Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Side 22
„Dæmum fólk eftir hjartalaginu“
n Loftur Gunnarsson lagður til hinstu hvílu
L
oftur Gunnarsson, úti-
gangsmaðurinn sem
lést þann 20. janúar
síðastliðinn, var bor-
inn til grafar frá Garðakirkju
á þriðjudaginn. Fjölmarg-
ir minntust hans í minn-
ingargreinum í Morgun-
blaðinu, þar á meðal Gunnar
Hilmars son, stofnandi tísku-
vöruverslunarinnar GK,
en hann var mágur Lofts. Í
greininni minnist hann Lofts
sem mikils bóhems og heim-
spekings en áfengið hafi því
miður togað hann of fast til
sín. Í greininni talar hann
einnig um hversu margir hafi
lesið fréttir af fráfalli Lofts
inni á DV og það sýni hversu
marga Loftur snerti og að frá-
fall hans snerti lífið í miðbæ
Reykjavíkur einnig mikið.
Fullt var út úr dyrum í
jarðarförinni. Margir voru
mættir til að votta honum
virðingu sína enda Loftur
vinmargur. Þar á meðal mátti
sjá mikið af þekktu fólki úr
Garðabænum en Loftur ólst
þar upp.
Þar voru mættir bæði
stjórnmálamenn og leik-
menn knattspyrnuliðs
Stjörnunnar, meðal annars
markakóngurinn Garðar Jó-
hannsson. Útvarpsmaðurinn
og vélbyssukjafturinn Máni
Pétursson á X-inu sótti líka
jarðarförina en hann þekkti
vel til Lofts og hafði hann
í miklum metum þrátt fyr-
ir þær ógöngur sem Loftur
hafði lent í.
„Garðakirkja var of lít-
il fyrir Loft Gunnarsson. Við
skulum alltaf dæma fólk út
frá hjartalaginu en ekki lífs-
stílnum sem það velur. Hvíl í
friði,“ skrifaði Máni á Twitter-
síðu sína. Fjölmargir aðrir
hafa skrifað minningarorð til
Lofts og vottað honum virð-
ingu sína á ýmsan máta, þar
á meðal fjölmargir á Facebo-
ok-samskiptasíðunni.
22 Fólk 1. febrúar 2012 Miðvikudagur
Giftist
syni Bítils
Sólveig Káradóttir fyrirsæta
stefnir á að giftast tónlistar-
manninum Dhani Harrison
í júní á þessu ári. Þau hafa
verið par í nokkur ár. Dhani
er sonur Bítilsins George
Harrison. Hann erfði tón-
listarhæfileikana frá föður
sínum og er í hljómsveit-
inni thenewno2. Sólveig er
dóttir Kára Stefánssonar, for-
stjóra Íslenskrar erfðagrein-
ingar. Hjónin tilvonandi eru
búsett í borg englanna, Los
Angeles.
Ritstjóri í
heimsreisu
Ritstjóri Mannlífs, Hrund
Þórsdóttir, og kærasti
hennar, Óskar Páll Elfars-
son, lögðu í mikla heims-
reisu í liðinni viku. Á rúmum
þremur mánuðum ætla þau
að ferðast um Afríku, Ástr-
alíu, Asíu og Suður-Amer-
íku. Parið er eingöngu með
flugleiðirnar skipulagðar en
annars eru ferðaplönin mjög
sveigjanleg. Fyrsta stopp er
Naíróbí og þaðan halda þau
á vit hvers ævintýrisins á
fætur öðru.
Fór ekki á
stefnumót
Anna Svava Knútsdóttir leik-
kona er þekkt fyrir að gera
að gamni sínu og hefur það
raunar að atvinnu sinni. Hún
er til að mynda ein þeirra
sem skrifuðu handrit að
áramótaskaupinu síðustu 2
árin. Flestir taka henni með
góðum fyrirvara á Face-
book-síðu hennar en á dög-
unum setti hún eftirfarandi
færslu: Stefán Máni var að
hringja og bjóða mér á deit
í kvöld. Á ég að segja já eða
nei? Viðbrögðin létu ekki
á sér standa. Flestir mæltu
með því að hún skellti sér á
stefnumót með rithöfund-
inum. Diljá Ámundadóttir
í Besta flokknum gerði það
þó að skilyrði að hann væri í
hlýrabol.
Þeir sem til þekkja vita
sem er að Anna Svava og
Stefán Máni eru bestu vinir
en langt því frá að rugla sam-
an reytum.
Loftur Gunnarsson
Er mörgum harmdauði.
Þ
etta er alltaf sárt en
ég tek þessu bara. Er
ekki þriðji hver Ís-
lendingur að ganga í
gegnum svona þessi
misserin? Ég er bara ein af
þeim,“ segir útvarpskonan
Sigga Lund Hermannsdóttir
sem fékk uppsagnarbréf þegar
hún mætti til vinnu í morgun.
Sigga hafði starfað í níu ár hjá
365 og var verkefnisstjóri Létt-
Bylgjunnar undir lokin. Hún
segir uppsögnina hafa komið
sér á óvart.
„Þetta kom bara eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Ég er
varla búin að ná þessu ennþá
en ég verð bara að horfa fram
á veginn. Það opnast alltaf
aðrar dyr þegar einar lokast.
Nú er síðan mín siggalund.is
loksins að detta inn svo ég hef
alveg nóg að gera.“
Sigga vakti mikla athygli í
morgunþættinum Zúúber þar
sem hún lét allt flakka ásamt
útvarpsmönnunum Svala og
Gassa. Eftir nokkur ár á FM957
flutti hún sig yfir á Bylgjuna og
Létt-Bylgjuna og var að eigin
sögn alsæl með flutninginn.
„Þetta er búið að vera afar lær-
dómsríkur tími með Bylgjust-
rákunum. Ég er reynslunni
ríkari,“ segir Sigga sem vonast
til þess að eiga endurkomu í
útvarp. „Fjölmiðlar eru minn
draumur – sjónvarp, útvarp,
ég er til í allt. Ég á heima í fjöl-
miðlum, þar líður mér vel.“
Sigga veit ekki hvort fleiri
starfsmönnum hafi verið sagt
upp né hvort það séu breyt-
ingar í lofti með Létt-Bylgj-
una. „Ég veit bara ekki neitt.
Ég mætti bara í morgun og
var sagt að ég þyrfti ekki að
mæta meira. Ástæðan er sam-
dráttur í fyrirtækinu. Pálmi
[Guðmundsson, yfirmaður
dagskrársviðs 365, innsk.
blaðamanns] var alveg yndis-
legur í þessu viðtali og það eru
engin leiðindi milli mín og
fyrirtækisins. Mér finnst þetta
samt mjög sorglegt. Það eru
fáar konur í fjölmiðlum og ein-
hvern veginn finnst mér þær
nauðsynlegar líka,“ segir hún
og bætir aðspurð við að gömlu
vinnufélagarnir hafi orðið jafn
hissa og hún. „Þessum sam-
starfsmönnum mínum, sem
hafa verið vinnufélagar mínir
síðustu níu árin, fannst þetta
auðvitað mjög miður. En
svona er þessi bransi. Þetta
gengur hringinn. Flestir koma
aftur. En hvort það eigi við mig
í þessu tilfelli veit ég ekki. Ég
hverf á vit nýrra ævintýra. Það
er ekki öll nótt úti enn.“
Nýir starfsmenn ráðnir
í hagræðinguni
Fleiri starfsmenn 365 fengu
uppsagnarbréf í hendur fyrir
þessi mánaðamót. Meðal
þeirra sem sagt var upp störf-
um var starfsmannastjóri fyr-
irtækisins, útvarpsmaðurinn
Hans Steinar Bjarnason og
íþróttafréttamaðurinn Gunn-
laugur Rögnvaldsson sem hef-
ur séð um lýsingar á Formúlu-
kappakstrinum. „Ég er alveg
sallarólegur yfir þessu,“ seg-
ir Hans Steinar í samtali við
DV og sagðist ekki hafa tekið
ákvörðun um næstu skref.
Hagræðingaraðgerðir hafa
staðið yfir hjá 365 undan-
farnar vikur. Þremur reyndum
blaðamönnum var sagt upp
á dögunum. Þó hafa nokkrir
nýir starfsmenn bæst í starfs-
mannahóp 365 síðustu miss-
eri í miðjum hagræðingar-
aðgerðunum, þeirra á meðal
blaðamennirnir Þórður Snær
Júlíusson, áður á Viðskipta-
blaðinu, og Kolbrún Pálína
Helgadóttir, sem áður var rit-
stjóri Nýs Lífs.
Ari Edwald, forstjóri 365,
segir að 10 starfsmenn hafi
misst vinnuna síðustu tvo
mánuði og að fækkað verði í
framkvæmdastjórn fyrirtækis-
ins um tvo.
indiana@dv.is
Hverfur á vit
nýrra ævintýra
n Útvarpskonunni Siggu Lund sagt upp n Vonast til að snúa aftur í fjölmiðla
„Það eru fáar
konur í fjöl-
miðlum og einhvern
veginn finnst mér þær
nauðsynlegar líka.
Sigga Lund Sigga Lund
hafði unnið í útvarpi í rúm
níu ár. Hún segir upp-
sögnina hafa komið eins og
þrumu úr heiðskíru lofti.