Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Blaðsíða 52
52 Lífsstíll 11.–13. maí 2012 Helgarblað Einn fallegasti snjallsíminn H TC One X er stærsti síminn úr One-lín- unni frá HTC en það koma tveir aðrir símar í sömu línu: One V, sem er lítill og nettur, og One S, sem er mjög svip- aður One X nema minni og ódýrari. Þrátt fyrir að vera með mjög stóran skjá þá er síminn fisléttur og rúmast vel í hendi og vasa. Síminn kem- ur í tveimur litum, gráum og hvítum. Hvíta útgáfan er líklega einn fallegasti snjall- sími sem ég hef augum litið. Síminn er með nýjasta HTC Sense-viðmótinu (4.0). HTC Sense hefur algerlega verið tekið í gegn og einfaldað til muna, enda var það orðið of þungt og óþægilegt. Síminn er fyrsti síminn með Tegra 3 örgjörva, sem hefur verið notaður í nokkrar spjaldtölvur. Afköstin eru mjög góð og þá sérstaklega í tölvuleikjum. Vinnsluminnið er 1GB, sem er staðalbúnað- ur í dýrari týpunum af símum í dag, og virkar vel. Síminn er með 32GB af innbyggðu plássi en 7GB eru tekin frá fyrir stýrikerfi og forrit. Það er ekki MicroSD minniskort- arauf til staðar, sem er galli en ætti ekki að skipta miklu máli með svona miklu plássi. MicroUSB hleðsluraufin getur einnig verið MHL tengi sem hægt er að nota til að tengja við sjónvarp. Fer vel í vasa Síminn kemur með 4.7“ LCD2 IPS skjá og er upp- lausnin 720x1280 og ættu flestir iPhone-notendur að fá minnimáttarkennd þegar þeir sjá símann (og spyrja hvort þetta sé spjaldtölva). Skjárinn er alveg við að vera of stór og það eru örugg- lega einhverjir puttasmáir sem munu eiga erfitt með að aðlagast stærðinni. Ég var samt snöggur að því og það er mjög þægilegt að vafra og skoða myndbönd með þess- um skjá. Myndavélin að aftan er 8MP og sú fremri er 1,3MP sem hentar vel í myndbands- símtöl. Aftari myndavélin er með björtu og góðu LED- flassi. Það er hægt að byrja að taka myndband og taka ljósmyndir á sama stað, sem og taka ljósmyndir á meðan myndband er tekið upp (e. double shutter). Boðið er upp á þægilegan snertifó- kus en það er einmitt enginn sérstakur myndavélartakki á símanum sem er galli. Sím- inn getur tekið upp mynd- bönd í 1080p upplausn á 30 römmum með steríóhljóði. Hönnunin afbragð Þetta er fallega hannaður sími, búinn til úr hágæða efnum og með besta skjá sem þú getur fengið á síma í dag. Allir kantar eru mjúkir og þægilegir. Hliðarnar eru sveigðar sem er mjög flott og er það eini staðurinn þar sem ytra byrðið glansar, en það er matt annars staðar. Þeir hefðu þó mátt setja aflæsing- artakkann á betri stað en efst á svona stórum síma, eins og til dæmis á aðra hvora hliðina. Það er líka frekar slappt að bjóða upp á MLH tengi, en samnýta microUSB hleðsluraufina fyrir það. Þá er ekki hægt að hlaða sím- ann á sama tíma og hann er tengdur við sjónvarp. Ég er almennt séð ekki hrifinn af viðmótum fram- leiðenda og hallast frekar að því að nota Android eins og það kemur frá Google. Ég verð samt að gefa HTC Sense það að þetta er nothæfasta viðmótið sem ég hef notað. Sense fær þó feitan mínus fyrir tungumál, en það er enginn stuðningur fyrir ís- lensku. Það er þó hægt að ná sér í tól til að laga það. Nánari umfjöllun um sím- ann má nálgast á vefsíðunni simon.is. Besti skjárinn Fallega hannaður sími, búinn til úr hágæðaefnum og með besta skjá sem þú getur fengið á síma í dag, segir Atli Stefán. Atli Stefán Yngvason ritstjóri simon.is Tækni HTC One X Kostir n Frábær hönnun n Besti skjár sem þú færð í dag n Skemmtileg myndavél n Góður hugbúnaður Gallar n Aflæsingartakki illa staðsettur n Samnýting MLH og USB ekki sniðug n Léleg heyrnartól fylgja með n Engin íslenska n Mjög dýr Niðurstaða 8,5 / 10 Besti snjallsími sem ég hef notað, ásamt Galaxy Nexus.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.