Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2011, Qupperneq 18
Gömul en góð formúla
Þ
ví verður ekki leynt að
ég hafði beðið útgáfu
Call of Duty: Modern
Warfare 3 (MW3) með
mikilli eftirvæntingu. Þær
vikur (já, vikur!) sem fóru í
spilun Call of Duty: Black
Ops á netinu koma aldrei
aftur. En mér er alveg sama.
Leikurinn var frábær og von-
aði ég innilega að MW3 yrði
jafn öflugur.
Einspilun (e. campaign)
leiksins hefst á sama stað og
Modern Warfare 2 endaði
og ertu í baráttu við Rússana
sem eru á góðri leið með að
leggja undir sig Bandaríkin
og Evrópu. Þessi hluti leiks-
ins er einstaklega vel heppn-
aður að flestu leyti. Grafíkin
er frábær, hljóðið óaðfinn-
anlegt og sagan rígheldur í
mann. Bardagarnir eru nán-
ast allir stórbrotnir og verk-
efnin fjölbreytt. Einspilunin
er þó helst til stutt og tók það
einungis um fimm klukku-
stundir að klára hana.
Hjarta leiksins er sem fyrr
netspilunin (e. multiplayer).
Þar hafa verið gerðar nokkrar
ágætlega heppnaðar breyt-
ingar. Ber þar helst að nefna
Killstreak-kerfið sem hefur
verið tekið rækilega í gegn.
Þá er kominn nýr spilunar-
möguleiki, Kill Confirmed,
sem er svipaður og Team
Deathmatch. Þar þarftu að
ná í svokallað Dog Tag af
hverjum sem þú drepur til
að fá stig. Þetta er ansi hress-
andi enda eru flestir á fullri
ferð á meðan á leik stendur.
Leyniskyttur eru því tiltölu-
lega sjaldséðar – sem er gott.
Þriðji möguleikinn er svo
Co-op, þar sem þú getur bar-
ist við óvinaöldur með félaga,
til dæmis í gegnum netið.
Leikurinn er að flestu leyti
vel heppnaður. Framleið-
endur hans, Activision, virð-
ast þó hafa ákveðið að fara
öruggu leiðina enda svipar
leiknum mjög til MW2. Það
er því ekki beinlínis verið að
finna upp hjólið í MW3. Hér
er verið að fara eftir formúlu
sem hefur reynst vel. MW3 er
fínasta skemmtun þó vikurn-
ar sem munu fara í þennan
leik verði eflaust færri en fóru
í Black Ops.
18 Menning 21. nóvember 2011 Mánudagur
Call of Duty:
Modern Warfare 3
Tegund: Fyrstu persónu skotleikur
Spilast á: X360, PS3, PC og DS
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Tölvuleikur
Fín skemmtun Leikurinn er að flestu leyti vel heppnaður. Framleiðend-
urnir virðast þó hafa ákveðið að fara öruggu leiðina.
Draumur að
veruleika
Íslenski leikstjórinn Elfar
Aðalsteinsson og breska
stórstjarnan John Hurt voru
saman í viðtali við BBC á
föstudaginn þar sem þeir
fjölluðu um stuttmyndina
Sailcloth. „Myndin er dæmi
um það þegar drauma-
hlutverkaskipan verður
að veruleika,“ sagði Elfar í
viðtalinu en Elfar skrifaði
handrit myndarinnar, leik-
stýrði henni og framleiddi.
Hurt, sem á myndir eins og
Midnight Express og The
Elephant Man að baki, segist
aldrei áður hafa leikið í kvik-
mynd sem er alveg laus við
tal. „Þó hef ég gert nokkrar
myndir sem innihalda að-
eins nokkur orð.“
Tónleikar
í lobbíi
Tónleikaröðin Live in the
Lobby verður haldin á Far-
fuglaheimilinu á Vesturgötu
annan hvern miðvikudag
í vetur þar sem hinir ýmsu
tónlistarmenn munu troða
upp í lobbíinu. Farfugla-
heimilið hefur verið „off-
venue“-staður á Airwaves
undanfarin ár við góðan orð-
stír en það er sami aðili sem
skipuleggur þessa tónleika
og hefur aðstoðað við dag-
skrá Airwaves. Bandaríski
tónlistarmaðurinn Low Roar
mun ríða á vaðið þann 23.
nóvember og Ólafur Arnalds
stígur á svið 7. desember.
Frítt er inn á tónleikana.
Queen í
Hörpu
Þann 24. nóvember eru 20
ár síðan Freddie Mercury,
söngvari Queen, lést. Af því
tilefni mun stór hópur ís-
lenskra tónlistarmanna
halda tónleika í Hörpu á
þriðjudag og miðvikudag. Á
efnisskránni eru 30 lög sem
allflestir ættu að þekkja en
14 þeirra voru samin af Fred-
die sjálfum. Þeir sem verða
í framlínunni eru söngvar-
arnir Matthías Matthíasson,
Friðrik Ómar, Eiríkur Hauks-
son, Magni Ásgeirsson og
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
auk söngkonunnar Huldu
Bjarkar Garðarsdóttur. Að-
eins örfá sæti eru laus svo nú
fer hver að verða síðastur að
tryggja sér miða.
L
ífsstíls- og megrunar-
bókin er byggð á Tísku-
blogginu, vinsælasta
bloggi á vesturhveli
jarðar að sögn tísku-
bloggarans h. Útgáfa bók-
arinnar er að hennar eigin
sögn mikil tíðindi fyrir allar
komandi kynslóðir íslenskra
kvenna. En í bókinni er fjallað
um útlit, hegðun, hugsun,
framkomu og kynlíf, auk þess
sem í henni má finna ítar-
legan kafla um gæludýrafóður
og greiningu á kvikmyndinni
Alien vs. Predator sem kom út
árið 1993. Hildur Knútsdóttir
meintur höfundur sver af sér
öll tengsl við bloggið en hún
hefur lengi svarað fyrir það.
Hún bendir á h sem sýnir and-
lit sitt í fyrsta sinn og svarar
spurningum um nýútkomna
bók sína en er ófáanleg til þess
að gefa blaðamanni upp fullt
nafn.
Hvað heitir þú fullu nafni?
„Hugmyndir eru stærri en
einstaklingar og því skiptir
fullt nafn mitt ekki máli. Með
því að nota skammstöfun tekst
mér að vera samnefnari fyrir
kvenþjóðina og það skiptir
máli, því það er mikilvægt að
íslenskar konur eigi sér sam-
einingartákn sem þær geta all-
ar speglað sig í. Það er enginn
að velta fyrir sér hvað Gandhi
heitir fullu nafni, enda er hann
tákn fyrir ákveðna afstöðu.
Hann er ekki einstaklingur,
heldur hugmynd. Hið sama
gildir um mig.“
Um hvað er lífsstílsbókin þín og
hvaða tilgangi þjónar hún?
„Þetta er hegðunarvísir
byggður á blogginu mínu sem
segir konum hvernig þær eiga
að klæða sig, hvernig þær eiga
að borða, á hverju þær eiga að
hafa áhuga, hvernig þær eiga
að vera í kringum karlmenn
og hvernig þær eiga að hugsa.
Mér vitanlega hefur eng-
inn skrifað viðlíka bók áður,
en þörfin fyrir þess háttar rit
er mikil. Útgáfa bókarinnar
telst því til mikilla tíðinda í ís-
lenskri menningarsögu.“
Áttu kærasta?
„Já. En ég býst við því að
ég verði bráðum svo fræg að
ég verði að fá mér einhvern
nýjan.“
Hvers vegna ertu alltaf að tala
um beikon og aspartam?
„Þetta er sorgleg spurning
sem opinberar fávisku þína.
Ég skammast mín fyrir þína
hönd.“
Hefur þú eitthvað á móti femín-
istum?
„Já. Femínistar eru sorg-
legar, loðnar, ljótar og bitrar
konur sem geta ekki unnt
fallegu og vinsælu kvenfólki
velgengni. Ég veit ekki alveg
hvers vegna kvenrembur trana
sér fram með þessum hætti,
bersýnilega býr eitthvað an-
kannalegt að baki hegðun
þeirra. Rannsóknir benda til
þess að þetta stafi af því að
þær eru svo ljótar að það vill
enginn sofa hjá þeim, þar af
leiðandi eru þær svo illa riðnar
að þær geta ekki hugsað skýrt.
Og svo eru þær náttúrulega
öfundsjúkar líka.“
Þú hefur oft lent í ritdeilum,
hvers vegna áttu svona oft í úti-
stöðum við annað fólk?
„Ritdeilum? Ég hef aldrei
átt í útistöðum við neinn, það
elska allir Tískubloggið. Það
var reyndar einn rætinn ein-
staklingur sem var að reyna að
eigna sér heiðurinn af bloggi
mínu, en ég fékk mér lögfræð-
ing og kærði hana, sem varð til
þess að hún féllst á að greiða
mér skaðabætur og hætta jafn-
framt að stæra sig af verkum
mínum.“
Hvað kemur kvikmyndin Alien
vs. Predator einhverjum við?
„Alien vs. Predator er
uppáhaldsbíómyndin mín.
Hún er ekki bara mjög
estetísk, heldur færir hún okk-
ur mikilvægan boðskap um
þær afleiðingar sem femínismi
mun hafa á samfélagið allt
ef við grípum ekki í taumana
strax og stöðvum þessar öfgar.“
Í bókinni bendir þú konum á að
fjarlægja öll hár fyrir neðan háls.
Er það ekki svolítið ógeðslegt?
„Nei.“
Hvað af lífsstílsbloggum keppi-
nautanna lest þú?
„Ekkert. Ég las nokkur
þegar ég var að byrja, en ég hef
fyrir löngu tekið fram úr þeim
í gæðum og þess vegna kýs ég
að menga ekki eigin sýn með
því að lesa efni frá einstakling-
um sem eru mér óæðri.“
Hvað lestu alls ekki? Hvers
vegna?
„Fréttir. Þær eru niður-
drepandi og leiðinlegar og svo
er ekkert minna sexí en kona
sem hefur skoðun á alþjóða-
stjórnmálum.“
Hvað segir þú við ungar stúlkur
sem líta upp til þín? Hvernig
eiga þær að haga sér?
„Ég segi þeim að það sé
aldrei of snemmt að byrja að
hugsa um útlitið, því það er
það mikilvægasta í fari hverrar
konu og raunar það sem mun
skilja á milli þeirra sem njóta
velgengni í lífinu og þeirra
sem munu deyja óhamingju-
samar, einmana og feitar. Það
skiptir ekki máli hvað þú gerir,
það eina sem skiptir máli er
hvernig þú lítur út á meðan
þú ert að gera það. Þennan
lærdóm hef ég m.a. dregið af
fjölmiðlum, sem hafa eðlilega
meiri áhuga á því að fjalla um
neytendahegðun kvenfólks en
skoðanir þeirra og störf, svo
sem með því að kíkja í fata-
skápana þeirra eða snyrtiveski
og forvitnast um hver sé uppá-
haldsbúðin þeirra eða uppá-
haldshönnuður.
Og öll hegðunar-, megrun-
ar- og fegrunarráð finna ungar
stúlkur í nýútkominni lífsstíls-
bók minni. Hún er nauðsynleg
öllum sem ætla sér að ná ein-
hvers konar frama.“
Hvernig eiga þær ekki að haga
sér?
„Eins og kvenrembur. Því
þá vill enginn sofa hjá þeim,
þær verða bitrar yfir kyn-
lífsskorti sem veldur því að
femínískar tilhneigingar
þeirra aukast enn frekar, sem
veldur því að líkurnar á því
að einhver vilji sofa hjá þeim
minnka, sem veldur því að
þær verða bitrari, sem veldur
því að femínískar tilhneigingar
þeirra aukast enn frekar, sem
minnkar svo aftur líkurnar á
því að einhver vilji sofa hjá
þeim. Þetta er sorglegur víta-
hringur sem ungar stúlkur
ættu að varast.“
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Viðtal
Kyndilberi
megrunar
n Lífsstíls- og megrunarbókin er byggð á Tískublogginu n Höfundurinn h kemur nú í fyrsta
sinn fram og sýnir andlit sitt n Hildur Knútsdóttir alfarið hætt að tjá sig um bloggið
H! Höfundurinn h kemur nú í fyrsta sinn fram og sýnir andlit sitt. Hildur
Knútsdóttir alfarið hætt að tjá sig um bloggið.
Myndir úr bókinni Lífsstíls- og megrunarbókin er ríkulega myndskreytt
og myndefnið myndu margir samþykkja að væri ekki hefðbundið.