Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Síða 8
Hestamenn Hærri fasteignagjöld bitna
harðast á börnum og unglingum í hestamennsku,
að mati formanns Hestamannafélagsins Fáks.
8 Fréttir 1. febrúar 2012 Miðvikudagur
Rannsaka einkareknar læknastofur
n Ýmsar spurningar hafa vaknað um starfsemi í heilbrigðisþjónustu
G
uðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra hefur ákveð-
ið að stofna ráðgjafarhóp til
að fara í saumana á fagleg-
um þáttum í starfsemi einkarek-
inna læknastofa og gera tillögur
til úrbóta eftir því sem þörf kref-
ur. Ákvörðunin var kynnt á fundi
ríkis stjórnar á þriðjudag.
Kveikjan að stofnun hópsins er
margvísleg álitaefni komið hafa
upp í tengslum við innflutning
og notkun á PIP-brjóstapúðum.
Þá hefur málið vakið upp margar
spurningar varðandi einkarekstur
í heilbrigðisþjónustu almennt.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir: „Heilbrigðisyfirvöldum í
landinu er skylt að sinna eftir-
liti með gæðum allrar heilbrigðis-
þjónustu í landinu og þá verður
líka að vera tryggt að eftirlitsaðilar
hafi aðgang að þeim upplýsing-
um og gögnum sem nauðsynleg
eru til að sinna því á fullnægjandi
hátt. Ýmsum spurningum þarf líka
að svara varðandi innflutning og
notkun á lækningavörum, hags-
munatengsl og hagsmunaárekstra,
örugga og samræmda skráningu,
upplýsingagjöf til eftirlitsaðila og
margt fleira.“
Jens Kjartansson lýtalæknir
sem græddi umrædda PIP-púða í
440 konur hér á landi, flutti púð-
ana sjálfur inn á kennitölu eigin-
konu sinnar, líkt og DV hefur greint
frá. Þá leikur grunur á, samkvæmt
heimildum DV, að einhverjar kon-
ur hafi greitt Jens undir borðið fyrir
silíkonaðgerðir, jafnvel án þess að
gera sér grein fyrir því.
Ráðgjafarhópi velferðarráð-
herra verður falið að draga upp
mynd af starfsemi læknastofa sem
veita heilbrigðisþjónustu og stefnt
er að því að tillögum verði skilað í
maí. solrun@dv.is
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
Pallettu
tjakkur
EP Pallettu-tjakkur
2 tonna lyftigeta
31.990,-
Tíu ölvaðir og
átta dópaðir
Tíu ökumenn voru teknir fyrir
ölvunarakstur á höfuðborgar-
svæðinu um helgina. Átta þeirra
voru stöðvaðir í Reykjavík og einn
í Kópavogi og annar í Garða-
bæ. Þrír voru teknir á laugardag,
fimm á sunnudag og tveir aðfara-
nótt mánudags. Þetta voru átta
karlar á aldrinum 25 til 61 árs og
tvær konur, 18 og 21 árs. Tveir
þessara ökumanna höfðu þegar
verið sviptir ökuleyfi og einn hef-
ur aldrei öðlast ökuréttindi, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
lögreglu.
Þá voru átta ökumenn teknir á
höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka
undir áhrifum fíkniefna. Fimm
þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík,
tveir í Kópavogi og einn í Mos-
fellsbæ. Tveir voru teknir á bæði
laugardag og sunnudag og fjórir
aðfaranótt mánudags. Þetta voru
allt karlar en þeir eru á aldrinum
18–38 ára. Þrír þeirra höfðu þegar
verið sviptir ökuleyfi.
Ráðgjafarhópur Velferðarráðherra lætur rannsaka starfsemi einkarekinna læknastofa
hér á landi.
Stálu bifreið
á bílaleigu
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hafði hendur í hári tveggja
einstaklinga á mánudagskvöld
sem reyndust vera á stolinni bif-
reið. Bifreiðinni var stolið eftir
að brotist var inn á bílaleigu og
lyklum að bifreiðinni stolið. Inn-
brotið átti sér stað í hádeginu á
mánudag. Ökumaður bifreiðar-
innar er grunaður um að hafa
ekið henni undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Þá reyndist hann
vera án ökuréttinda en hann
hafði verið sviptur þeim. Menn-
irnir voru báðir sendir í fanga-
klefa en þeim var sleppt úr haldi
á þriðjudag.
R
eykjavíkurborg hefur hækk-
að fasteignagjöld á hest-
hús í borginni úr 0,22% af
fasteignamati í 1,65%. Þetta
er gjaldskrárhækkun upp
á 750%. Hestamenn eru æfir vegna
málsins. Jón Finnur Hansson, fram-
kvæmdastjóri Hestamannafélagsins
Fáks í Víðidal, segir hækkunina koma
hestamönnum í opna skjöldu. „Það
er alveg gífurleg óánægja meðal hest-
húsaeigenda með þessa miklu hækk-
un,“ segir Jón Finnur í samtali við DV.
„Börn og unglingar eru hluti af
því fólki sem stundar hestamennsku
og leigja pláss í hesthúsum. Þetta er
rosaleg hækkun fyrir þau. Það eru
1.800 félagar í Fáki og fjórðungur
þeirra er undir 18 ára aldri. Hesta-
mennskan er dýr fyrir og ekki batn-
ar að borgin leggi þetta gjald á. Þetta
bitnar harðast á þessum hópi,“ segir
hann.
„Þetta er rosaleg hækkun“
Hilmar Magnússon hestamaður á
helmingshlut í 20 hesta hesthúsi í Al-
mannadal sem tilheyrir Fákssvæð-
inu. Á síðasta ári voru fasteigna-
gjöldin af húsinu 56 þúsund krónur,
en eftir hækkunina, sem tók gildi um
síðustu áramót, eru gjöldin komin
upp í 426 þúsund krónur á ári. Ofan á
það bætist holræsisgjald fyrir húsið,
sem nemur um 130 þúsund krónum
á ári. Í krónum talið hækka fasteigna-
gjöldin því um 370.000 krónur á ári,
eða um 30 þúsund krónur á mánuði.
„Maður getur nánast farið með
lyklana að húsinu og skilað þeim
inn,“ segir Hilmar um hækkunina.
„Þetta er eins og heil mánaðarlaun
venjulegs launamanns. Ég veit að
þessar hækkanir munu þurrka út
þetta sport að einhverju leyti. Þetta
eru gífurlegar forsendubreytingar
hjá fólki sem setur sparipeningana
sína í þetta hobbí,“ segir hann.
Hækkunin er tilkomin vegna þess
að borgin hefur ákveðið að færa hest-
hús úr A-flokki fasteignagjalda, þar
sem þau eru með 0,22% af fasteigna-
mati í C-flokk sem er 1,65% af fast-
eignamati. Í C-flokki er meðal ann-
ars atvinnuhúsnæði, en í A-flokki er
íbúðarhúsnæði.
Jón Finnur hjá Fáki segir það
heldur súrt í broti að tómstundahús
í borginni sem notuð eru 6 mánuði á
ári séu sett í þennan flokk. „Þetta er
rosaleg hækkun og að hún skuli vera
svona mikil án þess að gera mönnum
viðvart kemur okkur mjög á óvart.
Við ætlum að skoða þessi mál, okkar
réttindi og hvað hægt er að gera í
framhaldi. Það eru allir mjög ósáttir
við þessa hækkun og þetta gerir okk-
ur mjög erfitt fyrir. Þetta þyngir róð-
urinn fyrir hestamenn.“
Lítil sem engin þjónusta
Í dæminu sem rakið er hér að ofan
er hesthúsið í dýrari kantinum mið-
að við mörg önnur hesthús á svæð-
inu. Sé hins vegar miðað við hesthús
í Víðidal, þar sem fasteignamatið er
10 milljónir króna, þá hækkar gjaldið
á ári úr 22 þúsund krónum í 165 þús-
und krónur. Það gerir hækkun upp á
14 þúsund krónur á mánuði á hvern
hestahúsaeigenda.
Jón Finnur bendir einnig á að
þessi hækkun hafi ekki aðeins áhrif
á eigendur hesthúsa. Hækkunin skili
sér út í leiguverð líka, en fjölmargir
hestamenn sem hafa ekki ráð á því
að kaupa eigin hús leigja aðstöðu í
hesthúsum. Hækkunin bitni á þeim
líka.
Hesthús í dreifbýli eru ekki sett í
þennan gjaldflokk. Fleiri hestamenn
sem DV ræddi við, en vildu ekki
koma fram undir nafni, bentu á að
borgin hirti ekki sorp á svæðinu og
aðeins einu sinni í vetur hefði snjó
verið rutt á Fákssvæðinu. Þjónusta
borgarinnar sé því mjög lítil.
n Hækkanir á hestamenn bitna harðast á börnum og unglingum
Risahækkanir
á hestamenn
„Það eru 1.800
félagar í Fáki
og fjórðungur þeirra er
undir 18 ára aldri. Hesta-
mennskan er dýr fyrir og
ekki batnar að borgin
leggi þetta gjald á. Þetta
bitnar harðast á þessum
hópi.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Fasteignagjöld
á hesthús
ÁRIÐ 2011: 22.000 krónur
ÁRIÐ 2012: 165.000 krónur
Miðað er við hesthús í Víðidal þar sem
fasteignamatið er 10 milljónir króna.
Hækkunin nemur 143 þúsund krónum á
milli ára.