Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Page 19
Í
nýjustu kvikmynd Woody Al-
len segir frá manni sem dreymir
um að hafa verið uppi í kringum
1920 í Parísarborg. Þegar draum-
urinn svo ræstist hittir hann mann-
eskju sem dreymir um að hafa ver-
ið uppi 30 árum fyrr. Þegar þau loks
hafa fundið leiðina þangað kemur í
ljós að helstu listamenn tímabilsins,
Gauguin og Degas, dreymir um að
hafa verið uppi á endurreisnartím-
anum.
Vafalaust eiga margir sér eitt-
hvert uppáhaldstímabil sem þeir
vildu hafa verið uppi á. Ég og marg-
ir af minni kynslóð sáum hippatím-
ann í dýrðarljóma. Þegar ég var rétt
að komast á unglingsár árið 1989 var
Woodstock-hátíðin endurvakin og
menn sökktu sér ofan í 20 ára gamla
tónlist. Þess vegna finnst mér kostu-
legt í dag að sjá unglinga með hárið
blásið upp í loft og slagorð rökuð aft-
an á hnakkann, gullkeðjur um háls-
inn og hlustandi á Vanilla Ice eða Pu-
blic Enemy eins og það sé 1989 á ný.
Hvers vegna tók ég svona illa eftir á
sínum tíma?
Framtíðarlandið
Eins er það með þjóðir og ein-
staklinga. Flestar þjóðir eiga sér ein-
hvers konar gullöld, þótt ímynduð
sé. Ítalir hafa gert það að líta um öxl
að listgrein, eins og reyndar á við um
flest sem þeir taka sér fyrir hendur.
Þeir eiga sér minnisvarða um gull-
aldir Rómaveldis og endurreisnar-
tímann svo landið allt virðist eitt
stórt safn, en í höndum Berlusconis
er framtíðin minna glæst.
Bandaríkin voru lengi land fram-
tíðarinnar. Þar var engin glæst forn-
öld til að grobba af, í staðinn var
horft fram veginn. En nú hefur þetta
snúist við, nútíminn er óöruggur en
í staðinn má víða sjá minnisvarða
um Elvis og Marilyn Monroe, Kadil-
jáka og Diners, frá þeim tíma þegar
Bandaríkin réðu heiminum á borði
jafnt sem í orði. Einhvern veginn hef-
ur framtíðin runnið þeim úr greip-
um.
Á Íslandi er okkur strax frá blautu
barnsbeini sagðar sögur frá gullöld-
inni, þegar við sigldum um heimsins
höf og réðumst á Íra og Indjána eins
og okkur lysti, og skrifum þess á milli
merkustu bókmenntaverk mann-
kynssögunnar, svo bætt sé aðeins í.
Íslenska lýðveldið var jú að einhverju
leyti stofnað í kringum þessa glæstu
fornöld og endurheimt hennar.
Hin íslenska gullöld
En var þetta endilega svo heppi-
legur tími til að vera uppi á? Á vík-
ingatímanum var jú stór, jafnvel
meirihluti landsmanna þrælar, og á
Sturlungaöld fóru höfðingjar um með
hernaði og brenndu bú smábænda
sem fæddust í vitlausum firði. Lík-
legra er að maður hefði fæðst sem
ánauðarbóndi eða þræll en Gunnar á
Hlíðarenda, væri maður sendur aftur
í Íslandssöguna. Það sama má segja
um aðrar gullaldir, hvort sem það var
í Flórens eða Róm. Sumir áttu allt of
mikið, og vel flestir næstum ekki neitt.
Þannig er það og hefur alltaf verið.
Ef gullöldina er ekki að finna í fjar-
lægri fortíð er hún staðsett einhvers
staðar í framtíðinni. Bæði sósíalísk
útópía Karls Marx og góðærisútópía
frjálshyggjunnar áttu að færa okkur
inn í heim þar sem allir höfðu allt
til alls. Kristnin boðaði einnig slíkan
heim, þó ekki fyrr en eftir dauðann.
En raunverulegar gullaldir, þar sem
fleiri höfðu það gott en skítt, eru ekki,
og hafa aldrei, verið til.
Það eina sem við getum verið viss
um er að tilveran er og mun áfram
vera bölvað basl. En við getum samt
gert það besta úr þessu og þrátt fyrir
allt skapað okkur framtíð sem er ögn
skárri en það sem við nú búum við.
Við lifum nú einu sinni á áhugaverð-
um tímum. Það er okkar bölvun, en
um leið einnig einhvers virði.
Umræða | 19Mánudagur 8. ágúst 2011
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt um helgina?
„Já, ég kíkti í Kolaportið og gerði góð kaup.“
Sigrún Sveinsdóttir
28 ára saumakona
„Já, ég naut veðurblíðunnar með fjöl-
skyldunni.“
Rúna Vigdís Guðmarsdóttir
verkefnisstjóri hjá Háskóla Íslands
„Já, ég sá Gay Pride-gönguna og kíkti á
ættarmót.“
Ágústa Fanney Snorradóttir
24 ára nemi
„Já, ég fór á Gay Pride-gönguna og hafði
gaman af.“
Aldís Greta Bergdal
15 ára nemi
„Já, ég fór á ættarmót og sá Gay Pride-
gönguna.“
Kolbrún Snorradóttir
21 árs nemi
1 Bílslysið var upphafið að endinum Gunnar Þorsteinsson,
um fyrra hjónaband sitt í viðtali
í helgarblaði DV.
2 Atli horfinn Lítið hefur borið á þingmanninum Atla Gíslasyni
að undanförnu.
3 „Ég þurfti að vera lengi í öndunarvél“ Jónas Kristjáns-
son, fyrrverandi ritstjóri og
bloggari, fór í erfiða hjartaað-
gerð.
4 Skemmtistað lokað vegna ölvunar starfsmanna Nokkrir
starfsmenn skemmtistaðar á
Ísafirði voru ölvaðir að störfum.
5 Ástarsögur neikvæðar fyrir sambandið Rómantískar
bókmenntir hafa neikvæð áhrif
á ástarsambönd, samkvæmt
rannsókn.
6 Hinsegin fordómar Skop-teikning Henrýs Þórs Baldurs-
sonar eftir Hinsegin daga um
helgina.
7 Sést í dekkið á rútunni í Blautulónum Rúta með tékk-
neska ferðamenn innanborðs
sökk í Blautulónum.
Mest lesið á dv.is
Myndin Töfrar Hörpu Tónlistarhúsið Harpa skartaði sínu fegursta á fallegum sumardegi í síðustu viku. Skipin í höfninni
spegluðust í rúðum hennar sem gáfu hálf brenglaða mynd af veruleikanum. Mynd GunnAR GunnARSSon
Maður dagsins
Fjöldinn nálg-
ast þolmörk
Júlíus Júlíusson
Júlíus Júlíusson, framkvæmda-
stjóri Fiskidagsins mikla segir há-
tíðina skipta gríðarlegu máli fyrir Dalvík
og Dalvíkinga. Fiskidagurinn mikli var
haldinn í ellefta sinn um helgina.
Hver er maðurinn?
„Júlíus Júlíusson, Dalvíkingur og fram-
kvæmdastjóri Fiskidagsins mikla.“
Hvar ert þú alinn upp?
„Ég er alinn upp á Dalvík.“
Hvað drífur þig áfram?
„Bjartsýni, skemmtilegt fólk og kærleikurinn
drífur mig áfram.“
Hvað finnst þér best að borða?
„Mér finnst fiskur bestur og þessa helgina er
það góð dalvísk fiskisúpa.“
Hvað er skemmtilegast við
Fiskidaginn?
„Það er svo rosalega margt skemmtilegt
við Fiskidaginn en sérstaklega skemmtileg
er stemningin og andrúmsloftið og þá
sérstaklega í undirbúningnum. Það gerist
eitthvað, verður til undarleg orka og allir
fara á fullt.“
Hvernig hefur undirbúningurinn
gengið?
„Undirbúningurinn hefur gengið ótrúlega
vel. Hér hafa um 300 sjálfboðaliðar gert
þetta kleift. Þetta eru nánast alltaf sömu
sjálfboðaliðarnir og menn eru farnir að
kunna sína rullu mjög vel svo þetta gengur
smurt.“
Hafa vinsældir hátíðarinnar komið
ykkur á óvart?
„Já og nei. Í upphafi var lítill kjarni sem
byrjaði á þessu og hafði trú á að hátíðin gæti
orðið mjög stór. Samt kannski ekki alveg
jafn stór og raun ber vitni, en samt stór.“
Geta dalvíkingar tekið endalaust
við fólki?
„Kannski ekki endalaust, en mannfjöldinn
dreifist. Það eru á milli 12–14 þúsund manns
sem hér gista en aðrir keyra hingað og svo
aftur til baka. Á ákveðnum tímapunktum er
þetta samt farið að nálgast þolmörk.“
Hvaða máli skiptir svona útihátíð
fyrir lítið bæjarfélag eins og dalvík?
„Gríðalega miklu máli. Ekki bara á meðan
Fiskidagurinn stendur yfir heldur vekur
þessi hátíð mikla samkennd allt árið. Hér
er dalvískt tímatal, fyrir og eftir Fiskidag.
Síðan Fiskidagurinn hófst er bærinn líka
mun snyrtilegri. Við höldum Allt í lag fyrir
Fiskidag og hvetjum fólk til að mála, klippa
runna, skreyta og gera fínt í kringum sig.
Þessi orka sem alltaf myndast í kringum
daginn er ótrúleg og fólk er duglegt að gera
fínt. Við erum miklu meiri heild fyrir vikið.“
Gullaldir mannkyns
Dómstóll götunnar
Kjallari
Valur
Gunnarsson„Þess vegna finnst
mér kostulegt í
dag að sjá unglinga með
hárið blásið upp í loft
og slagorð rökuð aftan
á hnakkann, gullkeðjur
um hálsinn og hlustandi
á Vanilla Ice eða Public
Enemy eins og það sé
1989 á ný.