Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2011, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2011, Blaðsíða 11
Fréttir 11Mánudagur 21. nóvember 2011 A rion banki mun að öllum lík- indum leysa Blikastaðaland- ið í Mosfellsbæ til sín á næstu vikum út af 6,6 milljarða veði sem bankinn á í landinu. Bleiksstaðir, eigandi Blikastaðalands- ins, sem er 150 hektarar að stærð, keypti landið af eignarhaldsfélaginu EAV ehf. fyrir 65 milljónir evra, rúm- lega 6,2 milljarða á þávirði, í febrúar 2008. Kaupþing fjármagnaði viðskipt- in. Bleiksstaðir er að 80 prósenta leyti í eigu eigu Holtasels, móðurfélags verk- takafyrirtækisins Eyktar. Eigandi Eykt- ar er Pétur Guðmundsson, sem jafn- framt er stjórnarformaður þess. Í ársreikningi Bleiksstaða fyrir árið 2009 segir að vafi leiki á rekstrarhæfi félagsins. Félagið tapaði 2,3 milljörð- um króna það árið og var eigið fé þess neikvætt um tæpa fimm milljarða. Í ábendingu De loitte, endurskoðanda félagsins, segir að félagið uppfylli ekki skilyrði lánasamninga sinna og að Ar- ion banki hafi gjaldfellt lán félagsins árið 2009: „Af því gefnu að ekki náist samningar við lánveitanda er rekstrar- hæfi félagsins brostið,“ segir í ábend- ingu Deloitte. Heildarskuldir félagsins námu rúmum 12 milljörðum króna í lok árs 2009. Væntanleg yfirtaka Ar- ion banka á Blikastaðalandinu þarf því ekki að koma á óvart. Þegar Blikastaðalandið var selt til Bleiksstaða í ársbyrjun 2008 stóð til að byggja um 1.800 íbúðir á svæð- inu. Reiknað var með að íbúðirnar seldust á næstu sjö til tíu árum þar á eftir. Íslenska efnahagshrunið setti strik í reikninginn hjá Eykt, líkt og hjá flestum öðrum verktakafyrirtækjum í landinu, og varð ekkert af því að hafist væri handa við þessa miklu uppbygg- ingu á svæðinu. Ljúka við endurskipu- lagningu sína Pétur Guðmundsson, eigandi Eyktar og tengdra félaga, segir að félög sem tengjast Eykt, meðal annars Höfða- torg ehf., sem byggði Höfðatorgs- bygginguna við Borgartún sem hýsir meðal annars stjórnsýslu Reykjavík- urborgar að hluta, hafi átt í viðræð- um við Íslandsbanka um fjárhags- lega endurskipulagningu. Félög sem tengjast Eykt skulduðu rúmlega 40 milljarða króna í árslok 2009. Þar af skuldaði Höfðatorg ehf. nærri 22 milljarða króna. Pétur undirstrikar að Eykt sjálft hafi ekki þurft á fjárhagslegri endur- skipulagningu að halda – félagið var með jákvætt eigið fé upp á rúmlega 300 milljónir króna í lok árs 2009 – heldur önnur félög sem tengjast verktakafyrirtækinu. „Eykt hefur ekki þurft á neinni fjárhagslegri end- urskipulagningu að halda. Einhver af þeim félögum sem tengjast Eykt hafa verið að vinna að fjárhagslegri endurskipulagningu sinni, eins og til dæmis Höfðatorg og Bleiksstaðir.“ Heimildir DV herma að þessum við- ræðum sé lokið hvað varðar Höfða- torg ehf. DV hefur ekki heimildir fyrir því hvað felst í niðurstöðu end- urskipulagningarinnar. Pétur segir aðspurður að hann geti ekki svarað því á þessum tíma- punkti hvort Bleiksstaðir muni áfram eiga Blikastaðalandið. „Það verður bara að koma í ljós. Ég get ekki tjáð mig um það á þessu stigi.“ Líkt og áður segir má búast við því að Arion banki leysi landið til sín. Blikastaðalandið og einkavæðingin Blikastaðalandið var í eigu Íslenskra aðalverktaka þegar ríkið seldi 40 prósenta hlut sinn í fyrirtækinu til þáverandi æðstu stjórnenda verk- takafyrirtækisins árið 2003. Eftir einkavæðinguna kom í ljós að land- ið hafði verið vanmetið þegar ís- lenska ríkið seldi hlutinn í Íslensk- um aðalverktökum. Verðmatið á Blikastaðalandinu fyrir einkavæð- ingu árið 2002 var tæplega 900 millj- ónir króna. Í ársreikningi Íslenskra aðalverktaka árið 2003 hafði ver- ið framkvæmt „sérstakt endurmat“ á landinu þar sem verðmat þess hækkaði upp í tæplega 4,5 millj- arða króna. Blikastaðalandið var svo selt til Bleiksstaða fyrir rúma 6 milljarða króna árið 2008. Meira en fimm milljarða munur var því á bók- færðu verðmæti landsins þegar ríkið seldi hlut sinn í fyrirtækinu og þegar kaupendurnir seldu Blikastaðaland- ið til Eyktar 2008. Hæstiréttur dæmdi einkavæð- ingu Íslenskra aðalverktaka ólög- mæta í maí 2008, meðal annars á þeim forsendum að stjórnendur verktakafyrirtækisins hefðu verið fruminnherjar í fyrirtækinu og að þeir hefðu ekki átt að koma að sölu þess með þeim hætti sem þeir gerðu. Blikastaðalandið lék stórt hlutverk í málinu þar sem talið var að stjórn- endur Íslenskra aðalverktaka hefðu vitað að jörðin var vanmetin í bók- um fyrirtækisins og því hefðu þeir vitað að hlutur ríkisins var verðmet- inn of lágt. Helstu stjórnendur Íslenskra að- alverktaka, meðal annars Stefán Friðfinnsson forstjóri og Jón Sveins- son stjórnarformaður, voru gagn- rýndir í dómnum fyrir aðkomu sína að einkavæðingarferlinu en þeir störfuðu náið með þeim aðila, eign- arhaldsfélaginu EAV, sem keypti hlut ríkisins í Íslenskum aðalverktökum. Jón sat jafnframt í einkavæðingar- nefnd þegar gengið var frá sölunni á hlut ríkisins. n Blikastaðalandið til Arion banka n Keypt fyrir rúma 6 milljarða n Landið tengist ólögmætri einkavæðingu ÍAV Mun leysa til sín Blikastaðalandið Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is 6,2 milljarða lán Kaupþing, sem Hreiðar Már Sigurðsson stýrði, lánaði Bleiksstöðum rúma 6 milljarða króna til að kaupa Blikastaðalandið árið 2008. Skýrist á næstu vikum Á næstu vikum skýrist hvort Arion banki muni leysa til sín Blikastaðalandið svokallaða á milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur frá dótturfélagi Eyktar. Líklega mun bankinn leysa landið til sín. „Ég get ekki tjáð mig um það á þessu stigi Forvarnarátak Nei-hreyfingar: 10 ráð til að koma í veg fyrir nauðgun „Þótt hún skipti um skoðun í miðjum klíðum, ekki nauðga henni,“ segir í ráðum sem Nei – hreyfing gegn kynbundnu ofbeldi hefur tekið saman til að hjálpa fólki að forðast nauðganir. Hreyf- ingin stendur um þessar mundir fyrir forvarnarátaki sem beint er að ungu fólki og er markmiðið að höfða til ábyrgðarkenndar þess, um leið og almenningur er vakinn til vitundar um alvarleika kyn- bundins ofbeldis. Vilja aðstand- endur hreyfingarinnar meina að í umræðu um nauðganir og kyn- ferðisofbeldi megi enn finna leifar af því viðhorfi að þolandinn beri að einhverju leyti ábyrgð á ofbeld- inu. Nei – hreyfingin vill hins vegar undirstrika ábyrgð gerenda og lið- ur í því var að dreifa veggspjöldum í allar félagsmiðstöðvar Reykjavíkurborg, mennta- og menningarmálaráðuneytið og innanríkisráðuneytið styrkja átakið. Samfés og framhaldsskóla landsins með þessum ráðum: 1. Þótt hún sé full eða meðvitundar- laus, ekki nauðga henni. 2. Þótt hún sé að labba einsömul heim um nótt, ekki nauðga henni. 3. Þótt þér finnist hún sæt, ekki nauðga henni. 4. Þótt hún minni þig á fyrrverandi kærustu þína, ekki nauðga henni. 5. Þótt hún sé sofandi í rúminu sínu, ekki nauðga henni. 6. Þótt hún sé sofandi í rúminu þínu, ekki nauðga henni. 7. Þótt hún skipti um skoðun í miðjum klíðum, ekki nauðga henni. 8. Þótt hana langi ekki til að sofa hjá þér, ekki nauðga henni. 9. Þótt þú haldir að hún sé skotin í þér, ekki nauðga henni. 10. Ef vinur þinn er að nauðga, stopp- aðu hann! Vilja reisa vindmyllur Tvær vindmyllur verða reistar við Búrfellsvirkjun á næsta ári. Fáist tilskilin leyfi verða þessar fimm- tíu metra háu vindmyllur settar upp á seinni hluta næsta árs. Var þetta tilkynnt á haustfundi Lands- virkjunar sem haldinn var í vik- unni. Í umfjöllun RÚV um málið á sunnudag var greint frá því að hér á landi sé tvöfalt meiri vindorka sem unnt er að beisla samanborið við önnur lönd. Þá var greint frá því að Landsvirkjun kanni hvort hagkvæmt sé að reisa fleiri vind- rafstöðvar á vandasömum svæð- um nálægt stöðum sem krefjast mikillar raforku og þjónustu. Hver vindmylla kostar tæpar tvö hundr- uð milljónir króna en sérfræðing- ar spá því að árið 2025 verði átta hundruð þúsund megavött beisl- uð með vindorku í heiminum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.