Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Blaðsíða 41
Þ
rátt fyrir að Paul Berk-
ley væri nánast tvöfalt
eldri en Monique Whee-
ler, þegar þau kynnt-
ust sumarið 1999, small
eitthvað hjá þeim. Leiðir þeirra
sköruðust á Circle K-veitinga-
staðnum í Ventura-sýslu í Kali-
forníu. Paul var þar fastagestur
en erindi Monique var að hitta
lesbíska ástkonu sína, Mary,
sem hún hafði kynnst á netinu.
Einhverra hluta vegna sagði
Monique skilið við Mary og tók
saman við Paul og þau gengu
í það heilaga í Las Vegas árið
2001. Mary hins vegar undir-
gekkst kynskiptiaðgerð, tók upp
nafnið Marcus og kemur ekki
meira við sögu hér.
Paul státaði ekki af mikilli
farsæld í fyrri ástarsamböndum,
hafði verið giftur tvisvar og átti
tvö börn frá fyrra hjónabandi
sínu; Zeke og Becky.
Árið 2002 skráði Paul sig í
herinn, öðru sinni, og var send-
ur til Barein. Monique var eðli-
lega eftir heima í Clayton í Norð-
ur-Karólínu og sinnti heimili og
móðurhlutverkinu; fór í búðar-
ráp með Becky og fylgdist með
pönkhljómsveit Zeke.
Eins og í sápuóperu
En ýmislegt var í gerjun á heima-
vígstöðvunum. Andrew nokkur
Canty var átján ára þegar hér er
komið sögu og fyrrverandi með-
limur í hljómsveit Zeke. Andrew,
sem var tíu árum yngri en Moni-
que og skólabróðir Zeke, eyddi sí-
fellt meiri tíma á heimili Monique
og Paul. Fyrr en varði var þeim
tíma að mestu leyti eytt í rúm-
inu með húsmóðurinni – fyrr-
verandi lesbísk ástkona verðandi
kynskiptings hélt fram hjá nærri
helmingi eldri eiginmanni sín-
um með nærri tíu árum yngri vini
sonar síns. Flókið?
Þessar aðstæður fullkomnuð-
ust þegar Lawton Johnson, vin-
ur Andrews, og Becky drógu sig
saman.
Allt þetta fór fram fyrir opnum
tjöldum og nágrannarnir drógu
þá ályktun að Paul Berkley heyrði
sögunni til. Andrew hafði ekki
yfir neinu að kvarta svo lengi sem
Monique sá honum farborða, en
þegar leyfi Pauls nálgaðist brugg-
uðu þau launráð á milli hvílu-
bragða.
Myrtur úr launsátri
Monique og Andrew ásældust
400.000 Bandaríkjadala líftrygg-
ingu Paul og því skyldi hann
deyja. Andrew keypti sér skamm-
byssu og hét Lawton 70.000 döl-
um ef hann hjálpaði til.
Þremur dögum eftir heim-
komuna, eftir að hafa eytt tíma
með börnum sínum, féllst Paul
á að fara í rómantíska lautarferð
með Monique. Reyndar hafði
Paul fengið fullvissu um ótryggð
eiginkonunnar og hafði trúað
Becky fyrir því að hann hygðist
segja skilið við hana. Becky, eins
og við var að búast, hafa rætt þetta
við kærasta sinn, Lawton. En Paul
fékk aldrei tækifæri til að yfirgefa
Monique eins og hann ætlaði.
Þann 18. desember, þrátt fyrir
að kvöldið væri svalt og rakt, fóru
Paul og Monique í lautarferð með
vín, súkkulaði og fleira góðgæti –
Paul sá fyrir sér rólegheitastund í
garði ekki langt frá.
Þá þegar höfðu Andrew og
Lawton, þeir samviskulausu
þrjótar, falið sig í skuggunum með
alvæpni og biðu hentugs tæki-
færis til að fyrirkoma Paul á þann
máta sem aðeins hæfir verstu
bleyðimennum.
Um miðnæturbil, samkvæmt
áætlun Andrew og Monique, þess
ótrúa pilsvargs, laumaðist And-
rew sér aftan að Paul og skaut
hann í hnakkann og hneig Paul til
jarðar, liðið lík.
Ósennileg frásögn
Þegar Monique hafði fullvissað
sig um að Paul væri allur og vit-
orðsmenn hennar voru á bak
og burt setti hún sig í stelling-
ar syrgjandi ekkju og hringdi á
neyðarlínuna. Þegar lögreglan
kom á vettvang spann Monique
upp ótrúlega frásögn um ráns-
tilraun en að mati lögreglunnar
var of margt sem ekki stóðst. Fyrr
en varði komst lögreglan á snoð-
ir um væna líftryggingu Paul og
samband illa innrættrar eigin-
konu hans við unglinginn And-
rew.
Þegar þrýst var á Monique
gaf hún undan og upplýsti um
málavexti alla og Andrew og
kumpáni hans Lawton voru
handteknir. Öll voru þau ákærð
fyrir morð.
Í september 2007 var And-
rew Canty dæmdur til lífstíðar-
fangelsis. Lawton Johnson fékk
vægari dóm, 23 ára fangelsi, og
Monique fékk lífstíðardóm.
Það er kaldhæðnislegt, eins
og Becky benti á, að hafa verið
hermaður í Mið-Austurlöndum
um átta mánaða skeið án þess að
lenda í skotárás og koma heim, í
það sem ætla mætti að teldist ör-
yggi, og verða skotinn í hnakk-
ann að undirlagi svikullar eigin-
konu. Enginn veit sína ævina fyrr
en öll er.
Sakamál 41Helgarblað 11.–13. maí 2012
Sakamál 72ára að aldri var Ahmet Turker þegar hann árið 1981 myrti 67 ára eiginkonu sína til 45 ára. Ahmet hafði komist að því að hún hafði ekki verið óspjölluð þegar þau gengu í hjónaband. Við réttarhöldin játaði Ahmet að hafa einnig myrt tvo karlmenn, 80 og 65 ára, sem hann grunaði að hefðu verið bólfélagar konu hans. „Ég varð að bjarga heiðri mínum,“ sagði Ahmet sem fékk lífstíðardóm.U m s j ó n : K o l b e i n n Þ o r s t e i n s s o n k o l b e i n n @ d v . i s
B
renda Wiley var ágætlega viðkunn-
anleg stúlka í New Jersey og kom
vel saman við foreldra sína og yngri
bróður. En eftir því sem hún eltist og
þroskaðist tileinkaði hún sér þver-
móðsku. Fimmtán ára að aldri hafði hún
tekið út líkamlegan þroska mun eldri konu
og eignast örlítið eldri kærasta, Keith Sant-
ana, 18 ára.
Þess var skammt að bíða að Brenda og
Keith færu að stunda kynlíf og þegar foreldr-
ar hennar fengu vitneskju um það brugðust
þeir ókvæða við. Brendu var bannað að hafa
frekara samneyti við Keith. Hún lét sér bann-
ið í léttu rúmi liggja og síðla kvölds opnaði
hún svefnherbergisglugga sinn svo elskhug-
inn gæti smokrað sér inn.
Þegar inn var komið gleymdu elskend-
urnir ungu sér fullkomlega og var atgangur-
inn svo mikill að foreldrar Brendu vöknuðu
og gripu dóttur sína glóðvolga í rúminu með
ástmanninum bannfærða.
Nú voru góð ráð dýr að mati foreldra
Brendu en málið var leyst með því að fjar-
lægja með öllu hurðina á svefnherbergi
hennar auk þess sem foreldrarnir ítrekuðu
bannið við því að hafa frekara samneyti við
Keith.
Brenda hundsaði fyrirmæli foreldra
sinna og hitti Keith á laun. Þegar foreldrar
hennar komust að því settu þeir hana í úti-
vistarbann. Á lokadegi útivistarbannsins, 8.
nóvember 1990, var Brenda heima ásamt
móður sinni, Bonnie, og fjórtán ára bróður
sínum, samnafna kærastans.
Bonnie var eitthvað að bardúsa utandyra
en Brenda og Keith, bróðir hennar, héldu
sig inni við. Grunnt var á gremju hjá Brendu
vegna útivistarbannsins og eins og ungum
drengjum er stundum tamt fór Keith að
stríða henni. Brenda fyrtist við og sló Keith í
höfuðið með pepsíflösku – Keith varð meira
en lítið hissa, dálítið vankaður en á lífi. Þar til
systir hans hóf að stinga hann með steikar-
hníf.
„Ég lofa að segja engum,“ endurtók hann
en Brenda lét orð hans sem vind um eyru
þjóta og stakk hann tuttugu sinnum víða í
líkamann. Brenda læsti útidyrunum svo hún
fengi frið til að þrífa upp blóðið en móðir
þeirra hafði heyrt einhver læti og krafðist
inngöngu.
Þegar Brenda loks opnaði dyrnar réðst
hún með offorsi á móður sína og linnti ekki
látum fyrr en hún var búin að stinga móður
sína 30 sinnum og mölva á henni höfuð-
kúpuna.
Keith bar að garði ásamt vinum sínum í
sömu andrá og Brenda ók heiman frá sér í
bíl móður sinnar. Keith og vinir hans höfðu
samband við lögreglu og Brenda var hand-
tekin. Hún var síðar sakfelld fyrir morðin og
dæmd til 30 ára lágmarksvistar á bak við lás
og slá.
Afdrifaríkt
útivistarbann
Myrti móður sína og bróður„Fyrr en varði var
þeim tíma að
mestu leyti eytt í rúminu
með húsmóðurinni.
MORÐ á MIÐNÆTTI
n Monique sveifst einskis til að ná 400.000 dala líftryggingu eiginmanns síns
Ástmaðurinn Hinn samviskulausi
Andrew Canty skaut Paul Berkley í
hnakkann.
Kærastinn Samband Lawtons
Johnson við dóttur fórnarlambsins
þvældist ekki fyrir honum.
Fórnarlambið Paul Berkley snéri heim af vígvellinum þar sem hann hafði
getið sér gott orð en var myrtur að undirlagi gráðugrar eiginkonu sinnar.