Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Side 26
26 Erlent 11.–13. maí 2012 Helgarblað
Þ
eir hafa haldið mér hér í sex
vikur án sönnunargagna. Og
nú hafa þeir neytt mig til að
skrifa undir skjal þess efnis að
ég hafi verið ákærður fyrir að
myrða þrettán manneskjur,“ segir Da-
vid Simpson, 24 ára Breti, sem gæti átt
dauðadóm yfir höfði sér í Mið-Afríku-
lýðveldinu. Simpson er eigandi fyrir-
tækis sem skipuleggur veiðiferðir í Afr-
íku. Fyrir rúmum sex vikum var hann á
ferð um frumskóga Mið-Afríkulýðveld-
isins þegar hann fann sundurskorin
lík þrettán einstaklinga. Simpson seg-
ist hafa tilkynnt málið til lögreglu sem
brást við með því að handtaka hann og
ákæra hann fyrir morðin.
Menn Konys
„Þetta er fáránlegt. Það vita allir að
ég kom ekki nálægt þessu. Þeir vita
að þetta voru menn á vegum Konys,“
sagði Simpson í símaviðtali við blaða-
n David Simpson sakaður um 13 hryllileg morð í Mið-Afríkulýðveldinu
„Ég kom ekki
nálægt þessu“
mann breska blaðsins The Daily
Mail. Símanum hafði verið smyglað
inn í fangelsi sem hann dvelur í í Mið-
Afríkulýðveldinu og segist Simpson
dvelja þar við skelfilegar aðstæður.
Hann sé í fangaklefa með 80 öðrum
og lýsir upplifun sinni sem algjörri
„martröð“. Simpson segist sjálfur telja
að menn á vegum skæruliðaforingj-
ans Josephs Kony, leiðtoga samtak-
anna Frelsishers drottins, hafi framið
morðin, en talið er að meðlimir sam-
takanna hafi haldið til á sömu slóð-
um og líkin fundust á.
Snýst um peninga
Simpson segist sjálfur telja að málið
snúist um peninga. „Af því að ég er
hvítur þá hljóta þeir að telja að ég sé
ríkur. Þegar þeir handtóku mig þá
hefði ég getað borgað milljón evrur
til að ganga laus gegn tryggingu –
og það er algjörlega út í hött. Ég veit
ekki hvað mun gerast. Þetta er algjör
martröð. Ég sef á gólfinu og fæ ekki
einu sinni teppi til að breiða yfir mig
eða dýnu til að liggja á. Ég vil bara
að þetta taki enda,“ sagði Simpson
í símaviðtalinu. Samkvæmt lögum í
Mið-Afríkulýðveldinu á hver sá sem
gerist sekur um morð í landinu yfir
höfði sér dauðadóm.
Hræðileg sjón
Simpson flutti til Afríku fyrir tveim-
ur árum til að sinna fyrirtæki sínu.
Í viðtalinu segir hann að hann hafi
verið að aðstoða kunningja sína
við að ryðja veg í suðurhluta lands-
ins þann 23. mars síðastliðinn
þegar hann kom auga á líkin sem
lágu í hrúgu skammt frá gullnámu.
Fórnar lömbin höfðu verið bundin
saman og brennandi heitu vatni
hellt yfir þau. Þá höfðu þau verið
skorin með sveðjum. „Þetta var
hræðileg sjón. Þetta fólk hafði verið
myrt með skelfilegri aðferð. Ég lét
lögregluna vita af þessu en mér datt
ekki í hug að þeir myndu klína þessu
á mig.“ Breska utanríkisráðuneytið
er komið í málið en á þessari stundu
er óvíst hvernig því lýkur. n
Þann 17. desember árið 2000 var
bresk/kanadíski ríkisborgarinn
William Sampson handtekinn
í Sádi-Arabíu vegna gruns um
hryðjuverk. Sampson var lífefna-
fræðingur að mennt og var
ráðinn til starfa hjá þróunarsjóði í
Riyadh , höfðuborg landsins, árið
1998. Sampson var handtekinn
í kjölfar árása sem gerðar voru
á nokkra vestræna borgara í
landinu. Sprengjum hafði verið
komið fyrir í bifreiðum þeirra með
þeim afleiðingum að einn lést
og nokkrir slösuðust. Sampson var handtekinn grunaður
um verknaðinn, en svo virðist vera sem lögregla hafi ekki
haft neinar haldbærar sannanir gegn honum. Í fangelsinu
mátti Sampson þola miklar pyntingar sem urðu til þess
að hann játaði á sig verknaðinn.
Dómstóll í Sádi-Arabíu dæmdi
hann til dauða í kjölfarið. Eftir að
hafa verið haldið í fangelsi í tvö
ár og sjö mánuði var Sampson
sleppt úr haldi þann 8. ágúst árið
2003. Yfirvöld í Sádi-Arabíu höfðu
gert samkomulag, meðal annars
við Bandaríkin og Kanada, um að
fimm Sádar sem voru í fangelsi
í Guantanamo-fangabúðunum
yrði sleppt úr haldi í staðinn fyrir
Sampson.
Sampson skrifaði bók um
reynslu sína, Confessions of an Innocent Man: Torture and
Survival in a Saudi Prison, sem kom út árið 2005. Hann lést
í kjölfar hjartaáfalls þann 28. mars síðastliðinn, 52 ára að
aldri.
n William Sampson var dæmdur til dauða fyrir glæp sem hann framdi ekki
Saklaus á dauðadeild
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Veiðimaður Simpson hefur haldið úti fyrir-
tæki sem sérhæfir sig í veiðiferðum í Afríku
undanfarin misseri.
„Af því að ég
er hvítur þá
hljóta þeir að telja
að ég sé ríkur
Segist saklaus
Simpson segir að
hann hafi fundið
líkin og látið lög-
reglu vita. Það gæti
kostað hann lífið.
Tökum að okkur alla
almenna garðaþjónusTu
upplýsingar hjá hlyni í síma 777 9543
láTTu okkur sjá
um vorverkin í
garðinum þínum
Obama fær
hýrar kveðjur
Tugþúsundir einstaklinga hvaðan-
æva úr veröldinni hafa skrifað
undir kveðju til Barack Obama til
að þakka honum fyrir og styðja
hann í þeirri ákvörðun forsetans
að styðja hjónabönd samkyn-
hneigðra. Undirskriftasöfnunin
hófst á vefsíðu samtakanna All
Out á miðvikudagskvöld. Yfirlýs-
ing Obama markar tímamót í rétt-
indabaráttunni enda er hann fyrsti
Bandaríkjaforsetinn til að viður-
kenna réttindi samkynhneigðra til
hjónabands. Varaforseti Banda-
ríkjanna Joe Biden hafði fyrr í vik-
unni lýst yfir stuðningi við hjóna-
bönd samkynhneigðra
Dauðabúðir
í norðri
afhjúpaðar
Suðurkóresk mannréttindasam-
tök hafa birt ítarlegustu skýrslu
sem birst hefur um hrottalegar
aðstæður þeirra rúmlega 200 þús-
und pólitísku fanga sem áætlað
er að haldið sé í norðurkóreskum
þrælkunarbúðum. Skýrslan er
byggð á viðtölum við mörg hundr-
uð einstaklinga sem lifað hafa af
dvöl sína í búðunum og náð að
flýja til suðurs. Þar lýsa þeir því
hvernig fangar hafi orðið hungur-
morða í hrönnum, sætt pynting-
um og búið við ómannúðlegar að-
stæður. Washington Post greinir
frá niðurstöðunum á vef sínum.
Þar segir að lík þeirra fanga sem
láta lífið í búðunum, ýmist af völd-
um hungurs, sjúkdóma eða þrælk-
unar, séu brennd og notuð sem
áburður. Einn viðmælandi lýsti því
hvernig hungruðum föngum var
att gegn hver öðrum í eins konar
„hungurleikum“ þar sem þeir
kepptu um kornkökur til að seðja
hungrið. Margir létu lífið í þessum
keppnum. Hin ríkisstyrktu sam-
tök segja skýrsluna birta, og marga
starfsmenn búðanna nafngreinda
í henni, í þeirri von að þeir þurfi
einhvern daginn að svara til saka.