Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 11.–13. maí 2012 Helgarblað Nóg af óráðstöfuðu fé n Ríkisendurskoðun gerir athugasemd við ákvörðun Guðbjarts R íkisendurskoðun gerir athuga- semd við þá ákvörðun Guð- bjarts Hannessonar velferðar- ráðherra að sækja um heimild í fjáraukalögum til að standa straum af kostnaði ríkisins vegna PIP-brjósta- púðamálsins. Í skýrslu Ríkisendur- skoðunar um framkvæmd fjárlaga á fyrstu mánuðum ársins kemur þessi athugasemd fram. Stofnunin telur að ekki hafi þurft að sækja um sérstaka heimild þar sem nóg af óráðstöfuðu fé sé að finna í núgildandi fjárlögum. Er sérstaklega bent á 2,8 milljarða króna fjárlagalið sem er merktur „ófyrirséð útgjöld“ og annan 160 milljóna króna fjárlagal- ið sem merktur er sem „ríkisstjórnar- ákvarðanir“. Talið er að kostnaður rík- isins vegna PIP-málsins nemi um 150 milljónum króna. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kem- ur einnig fram að samkvæmt yfirliti Fjársýslunnar fyrir fyrstu þrjá mán- uði ársins, sem er sama tímabil og er til umfjöllunar í skýrslunni, séu engin gjöld skráð á áðurnefnda fjárlagaliði á tímabilinu. Samkvæmt svari velferðarráðu- neytisins við fyrirspurn stofnunarinn- ar kemur einnig fram að samkvæmt áliti ríkislögmanns frá því í febrúar hafi verið ákveðið að grípa ekki til aðgerða með það að markmiði að endur heimta útlagðan kostnað ríkisins vegna máls- ins. Er það vegna þess að ekkert rétt- arsamband sé á milli ríkisins og Jens Kjartanssonar, lýtalæknisins sem framkvæmdi PIP-aðgerðirnar. Kostnaður ríkisins vegna PIP- málsins felst fyrst og fremst í skoð- un á þeim konum sem eru með slíka silíkonbrjóstapúða til að kanna hvort púðarnir hafi rifnað eða lekið. Tals- verður fjöldi kvenna hefur slíka púða og er eins og áður segir gert ráð fyr- ir allt að 150 milljóna króna kostnaði vegna skoðananna og brottnáms púð- anna í einhverjum tilfellum. Heiðar stefnir Seðlabankanum Ríkissaksóknari og sérstakur sak- sóknari hafa fellt niður rannsókn máls á hendur fyrirtæki í eigu Heiðars Más Guðjónssonar fjár- festis. Það var Seðlabanki Íslands sem upphaflega hóf rannsókn á málinu. Í tilkynningu sem Heiðar Már sendi frá sér vegna þessa fullyrðir hann að rannsóknin hafi orðið til þess að hann var útilokaður frá viðskiptum með hlutafé í Sjóvá Almenn- um trygging- um hf. „Þar með er komin tvöföld staðfesting á tilefnislausri rannsókn Seðla- bankans gegn fyrirtæki mínu sem kom í veg fyrir að ég fengi að leiða hóp fjárfesta til þess að kaupa Sjóvá,“ segir í yfirlýsingu frá Heiðari Má sem hann sendi frá sér á fimmtudag. Þar segir einnig: „Seðlabank- anum og seðlabankastjóra var á þessum tíma ítrekað bent á, að hvorki rannsóknin né máls- meðferðin fengi staðist nokkra skoðun. Var andmælum í engu sinnt. Nú hefur verið staðfest að við höfðum á réttu að standa um þessa óskiljanlegu atburðarás. Sérstök ástæða er til að nefna í því sambandi, að niðurstaða ríkissaksóknara byggir m.a. á því, sem við höfum haldið fram, að þær reglur sem Seðlabankinn setti og beitti í málinu hafi verið í andstöðu við stjórnarskrá.“ Því hafa lögmenn Heiðars Más hafið undirbúning á mál- sókn gegn Seðlabankanum vegna málarekstursins. Þess má geta að Heiðar Már mun af þeim sökum standa í að minnsta kosti fjórum málaferlum. Fyrir utan málaferli gegn Seðlabankanum hefur hann höfðað mál gegn fréttastjóra DV og báðum rit- stjórum blaðsins. Mikill kostnaður Talið er að kostnaður ríkisins vegna PIP-málsins nemi um 150 milljónum króna. Þ rotabú fjárfestisins Jafets Ólafssonar, eiganda skoð- unarstofunnar Aðalskoð- unar, hefur höfðað mál gegn eignarhaldsfélagi í eigu eig- inkonu hans og barna vegna sölu á fjórum íbúðum sem seldar voru til félagsins áður en Jafet var úr- skurðaður gjaldþrota í júlí í fyrra. Þetta segir skiptastjóri þrotabús Ja- fets, Þorsteinn Einarsson. Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra á Akureyri á fimmtudaginn. Eignarhaldsfélagið sem um ræð- ir heitir Veigur ehf. og heldur það einnig utan um eignarhlut fjölskyldu Jafets í Aðalskoðun. Héraðsdómur úrskurðaði Jafet gjaldþrota í júlí í fyrra og sagði hann þá, í samtali við DV, að verið væri að reyna að semja um skuldirnar sem hann var settur í þrot út af. „Það er ekkert um þetta að segja. Það er ver- ið að reyna að semja um þetta.“ Hann sagði þá að um væri að ræða skuldir sem hann stofnaði til persónulega, meðal annars vegna hlutabréfa- kaupa. Jafet var meðal annars fram- kvæmdastjóri fjárfestingarbankans VBS. Greitt með yfirtöku skulda Þorsteinn segir að greitt hafi verið fyrir íbúðirnar fjórar, sem eru á Ak- ureyri, með yfirtöku á veðskuldum. Jafet hafi því selt íbúðirnar inn í eignarhaldsfélagið en að hann vilji láta meta hvort rétt verð hafi verið greitt fyrir íbúðirnar. „Það þarf að meta þessar eignir og hvort þær hafi verið seldar fyrir raunvirði eða ekki. Ganga þarf úr skugga um hvort það hafi ekki verið allt í lagi með þessi viðskipti. Ennþá liggur ekki fyrir hvort eitthvað óeðlilegt hafi verið við þetta en sérfróðir aðilar þurfa að skoða það.“ Þorsteinn segir að ef verðmatið á íbúðunum muni leiða í ljós að of lágt verð hafi verið greitt fyrir íbúðirnar gæti slíkt leitt til þess að þrotabúið teldi sig eiga kröfu á eignarhalds- félagið Veig. „Ég veit þetta bara ekki ennþá.“ Salan á íbúðunum til Veigs átti sér stað í lok árs 2010 að sögn Þorsteins. Fyrsta málið sem höfðað er Þorsteinn segir að umrætt mál gegn Veig ehf. sé fyrsta málið sem þrotabú Jafets höfðar. Hann segir að fleiri mál séu til skoðunar þar sem leggja þurfi mat á sölu eigna sem áður voru í eigu Jafets. „Það er bara þetta sem er í gangi eins og er en það eru einhver matsmál í Héraðsdómi Reykjavíkur sem snúa að bifreiðum. En þetta er bara eitt af því sem skiptastjórum ber að gera: Að fara yfir þær ráðstaf- anir sem gerðar voru og kanna hvort greitt hafi verið eðlilegt verð. Ég ætla ekki að segja neitt meira um það fyrr en niðurstaða liggur fyrir.“ Helsta eign Veigs í dag er 75 pró- senta eignarhlutur í Aðalskoðun. Bifreiðarskoðunin er sú næststærsta á landinu með tilliti til markaðs- hlutdeildar, einungis Frumherji er stærri. Í ársreikningi Aðalskoðunar fyrir árið 2010 kemur fram að eignir fyrirtækisins nemi 630 milljónum króna og skuldirnar rúmlega 500 milljónum. Félagið hagnaðist um nærri 118 milljónir króna árið 2010. Skoða sölu íbúða úr þrotabúi Jafets n Þrotabú Jafets fer í mál við fjölskyldufélag hans„Það þarf að meta þessar eignir og hvort þær hafi verið seld- ar fyrir raunvirði eða ekki. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Unnið að uppgjöri Skiptastjóri vinnur nú að uppgjöri á þrotabúi Jafets Ólafssonar. Meðal þess sem er til skoðunar er söluverð á íbúðum til eignarhaldsfélags í eigu fjölskyldu hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.