Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2011, Blaðsíða 4
4 Fréttir 21. nóvember 2011 Mánudagur
Jólabjórinn rokselst
n Fyrstu þrjá dagana seldust tæplega 42 þúsund lítrar
F
yrstu þrjá dagana seldust tæp-
lega 42 þúsund lítrar af jólabjór,“
segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir,
aðstoðarforstjóri Vínbúðanna.
Á þessum árstíma flykkjast áhuga-
menn um bjór í verslanir til að verða
sér úti um jólabjórinn, en hann fór í
sölu síðastliðinn þriðjudag. Að sögn
Sigrúnar hefur salan farið vel af stað,
eins og við var að búast, en á þriðju-
dag seldust um tíu þúsund lítrar.
Mikill dagamunur er á því hversu
margir viðskiptavinir leggja leið sína
í Vínbúðirnar. Þannig eru fyrstu sölu-
tölur í ár ekki alveg samanburðarhæf-
ar við fyrstu sölutölur í fyrra. Ástæðan
er sú að þá kom jólabjórinn í verslan-
ir á fimmtudegi en þá er jafnan mun
meira að gera en til dæmis á þriðju-
dögum.
„Fyrstu þrjá dagana í fyrra seldust
um 70 þúsund lítrar,“ segir Sigrún og á
þar við fimmtudag, föstudag og laug-
ardag. Fyrsta daginn í fyrra seldust
um 19 þúsund lítrar. Sigrún tekur það
skýrt fram að hlutverk Vínbúðanna
sé ekki að selja meira magn af áfengi.
Hlutverk þeirra sé fyrst og fremst að
þjónusta viðskiptavini og reyna að
koma til móts við þá eins og best er
hægt.
Í fyrra seldust nokkrar tegundir
upp og var Tuborg Julebryg ein þeirra.
Í ár er hann hins vegar bruggaður á Ís-
landi og ættu bjórþyrstir landsmenn
ekki að lenda í sömu sporum og í
fyrra þegar hann seldist upp löngu
fyrir jól. Sigrún segir þó að það sé eðli
jólabjórsins að hann sé framleiddur
í takmörkuðu magni. „En við gerum
til dæmis ráð fyrir að Tuborg komi í
meira magni en í fyrra.“ einar@dv.is
www.omnis.is444-9900
Nú getur þú borið saman epli
og appelsínur á einum stað.
- Við þekkjum tölvur
REYKJAVÍK Ármúli 11
REYKJANESBÆR AKRANES BORGARNES
M
ikill ótti greip um sig meðal
foreldra á Akureyri á
fimmtudag eftir að nokkrir
einstaklingar töldu sig hafa
séð til Ágústs Magnússonar,
dæmds barnaníðings, í bænum. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur Ágúst
ekki verið á Akureyri eins og haldið
hefur verið fram og málið virðist á mis-
skilningi byggt.
Hyggst kæra til lögreglu
Fréttirnar um að Ágúst væri á Akureyri
fóru um eins og eldur í sinu um netið
og þar var einnig nafngreindur maður
að nafni Gísli Wendel Birgisson sem á
að hafa verið kunningi Ágústs og leyft
honum að dvelja á heimili sínu. Gísli
var sjálfur upphrópaður barnaníð-
ingur á spjallborði og sagður hafa átt
barnklám í tölvu sinni.
Lögreglan á Akureyri kom að heim-
ili Gísla á fimmtudag þar sem ekki
fannst neitt sem studdi þessar fullyrð-
ingar og segist Gísli ætla að leita réttar
síns og kæra málið til lögreglunnar. „Ég
þekki þennan Ágúst ekki neitt. Þetta er
bara eins og með Lúkasarmálið sem
kom upp hérna á Akureyri 2007, menn
eru teknir af lífi á internetinu út af ein-
hverri móðursýki sem myndast. Ég er
sagður vera með barnklám í tölvunni
minni en ég á ekki einu sinni tölvu og
hef aldrei átt. Ég ætla ekki að sitja und-
ir þessum rógburði og ætla að kæra
málið til lögreglunnar.“
Líflátshótanir og mannorðsmorð
Gísli segir erfitt að sitja undir slíkum
ásökunum og hann hafi varla treyst sér
út fyrir hússins dyr síðan málið kom
upp. „Maður er bara búinn að vera
í hálfgerðu taugaáfalli hérna og líða
mjög illa. Þegar það er búið að nafn-
greina mann á internetinu og bendla
við mál af þessu tagi líður manni auð-
vitað ekkert vel. Ég hef heyrt að lífláts-
hótanir hafi verið í gangi og annað sem
hafi beinst að mér og ég ætla ekki að
sitja undir því. Ég get ekkert annað en
farið með þetta til lögreglunnar. Þetta
er ekkert annað en mannorðsmorð.“
Að sögn Gísla hafa hafa ættingjar
hans einnig verið dregnir inn í þetta
mál og nafngreindir í tengslum við
það. „Ég er bara hættur að skilja nokk-
urn skapaðan hlut. Þetta mál er með
ólíkindum.“
„Ótrúleg móðursýki í gangi“
Nágrannakona Gísla sagði í samtali
við DV mikinn fjölda fólks hafa keyrt
framhjá íbúðarhúsinu eftir að kvittur-
inn um veru Ágústs þar komst á kreik
og fólk hafi jafnvel hringt dyrabjöllum
og spurt um hann. Hún sé hins vegar
fullviss um að Ágúst hafi aldrei verið
þar og gagnrýnir þær aðfarir og upp-
hrópanir sem Gísli hefur þurft að sitja
undir. „Það er spjallborð á netinu sem
margar mæður á Akureyri skrifa gjarn-
an á og mér blöskrar það sem ég las þar
um Gísla. Hann er sagður vera barna-
níðingur og ég veit ekki hvað. Það er
ótrúleg móðursýki í gangi hérna og fólk
þarf að fara varlega í að fullyrða um
hluti sem það veit ekkert um.“
Lögregla segir múgæsing hafa
myndast
Gunnar Jóhannsson, lögreglufulltrúi
hjá lögreglunni á Akureyri, sagði í sam-
tali við DV á föstudag ekkert benda til
þess að Ágúst Magnússon hafi verið á
staðnum. „Við höfum ekkert orðið varir
við þennan mann á Akureyri. Svo virð-
ist sem hér hafi kviknað einhver múg-
æsingur.“ Hann segir enga ástæðu til
að rengja framburð Gísla en Gísli segist
ekkert þekkja til Ágústs.
Gunnar segir lögregluna ekkert geta
staðfest hvar Ágúst haldi sig en eftir að
hafa brugðist við fjölda ábendinga frá
óttaslegnum foreldrum hafi ekkert
komið fram sem gefi til kynna að óttinn
eigi við rök að styðjast. Gunnar segir að
sjálfsagt sé að vera á varðbergi gagnvart
barnaníðingum en bendir á að mikil-
vægt sé að fólk fari ekki fram úr sér og
sé ekki með ásakanir á hendur einstak-
lingum án þess að vera visst í sinni sök.
„Ég leyfi mér að líkja þessu við Lúk-
asarmálið sem kom hér upp um árið.
Fólk verður að fara að bera ábyrgð á
sínum málflutningi.“
n Grunur um veru barnaníðings á Akureyri talinn á misskilningi byggður n Lögreglan
varar við múgæsingi n Maður sem bendlaður var við Ágúst hyggst leita réttar síns
„Ekkert annað en
mannorðs orð“
„Ég leyfi mér að
líkja þessu við Lúk-
asarmálið sem kom hér
upp um árið.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Ógn Margir foreldrar á Akureyri urðu
óttaslegnir vegna orðróms um að Ágúst
Magnússon, dæmdur barnaníðngur, dveldi þar.
Á Akureyri Lögreglan á Akureyri segir
ekkert benda til þess að Ágúst hafi verið þar.
Jólabjórinn Meðfylgjandi mynd var
tekin þegar sérfræðingar DV um jólabjór
brögðuðu á bjórnum í ár. Mynd SiGtryGGur Ari
Annar hand-
tekinn vegna
skotárásar
Tveir menn eru nú í haldi lögreglu
í tengslum við rannsókn henn-
ar á skotárás við Bryggjuhverfið
á föstudagskvöld. Annar þeirra
hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 25. nóvember en yfir-
heyrslur yfir hinum standa yfir.
Mennirnir eru báðir á þrítugs-
aldri.
Lögreglan hefur einnig lagt
hald á bifreið sem talið er að
árásarmennirnir hafi verið á. Bíll-
inn fannst í sama borgarhluta og
árásin var gerð.
Fleiri manna er leitað í
tengslum við rannsókn málsins að
því er fram kemur í tilkynningu frá
lögreglu.
Of dýrt til
New York
Ódýrasta flug fram og til baka til
New York með Iceland Express til
9. janúar kostar rúmar 190 þúsund
krónur. Þetta sagði Heimir Már
Pétursson, upplýsingafulltrúi Ice-
land Express, í samtali við frétta-
stofu Ríkisútvarpsins. Félagið
þurfti að fella niður flug til New
York í dag, mánudag.
Heimir Már sagði að ástæðan
sé sú að of dýrt sé fyrir félagið að
fljúga til New York eins og staðan
er í dag. Félagið tilkynnti fyrir
skömmu að það myndi hætta flugi
þangað frá 9. janúar til 28. mars.
Líkt og fyrr segir kostar ódýrasta
flugið fram og til baka til New York
með Iceland Express 190 þúsund
krónur en félagið ætlar að leita
allra leiða til að lækka það verð að
sögn Heimis Más. Hann sagði að
farþegum sem áttu bókað flug til
New York á morgun verði komið
á leiðarenda með öðrum hætti.
Hann sagði næsta flug til New
York, á fimmtudag, vera í skoðun.
DV0811263446_staekkud