Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 11.–13. maí 2012 Helgarblað
Vinir Vestur-Sahara
n Umfjöllun DV ýtti stofnuninni úr vör
U
mfjöllun DV varð til þess að
menn hundskuðust til að ýta
þessu úr vör,“ segir Stefán Páls-
son, sagnfræðingur og með-
limur í undirbúningshóp fyrir stofn-
un vinafélags Vestur-Sahara. DV hefur
undanfarið fjallað ítarlega um sjóræn-
ingjaveiðar íslenskra aðila við strendur
Afríku, þar á meðal við Vestur-Sahara.
Landið var hertekið af Marokkó árið
1975 en hafði verið spánsk nýlenda.
Spánverjar yfirgáfu landið í skugga
uppreisnar Sahrawi-þjóðarinnar sem
sækir uppruna sinn til svæðisins. Vest-
ur-Sahara er eitt strjálbýlasta svæði
heims en talið er að íbúar af Sahrawi-
þjóðflokknum séu á bilinu 500 til 700
þúsund.
„Marokkó-menn hafa reist 2.500
km langan aðskilnaðarmúr og við
múrinn eru hermenn á vöktum auk
þess sem fjölda af jarðsprengjum hef-
ur verið komið fyrir í jörðu. Sahrawi-
þjóðin hefur aðeins lítinn hluta síns
eigin lands til afnota og í þeim hluta
eru litlar bjargir. Marokkó-menn út-
deila síðan auðlindum landsins til
sinna eigin eða fyrirtækja annarra
ríkja, þar með talið íslenskra fyrir-
tækja,“ segir í lýsingu undirbúnings-
hópsins á Facebook en þegar eru um
250 manns í hópnum.
Hjólreiðaborgin Reykjavík:
100 kíló-
metrar á
átta árum
„Við stefnum að því að stórauka
hlutdeild hjólreiða í borginni
með því að leggja fleiri og betri
hjólastíga og bæta aðstöðu fyrir
hjólreiðafólk. Markmiðið er að
árið 2020 verði búið að leggja
100 kílómetra af hjólaleiðum,“
sagði Eva Einarsdóttir, formað-
ur Íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkurborgar, í ávarpi sínu
á opnunarhátíð Hjólað í vinnuna
í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum sem haldin var á miðviku-
dag.
Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands stendur tíunda árið í röð
fyrir Hjólað í vinnuna, vinnu-
staðakeppni um allt land sem
fram fer dagana 9.–29. maí. Í til-
kynningu frá umhverfis- og sam-
göngusviði Reykjavíkurborgar
kemur fram að landsmenn hafi
tekið átakinu vel og þátttakend-
um fjölgað um rúmlega 2.000
prósent frá upphafi. Nú þegar
hafa 519 vinnustaðir skráð 1.126
lið með 6.848 liðsmönnum og
munu þessar tölur halda áfram
að hækka næstu þrjár vikurnar.
Eva lagði áherslu á mikil-
vægi alls konar samgönguhátta
í Reykjavík, því ef einkabíll-
inn fengi að einoka sviðið yrðu
öll mannleg samskipti einhæf.
„Við í Reykjavík viljum snúa við
á punktinum og bæta aðstæð-
ur fyrir gangandi, hjólandi og
þá sem vilja fara í strætó.“ Hún
nefndi að á döfinni væri hjóla-
og göngubrú yfir Elliðaárósa,
hjólaleið meðfram Suðurlands-
braut og uppbyggingu hjóla-
skýla. Hún sagði að hjólreiðar
bættu andrúmsloftið í borginni
í margs konar merkingu þess
orðs.
Reykjavíkurborg er með
könnun á netinu þar
sem hægt er að
merkja leiðina sem
hjóluð er og gera
athugasemdir við
hana. Ábendingar
hafa verið not-
aðar til að
betrumbæta
hjólastíga-
kerfi
borg-
arinn-
ar.
Stefán Pálsson meðlimur í hópnum.
Þ
eir Jóhann Ársælsson, ný-
skipaður stjórnarformaður
Íbúða lánasjóðs, og Guðbjart-
ur Hannesson velferðarráð-
herra hafa lengi barist saman
í stjórnmálum. Guðbjartur skrifaði til
að mynda grein til stuðnings Jóhanni
árið 1999 en það ár sóttist Jóhann eft-
ir efsta sæti á lista Samfylkingarinn-
ar í prófkjöri flokksins á Vesturlandi.
Guðbjartur skipaði Jóhann formann
stjórnar Íbúðalánasjóðs á mánudag
eftir að Katrín Ólafsdóttir lektor ósk-
aði eftir því að hætta í stjórninni.
Allir kjósi Jóhann
„Ég skora því á alla stuðningsmenn
Samfylkingar á Vesturlandi að taka
þátt í prófkjörinu og velja Jóhann
í fyrsta sætið,“ skrifaði Guðbjartur
Hannesson um Jóhann. „Sjálfur er ég
samt ekki í nokkrum vafa um að list-
inn verður sterkastur með Jóhann Ár-
sælsson í fyrsta sæti. Hann hefur mjög
góða þekkingu og reynslu af atvinnu-
málum og er ötull baráttumaður gegn
óréttlæti kvótakerfisins. Hann hef-
ur góða þekkingu á félags-, skóla- og
heilbrigðismálum og berst fyrir bættri
stöðu láglaunafólks og öryrkja,“ sagði
Guðbjartur um Jóhann félaga sinn.
Þeir sátu saman í bæjarstjórn á Akra-
nesi á árunum 1986 til 1990.
Skipasmíðameistari
verður sjóðsstjóri
Jóhann er skipasmíðameistari að
mennt og var um árabil framkvæmda-
stjóri Bátastöðvarinnar Knarrar á
Akranesi. Þess utan var Jóhann í stjórn
Sementsverksmiðju ríkisins á áttunda
áratugnum og í stjórn Síldarverk-
smiðju ríkisins á tíunda áratugnum.
Hann sat á þingi fyrir Alþýðubanda-
lagið frá 1991 til 1995 og Samfylk-
inguna frá 2003 til kosninga árið 2007,
þegar hann ákvað að gefa ekki kost á
sér til áframhaldandi setu á þingi. Jó-
hann sagði í samtali við fréttastöðina
NFS í september árið 2006 að hann
væri búinn að vera í stjórnmálum
mjög lengi. Það hefði verið langur og
góður tími og hann væri því ákaflega
sáttur við að ljúka störfum. Jóhann
hefur setið í stjórn Íbúðalánasjóðs frá
því í 1. janúar árið 2007.
Einn höfunda fyrningarleiðarinnar
Jóhann Ársælsson er sagður einn höf-
unda fyrningarleiðar Samfylkingar-
innar en það var sú leið sem flokkur-
inn lagði til að farin yrði til breytinga
á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Sjálfur
barðist Jóhann ötullega fyrir þeirri
leið til breytinga meðal annars í al-
þingiskosningunum árið 2003. Í gróf-
um dráttum snérist stefnan um að
hlutdeild núverandi handhafa kvót-
ans myndi fyrnast um fimm prósent
ár hvert og fara á opinn leigumark-
að. Fyrningarleiðin var að einhverju
marki stefna Samfylkingarinnar um
breytt fiskveiðistjórnunarkerfi allt þar
til sáttanefnd um endurskoðun á lög-
um um stjórn fiskveiða, sem hags-
munaaðilar í sjávarútvegi áttu sæti í
skilaði lokaskýrslu og tillögum til sjáv-
arútvegsráðherra árið 2010. Þar var
leiðinni í raun hafnað en þess í stað
lagt til að farin yrði svokölluð sátta-
leið. Guðbjartur Hannesson var for-
maður nefndarinnar.
944 milljarða ríkisábyrgð
Ríkisábyrgð vegna útgefinna skulda-
bréfa Íbúðalánasjóðs eru tæplega 944
milljarðar. Samkvæmt töflu um stöðu
ríkisábyrgða frá árunum 2005 til 2011,
sem birt er á vefnum lanamal.is, er
ríkisábyrgð vegna Íbúðalánasjóðs um
þrír fjórðu hlutar þeirrar upphæðar
sem ríkið ábyrgist vegna eigin stofn-
ana, ríkisfyrirtækja og sameignar- og
hlutafélaga.
Árið 2011 stóð ríkið að baki skuld-
bindingum upp á rúmlega 1.322 millj-
arða króna. Þar af eru tæpir 944 vegna
Íbúðalánasjóðs og um 356 milljarð-
ar skuldbindingar tilkomnar vegna
Landsvirkjunar. Það skal þó tekið fram
að um bráðabirgðatölur er að ræða.
Hvorki náðist í Jóhann Ársælsson
né Guðbjart Hannesson við vinnslu
fréttarinnar.
Skipaði félaga sinn
yfir Íbúðalánasjóð
n Guðbjartur vildi Jóhann efst á lista Samfylkingar í prófkjöri árið 1999
„Ég skora því á alla
stuðningsmenn
Samfylkingar á Vestur-
landi að taka þátt í próf-
kjörinu og velja Jóhann í
fyrsta sætið.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Skipar í stjórn Íbúðalánasjóðs
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
skrifaði stuðningsgrein vegna prófkjörsbar-
áttu Jóhanns Ársælssonar árið 1999.
944 milljarða maðurinn Jóhann
Ársælsson, skipasmíðameistari og fyrr-
verandi þingmaður Samfylkingarinnar, er nú
stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs.
Miklar skuldbindingar
Þrír fjórðu af heildarábyrgð-
um ríkisins eru til komnir
vegna Íbúðalánasjóðs.