Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2011, Síða 16
Sandkorn
S
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekkert lært af eigin afglöp-
um í aðdraganda hrunsins,
ef marka má ræður þriggja
formanna á landsfundi um
helgina. Bjarni Benediktsson, endur-
kjörinn formaður, mærði Davíð
Oddsson, fyrrverandi formann og
höfund hrunsins. Taldi Bjarni fráleitt
að honum hefði verið vikið úr emb-
ætti seðlabankastjóra. Alkunna er
þó að bankinn varð tæknilega gjald-
þrota undir stjórn Davíðs og sam-
starfsmanna hans. Þá beygði Bjarni
af í ræðu sinni þegar hann tíundaði
þau örlög Geirs Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, að vera dreginn
fyrir landsdóm. Talaði formaðurinn
um pólitísk réttarhöld. Gaf hann ekk-
ert fyrir þá staðreynd að það var vilji
meirihluta Alþingis að landsdómur
yrði kallaður saman. Í þessu sam-
hengi er rétt að hafa í huga að Geir er
einungis ákærður, ekki sakfelldur. Ef
réttarkerfið heldur mun mál hans fá
sanngjarna niðurstöðu.
Geir sjálfum er þó vorkunn í því
samhengi að það er undarleg niður-
staða að draga einungis hann fyrir
dóm. Hið rétta hefði verið að taka
með fleiri ráðherra hrunsins og einn-
ig þá sem á undan fóru og bjuggu til
það fen spillingar og oflætis sem varð
landinu að falli. Dómurinn hefði þar
með haft tækifæri til að meta sekt eða
sýknu í víðu samhengi.
Í ræðu Bjarna kom fram að fráleitt
væri að kenna Sjálfstæðisflokknum
um hrunið. Iðrunin frá síðasta lands-
fundi, þegar samin var skýrsla um-
bótanefndar um mistök flokksins, var
horfin. Hátt á annað þúsund fulltrúar
fögnuðu nú afneituninni og virtust
trúa því að hrunið væri almenningi
eða Samfylkingunni að kenna. Næsta
skref hjá Bjarna hlýtur að vera að lýsa
útrásarvíkinga þjóðarinnar saklausa
og kenna Jóni og Gunnu um allt.
Til að kóróna fortíðar- og spill-
ingarhyggjuna var tveimur fyrrver-
andi formönnum flaggað í ræðustóli.
Salurinn titraði af hrifningu undir
tali þeirra. Stemningin var eins og í
jólaleikriti Dickens þar sem andar
hrunsins stigu fram og börðu sér á
brjóst. Afneitun Sjálfstæðisflokksins
og harðlínustefna í ýmsum málum er
áhyggjuefni allra þeirra sem trúa því
að frelsi og einstaklingsframtak eigi
að vera ofarlega á meðal þeirra gilda
sem viðhalda verði í samfélaginu.
Forysta Sjálfstæðisflokksins verð-
ur í næstu framtíð að taka sér tak og
reka burt spillingaröflin í flokknum.
Bjarni Benediktsson hefur átt það til
að taka undarlegar beygjur í sinni
pólitík. Sumpart hefur hann sýnt
heiðarleika og þekkingu á efnahags-
málum en hann hefur líka borið af
leið í því skyni, að því er virðist, að
ganga í augun á forvera sínum. Ef
Bjarni og bandamenn hans taka sér
ekki tak og setja skýra stefnu sem
hefur að markmiði að siðvæða Ís-
land undir merkjum einstaklings-
hyggju eiga þeir sem trúa á heiðar-
leika til hægri ekki annan kost en
þann að stofna nýjan flokk. Eins og
staðan er núna er fátt annað á hægri
vængnum nema brunarústir þeirra
spillingarafla sem ættu að vera horf-
in en lifa góðu lífi vegna veikrar for-
ystu flokksins sem notar drauga for-
tíðar sem hækjur.
„Eyþór Yngri“
n Hljómsveitin Todmo-
bile hefur lengi verið við-
loðandi Sjálfstæðisflokkinn
og skemmt þar sem við á.
Nú hefur sú breyting orðið
á bandinu að Eyþór Arnalds,
oddviti sjálfstæðismanna í Ár-
borg, er ekki á sviðinu. Í stað
hans kemur nafni hans, stór-
stjarnan Eyþór Ingi Gunnlaugs-
son, sem þykir fylla skarð-
ið bærilega. Gárungar hafa
þegar breytt nafni afleysinga-
mannsins í Eyþór Yngri.
Tár á landsfundi
n Sjálfstæðismenn á lands-
fundi héldu heljarinnar
skemmtun og ball um helgina
þar sem
mikið var um
dýrðir. Einn
hápunktur-
inn var þegar
Bjarni Bene-
diktsson for-
maður og
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
áskorandi hans, tóku sam-
an lagið á sviði með kór og
hljómsveit. Hermt er að upp-
ákoman hafi komið við marga
og sjá mátti blika tár á hvarmi.
Þetta var í anda þess sem
gamli leiðtoginn, Davíð Odds-
son, hafði fyrirskipað í ræðu
sinni fyrr um daginn þegar
hann lagði áherslu á að víga-
ferli innan flokks væru jafnan
í bróðerni.
Vinur Davíðs
n Á meðal öflugustu stuðn-
ingsmanna Davíðs Oddssonar
nú er Jón Magnússon, fyrr-
verandi þingmaður, sem gerði
garðinn frægan innan Frjáls-
lynda flokksins þar sem hann
gætti vandlega hagsmuna Ís-
lendinga. Jón yfirgaf Frjáls-
lynda eftir hatrömm átök og
gerðist þá þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins. Í þættinum
Sprengisandi á Bylgjunni um
helgina hélt hann uppi ákafri
málsvörn fyrir gamla for-
manninn en benti á afglöp Jó-
hönnu Sigurðardóttur og með-
reiðarsveina hennar. Þá hnýtti
hann í Gunnar Andersen, sem
er arftaki brottrekins sonar
hans sem forstjóri Fjármála-
eftirlitsins.
Frímann í toppslag
n Á allra næstu vikum mun
koma í ljós hvaða bækur
vermi efstu sæti metsölulista
jólabóka. Ekki
er vafi á því
að Arnaldur
Indriðason
með Einvígið
heldur toppn-
um. Annað
er óljósara.
Nokkuð ljóst er að ævisaga
Jakobs Frímanns Magnússon-
ar, Með sumt á hreinu, sem
Þórunn Erlu Valdimarsdóttir
skráði, á eftir að gera góða
hluti. Einkenni þess var út-
gáfuteiti kappans á föstudag-
inn þar sem troðfullt var út úr
dyrum. Þá er bókin listilega
vel skrifuð og unnið vel með
gullaldarmál kappans.
Við stöndum
öll með þér
„Ég er fyrst og
fremst forvitin
Bjarni Benediktsson talaði til Geirs H. Haarde á landsfundi. Guðrún Eva Mínervudóttir um að eignast sitt fyrsta barn. – DV.
Draugar flokksins
Leiðari
Reynir Traustason
rt@dv.is
„Stemning-
in var eins
og í jólaleikriti
Dickens
Þ
að skiptir miklu máli hvernig
við tölum um ofbeldi, ofbeldis-
fólk, þolendur og aðstandend-
ur. Mikil umræða hefur átt sér
stað undanfarið vegna ofbeldisverka
og mest áberandi eru kynferðisbrot.
Æ fleiri stíga nú fram með sögur
sínar og sýna mikið hugrekki með því
að segja frá. Fyrir flesta eru þetta stór
og þung skref. Það þekki ég vel af eigin
reynslu. Og nýlega kom út bók Guð-
rúnar Ebbu, Ekki líta undan, sem Elín
Hirst skráði.
Ég starfa með fjölmörgum þolend-
um ofbeldis og hef fengið að fylgjast
með fólki vinna með sín mál og sínar
tilfinningar. Ég minni á að hlutfall
upploginna ásakana í þessum brota-
flokki eru það sama og í öðrum flokk-
um, um 1–3%.
Ekki mín sök
Ástæður þess að fólk stígur fram
eru fyrst og fremst: Að varpa af sér
skömminni. Segja hátt og skýrt: „Þetta
var ekki mín sök, það er ofbeldis-
manneskjan sem ber ábyrgðina á of-
beldinu.“
Fólk langar til að skila sökinni
þangað sem hún á heima; að reyna að
stöðva ofbeldismanneskjuna. Margir
þolendur verða vitni að því að of-
beldismanneskjan heldur áfram með
líf sitt eins og ekkert hafi í skorist og
heldur jafnvel áfram að beita aðra of-
beldi. Eða heldur áfram að starfa með
eða umgangast fólk sem getur auð-
veldlega orðið þolendur (til dæmis ef
ofbeldismanneskjan er í miklum sam-
skiptum við börn innan fjölskyldunn-
ar, er kennari, lögreglumaður/kona,
starfar að sálgæslu eða annað álíka).
Að reyna fá fleiri til að hugsa um
þessi mál. Fólk vill leggja sitt af mörk-
um til að halda umræðunni opinni.
Þetta getur skipt miklu máli fyrir þau
sem enn búa yfir slíkum leyndar-
málum og hafa ekki unnið með sinn
sársauka vegna þeirra. Umræða og
frásagnir af ofbeldi geta hvatt fólk til
að leita sér aðstoðar. Ég hef séð það
gerast ótal sinnum.
Margir vilja fá viðurkenningu á að
brotið hafi verið á þeim. Vilja fá upp-
reisn æru. Afleiðingar ofbeldis eru
margvíslegar og þolendur ofbeldis eru
ósjaldan gagnrýndir fyrir ýmislegt í
lífsstíl, hegðun eða framkomu sem þó
er hægt að rekja til afleiðinga vegna
ofbeldisins.
Fólk vill standa með sjálfu sér og
birta styrk sinn á þennan hátt. Fyrir
marga er þetta liður í því að geta borið
höfuðið hátt með heiðarleika og stolti.
Toppurinn á ísjakanum
Það fólk sem við sjáum stíga fram í
fjölmiðlum er aðeins toppurinn af ís-
jakanum og varla það. Þolendur of-
beldis eru því miður margir á Íslandi
og ef við ætlum að hafa áhrif á þróun
mála þá þurfum við sem þjóð að horfa
á vandann. Við þurfum að hafa kjark
til að horfa í augu þeirra sem hafa
þurft að þola ofbeldi og við þurfum
að hafa kjark til að taka skýra afstöðu
gegn ofbeldi. Fólkið sem stígur fram
og leggur sjálft sig að veði til að hjálpa
okkur sem samfélagi er stór liður í því
að náum að vinna úr þessum málum.
Þolandi ofbeldis getur staðið nær
flestum okkar en okkur grunar.
Við munum mörg hvernig okkur
gekk að taka á ofbeldi og afleiðingum
þess áður en umræðan varð opinber.
Við viljum ekki fara þangað aftur.
Og nú er ég ekki að segja að þessi
mál séu hafin yfir gagnrýni. Það er
hins vegar sterk tilhneiging hjá mörg-
um að vilja ekki trúa þessum málum,
einfaldlega vegna þess að þau eru
erfið og sár. Fólk reynir stundum að
fara leið sem það telur þægilegri, að
líta undan eða afneita því sem blasir
við.
Hlustum – líka
þegar það er erfitt
„Við viljum
ekki fara
þangað aftur
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)
Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
16 21. nóvember 2011 Mánudagur
Kjallari fyrri hluti
Thelma
Ásdísardóttir