Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Síða 12
12 Erlent 1. febrúar 2012 Miðvikudagur
Bifreið Baracks Obama til sölu
n Vill fá 123 milljónir króna fyrir sjö ára gamla bifreið
Á
hugasamir bílasafnarar geta
nú gert tilboð í bifreið sem eitt
sinn var í eigu Baracks Obama
Bandaríkjaforseta. Bifreiðin,
sem er af gerðinni Chrysler 300C, er
2005 árgerð og er venjulegt gangverð
slíkra bifreiða á bandarískum mark-
aði um 19 þúsund dalir, eða rúmar
2,3 milljónir króna. Sú staðreynd, að
bifreiðin hafi verið í eigu Bandaríkja-
forseta, hefur þó hleypt verðinu upp
úr öllu valdi og vill eigandinn, Tim
O’Boyle, fá eina milljón dala, jafnvirði
123 milljóna króna, fyrir bifreiðina
sem er til sölu á uppboðsvefnum eBay.
Það er Lisa Czibor, þekktur bílasali
í Chicago, sem selur bifreiðina fyrir
hönd eigandans og segir hún að eng-
inn vafi leiki á því að umrædd bifreið
hafi verið í eigu Obama. Hann á að
hafa selt hana í júlí árið 2007, um það
leyti sem hann hóf baráttu sína fyrir
forsetakosningarnar 2008. Í staðinn
keypti hann splunkunýja Ford Escape
Hybrid-bifreið en skömmu áður hafði
hann hvatt bílaframleiðendur til að
leggja meiri áherslu á framleiðslu um-
hverfisvænna bíla. Chrysler-bifreiðin
er með 5,7 lítra V8 vél sem skilar litlum
340 hestöflum.
Czibor segir í samtali við tímarit-
ið Time að verðið sé langt í frá of hátt
og bendir á máli sínu til stuðnings að
gömul Peugeot-bifreið Mahmouds
Ahmedinejad, forseta Írans, hafi selst
á 2,35 milljónir dala, eða 290 millj-
ónir króna, á síðasta ári. Peningur-
inn sem fékkst fyrir þá bifreið rann til
góðgerðamála en í þessu tilviki er um
einkaaðila að ræða sem fyrr segir.
Uppboðinu á eBay lýkur í dag, mið-
vikudag.
Rándýr bíll Almennt verð á þessum bifreiðum er um 2,3 milljónir króna. Eigandinn vill hins
vegar fá 123 milljónir fyrir hana.
A
fganistan er hættulegasta
land í heimi fyrir börn,
samkvæmt skýrslu barna-
hjálpar Sameinuðu þjóð-
anna, UNICEF. Á hverju
ári flýja þúsundir barna landið og
eru til dæmi þess að börn hafi farið
fótgangandi alla leið til Frakklands.
Þetta er meðal þess sem kemur fram
í ítarlegri úttekt breska blaðsins The
Guardian á málefnum flóttamanna.
Mörg þeirra barna sem yfirgefa Af-
ganistan gera það af ótta við eigið
öryggi: Til að flýja ofbeldi, liðssöfn-
un talíbana eða bág kjör í landinu
þar sem fátækt er útbreitt vandamál.
Sex þúsund kílómetrar
Blaðamaður The Guardian heim-
sótti útibú Hjálpræðishersins í París.
Þegar blaðamaður gekk inn í hús-
ið voru þar 25 ungmenni – yngstu
aðeins þrettán ára – að koma upp
svefnpokum á gólfinu. Þarna voru
nokkrir drengir frá Malí og Bangla-
dess en flestir voru frá Afganist-
an. Þarna voru þrettán ára frændur
frá Kabúl sem komið höfðu í mið-
stöð Hjálpræðishersins fyrr um
daginn, en þeir höfðu lagt að baki
fimm mánaða erfitt ferðalag frá
Afganistan. Þessir drengir höfðu
ekki efni á að nýta sér hefðbund-
inn ferðamáta þegar farið er á milli
landa, til dæmis flugferð eða rútu-
ferð. Þeir fóru fótgangandi. Fæt-
ur annars þeirra, Morteza, voru
bólgnir og virtust illa farnir vegna
kalsára. Sárin höfðu myndast þegar
þeir gengu yfir snævi þakið fjalllendi
Króatíu, Slóveníu og Ítalíu áleiðis til
Frakklands. Þeir höfðu lagt sex þús-
und kílómetra að baki.
Hinn ungi drengurinn, Sohrab,
rifjaði upp í samtali við blaðamann,
á lélegri ensku, að þeir, ásamt átta
fullorðnum, hefðu verið stöðvaðir af
lögreglunni í Slóveníu. Tveir hinna
fullorðnu voru handteknir en hinum
tókst að flýja upp í fjöllin og komust
leiðar sinnar með gömlu GPS-stað-
setningartæki. Tilgangur frændanna
ungu var að finna ættingja sem þeg-
ar höfðu flutt til Evrópu, en foreldrar
þeirra beggja eru látnir.
Flóttamönnum fjölgar
Í úttekt The Guardian kemur fram að
enginn viti með vissu hversu mörg
afgönsk börn komast með þessum
hætti til Evrópu. Árið 2011 tók Hjálp-
ræðisherinn í París við 1.700 ungum
flóttamönnum, þar af þrjú hundr-
uð frá Afganistan. Sarah Di Giglio,
fulltrúi samtakanna Save The Child-
ren á Ítalíu, segir að árið 2011 hafi
fjöldi afganskra barna sem leituðu á
náðir samtakanna í Róm, höfuðborg
Ítalíu, tvöfaldast frá árinu áður.
Blanche Tax, sem starfar hjá
flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna í Genf, segir að öryggis-
málum í Afganistan hafi hrakað á
undanförnum árum. Hún segir, líkt
og kom fram í upphafi greinarinn-
ar, að Afganistan sé hættulegasta
land í heimi fyrir börn og bendir á,
máli sínu til stuðnings, að frá janú-
ar og fram í september í fyrra hafi
1.600 börn verið myrt eða slasast af
mannavöldum. Þetta er 55 prósenta
aukning frá árinu 2010.
Og í skýrslu sem öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna gaf út í desember
síðastliðnum kom fram að tugþús-
undir barna þjáðust af vannæringu í
landinu. Þá er varpað ljósi á tilraunir
talíbana til að fá börn til liðs við sig,
börn á aldur við frændurna Morteza
og Sohrab.
Ekkert betra tekur við
Fyrir fjölmarga flóttamenn sem yfir-
gefa heimaland sitt í leit að betra lífi
í Evrópu tekur ekkert betra við. Fleiri
hundruð flóttamenn hafast við á göt-
um Parísar þar sem þeir leita skjóls í
undirgöngum, almenningsgörðum
eða á lestarstöðvum. Ástæðan er sú
að flóttamennirnir eru svo margir
að ekki er hægt að veita þeim öllum
húsaskjól. Áður en þessi ungmenni
ná átján ára aldri verða þau að sýna
fram á að þau tali frönsku reiprenn-
andi til að eiga von um að fá land-
vistarleyfi. Fyrir drengi sem hafa
nánast enga skólagöngu að baki get-
ur þetta reynst þrautin þyngri og eru
margir þeirra sendir aftur til baka
þegar þeir ná átján ára aldri.
Fótgangandi
frá Afganistan
til Frakklands
n Börn leggja á sig mörg þúsund kílómetra göngu í leit að betra lífi „Sárin höfðu mynd-
ast þegar þeir
gengu yfir snævi þakið
fjalllendi Króatíu, Slóven-
íu og Ítalíu.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Löng leið Leiðin til
Evrópu frá Afganistan
er löng. Börn allt niður í
þrettán ára leggja á sig
mörg þúsund kílómetra
ferðalag fótgangandi í leit
að betra lífi. Mynd REutERS
Dæmdur fyrir
að ráða leigu-
morðingja
51 árs Breti hefur verið dæmdur í
sjö ára fangelsi fyrir að ráða leigu-
morðingja sem átti að fá það hlut-
verk að ráða meintum elskhuga
eiginkonu hans bana. Maðurinn,
Silvanus Satya Naidu, taldi að eig-
inkona hans til 28 ára hefði í huga
að skilja við hann. Maðurinn, sem
Silvanus vildi feigan, hafði nýlega
vingast við eiginkonu hans á Fa-
cebook og grunaði hann eigin-
konu sína um framhjáhald.
Svo fór að Silvanus fann, að
hann taldi, leigumorðingja á net-
inu sem sagðist vera reiðubúinn til
verksins. Leigumorðinginn reynd-
ist hins vegar vera lögregluþjónn
og reyndist saksóknurum því auð-
velt um vik að sannfæra dómara
um ásetning hans í málinu.
Aðdáendur
Pútíns
Armenar hafa stofnað aðdáenda-
klúbb til heiður Vladimír Pútín
Rússlandsforseta. Höfuðstöðv-
arnar eru í Yerevan, höfuðborg
Armeníu, en þar horfa aðdáend-
urnir á kvikmyndir um leiðtogann
og lesa um hann bækur, svo eitt-
hvað sé nefnt. „Við ákváðum að
kalla klúbbinn Pútín vegna þess
að hann er öflugasti leiðtoginn í
Austur-Evrópu,“ hefur AFP-frétta-
stofan eftir Arat Stepanian, fram-
kvæmdastjóra klúbbsins. Hann
sé áhugaverður sem einstaklingur
og það sé áhugavert hvernig hann
eyðir frítíma sínum. Hann eigi
skilið mikla virðingu.
Hópur ungra Armena hefur
mótmælt opnun klúbbsins og gert
grín að Pútín. „Fólk er hneykslað á
þessum aðdáendaklúbbi og hann
er þjóðinni til skammar,“ er haft
eftir einum mótmælenda.
Breivik vill
viðtal
Norski fjöldamorðinginn Anders
Behring Breivik hefur lýst yfir vilja
til að mæta í viðtal hjá erlendri
sjónvarpsstöð. Fjölmargir fjöl-
miðlar, bæði norskir og annars
staðar frá, hafa reynt að fá viðtal
við morðingjann en lögmaður
hans hefur ráðlagt honum að veita
engin viðtöl fyrr en réttað hefur
verið í máli hans. Breivik hafi hins
vegar hvað eftir annað lýst yfir
vilja sínum til að fara í viðtal við
erlenda sjónvarpsstöð. Réttar-
höldin yfir honum hefjast í vor, 16.
apríl. Hann hefur verið úrskurð-
aður ósakhæfur. Ekki er greint frá
því í norskum fjölmiðlum hvaða
sjónvarpsstöð hann vill tala við
en Breivik hefur haft kost á því að
fylgjast með fjölmiðlum frá því í
desember.