Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2011, Síða 6
6 Fréttir 21. nóvember 2011 Mánudagur
Keypti vörur fyrir sjálfa sig
n Kona á fertugsaldri dæmd fyrir að draga sér sex milljónir króna
K
ona á fertugsaldri var á fimmtu-
daginn síðastliðinn dæmd, í
Héraðsdómi Reykjaness, í 6
mánaða skilorðsbundið fang-
elsi fyrir að hafa dregið sér fé sem bók-
ari og gjaldkeri hjá fasteignasölunni
Hraunhamri í Hafnarfirði. Þá er henni
jafnframt gert að greiða fasteignasöl-
unni rúmar sex milljónir í skaðabætur
auk dráttarvaxta. Konan var ákærð fyr-
ir að hafa dregið sér rúmlega sex millj-
ónir króna með ýmsum hætti. Hún er
meðal annars talin hafa keypt vörur
fyrir sjálfa sig, meðal annars sjónvörp
og tölvuvörur á kostnað fyrirtækisins
að andvirði um 905 þúsund króna.
Þá var henni einnig gefið að sök að
hafa greitt þrjár milljónir króna fyrir
fasteign sem hún hafði sjálf fjárfest í
með peningum sem hún millifærði af
reikningi fasteignasölunnar, sem hún
var prókúruhafi fyrir. Konan er einnig
sögð hafa blekkt stjórnarformann fast-
eignasölunnar til að gefa út tékka með
því að leggja fyrir hann tilhæfulausa
reikninga. Konan leysti síðan út tékk-
ana og notaði í eigin þágu.
Konan hafði ekki áður gerst sek um
refsiverða háttsemi. Hún játaði ský-
laust brot sín og samþykkti að greiða
skaðabætur. Tekið var tillit til þess þeg-
ar refsingin var ákvörðuð.
Fyrir dómi bar konan að hún hefði
átt erfiða æsku og að heimilislíf henn-
ar hefði verið erfitt á þeim tíma sem
hún dró sér féð. Þá sagði hún málið
allt hafa haft mikil áhrif á sig og að hún
hefði meðal annars flutt úr landi vegna
þess. Þessi framburður konunnar varð
ekki til refsilækkunar eins og hún ósk-
aði eftir.
solrun@dv.is
www.omnis.is444-9900
HP ProBook langar með þér í skólann.
Opnunartilboð í tilefni af nýrri verslun
í Ármúla 11, aðeins 89.900 kr.
- Við þekkjum tölvur
REYKJAVÍK Ármúli 11
REYKJANESBÆR AKRANES BORGARNES
É
g þarf að éta meðul núna út af
lungunum, og þau hafa áhrif
á beinin sagði konan mér, svo
hún benti mér á að hringja og
fá beinþynningarmælingu.
Þar svaraði voða elskuleg kona sem
spurði mig hvað ég væri þungur. Ég
sagðist vera í kjörþyngd, eða rétt
rúmlega 100 kíló en þá sagðist hún
ekki getað tekið mig,“ segir maður
sem var vísað var frá beinþynning-
armælingu á Landspítala Háskóla-
sjúkrahúsi vegna þyngdar sinnar.
Hann fékk þær skýringar að mæl-
ingatækið væri orðið svo gamalt að
það réði ekki við fólk yfir 100 kílóum.
Vísað til Akureyrar
Manninum fannst þetta hálffyndið
og enn fyndnara fannst honum að
vera spurður hvort hann væri nokk
uð staðsettur á Akureyri eða þar í ná-
grenni. „Ég neitaði því en hún sagði
að þar væri nýtt tæki, þau í Reykjavík
hefðu hins vegar ekki fengið neitt,“
segir maðurinn og honum er greini-
lega skemmt yfir málinu. Honum
var bent á að prófa að hringja aft-
ur og panta tíma eftir hálft ár, því
þá væri vonandi komið nýtt mæl-
ingatæki. „Ég sagðist vona að bein-
in yrðu þá enn á sama stað. Þetta er
nú ekkert stórmál en það er kannski
rétt að láta athuga þetta,“ segir mað-
urinn sem gerir sér grein fyrir alvöru
málsins þó hann sjái spaugilegu
hliðarnar á því. Hann hefur þó ekki
enn farið í mælingu enda ekki átt
leið um Akureyri nýlega.
Stórir með sterk bein
Gunnar Sigurðsson, yfirlæknir á
innkirtladeild Landspítala Háskóla-
sjúkrahúss þar sem beinþynningar-
mælingar eru framkvæmdar, stað-
festir það í samtali við DV að ekki sé
hægt að taka við fólki yfir 100 kíló-
um í mælingu á spítalanum. „Tækja-
búnaðurinn sjálfur er orðinn það
lasburða. Tækið er orðið þrettán ára
og þolir ekki þessa þyngd.“
Hann segir þetta vissulega oft
skapa vandamál en það sé þó lán í
óláni að stórt og mikið fólk sé yfir-
leitt með sterk bein. Minnihluti
þeirra sem þarf að fara í beinþynn-
ingarmælingu er því yfir 100 kílóum,
að sögn Gunnars. „En það þarf þó
ekkert að vera. Það geta verið erfða-
þættir og ýmislegt sem veldur því
að þeir sem eru yfir 100 kílóum séu
með þunn bein.“ Lyfjanotkun eins
og í tilfelli mannsins er einn þeirra
þátta.
Ekki endurnýjað í bráð
„Þetta var auðvitað ekki svona en við
urðum að grípa til þessa fyrir um ári
fyrst tækið var orðið þrettán ára. Til
að það entist þá urðum við að tak-
marka það við þessi kíló. Það er af
illri nauðsyn,“ segir Gunnar. „Auð-
vitað vildum við geta sinnt þessu,“
bætir hann við.
Gunnar staðfestir það jafnframt
að ef nauðsyn krefur þá sé fólk sent
til Akureyrar í beinþynningarmæl-
ingu, en þar er nýlegra tæki sem
leyfir allt upp í 200 kíló.
Landspítalinn hefur verð þjakað-
ur af niðurskurði síðustu ár, deild-
um hefur verið lokað eða starfsemi
þeirra takmörkuð. Þá hefur lítið fjár-
magn fengist til tækjakaupa. Gunn-
ar segir beinþynningarmælingatæki
ekki vera ofarlega á lista spítalans
yfir tæki sem þarf að endurnýja eins
og staðan er í dag.
„Ég sagðist
vona að
beinin yrðu þá
enn á sama stað
Stórum og miklum
vísað til Akureyrar
n Fólk yfir 100 kílóum að þyngd fær ekki beinþynningarmælingu á Landspítalanum
n Tækið orðið 13 ára og þolir ekki svo mikla þyngd n Stendur ekki til að endurnýja tækið
Úreltur tækjakostur Beinþynn-
ingarmælingatæki á Landspítalanum
er komið til ára sinna og sjúklingum
yfir 100 kílóum er vísað frá.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Akureyri Tæki til að mæla beinþynn-
ingu er betra á Sjúkrahúsinu á Akureyri en í
Reykjavík – tekur 200 kíló.
Dæmdur í níu mánaða fangelsi:
Ofsaakstur
á morfíni
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
á föstudag mann á fertugsaldri í
níu mánaða fangelsi og til svipt-
ingar ökuréttinda í þrjú ár.
Maðurinn var dæmdur fyrir
að aka margsinnis undir áhrifum
fíkniefna, þjófnað, nytjastuld og
rangar sakargiftir, en hann gaf upp
nafn bróður síns í eitt skipti er lög-
reglan stöðvaði för hans og falsaði
nafn hans á lögregluskýrslu með
þeim afleiðingum að bróðir hans
var ákærður fyrir fíkniefnaakstur.
Eitt umferðarbrotanna sem
maðurinn var dæmdur fyrir stofn-
aði lífi annarra vegfarenda í hættu
á „ófyrirleitin hátt“ eins og kemur
fram í ákæru.
Þá keyrði
hann und-
ir áhrif-
um, var
óhæfur
til að
stjórna
bif-
reiðinni
örugglega
vegna áhrifa
amfetamíns og
morfíns án gildra ökuréttinda og
án þess að sinna stöðvunarmerkj-
um lögreglu. Annað umferðarbrot
mannsins endaði með ósköpum
þegar lögregla veitti honum eftir-
för en þá ók hann meðal annars
á móti umferð á 130 kílómetra
hraða þar sem hámarkshraði er 50
kílómetrar á klukkustund. Bifreið-
in kastaðist yfir á rangan vegar-
helming og yfirgaf hann bifreiðina
og vettvang án þessa sinna lög-
boðnum skyldum sínum, en lög-
reglumenn hlupu hann uppi og
handtóku skömmu síðar.
Hann var einnig dæmdur fyrir
þjófnaði en hann braust meðal
annars inn í auglýsingastofuna
Jónsson og Lemack við Laugaveg
og stal þaðan tölvum. Jafnframt
var hann dæmdur fyrir að stela
handtösku úr Baðhúsi Lindu sem
og innbrot í nokkur apótek þar
sem hann stal meðal annars lyfj-
um og fartölvum.
Maðurinn játaði brot sín ský-
laust fyrir dómi.
Dró sér fé Konan greiddi meðal annars
þrjár milljónir af reikningi fasteignasölunnar
upp í íbúð sem hún keypti.