Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Page 22
22 | Úttekt 8. ágúst 2011 Mánudagur
T
veir eru þeir heimar
sem löngum hafa átt
meira sameiginlegt en
eðli þeirra gefur tilefni
til og eru það heimur
rokksins eða dægurtónlistar
almennt og heimur tískunnar
með sínum ofurfyrirsætum,
fegurðardrottningum og oft á
tíðum skjásnoppum. Með smá
dassi af fólki sem hlotið hefur
frægð fyrir afar óskilgreind og
gjarna óljós afrek eða hæfi-
leika sem oftar en ekki eru
áhöld um.
Kannski má með sanni
segja að frægir tónlistarmenn
og fyrirsætur séu eins konar
þjáningarsystkin sem geta lif-
að hinu ljúfa lífi, gengið eftir
rauða dreglinum sem liggur
inn í svonefndar VIP-hæginda-
stofur og baðað sig í glysi og
glamúr. En sá böggull fylgir
skammrifi að ljósmyndarar
slúðurblaða hafa verið settir
þeim til höfuðs og fylgja þeim
eftir eins og úlfahjörð til að
fullnægja undarlegri þörf hins
sauðsvarta almúga sem nærist
á fréttum af frægu fólki sem lif-
ir og hrærist í veröld sem gæti
ekki verið fjær veröld meðal-
jónsins þó hún væri í öðru sól-
kerfi.
Hvað sem þessum vanga-
veltum líður eru þess fjölmörg
dæmi að popparar og fyrir-
sætur eða fegurðardrottningar
hafi fellt hugi saman og á sund-
um er engu líkara en sumum
hverjum hugnist ekki að leita
hófanna utan fyrirsætuheims-
ins í leit að lífsförunaut.
Frægur, frægari …
Eðli málsins samkvæmt til-
heyra umræddum hópum
misfrægir einstaklingar. Í þeim
er að finna ofurrokkara og of-
urfyrirsætur en einnig minni
spámenn.
Á meðal frægari rokktón-
listarmanna sem bundu trúss
sitt við fræga fyrirsætu, ekki
bara einu sinni heldur tvisvar,
er píanistinn og hnefaleikar-
inn fyrrverandi Billy Joel.
Stjarna Billys reis hvað hæst
undir lok áttunda áratugar og
á níunda áratug tuttugustu
aldar. Árið 1983 sendi Billy frá
sér plötuna Innocent Man og
á henni var að finna lagið Up-
town Girl. Við vinnslu plöt-
unnar tókust kynni með hon-
um og fyrirsætunni Christie
Brinkley og ályktuðu margir að
lagið væri samið til hennar en
sú ku ekki hafa verið reyndin.
Billy hafði nefnilega áður ver-
ið í sambandi með stallsystur
Christie, Elle Macpherson, og
leiddar hafa verið að því getur
að lagið hafi verið samið með
hana í huga öðrum konum
fremur. Christie lék hins veg-
ar stórt hlutverk í myndbandi
lagsins og hún og Billy rugluðu
saman reytum árið 1985.
Billy og Christie voru bæði
nánast órjúfanlegur hluti ver-
aldar fræga fólksins á níunda
áratugnum en glóðin í sam-
bandi þeirra kulnaði og þau
slitu sambandi sínu endanlega
árið 1994.
Axlapúðar og
glansfatnaður
Um miðjan níunda áratug
síðustu aldar gerðist einhver
fjandinn í heimi tískunnar og
að sumu leyti tónlistarinnar.
Eflaust hrista margir karlmenn
höfuðið og klóra sér í kollin-
um þegar þeir hugsa til baka
og rifja upp innihald fataskáps
síns á þeim tíma.
Tónlistarfólk og aðrir frægð-
armenn voru í broddi fylkingar
og engu líkara en tískusýning-
ar væru þeirra ær og kýr. Einn
var sá sem naut mikilla vin-
sælda á þessum tíma, Simon
LeBon, söngvari hljómsveit-
arinnar Duran Duran. Hljóm-
sveitin var þá á hátindi ferils
síns og frægðar og háði hat-
ramma baráttu um vinsældir
við dúettinn Wham, sem líkt
og Duran Duran var barn síns
tíma. En það er önnur saga.
Simon LeBon krækti sér í
Yasmin Parvaneh, fyrirsætu
af breskum og írönskum upp-
runa. Þannig var mál með vexti
að LeBon hafði í mestu mak-
indum blaðað í gegnum tíma-
rit og hnotið um ljósmynd
af Yasmin. LeBon gat ekki á
sér heilum tekið í kjölfarið og
hafði samband við umboðs-
skrifstofu Yasmin til að hafa
upp á henni.
Simon LeBon hafði erindi
Það verður að teljast eðlilegt að fólk
leiti sér maka, og finni, innan þeirrar
hringiðu sem einkennir líf þess. Bók-
hneigt fólk fellir oft hugi saman;
sameiginleg trú kann að tengja fólk
órofa böndum og ýmis áhugamál; hesta-
mennska, skák, íþróttir og fleira, kunna að
reynast hinn besti grunnur að endingargóðu
hjóna- eða sambandi. Hvað tengir tónlistarmenn og
tískufyrirsætur er ekki gott að segja, en engu að síður eru
þess mýmörg dæmi að fólk úr þessum geirum, sem eru
að mörgu leyti afar ólíkir, laðist hvert að öðru þannig að úr
verði varanlegt samband.
Músíkantar
og módel
Bítilssonur við skák-
borðið Sean Lennon
ásamt ástkonu sinni og
félaga, Charlotte Kemp
Muhl. Myndir reuters
„Eins og málum er háttað nú
gætu fyrrverandi kærastar
hennar stofnað hljómsveit saman;
The Ex’s, Hinir fyrrverandi, og hver veit
nema fjöldinn gæti nægt til að stofna
stórhljómsveit þegar fram líða stundir.