Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Page 32
32 Viðtal 11.–13. maí 2012 Helgarblað
M
ér finnst best þeg-
ar það er mik-
ið um að vera. Þá
kem ég mestu í
verk. Annars hefur
þetta runnið ótrúlega mjúk-
lega áfram allt saman,“ segir
tónlistarkonan Greta Salóme
Stefánsdóttir sem hefur stað-
ið í ströngu síðustu vikurnar.
Greta og föruneyti heldur til
Bakú í Aserbaídsjan nú um
helgina, nánar tiltekið á laug-
ardaginn, en íslenski hópur-
inn stígur á svið þann 22. maí.
Greta Salóme er allt í öllu í ís-
lenska atriðinu. Hún syng-
ur, er höfundur lags og texta
og spilar á fiðlu. Það er því
nóg að gera í undirbúningn-
um en meðfram öllu saman
er hún að leggja lokahönd á
meistaranámsritgerð sína við
Listaháskóla Íslands.
„Lífið er bara tónlist,“ seg-
ir Greta glöð í bragði. Hún
hlakkar mikið til að halda
til Bakú þar sem æfingar,
viðtöl við fjölmiðla og alls
kyns viðburðir bíða hennar
og Jóns Jóseps Snæbjörns-
sonar en Jónsi syngur lagið
með henni. „Það hafa allir
verið svo jákvæðir og hjálp-
samir. Ég hef þurft að hafa
litlar áhyggjur af öllu stúss-
inu,“ segir Greta og bætir við
að hún finni fyrir miklum
stuðningi frá íslensku þjóð-
inni. „Það er mjög dýrmætt.
Mér er reglulega óskað góðs
gengis af ókunnugum þegar
ég fer út í búð og mér þykir
afar vænt um það.
Ég reyni samt að gera mér
lágmarksvæntingar. Ég er
staðráðin í að skila þessu fag-
mannlega og vel af mér en
það eru í rauninni einu vænt-
ingarnar sem ég get gert. Ég
get bara gert mitt besta og
vonað að fólk kunni að meta
það. Svo verður maður að
muna að þetta er ekki endi-
lega keppni um gæði í tón-
list.“
Með báða fætur á jörðinni
Greta Salóme hefur kynnt sér
andstæðingana og segir að sér
lítist best á finnska lagið. „Það
er mitt uppáhalds. Þetta er
krúttlegt og fallegt lag sem er
virkilega vel flutt. Sænska lag-
ið skorar hins vegar mjög hátt
í skoðanakönnunum og því er
oftast spáð sigri. Þetta er kraft-
mikið „euro-popp“ sem leggst
vel í áhangendur keppninnar.
Lagið er ekki minn tebolli en
söngkonan gerir þetta vel.“
Íslenska lagið fær einnig
góða dóma en Greta segist
halda báðum fótum vel á jörð-
inni. „Þetta er bara byggt á því
sem fólk hefur heyrt á upptök-
um en auðvitað er gaman að
heyra þetta. Aðdáendaklúbb-
arnir setja okkur í áttunda til
fyrsta sæti. Það er sigur út af
fyrir sig og miklu betri árangur
en ég bjóst við og góður með-
byr inn í keppnina.
Hins vegar er landslagið allt
annað þegar kemur að keppn-
inni sjálfri. Oft er þar spurning-
in hver er með mesta glingrið
eða glysið á sviðinu. Við erum
ekki að fara taka þátt í þeirri
keppni. Við ætlum að láta tón-
listina tala frekar en eitthvað
annað.“
Fjögurra ára fiðluleikari
Greta Salóme er fædd árið
1986 og alin upp í Mos-
fellsbæ. Mamma hennar heit-
ir Kristín Lilliendahl og er að-
junkt við Háskóla Íslands og
pabbi hennar er Stefán Páls-
son byggingarmeistari. Greta
á eina systur, Sunnu Rán, sem
er tveimur árum yngri en hún
og starfar sem verslunarstjóri
í Jack&Jones. Kristín hefur
bæði samið og gefið út tón-
list en þekktasta lag hennar
er líklega Ég skal mála allan
heiminn elsku mamma, sem
kom út árið 1973. Afi Gretu,
faðir Kristínar, var einnig í
tónlist.
Sjálf var Greta aðeins fjög-
urra ára þegar hún byrjaði
að læra á fiðlu. „Síðan hefur
allt snúist um tónlistina og
fiðluna. Tónlistin hefur alltaf
verið miðpunkturinn í mínu
lífi – það sem allt hefur snúist
í kringum,“ segir hún og bætir
við að henni hafi aldrei dottið
í hug að hætta að læra á fiðlu í
gegnum öll þessi ár. „Auðvit-
að hefur fiðlunámið ekki allt-
af verið jafn skemmtilegt. Það
komu tímar sem mig lang-
aði miklu frekar að fara út að
leika mér en að æfa mig. Samt
hef ég aldrei fengið það mik-
inn leiða að ég hef íhugað að
hætta. Þegar ég byrjaði æfði
ég mig í svona hálftíma á dag
en á unglingsárunum voru
þetta fjórir tímar að lágmarki.
Ég er fyrst og fremst klass-
ískur fiðluleikari en þessa
stundina legg ég áherslu á
að semja og flytja mína eigin
tónlist. Ég hef verið að læra
„complete vocal technique“
og er að vinna að plötu með
Þorvaldi Bjarna. Við erum
rosalega lík þegar kemur að
tónlist og vinnum vel saman.
Viku eftir að ég kem heim frá
Bakú mun ég verja meistara-
ritgerð mína en eftir það för-
um við beint í stúdíó.
Ég legg mikla áherslu á
að halda áfram með mín
verkefni og það hefur ekk-
ert breyst í þeim efnum þótt
keppnin hafi komið upp. Hún
hefur bara stytt mér leið og
ég stefni á að gefa út miklu
meira efni í framtíðinni. Von-
andi kemur þessi fyrsta plata
út í haust en Sena mun gefa
hana út.“
Í 200 prósenta námi
Greta gekk í Varmárskóla og
Tónlistarskóla Reykjavíkur.
Árið 2002 fór hún í Mennta-
skólann í Reykjavík en tvö
síðustu árin þar var hún
einnig í Listaháskóla Íslands.
Hún lauk stúdentsprófi árið
2006 og BA-prófi í fiðluleik frá
LHÍ árið 2008. „Ég var í 200
prósenta námi. Þetta voru
strembin tvö ár en svakalega
skemmtileg. Svona er skóla-
kerfið fyrir tónlistarfólk –
þetta skarast yfirleitt. Ég var
heppin og fékk mikinn skiln-
ing frá kennurunum í MR
og það er þeim að þakka að
þetta gekk upp hjá mér. Þar
að auki var ég á kafi í félags-
lífinu og eftir á að hyggja skil
ég ekki hvernig ég náði að
sinna þessu öllu,“ segir Greta
sem hélt út til Bandaríkjanna
árið 2007 í frekara tónlistar-
nám og fór í Stetson-háskóla
í DeLand á Flórída. Hún seg-
ir dvölina úti hafa veitt henni
góða reynslu. „Ég þroskað-
ist mikið sem tónlistarmað-
ur og sérstaklega sem fiðlu-
leikari. Þetta var æðislegt. Ég
var á heimavist og var með
æðislegan kennara. Ég var
í góðum félagsskap og fékk
gott aðhald. Þetta var afar
áreynslulaus en ótrúlega dýr-
mætur tími.“
Sem barn stundaði Greta
frjálsar íþróttir meðfram tón-
listinni auk þess sem hún
æfði samkvæmisdansa. „Ég
hef alltaf haft rosalega þörf
fyrir að hreyfa mig og fá útrás
og ég er afskaplega þakklát
fyrir grunninn sem sam-
kvæmisdansinn veitti. Þegar
maður vinnur sem tónlistar-
maður skiptir miklu máli að
vera meðvitaður um líkams-
stöðu. Að koma fram er svo
miklu meira en að labba fram
á sviðið og syngja eða spila
á fiðlu. Maður þarf að vera
flytjandi í svo miklu víðari
skilningi. Þessi grunnur hef-
ur hjálpað mér mikið í þessu
Eurovision-verkefni,“ segir
Greta sem fór að mæta í rækt-
ina af krafti þegar hún var 17
ára. „Ég smitaðist af íþrótta-
áhuga úti í Flórída og þegar ég
kom heim byrjaði ég í boot-
camp. Þar fann ég mig aftur.
Ég er svo rosaleg keppnis-
manneskja. Í bootcamp náði
ég að sameina keppnismann-
eskjuna í mér, að vera í góðu
formi og geta gert allt það
sem ég vil gera. Svo færði ég
mig yfir í crossfit.“
Fjórum árum yngri kærasti
Kærasti Gretu heitir Elvar Þór
Karlsson. Elvar rekur Cross-
Fit stöðina og er bootcamp-
þjálfari að auki en hann þjálf-
aði Gretu í bootcamp á sínum
tíma. „Við eigum crossfit-ið
saman sem er mjög dýrmætt.
Hann er á fullu í þessu sporti
– lifir og hrærist í þessum
heimi. Og ég er alveg smituð,“
segir hún brosandi. Elvar er
fjórum árum yngri en hún en
parið, sem hefur verið sam-
an frá árinu 2010, ætlar sér að
flytja inn í eigin íbúð í Grafar-
holtinu í haust. „Hann hefur
búið í Grafarvogi allt sitt líf en
foreldrar hans fluttu í Mos-
fellsbæinn stuttu eftir að við
byrjuðum saman. Ég vil meina
að tengdaforeldrar mínir hafi
verið svona hrifnir af mér,“ seg-
ir hún hlæjandi og bætir við að
þótt það fari vel um þau í for-
eldrahúsum hlakki þau mik-
ið til að komast í eigið hús-
næði. „Við erum mjög spennt
en reynum að fara skynsam-
lega að öllu. Við viljum koma
okkur vel fyrir og gera þetta
sem áreynslulausast. Við erum
mjög samstiga og voðalega lík
hvað flest varðar og lendum oft
í því að hugsa það sama. Þetta
er allt voða þægilegt,“ segir hún
og bætir við að hún taki ekki
eftir aldursmuninum.
„Ég hélt alltaf að hann væri
eldri en ég. Þegar ég spurði
hann hvaða módel hann væri
þá sagðist hann vera „drullu-
gott módel“. Og þar með var
það afgreitt. Það halda allir
að hann sé eldri en hann er.
Hann er svo ofboðslega traust-
ur, sterkur og heiðarlegur. Svo
er hann líka drepfyndinn og
fær mig alltaf til að hlæja. Jafn-
vel þótt Eurovision hangi yfir
mér. Hann er allt sem ég hefði
viljað. Það er alltaf gaman hjá
okkur,“ segir Greta og bætir við
að Elvar verði með henni úti í
Bakú. „Ég treysti mér ekki til að
fara í þessa ferð án hans. Syst-
ir mín fer með mér á laugar-
daginn og svo koma Elvar og
mamma og pabbi viku seinna.
Það verður voðalega gott að fá
hann. Fjölskyldan styður þétt
við bakið á mér og ég veit að
þau eru mjög stolt.“
Greta Salóme er alin upp
Fær styrk
úr trúnni
Greta Salóme Stefánsdóttir er á leið
til Bakú í Aserbaídsjan um helgina ásamt
fríðu föruneyti til að taka þátt í Eurovision-
söngvakeppninni. Þótt Greta Salóme sé
allt í öllu í íslenska atriðinu kvíður hún engu.
Hún er alin upp í kristinni trú og segist pott-
þétt ætla að biðja bæn áður en hún stígur á
svið enda sé best að láta karlinn þarna uppi
sjá um þetta. Indíana Ása Hreinsdóttir
ræddi við Gretu Salóme um fjölskylduna,
ástina, lífsviðhorfin, trúna og tónlistina sem
hefur alltaf verið miðpunkturinn í lífi hennar.
„Fyrir mörgum
er trú mikið
feimnismál en alls
ekki fyrir mér. Ég
er samt ekkert að
flagga henni vísvit-
andi en reyni í stað-
inn að láta verkin
tala.
Indíana Ása
Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Viðtal