukkur og lok mjög vel. Annars geti bakteríur komist á kreik og dafnað en það vill enginn. Eins auki það geymsluþol að vanda til verka við þrifin, og hreinlæti við sultugerð er jafn mikilvægt og við aðra matargerð. Þá er bara að bíða Þ egar kemur að því að velja sér tölvu er mikilvægt að hafa rafhlöðuendingu og þyngd tölvunnar í huga. Nú er sá tími að renna upp þeg- ar nemendur flykkjast í tölvuversl- anir til að finna tölvu sem nota skal við námið í vetur. Verslanirnar eru farnar að bjóða skólatilboð en það getur væntanlega reynst erfitt að vita hvað skal velja. Tölvur eru dýr fjár- festing og því mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvað maður þarf og í hvað nota skuli gripinn. DV hef- ur sett saman upplýsingar um hvað hafa ber í huga þegar kemur að vali réttu tölvunnar og naut aðstoðar Óskars Þórs Óskarsson, viðskipta- stjóra Tölvulistans, og Hafþórs Helga Hjörvarssonar, framkvæmdastjóra Tölvuteks. Rafhlöðuending og þyngd Það sem kaupendur ættu að hafa efst í huga er rafhlöðuending og þyngd. „Það sem hefur helst verið að breyt- ast upp á síðkastið er að það er allt- af meiri og meiri áhersla lögð á raf- hlöðuendinguna í fartölvum. Í dag getur hún verið allt að 10 tímum og þá helst í fistölvunum, 10 til 12 tommum. Þær eru með lághita ör- gjörva sem gerir að verkum að tölv- an eyðir minna rafmagni. Þær duga þó vel til skólavinnslu,“ segir Óskar en bætir við að það sé þó spurning hvort þú viljir vinna við 10 tommu skjá allan daginn. Stærð tölvunnar „Val á stærð tölvunnar er að sjálf- sögðu einstaklingsbundið en ég mundi ekki velja minni en 12 til 13 tommur. Það er ofboðslega hentug stærð og þá ertu líka kominn í létt- ari tölvur eða um það bil 1,4 til 1,6 kílógrömm,“ segir Óskar. Hann seg- ir að ef þú veljir 15 tommu tölvu þá sértu kominn í þyngdina 2,3 til 2,6 kílógrömm og að það muni um hvert kíló í skólatöskunni. Rafhlaðan Fólk þarf að vita í hvað tölvan skal notuð áður farið er í búðina. „Þegar kemur að rafhlöðunni þarf að taka mið af því hvað maður ætlar að gera við tölvuna. Stærri og hraðari diskar og stærra skjákort éta upp meira raf- magn. Rafhlöður verða sífellt betri og ef það er rétt hugsað um þær ættu þar að endast í 3 til 4 ár. Það borgar því sig að hugsa vel um þær og með- höndla þær á réttan hátt. Nýjar raf- hlöður eru dýrar. Til að ná sem lengstum líftíma rafhlöðunnar er best að hlaða hana til fulls í fyrsta skiptið. Það getur tekið allt upp í 10 til 14 tíma. Klára skal þá hleðslu og hlaða hana í 5 til 6 tíma. Mikilvægt er að tæma vélina reglulega. Sé tölvan alltaf á sama stað og ekki notuð sem fartölva er æskilegt að taka rafhlöðuna úr henni og láta tölvuna ganga með því að vera tengd rafmagni. Ef vel er farið með rafhlöð- una endist hún lengur.“ Skjákort Annað hvort eru tölvur með skjástýr- ingu sem er innbyggð í móðurborðið og samnýtir vinnsluminni tölvunn- ar eða skjákort sem notar sitt eigið vinnsluminni. Þær tölvur eyða yfir- leitt meira rafmagni. Aðspurður um áhrif skjákorta á rafmagnsendingu segir Óskar að í litlu tölvunum sé oft- ast innbyggð skjástýring sem eyði minna rafmagni. Við hefðbundna skólavinnu eigi skjákortin ekki að skipta máli en annað gildi þó ef tölv- an er mikið notuð í tölvuleiki. Hann segir að helstu skjákortin séu nVidia og ATI/AMD. Stýrikerfi Stýrikerfið sem er í nýjum vélum fyr- ir einstaklinga er Windows 7 Home Premium og í litlum fartölvum Win- dows 7 Starter. Harði diskurinn Í fistölvunum er 160 til 250 gígabæta diskur. Óskar segir það alveg nóg fyr- ir skólavinnu því word- og excelskjöl taki ekki svo mikið pláss. „Ef þú lend- ir í vandræðum með plássið getur þú alltaf leyst það með því að fá þér útværan harðan disk eða það sem er kallað flakkari. Þeir fást í 500GB og upp úr og tengjast við tölvu með usb-tengi. Þá þarf ekki að burðast um með straumbreyti. Verð er frá um það bil 10.000 krónum og þar með hefur þú tvöfaldað geymsluplássið í tölvunni,“ segir hann og bætir við að fólk ætti því ekki að láta diskastærð- ina stoppa sig. Hafðu þetta í huga við tölvukaupin Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is N ú er það venjan að allir eigi fartölvu sem unnið er á í tímum og við heimanám- ið. Það er því gott að hafa þekkingu á vinnutækinu sínu en Hafþór Helgi Hjörvarsson, fram- kvæmdastjóri Tölvuteks, útskýrir hér nokkra hluti tölvunnar sem vert er að þekkja áður en haldið er í tölvu- leiðangur: Örgjörvi l er einn mikilvægasti hluti tölvunnar en hann er í raun heilinn sem reiknar, framkvæmir og ræður mestu um afl tölvunnar. Vinnsluminni l er sá hluti tölvunnar sem geymir upplýsingar á meðan verið er að vinna úr þeim og skila þeim áfram l því meira vinnsluminni því meiri hraði á vinnslu. Nýjustu fartölvunar eru með 6GB eða 8GB og er það æskileg stærð í dag. Harður diskur l er sá hluti sem geymir gögn til lengri tíma en því stærri diskur því meira af efni er hægt að geyma, eins og kvikmyndir, tónlist, skjöl og fleira. Nýjustu fartölvunar í dag eru með 640GB eða stærri diska en það er mjög æskileg stærð því þá er öruggt að fólk sé með nýjustu harðdiska- tækni þegar kemur að hraða, orkusparsemi og endingu. Skjákort l er eitthvað sem er vert að skoða vel ef nýta á fartölvuna í tölvuleiki. Í nýjustu fartölvunum eru ný skjákort sem eru með alveg nýja tækni, „Hann segir að ef þú veljir 15 tommu tölvu þá sértu kominn í þyngdina 2,3 til 2,6 kíló- grömm og að það muni um hvert kíló í skólatösk- unni. n Í dag er áhersla lögð á rafhlöðuendingu tölvunnar n Annað mikilvægt atriði er þyngd hennar n Mikilvægt er að hafa þessi atriði í huga þegar kaupa skal tölvu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.