Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2011, Blaðsíða 62
62 | Lífsstíll 2.–4. desember 2011 Helgarblað
Á
föstudaginn býður
Kronkron í jóla-
gleði. Þar verður
jólagluggi Hild-
ar Yeoman afhjúpaður,
en Hildur ætlar að skapa
ævintýralegan og pæju-
legan jólaheim í glugga
verslunarinnar. Gestum
verður boðið upp á indælt
jólaglögg undir djasstón-
um Tríó Bók.
Gleðin fer fram á milli
17 og 19 á Laugavegi 63b.
Annars er þar helst að
frétta að verslunin fékk
nýlega nýtt merki í hús,
Mary Katranzou. Fatnaður hennar er vægast
sagt einstakur en hún sendi frá sér sína fyrstu
línu árið 2008 og sló strax í gegn. Einkenni
hennar eru ævintýraleg mynstur og óvenjuleg
form en bakgrunnur hennar liggur í arkitektúr
og innblásturinn sækir hún í náttúru og listir.
Á
miðvikudagskvöld var ný
lína frá Kormáki og Skildi
kynnt í Þjóðleikhúsinu
við mikinn fögnuð áhorf-
enda.
Það er Guðmundur Jörunds-
son sem á heiðurinn af línunn-
inni, sem er önnur línan sem
þeir félagar senda frá sér. Línan
var að sjálfsögðu í anda verslun-
arinnar, klassísk og fyrir alvöru
herramenn.
Sýningin var ansi óhefð-
bundin. Vel þekktir tónlistar-
menn, leikarar og tískumógúlar
voru á meðal fyrirsæta. Þá tróðu
Mugison og Ragnar Kjartans-
son upp.
Stemningin í salnum var ein-
stök og mikil gleði ríkti á meðal
gesta í lok kvölds. Það er því
óhætt að segja að þessari nýju
herrafatalínu hafi verið vel tekið.
„Ég kemst í
hátíðarskap“
Nú styttist í hátíðirnar og við
erum farnar að huga að jóla-
kjólunum. Hér eru nokkrir sem
myndu sæma sér vel í jólaboðinu
enda stórglæsilegir og einstaklega
hátíðlegir.
Christian Dior
Christian Dior
Sonia Rykiel
Eli Saab
Eli Saab
Gucci
Eli Saab
Stella
McCartney
Jólagleði í Kronkron Föt fyrir herra
M
arkaðsglaðir íbúar borgar-
innar verða í essinu sínu
um helgina þegar Pop-
Up verður í Hörpu, annar
á Eiðistorgi og sá þriðji á
Lindargötunni. Þar verða þau Stefán
Svan og Elma Lísa að selja utan af sér
spjarirnar, en þau eru bæði alræmd
fyrir tískuvitund sína og stíl. En það
er ekki allt því móðir Stefáns ætlar
líka að selja perluskart og vettlinga
til styrktar systur hans sem stendur í
forræðisdeilu úti í Kaupmannahöfn.
Perlur mömmu
„Það er kostnaðarsamt fyrir systur
mína að búa úti og reka mál fyrir
dómstólum. Auðvitað reynum við að
hugsa ekki um peninga í þessu sam-
hengi en á sama tíma þarf maður
peninga til þess að lifa. Svo mamma
fór að prjóna. Vettlingarnir eru æðis-
lega fallegir,“ segir Stefán og bætir því
við að vettlingarnir séu tilvalin jóla-
gjöf en ekkert par er eins. „Það er oft
talað um að fólk með hlýtt hjarta hafi
kaldar hendur. Það á vel við, vett-
lingarnir hjálpa þeim hjartahlýju að
hlýja sér á höndunum.“
Mamma hans Stefáns gerir
reyndar meira en að prjóna. Hún
perlar líka hálsmen, armbönd og
aðrar gersemar ásamt systrum hans
sem þær selja til styrktar henni.
Skartið er afar óvenjulegt en afskap-
lega fallegt. Og yfirleitt eru notaðar
litlar perlur sem festast betur saman
en þær hefðbundnu. Það verður líka
til sölu á markaðnum en auk þess er
alltaf hægt að sérpanta, ef þú hefur
sérstakar óskir. „Þetta er allt gert af
mikilli ástúð,“ segir Stefán. „Þetta er
vönduð og falleg vara.“
Aðeins of duglegur við að versla
Sjálfur ætlar Stefán að selja föt. Hann
á nóg af þeim, hefur starfað í fata-
verslunum í hátt í tíu ár og það er
orðið tímabært að grynnka aðeins
á staflanum. „Ég hef verið aðeins of
duglegur við að versla,“ segir Stefán
og hlær. „Mér finnst líka mikilvægt
að klæðast fatnaði úr þeirri búð sem
ég vinn fyrir,“ segir Stefán sem hefur
unnið í Kronkron, GK og nú síðast í
Sævari Karli.
Á markaðnum verður merkjav-
ara frá Vivienne Westwood, Bruun
& Stengade, Filippa K, KTZ og Bern-
hard Willhelm. „Þetta er auðvitað
svolítill samtíningur en ég hugsa að
þetta sé allt frekar fínt. Eins er ég bú-
inn að senda allt í hreinsun, hengja
upp á herðatré og pressa. Þú átt að fá
að tilfinninguna að þú sért að ganga
inn í verslun þegar þú mætir.“
Stefán hefur selt föt í Stefánsbúð
á Facebook en þetta er í fyrsta sinn
sem hann stendur fyrir fatamark-
aði. Elma Lísa er aftur á móti alvön.
„Hún er náttúrulega mikil
áhugamanneskja um
vintage-fatnað og
drottning fata-
markaðanna.
Stelpurnar eru
mikið duglegri
við að halda
svona fatamark-
að en nú geta
strákarnir grætt
á því að mæta. Ég á
svo margt sem hefur
bara verið notað einu
sinni eða tvisvar, týnist
í skápunum og myndi
nýtast betur hjá öðrum.
Mér finnst gott að koma
því annað. Ég hef ekki
endalaust pláss fyrir
þetta.“
Heilræði Stefáns
Aðspurður um góð ráð
fyrir stráka segir hann
að best sé að kaupa
klassískar flíkur
sem hægt er að
nota á mismunandi
vegu. „Aðalatriðið
er að geta notað
sparifötin hvers-
dags.
Ef þú ætlar að
kaupa þér jakkaföt
veldu þá jakkaföt
þar sem hægt er að
nota jakkann stakan
og buxurnar líka.
Stakir jakkar eru að
koma rosalega sterk-
ir inn. Þá getur þú
klæðst jakkanum við
gallabuxur og skyrtu eða peysu. Þú
getur alltaf klætt þetta upp og niður.
Eins er gott að hafa í huga að
velja skyrtu eftir tilefni. Ef þú ætlar
ekki að vera mjög fínn getur þú
sleppt bindinu og þá er gaman að
velja skyrtu sem er svolítið óhefð-
bundin, kannski í
flottum lit eða með
skemmtilegum smá-
atriðum.“
Jólamarkaður
hönnuða í Hörpu
Í Hörpu mun aftur á
móti ríkja jólastemn-
ing þegar Pop-Up
opnar á laugardag-
inn. Þar verður hægt
að fá fjölbreytt úrval af vönduðum
hönnunarvörum, en alls verða 30
vörumerki fáanleg.
Hönnuðirnir koma úr ýmsum
áttum en þar sem þetta er jólamark-
aður verða jólavörur áberandi,
jólakort og jólaskraut. Þá verður
einnig hægt að fá keramik, leik-
föng, flíkur og fylgihluti fyrir börn,
dömur og herra, skartgripi og alls
kyns gersemar fyrir heimilið. Þar
sem verslað er beint við hönn-
uði, án milligöngu og álagn-
ingar verslana, má gera ráð fyrir
því að verðin séu almennt betri
en gengur og gerist. Það má þó
minna á að enginn hraðbanki er
í Hörpu og ekki er tekið á móti
kortum á markaðnum, svo það er
mikilvægt að hafa reiðufé í fórum
sínum.
Markaðurinn verður opinn
frá 12–18 á laugardag og sunnu-
dag. Þeir sem taka þátt eru A.C.
Bullion, Another Scorpion, Áróra,
Ásta Creative Clothing, Babette,
Begga Design, Beroma, Birna, Dýr-
indi, Elva, Epal, Fafu, Fær-id, Guðný
Hafsteinsdóttir, Hanna Felting, Heli-
copter, Hildur Yeoman, Hlín Reyk-
dal, Hnoss Design, Luka, Mokomo,
Organella, Rim, Scintilla, Skugga
Donna, Sonja Bent, Stáss, Thelma
Design, Tulipop ogVolkiUtanum.
Flóamarkaður á Eiðistorgi
Þeir sem hafa ekki fengið nóg af
markaðsstemningu á laugardag geta
eytt sunnudeginum á Eiðistorgi. Þar
verður hinn vinsæli flóamarkaður
opinn frá 11–17. Öllum er frjálst að
kaupa og selja en seljendur þurfa að
hafa með sér söluborð eða slá. Sölu-
plássið er ókeypis. ingibjorg@dv.is
Markaðsstemning og
jólagleði í miðbænum
n Stefán Svan og Elma Lísa með fatamarkað n „Nú geta strákarnir grætt á því að mæta“
n Mamman selur perlur og prjón til styrktar dóttur í vanda n Gefur strákunum góð ráð
Stuttbuxur frá Beroma
Kjólar frá Helicopte
Jólakort frá Tulipop
Púðar frá Volki
Selur fötin sín
Stefán Svan hefur
unnið í fataverslun og
á orðið allt of mikið af
fötum. Nú er kominn
tími til að grynnka
aðeins á. MyND SiGtRyGGuR ARi