Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2011, Blaðsíða 22
Syngur með dóttur sinni
n Feðgin vinna saman
R
únar Þór nálgast nú
sextugsaldurinn en set-
ur aukinn kraft í tón-
listarferilinn. Nú hefur
Geimsteinn í Keflavík, undir
stjórn drengjanna hans Rún-
ars Júlíussonar, tekið sig til og
safnað saman 40 lögum með
nafna föður síns sem endur-
spegla allan hans feril í plöt-
unni Brotnar myndir. Þrjú
laganna eru ný en hin eru frá
upphafi ferilsins til síðustu út-
gáfu. Langflestir textanna eru
eftir Heimi Má bróður hans,
aðrir eftir hann sjálfan en
Rúnar Þór hefur líka samið
lög við ljóð góðskálda á borð
við Davíð Stefánsson og Stein
Steinar, önnur minna þekkt
skáld og nokkur lög við ljóð
föður síns Péturs Geirs Helga-
sonar. Píanólögin hefur hann
öll samið með börnin sín og
móður í huga, eins 1.12.87
og Ósk sem er samið til móð-
ur hans. Þau lög er einnig að
finna á þessum safndiski.
Fjölskyldan er honum
mjög hugleikin á þessari plötu
því Rúnar syngur með dóttur
sinni, Öldu Karen, í einu lag-
inu. Alda Karen er sautján ára
og vakti mikla athygli þegar
ljúf og fögur rödd hljómaði í
laginu Stjarna, máni, kross þar
sem sungið er um stríð og frið.
„Ég hef bara gaman af þessu,“
segir Alda Karen með bros á
vör. „Ég fæ hlýjar móttökur
og þetta er fallegur boðskapur
um skelfilegan heim.“
Rúnar Þór tekur undir
með dóttur sinni, hann seg-
ist hafa gaman af því að hafa
hana með. Hann er því við-
búinn að hún hefji sinn eigin
tónlistarferil. „Hún er að sjálf-
sögðu með villt rokkaragen í
blóðinu, það er best að veita
þeim útrás með tónlist frekar
en einhverju öðru,“ segir hann
og hlær.
Eru þau lík? „Það er eitt
líkt með okkur, sem margir
falla í stafi yfir og það er hvað
við erum bæði afburðafalleg,“
segir Rúnar Þór og Alda Karen
fer við það að hlæja. „Ég hef
reyndar fengið að heyra alla
ævi að ég sé myndarlegur, ég
eldist vel. Eins og tónlistin,“
segir Rúnar Þór.
22 Fólk 21. nóvember 2011 Mánudagur
Brotnar myndir Rúnar Þór ásamt Öldu Karen dóttur sinni. Mynd sigtryggur ari
Nýtt tattú
Glamúrgellan Ásdís Rán
skellti sér til húðflúrara í
Sofíu á dögunum. Á Fa-
cebook-síðu sinni segist Ás-
dís hafa látið breyta þremur
tattúum og hafa fengið sér
eitt nýtt. Húðflúrarinn, Liud-
mil Vasilev,sá einnig um
að endurgera stóra tattúið
á Garðari Gunnlaugssyni,
eiginmanni Ásdísar. Vasilev
var himinlifandi með ís-
lenska viðskiptavininni og
skrifaði á Facebook-síðu
sína að Ásdís sé yndisleg
kona og miklu fallegri augliti
til auglitis en á síðum tíma-
ritanna. Vasilev endar svo
færstu sína á að skrifa: „YOU
ROCK!!!“ og beinir orðum
sínum til Ásdísar.
Í fótabað með
smáfiskum
Í Týndu kynslóðinni síðast-
liðið föstudagskvöld skelltu
þau Björn Bragi Arnarsson,
Þórunn Antonía og Nilli sér
í fótabað í Kaupmannahöfn.
Ekkert venjulegt fótabað
þó því í kerjunum var fjöldi
smáfiska sem sogaði dautt
skinn af fótunum. Fyrirliði
FH í fótbolta, Matthías Vil-
hjálmsson, var þó á undan
krökkunum í Týndu kynslóð-
inni að prófa þetta sérstaka
fótabað en hann skellti sér í
eitt slíkt í Lundúnum um þar
síðustu helgi. „Skrýtin til-
finning en gott eftir á,“ segir
Matthías á Twitter-síðu sinni
um fótabaðið, en hann hafði
sett inn myndband af fiskun-
um að narta í fætur hans.
Tveir sigrar
í röð
Daníel Geir Moritz, sem
á föstudagskvöldið var
krýndur fyndnasti maður Ís-
lands, var mættur á sport-
barinn Ölver strax í hádeg-
inu á laugardaginn til að sjá
sína menn í Arsenal leggja
Norwich að velli, 2–1, í ensku
úrvalsdeildinni. Daníel er
harður Arsenal-maður og
fagnaði hann því tveimur
sigrum í röð á skömmum
tíma. Ekki er langt síðan
Daníel fékk morðhótanir frá
reiðum Liverpool-mönnum
eftir pistil sem hann skrifaði
um stuðningsmenn þeirra á
sparkvefsíðuna fotbolti.net.
Ein stór fjölskylda
H
ann fær oft að koma
með mér í vinnuna,“
segir Hrefna Rósa
Sætran, landsliðs-
kokkur og annar eig-
andi Fiskmarkaðarins, um
soninn Bertram Skugga sem
fylgir mömmu sinni reglulega
á veitingastaðinn. Bertram
Skuggi, sem er níu vikna, er
ekki eina kornabarnið sem sést
iðulega á staðnum því meðeig-
andi Hrefnu, Ágúst Reynisson,
á dótturina Elísu Margrétu
sem er aðeins þremur dögum
eldri en Bertram Skuggi og
einn kokkanna, Steinar Bjarki
Magnússon, á stelpuna Re-
bekku Lind sem er mánuði
eldri. „Það varð algjör barna-
sprengja hjá okkur og sem
betur fer er þetta barnvænn
vinnustaður. Við erum bara
ein stór fjölskylda.“
Hrefna Rósa er alsæl í móð-
urhlutverkinu. „Það er mjög
mikið að gera hjá mér en sem
betur fer hef ég tíma til að
slappa af og njóta tímans með
syninum inn á milli. Hins veg-
ar, þegar maður er með eigin
rekstur, verður maður að vera
sem mest á staðnum. En ég hef
líka bara gaman af því,“ seg-
ir hún og bætir við að Betram
Skuggi sé vær og góður. „Það
höfðu svo margir hrætt mig á
því að þegar barnið væri kom-
ið fengi maður ekkert að sofa
lengur á næturnar. Mér finnst
eiginlega næturnar auðveld-
ari en dagurinn því mér hef-
ur fundist erfitt að finna tíma
til að fara í sturtu og gera aðra
hluti sem áður þóttu sjálf-
sagðir,“ segir hún brosandi og
bætir við: „Ég nýt mín í botn í
móður hlutverkinu en þetta er
samt meiri vinna en ég hélt.
Hann er náttúrulega svo lít-
ill og þarf svo mikið á mér að
halda. Sem er líka æðislegt.“
Bertram Skuggi var nefndur
um leið og hann fæddist en
hann verður skírður eftir ára-
mót. „Fyrra nafnið kemur frá
afa mínum sem hét Þorsteinn
Betram og var norskur. Við
vissum líka af einum öðrum
manni sem hét þetta og bjugg-
umst því við að þetta væri til á
Íslandi. Svo kom í ljós að svo
var ekki en við erum í ferli hjá
mannanafnanefnd. Þetta verð-
ur pottþétt ekkert mál,“ seg-
ir hún og bætir við að nafnið
Skuggi hafi komið til þar sem
hún átti einu sinni læðu sem
hét Skugga. „Mér þótti mjög
vænt um þessa kisu og svo
þykir mér þetta líka bara svo
fallegt nafn.“ indiana@dv.is
n Barnasprengja á Fiskmarkaðnum n Bertram skuggi skírður í höfuðið á afa og kisu
alsæl móðir Hrefna Rósa viðurkennir að móðurhlutverkið sé meiri vinna
en hún bjóst við.
Barnvænn vinnustaður Hrefna Rósa og Ágúst
Reynisson eiga Fiskmarkaðinn en þau eignuðust börn
með þriggja daga millibili. Matreiðslumaðurinn Steinar
Bjarki á dóttur sem kom í heiminn mánuði fyrr. Öll koma
börnin reglulega með foreldrum sínum í vinnuna.