Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Qupperneq 6
6 Fréttir 11.–13. maí 2012 Helgarblað Mundi afar lítið n Sýknudómur í nauðgunarmáli H æstiréttur staðfesti á fimmtu- dag dóm Héraðsdóms Reykja- víkur um að sýkna bæri mann sem sakaður var um að hafa nauðgað konu í október 2010. Manninum var gefið að sök að hafa haft samræði við konu sem ekki gat spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Maðurinn hélt því fram að konan hefði verið meðvituð og tekið þátt í kynlífi með fúsum og frjálsum vilja. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að framburður ákærða hefði verið stöðugur og hann hefði frá upphafi staðfastlega neitað sök. Brotaþoli hefði hins vegar mjög lítið munað eftir atvikum umræddrar nætur og þar af leiðandi væri erfitt að meta framburð konunnar. Þó hefði engin ástæða verið til að draga fram- burð hennar í efa. Að mati dómsins hafði ákæruvaldinu ekki, gegn stað- fastri neitun ákærða, tekist að sanna svo ekki léki á skynsamlegur vafi að brotaþoli hefði ekki getað spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. I ngi Rafnar Júlíusson, fyrrverandi forstöðumaður markaðsvið- skipta hjá Glitni, fékk í vikunni tæplega 12 milljóna króna bón- usgreiðslu viðurkennda sem al- menna kröfu í bú bankans í Héraðs- dómi Reykjavíkur. Bónusgreiðslan til Inga Rafnars var vegna starfa hans fyrir Glitni í september og október 2008 en bankinn var einmitt yfir- tekinn af Fjármálaeftirlitinu í byrjun október það ár. Því er um að ræða bónusgreiðslu út úr banka sem var á fallandi fæti þegar Ingi Rafnar vann sér inn umræddan bónus. Bónus- greiðslan er reiknuð út frá hlutdeild Inga Rafnars í tekjum markaðsvið- skipta Glitnis í september og október 2008. Fær einungis hluta af milljónunum Fari svo að Hæstiréttur Íslands stað- festi þessa niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, ef dómnum verður áfrýjað, mun Ingi Rafnar Júlíusson fá hluta af þessum tæplega 12 milljón- um króna greiddan út úr búi Glitnis. Búist er við því að kröfuhafar Glitn- is fái tæplega 30 prósent af almenn- um kröfum sínum greidd út úr þrota- búinu. Eignir búsins eru áætlaðar vera tæplega 800 milljóna króna virði en skuldirnar eru um 2.500 milljarðar króna. Ingi Rafnar mun því aðeins fá um 4 milljónir króna greiddar út úr búinu og svo þyrfti hann að greiða af þeim tekjuskatt. Því er ekki um ræða mjög háa fjárhæð. Dómurinn hefur hins vegar for- dæmisgildi fyrir um 100 sambærileg mál fyrrverandi starfsmanna Glitnis sem sótt gætu launaauka á sambæri- legum forsendum og Ingi Rafnar. Þetta segir Páll Eiríksson í slitastjórn Glitnis sem rak málið fyrir hönd bankans. Nokkur slík mál eru nú rek- in fyrir dómi. Gerði kröfu upp á 63 milljónir Ingi Rafnar gerði samtals kröfu í búið upp á rúmlega 63 milljónir króna í níu liðum sem listaðir eru upp í dómnum. Hann fær því aðeins lítinn hluta af kröfum sínum viðurkenndan með dómnum. Sú staðreynd að Ingi Rafnar fékk launaauka sinn viður- kenndan er hins vegar viss sigur fyrir hann og aðra starfsmenn Glitnis sem reka sambærileg mál fyrir dómi. Meðal þess sem Ingi Rafnar krafð- ist í málarekstrinum gegn Glitni var að bankinn greiddi honum 24,4 milljónir króna vegna skólagjalda og launagreiðslna meðan á náminu stæði en kveðið var á um slíkt í ráðn- ingarsamningi hans. Í dómnum er tilvitnun í þetta ákvæði í ráðningar- samningi Inga Rafnars: „Ef starfs- maður kýs að fara í framhaldsnám þá skal bankinn greiða skólagjöld allt að 4 milljónum auk þess sem starfs- maður skal eiga þess kost að halda 50% af föstum launum sínum með- an á námi stendur. Ef starfsmanni er sagt upp þá heldur hann þessum réttindum í 18 mánuði eftir að upp- sagnarfresti lýkur.“ Þetta er stærsti einstaki liðurinn í kröfugerð Inga Rafnars en þar að auki gerði hann kröfur um greiðslu kostn- aðar vegna síma, reksturs bifreiðar auk framlags í séreignasjóð í 18 mán- uði og fleira í þeim dúr. Héraðsdóm- ur vidi ekki samþykkja þessar kröfur hans. Býst við afrýjun Páll Eiríksson segist búast við því að slitastjórn Glitnis áfrýi dómnum. Þá er einnig ekki loku fyrir það skotið að Ingi Rafnar áfrýi dómnum sjálfur. „Ég býst frekar við því að við áfrýjum en ekki,“ segir Páll. Hann segir að það sé sigur fyrir slitastjórnina að Héraðs- dómur Reykjavíkur hafi ekki fallist á greiðslu úr búi bankans vegna „óeðli- legra“ atriða í ráðningarsamningi eins og greiðslu skólagjalda og launa með- an á námi stæði og annars í þeim dúr. Páll segir hins vegar að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur um greiðslu á kaupauka til Inga Rafnars hafi for- dæmisgildi í öðrum málum starfs- manna Glitnis og að þess vegna kunni slitastjórnin að áfrýja dómnum. Ingi fær 12 milljóna bónus viðurkenndan n Glitnistoppar áttu að fá skólagjöld frá bankanum og helming launa sinna„Ef starfsmaður kýs að fara í fram- haldsnám þá skal bank- inn greiða skólagjöld allt að 4 milljónum. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Viss sigur Niðurstaða Héraðs- dóms Reykjavíkur í máli Inga Rafnars Júlíussonar gegn Glitni er viss sigur fyrir hann. Ingi Rafnar fær launaauka upp á tæpar 12 milljónir viðurkenndan sem almenna kröfu í bú bankans. Ársreikningur Reykjanesbæjar: Staðan ekki eins góð Bæjarfulltrúar Samfylkingar í Reykjanesbæ, Friðjón Einarsson, Guðný Kristjánsdóttir og Eysteinn Eyjólfsson, segja að fjárhagsstaða bæjarins sé ekki jafn góð og full- trúar Sjálfstæðisflokksins láta í veðri vaka. Vitna þeir í „eintóna og einhliða“ fréttatilkynningu meiri- hluta Sjálfstæðisflokksins þar sem hafi mátt skilja að rekstur Reykja- nesbæjar hafi gengið vel á síðasta ári og að bæjarsjóður hafi skilað jákvæðri niðurstöðu upp á 33 milljónir króna. „Hið rétta er að á síðasta ári tókst að koma í veg fyrir um 1.000 milljóna króna taprekstur Reykja- nesbæjar með sölu eigna. Þá fékk Reykjanesbær 1.500 milljónir króna framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ársreikningur Reykjanesbæjar 2011 sýnir að meirihluta sjálfstæð- ismanna í Reykjanesbæ hefur enn eitt árið mistekist að halda rekstri bæjarsjóðs réttu megin við núllið án þess að selja eignir bæjarins,“ segja fulltrúar Samfylkingar í til- kynningu sem þeir sendu frá sér. Réðst á dyravörð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann á miðvikudags- kvöld sem réðst á dyravörð á veit- ingahúsi við Laugaveg. Maður- inn reyndist vera mjög ölvaður og var hann fluttur í fangageymslu þar sem hann fékk að sofa úr sér áfengis vímuna. Fyrr um kvöldið stöðvaði lögregla akstur bifreiðar á Höfðabakka vegna gruns um að ökumaður væri undir áhrifum fíkni- efna. Maðurinn var einnig á of mikl- um hraða og réttindalaus við stýrið. Þá var tilkynnt um umferðarslys við Kleifarvatn á miðvikudagskvöld. Mótorhjólamaður féll þá af hjóli sínu en í fyrstu var talið að hann væri handleggsbrotinn. Sjúkrabif- reið og björgunarsveit voru sendar á vettvang ásamt lögreglu. Meiðsl mannsins reyndust minniháttar. Hæstiréttur Staðfesti sýknudóm yfir manni sem var ákærður var fyrir nauðgun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.