Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Page 29
Fólk | 29Mánudagur 8. ágúst 2011
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
Um svipað leyti og spjallþátta-
stjórnandinn Ellen DeGeneres
var sögð vera á Íslandi var hún í
Hollywood í verslunarferð. Enda
kom fljótlega í ljós að Ellen var
ekki á Íslandi heldur þýskur túr-
isti sem er tvífari hennar. Ellen
var í innkaupaferð fyrir heimilið
ásamt eiginkonu sinni Portiu de
Rossi. Þær giftu sig í ágúst 2008
en töluverður aldursmunur er á
þeim. Ellen er 52 ára gömul en de
Rossi 37 ára. Þær litu báðar vel út
en de Rossi hefur lengi glímt við
anorexíu. Hún hefur undanfarin
misseri náð góðum bata. Það var
frægt þegar de Rossi lék í þátt-
unum Ally McBeal að hún féll í
yfirlið á tökustað.
Kelly Osbourne var stór-
hneyksluð á samlöndu sinni,
Kate Middleton, fyrir að nota
fötin sín oftar en einu sinni.
Þessu sagði hún Jay Leno frá
þegar hún kíkti í heimsókn til
hans í síðustu viku en hún er
þekkt fyrir að liggja ekki á skoð-
unum sínum. Breska pressan
hefur dáðst að því að Middleton
skuli nota fötin sín oftar en einu
sinni opinberlega. Kelly finnst
það hins vegar fásinna. „Ef ég
ætti svona mikinn pening þá
myndi ég bara nota fötin einu
sinni og henda þeim svo. Það er
fáránlegt að nota þau aftur.“
Jay spurði Kelly þá hvort hún
myndi henda nærfötunum sín-
um líka eftir að hafa notað þau
einu sinni. „Já, það er reyndar
alveg frábær hugmynd,“ svaraði
Kelly þá. „Kona í hennar stöðu
ætti ekki að nota sömu fötin
oftar en einu sinni. Ef ég væri
í hennar stöðu myndi ég ekki
gera það. Ef ég væri tilvonandi
drottning Englands og ætti að
gefa allt mitt einkalíf upp á bát-
inn þá myndi ég sko vilja fá nýj-
an kjól fyrir hvern einasta hel-
vítis dag,“ sagði Kelly sem þykir
ekki sú penasta í talsmáta.
Þ
að var heldur óvæntur hópur manna
sem mætti saman á strandklúbb-
inn Club 55 í St. Tropez á frönsku
rívíerunni fyrir helgi. Þar voru á
ferðinni Elton John og eiginmaður
hans David Furnish og Neil Patrick Harris
ásamt unnusta sínum David Burthka. Allir
eiga þeir það sameiginlegt að vera nýlega
orðnir feður. Og að sjálfsögðu voru erfingj-
arnir með í för.
Elton og David eiga soninn Zachary sem
er sjö mánaða en Neil og David eiga tví-
burana Gideon og Harper sem eru níu mán-
aða. Hópurinn komu saman á stærðarinnar
glæsisnekkju.
Bæði pörin eignuðust börnin með hjálp
staðgöngumæðra en mikil umræða hefur
verið um staðgöngumæðrun hér á landi
undanfarin misseri.
Portia og
Ellen
Voru ekki á
Íslandi eftir
allt saman.
Í verslunarferð með konunni:
Ellen í
Holly-
wood
Endurnýtir! Kate hefur verið lofuð af erlendum
fjölmiðlum fyrir að vera nýtin. Yfirleitt sést fólk
í hennar stöðu ekki oftar en einu sinni í sömu
fötunum en Kate er óhrædd við að nota fötin.
Kelly Osbourne finnst að Kate Middleton eigi bara að nota fötin sín einu sinni:
Hneyksluð á Kate
Skilur ekkert í Kate Kelly sagði
Jay Leno frá því hversu fáránlegt
henni fyndist að Kate notaði sömu
fötin oftar en einu sinni. „Ef ég væri í
þessari stöðu þá myndi ég aldrei gera
það.“
Elton John og Neil Patrick Harris í St. Tropez:
Elton John og Neil Patrick
Harris Ásamt mökum og börnum
sínum í St. Tropez á frönsku rívíerunni.
Pabbahittingur af dýrari gerðinni Snekkjur og strand-
klúbbar eru kannski ekki hefðbundni staðurinn fyrir pabbahitting.
Stoltir
feðurHefnerinn plankar