Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Síða 26
26 | Fólk 8. ágúst 2011 Mánudagur
Fallegt
fjölmiðlapar
Matreiðslumaðurinn og fyrir-
sætan Reynir Örn Þrastar-
son hefur vakið athygli hjá
kvenþjóðinni síðan hann
gekk til liðs við Lottó-þulina
í janúar síðastliðnum. Færri
vita kannski að Reynir Örn er
kærasti fréttakonunnar knáu
Helgu Arnardóttur á Stöð 2.
Reynir Örn hefur leikið í fjölda
auglýsinga, bæði íslenskra og
erlendra. Þau Helga eru bæði
stórglæsileg og taka sig vel út á
skjánum og eru því án efa eitt
flottasta par landsins.
Vinkonur
á spjalli
Sjónvarpskonan Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir og söng-
konan Birgitta Haukdal vöktu
athygli vegfarenda þegar þær
sátu saman fyrir utan kaffihús-
ið Laundromat í Austurstræti
á föstudaginn. Vinkonurnar
ræddu málin yfir kaffibolla og
litla dóttir Ragnhildar var með
í för. Þær hafa lengi verið nán-
ar vinkonur og lýsti Birgitta
vinskap þeirra meðal annars
í DV fyrir nokkrum árum. Þá
sagði hún að þrátt fyrir að þær
væru mjög ólíkar ættu þær
margt sameiginlegt. „Ég held
að við séum mjög líkar í hjart-
anu. Við gerum allt saman
og hlæjum oft af því hvað við
hugsum eins,“ sagði Birgitta
meðal annars um vinkonu
sína Ragnhildi í viðtalinu.
Uppákæddur borgarfulltrúi
Rokkarinn, bóksalinn og borgar-
fulltrúinn Óttar Proppé klæddi sig
samkvæmt tilefni dagsins.
Allt stappað í göngunni Gay Pride-gangan er búin að sprengja af sér Laugaveginn og þurfti því að fara frá BSÍ,
inn Sóleyjargötu, inn Lækjargötu og að Arnarhóli.
Kátar með borgarstjóranum
Jón Gnarr var klæddur sem fröken
Reykjavík.
Sannkölluð gleði Það var mikið um dýrðir í bænum á laugardaginn
H
insegin dagar voru
haldnir í Reykjavík í
þrettánda sinn um
helgina en á laugar-
daginn var haldin
tólfta gleðigangan. Þúsundir
manna mættu í gönguna sem
er búin að sprengja utan af sér
Laugaveginn. Var því í fyrsta
sinn haldið af stað frá BSÍ og
gengið inn Sóleyjargötu að
Lækjargötu og þaðan inn að
Arnarhóli. Þar fóru síðan fram
magnaðir tónleikar þar sem
komu fram meðal annars Páll
Óskar, Lay Low, Bloodgroup
og erlendar sveitir á borð við
Never the bride og MaryJet.
Gay Pride-lagið í ár sló
líka í gegn en það var sungið
af Heru Björk, Haffa Haff og
rapparanum Erpi Eyvindar-
syni, betur þekktum sem Blaz
Roca. Mikið var um dýrð-
ir bæði á tónleikunum og í
göngunni en spákonan Sigríð-
ur Klingenberg kom til dæmis
í gervi Heru Bjarkar og dans-
aði með á sviðinu. Eftir erfitt
sumar fóru veðurguðirnir í
sparifötin en glampandi sól
var og sólskin á laugardaginn
þegar gleðigangan fór fram.
Eins og í fyrra klæddi
borgarstjórinn Jón Gnarr sig
í kvenmannsföt en hann lék
fröken Reykjavík. Fór hann
á kostum eins og honum
einum er lagið og vildu
krakkar ólmir fá mynd af sér
með uppáklæddum borgar-
stjóranum. Borgarfulltrúinn
Óttar Proppé sem seint hefur
verið hræddur við að klæða
sig á einstakan hátt var
einnig mættur í kvenmanns-
dressi.
Gríðarlegt fjör var í borg-
inni um helgina þar sem
litadýrð og gleði setti mikinn
svip á mannlífið. Það er lítið
annað að gera en að leyfa
myndum ljósmyndarans
Gunnars Gunnarssonar að
segja restina af sögunni.
n Hinsegin dagar voru haldnir um helgina með pomp og prakt n Þúsundir í magnaðri
gleðigöngu sem hófst á nýjum stað n Borgarstjórinn klæddur sem fröken Reykjavík
Geggjaðí gleðigöngunni!
Fór á kostum Lay Low sló í
gegn á tónleikunum á Arnarhóli.
Engum líkur Stuðboltinn Haffi
Haff átti sviðið á Gay Pride.
Fyrirmynd í heimalandinu
Söngkonan MaryJet er opinber-
lega samkynhneigð og mikil fyrir-
mynd hinsegin fólks í Svíþjóð.
Rokkarar Never the bride sló í gegn
með lögum eftir Janis Joplin og fleiri.
Þrjár flottar Vala Grand, að taka
upp myndband fyrir þáttinn sinn á
bleikt.is, með Siggu Kling og annarri
sem voru að herma eftir Heru Björk.
Alltaf flott Díana Ómel
lét sig auðvitað ekki vanta.
Fjölskyldudagur Þessi styðja réttindi
samkynhneigðra. Hvað með þig?
Ekki að mótmæla Birna Þórðar-
dóttir lætur alltaf í sér heyra.
Díva Hera Björk söng Gay Pride-lagið í
ár ásamt Haffa Haff og Blaz Roca.
M
y
n
D
iR
G
U
n
n
A
R
G
U
n
n
A
R
SS
o
n
Latibær og
Þriðja ríkið
Tónlistarmaðurinn Pétur Örn
Guðmundsson hefur fjörugt
ímyndunarafl ef marka má
Facebo-
ok-færslu
hans á
dögunum:
„Það er
eitthvað
smá krípí
við að sjá
öll litlu
börnin í
Latabæjar-
búningunum, svona rétt eins
og þau viti eitthvað sem við
fullorðna fólkið vitum ekki.
Síðast þegar búningar voru
svona vinsælir hjá börnum, í
Þýskalandi á fjórða áratugn-
um, þá fór nú ekki vel. Góðan
daginn annars.“ Skilja mætti
að söngvarinn hefði eitthvað
á móti Latabæ en svo er víst
alls ekki.