Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Page 14
E ld sn ey ti Bensín Dísilolía Algengt verð 246,7 kr. 253,6 kr. Algengt verð 245,9 kr. 253,4 kr. höfuðborgarsv. 245,8 kr. 253,3 kr. Algengt verð 246,7 kr. 253,6 kr. Algengt verð 247,9 kr. 253,8 kr. Melabraut 245,9 kr. 253,4 kr. 14 Neytendur 1. febrúar 2012 Miðvikudagur Slökktu á súkkulaðiþörfinni n Margir finna fyrir löngun í sætindi þegar líður á daginn L angi þig í súkkulaði fáðu þér þá göngutúr. Svona hljóma leið- beiningar sem birtust á vef danska blaðsins Politiken fyrir skömmu. Þar er vitnað í niðurstöður könnunar sem framkvæmd var í Bret- landi og var ætlað að finna út hvað gæti minnkað súkkulaðiþörf. Það kannast líklega margir við það þegar súkkulaðiþörfin hellist yfir þeg- ar líður á eftirmiðdaginn og blóðsyk- urinn fellur eftir því sem fjær dregur hádegismatnum. Þeir sem hafa van- ið sig á að fá sér einn og einn súkk- ulaðibita yfir daginn í vinnunni geta nú andað léttar því í niðurstöðum könnunarinnar segir að til að slökkva súkkulaðihungrið eigi fólk að fá sér 15 mínútna göngutúr. Ef þú fylgir þessum ráðleggingum minnkar þú þörfina fyr- ir súkkulaði í vinnunni um helming. Í könnuninni sem framkvæmd var við Exeter-háskóla voru 78 súkku- laðifíklar fengnir til að taka þátt í til- raun og sett það skilyrði að þeir hefðu ekki borðað súkkulaði í tvo sólar- hringa áður en tilraunin hæfist. Þeim var skipt í fjóra hópa en tveir þeirra voru látnir fara í 15 mínútna göngu áður en þeir fengu verkefni. Annar fékk krefjandi verkefni en hinn létt- ara verkefni. Hinir tveir fengu sömu verkefni en var sagt að hvíla sig áður. Allir hópar höfðu ótakmarkaðan að- gang að súkkulaði meðan á tilraun- inni stóð. Niðurstaðan var sú að þeir sem höfðu gengið borðuðu 15 grömm af súkkulaði á móti 28 grömmum hjá þeim sem hvíldu sig. Adrian Taylor, prófessor og stjórn- andi könnunarinnar, segir að það verði vani að narta í súkkulaði yfir daginn og stinga upp í sig mola í rauninni án þess að hugsa um það. Þann vana sé hægt að yfirstíga og fyrrnefndur göngutúr sé góð leið til þess. gunnhildur@dv.is Mikill verðmunur Lastið fær N1 fyrir að selja kaffi latte háu verði en viðskiptavinur sendi eftirfarandi; „Ég kaupi mér oft kaffi til að taka með og versla bæði við N1 og Stöðina en þar er mikill munur á verði á kaffi latte. Á Stöðinni færðu bollann á 299 krónur en þar er selt kaffi frá Te og kaffi. Á N1, sem selur kaffi frá Kaffitári, þarf maður hins vegar að borga 445 krónur fyrir sama drykkinn. Mér finnst þetta gífur- legur munur og get ekki varist því að hugsa að N1 sé að okra á við- skiptavinum. Af hverju getur N1 ekki selt kaffið á svipuðu verði og Stöðin?“ segir viðskiptavinur beggja stöðva. DV hafði samband við stöðvar- stjóra einnar N1-stöðvarinnar sem sagði að þetta sé verðið sem þau hafi alltaf selt kaffið á. „Kaffi latte er á 445 krónur hjá okkur en þetta eru stærri bollar en venjulegir bollar. Ég veit ekki hvort þetta er sambærilegt kaffi en okkar kemur frá Kaffitári og er sér- blandað fyrir okkur.“ SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Ekkert vesen Lofið að þessu sinni fær Elko fyrir góða þjónustu. „Faðir minn keypti USB-lykil í Keflavík en hann reyndist bilaður eða gallaður. Hann býr í Reykjavík og þegar hann ætlaði að skila honum í borginni þá varð hann að fá kvittun frá Keflavík. Mér skilst að það séu ekki sam- tengd kerfi þar á milli. Það sem ég vildi fá að lofa er að þegar allt kom til alls þurfti hann ekki að fara til Kefla- víkur heldur hringdi og fékk kvittunina senda strax næsta morgun og gat þar með fengið nýj- an USB-lykil.“ Lof&Last Súkkulaði Stuttur göngutúr dregur úr súkkulaðilöngun. Reykjavík Hafnarfjörður Seltjarnarnes Kópavogur Garðabær Akranes Reykjanesbær Mosfellsbær Akureyri Árborg Fljótsdalshérað Fjarðabyggð Ísafjörður Skagafjörður Vestmannaeyjar Dalvíkurbyggð Hornafjörður Leikskólagjald 24.501 kr. 30.021 kr. 31.477 kr. 25.078 kr. 33.390 kr. 27.868 kr. 31.480 kr. 31.642 kr. 29.560 kr. 31.146 kr. 25.336 kr. 33.726 kr. 34.342 kr. 27.688 kr. 29.829 kr. 30.797 kr. 25.396 kr. Systkinaafsláttur 75,00% 30,00% 50,00% 30,00% 50,00% 50,00% 50,00% 50,00% 30,00% 25,00% 25,00% 50,00% 30,00% 50,00% 50,00% 30,00% 50,00% Sorphirða 16.300 kr. 19.300 kr. 16.050 kr. 23.300 kr. 17.500 kr. 27.700 kr. 36.225 kr. 21.500 kr. 23.100 kr. 26.760 kr. 20.972 kr. 21.500 kr. 43.659 kr. 16.000 kr. 15.238 kr. 27.447 kr. 11.500 kr. Útsvar 14,480% 14,480% 14,180% 14,480% 13,660% 14,480% 14,480% 14,480% 14,480% 14,480% 14,480% 14,480% 13,280% 14,480% 14,480% 14,480% 14,480% Fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis 0,200% 0,320% 0,209% 0,320% 0,260% 0,361% 0,300% 0,265% 0,380% 0,325% 0,500% 0,430% 0,650% 0,500% 0,420% 0,470% 0,500% Fráveitugjald, hlutfall af heildarfasteignamati 0,185% * 0,110% 0,169% 0,120% * 0,170% 0,130% 0,150% 0,317% 0,318% 0,290% 0,250% 0,275% 0,200% 0,370% 0,300% Vatnsgjald Allt að 0,5% 0,112% 0,120% 0,135% 0,110% Allt að 0,5% 0,193% 0,110% * 0,196% * 0,310% 0,180% 0,160% 0,193% 0,350% 0,180% Skólamatur 310 kr. 375 kr. 365 kr. 395 kr. 428 kr. 300 kr. 275 kr. 310 kr. 350 kr. 410 kr. 425 kr. 435 kr. 412 kr. 305 kr. * 345 kr. 260 kr. Fermetraverð 219.195 kr. 209.780 kr. 266.167 kr. 220.557 kr. 243.733 kr. 149.005 kr. 140.460 kr. 199.283 kr. 175.087 kr. 146.612 kr. 149.691 kr. 102.653 kr. 77.407 kr. 134.990 kr. 124.063 kr. 129.380 kr. 93.361 kr. Sund barnamiði 120 kr. 110 kr. 120 kr. 150 kr. 120 kr. Frítt Frítt 130 kr. 150 kr. Frítt 250 kr. 200 kr. 260 kr. Frítt 150 kr. Frítt 180 kr. Sund fullorðinsmiði 500 kr. 450 kr. 400 kr. 550 kr. 350 kr. 380 kr. 370 kr. 400 kr. 470 kr. 550 kr. 500 kr. 450 kr. 510 kr. 500 kr. 450 kr. 500 kr. 580 kr. Frístundakort 25.000 kr. * 25.000 kr. Allt að 24.000 kr. 25.000 kr. 25.000 kr. * 15.000 kr. 10.000 kr. 10.000 kr. 20.000 kr. Lágvöruverslun Já Já Já já Já Já já Já já já já já já Nei já Nei já *Reykjavík og Akranes - 8.263 króna fráveitugjald fast gjald auk 318 króna breytilegs gjalds *Vestmannaeyjar - skólamatur 338 krónur fyrir 1. til 6. bekk og 415 krónur fyrir 7. til 10. bekk *Akureyri - 109,15 króna vatnsgjald auk 7.275 króna fastagjalds *Fljótsdalshérað - 225 króna vatnsgjald auk 7.400 króna fastagjalds *Skagafjörður - Hvatakort að upphæð 8.000 krónur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum n Samanburður á 18 sveitarfélögum sýnir að fermetraverð er hæst nálægt höfuðborginni n Töluverður munur er á leikskólagjöldum S amkvæmt útsvarsprósentu er best að búa á Ísafirði en þar er að auki langlægsta fermetraverð á húsnæði. Garðbæingar hafa greitt hæsta fermetraverðið fyrir fasteign- ir sínar en borga aftur á móti lægsta vatnsgjaldið. Þetta eru niðurstöð- ur samanburðar á sveitarfélögum sem DV gerði en þar voru skoðaðir nokkrir útgjaldaliðir heimilanna. Við samanburðinn kom í ljós að ódýr- ast er að vera með börn á leikskóla í Reykjavík auk þess sem þar er veitt- ur mestur systkinaafsláttur. Eins er þar veittur hæsti frístundastyrkur- inn og verð fyrir skólamat er með því lægsta. Með þetta í huga má segja að hagkvæmast sé að vera með börn í Reykjavík. Það er þó ýmislegt annað sem má taka inn í reikninginn þegar reynt er að finna út hvar best sé að búa, til dæmis hvernig veðurfarið er, hvern- ig snjómokstri er háttað og hvaða skemmtun og afþreying er í boði. Eins hvort um barnvænan og rólegan stað sé að ræða en ekki var tekið tillit til þessara þátta í könnuninni. Seltjarnarnes fallið af topp- inum Árið 2009 gerði DV svipaða könnun en niðurstaða hennar var að best væri að búa á Seltjarnarnesi en þá skar bæjarfélagið sig úr á flestum sviðum samanburðarins. Þá bjuggu Seltirningar við lægsta útsvarið, þeir greiddu lægsta vatns- gjaldið, lægsta hlutfallslega fast- eignaskattinn og lægsta sorphirðu- gjaldið. Seltjarnarnes getur ekki lengur talist besti staðurinn að búa á, miðað við samanburðinn því þótt Seltirningar greiði ekki hæsta út- svarið á landinu þá er það næsthæst á landinu. Fasteignaskatturinn er þó enn með því lægsta og fráveitugjald- ið er lægst á Seltjarnarnesi. Skattar og gjöld Nú styðjast langflest sveitarfélögin við hámarksútsvar eða 14,48 prósent en standi sveitarfélögin mjög illa fjárhagslega geta þau hækkað hana. Í Garðabæ er hún hins vegar lægri, eða 13,66 prósent, og á Seltjarnar- nesi 14,18 prósent. Eins og fyrr segir er hún lægst á Ísafirði, eða 13,28 pró- sent. Aðrar skattheimtur á landinu eru afar misjafnar en þar má til dæmis nefna fasteignaskattinn. Hann fylgir verði á fasteignum að því leyti að því nær Reykjavík sem fasteignin er því lægri er skatturinn. Hann er lægstur í Reykjavík, eða aðeins 0,2 prósent á meðan fasteignaeigendur á Ísafirði borga 0,65 prósent. Á Seltjarnanesi er hann aðeins hærri en í Reykjavík, eða 0,209 prósent og 0,26 í Garðabæ. Skatturinn er hins vegar 0,5 prósent bæði á Fljótsdalshéraði og í Skaga- firði. Sorphirðugjald er langlægst á Hornafirði, eða 11.500 krónur, á meðan Húsvíkingar borga 45.839 krónur og Ísfirðingar borga rúmar 43.000 krónur. Orkuveita Reykjavík- ur sér um að innheimta vatnsgjald- Barnafjölskyldur hafa það best í Reykjavík Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.