Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2011, Qupperneq 15
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
Neytendur 15Mánudagur 21. nóvember 2011
n Líklega ein vanmetnasta lækningarjurt veraldar
Hættulegasti staðurinn
fyrir börnin á heimilinu
1 Loftaðu út Loftið vandlega út tvisvar til fimm sinnum á dag. Þá er átt við að opna alla glugga upp á
gátt og fá gegnumtrekk. Ekki er nóg að opna gluggann
örlítið yfir daginn.
2 Þrífðu her-bergið
reglulega Hluti skaðlegu
efnanna bindast við ryk svo
mikilvægt er að ryksuga og
þurrka af að minnsta kosti
einu sinni í viku. Ekki láta leikföngin liggja og safna ryki.
Skápar eru því betri hirslur en hillur. Pappír, bækur og teppi
safna í sig miklu ryki. Setjið bangsa í þvottavélina einu
sinni í mánuði.
3 Slökkvið á öllum tækjum Hafið
slökkt á öllum rafmagns-
tækjum að nóttu til. Hafið í
huga hvar raftækin eru
staðsett í herberginu og
slökkvið á þeim eftir notkun.
Þetta gildir einnig um
hleðslutæki fyrir síma og
tölvur. Þegar tækin hitna
gefa þau frá sér efni. Þetta er
sérstaklega hættulegt í
litlum herbergjum. Best er
að hafa sjónvarp barnanna
eða tölvur í öðru herbergi.
4 Lesið leiðbeiningar Sjáið til þess að börnin noti leikföng á réttan hátt. Lítil börn ættu ekki að
setja leikföng, sem ætluð eru eldri börnum, upp í munninn.
Slík leikföng geta innihaldið efni sem nefnast þalöt. Mesta
hættan af hættulegum efnum stafar af því þegar
leikföngin eru notuð á rangan hátt. Lesið ávallt leiðbein-
ingar.
5 Notaðu nefið Notið lyktarskynið þegar ný leikföng eru keypt. Varist að taka inn á heimilið
lyktarsterk leikföng. Þegar ný húsgögn eru keypt er gott að
láta þau standa úti í nokkra dag. Ef það er ekki hægt þá
skal lofta vel út eftir að umbúðir af húsgögnunum hafa
verið fjarlægðar.
6 Minnkaðu reyk og sprei Takmarkaðu kerti, reykelsi og spreivörur. Ef kveikt er á reykelsi skal láta
það loga í stutta stund, slökkva á því og lofta svo vel út.
Það fjarlægir mest af efnunum úr loftinu.
7 Engin leikföng með ilmefnum Mörg leikföng með ilmefnum innihalda efni sem geta
verið ofnæmisvaldandi og orsakað útbrot.
8 Hjálpaðu börnunum Ræðið um það við börnin hvernig
hægt er að komast hjá skaðlegum
efnum. Bæði hvað varðar herbergi
þeirra og aðrar vörur svo sem hárvax,
hárlit, andlitsfarða og svitalyktareyði.
Veljið vörur sem eru merktar Svans-
merkinu.
Dregið úr skaðsemi efnanna
Ráðleggingar Politiken um hvernig við getum dregið úr skaðsemi efnanna í barnaherbergjum:
n Ný föt geta einnig valdið ofnæmis-
viðbrögðum og útbrotum þar sem í
þeim má finna litarefni,
formaldehýð og önnur
skaðleg efni. Það er því
mikilvægt að þvo ný föt
áður en þau eru notuð.
Þetta á einnig við um
sængurver og handklæði.
Hvað er PAH?
PAH eru efnasambönd sem myndast
við ófullkomna brennslu á við, kolum,
dísilolíu, fitu og tóbaki. Tjara inniheldur
einnig PAH.
Börn viðkvæmari
n Börn eru viðkvæmari fyrir eitruðum
efnasamböndum en fullorðnir og eru
áhrif þessara efna verst vegna uppguf-
unar þeirra úr raftækjunum. Heilsu-
bankinn ráðleggur um staðsetningu
og frágang á raftækjum en þar segir
að best sé auðvitað að þessi tæki séu
geymd í öðrum vistarverum en í svefn-
herbergjum. Ef þau hins vegar eru inni
í svefnherbergjum er áríðandi að lofta
vel út. Annað sem mikilvægt er að gera
er að taka öll raftæki úr sambandi yfir
nóttina. Rafsegulsvið hefur áhrif á
hormónið melatonín en framleiðsla á
því er mest þegar við sofum. Að lokum
er mikilvægt að halda herbergjunum
hreinum og ryksuga rafeindatækin
vandlega reglulega.
Á heimasíðu Umhverfisstofnunar má
finna þessar ráðleggingar:
n Ekki kaupa leikföng með sterka lykt
því ilmefnin geta valdið ofnæmi.
n Veldu CE-merkt leikfang sem er
yfirlýsing framleiðandans um að leik-
fangið uppfylli grunnkröfur Evrópu um
öryggi leikfanga.
n Gott er að þvo leikföng upp úr í heitu
vatni og mörg leikföng passa jafnvel
í uppþvottavélina, þannig er hægt að
lágmarka áhrif innihaldsefnanna á
barnið.
n Forðastu að kaupa óvönduð leik-
föng eða eftirlíkingar. Þó þau séu
oftast ódýrari þá eyðileggjast þau
fljótt og enda í ruslinu.
Æskilegt að þvo ný föt