Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Síða 33
Viðtal 33Helgarblað 11.–13. maí 2012
í kristinni trú og er í Hvíta-
sunnusöfnuðinum. „Ég er trú-
uð og hef alltaf verið. Trúin
hefur alltaf spilað stórt hlut-
verk í mínu lífi,“ segir hún og
bætir við að hún sé ágætlega
kirkjurækin. „Ég spila mikið í
kirkjum. Það er hluti af mínu
starfi. Svo er líka mikið tónlist-
arstarf í söfnuðinum. Trúin og
tónlistin blandast mikið sam-
an. Ég fæ styrk minn úr trúnni.
Það er svo gott að geta treyst
því að trúin geti fleytt mér
lengra en ég sjálf og vita að ég
þurfi ekki að bera allar áhyggj-
ur sjálf. Ég get varpað þeim
annað. Það er mikill styrkur í
því þessa dagana. Ég veit að
ég get vandað mig og gert mitt
allra besta en svo læt ég hitt
ráðast og treysti því að það fari
eins og það á að fara.
Trú er mjög persónubundin
og hún er mjög mismunandi.
Fyrir mörgum er trú mikið
feimnismál en alls ekki fyr-
ir mér. Ég er samt ekkert að
flagga henni vísvitandi en
reyni í staðinn að láta verkin
tala. Í rauninni er trúin mjög
stór partur af því sem ég er.“
Félagslynd bindindis-
manneskja
Aðspurð segist hún hafa verið
rólegt barn og unglingur og að
líklega hafi hún verið „nörd“
upp að vissu marki. „Ég var
alltaf með fiðluna í annarri
og bækur í hinni. En að sama
skapi alltaf á fullu og alltaf
með í öllu. Ég er ekki nörd í
dag. Ég hef sterkar skoðan-
ir á því hvernig ég haga hlut-
unum í kringum mig. Ég var
mjög þægilegur unglingur og
ég held að það sé vegna þess
hvernig fjölskylda mín er. Ég
hef alltaf átt rosalega góða vin-
konu í mömmu. Í stað þess að
taka mótþróaskeið hef ég leit-
að til hennar og sótt til henn-
ar styrk. Við systurnar erum
líka mjög nánar enda er stutt á
milli okkar í aldri.“
Greta drekkur ekki áfengi
en hún tók þá ákvörðun fyr-
ir tveimur árum að það hent-
aði henni ekki að drekka. „Það
hefur bara aldrei hentað mér
að drekka. Það er mjög langt
síðan ég ákvað að það væri
ekki eitthvað sem ég vildi til-
einka mér. Mér finnst gaman
að fara út og hitta fólk en þeg-
ar djammið byrjar af alvöru
er ég vanalega farin heim. Ég
fór meira að segja bara heim
að sofa eftir úrslitakvöldið í
Hörpunni. Mér finnst ég ekki
vera að missa af neinu og ég
hefði líka pottþétt ekki orku til
að gera allt sem ég er að gera ef
ég væri að detta í það um helg-
ar. Maður velur og hafnar og
með ákvörðunum koma fórn-
ir. Ef ég hef fórnað djamminu
fyrir velgengni í tónlistinni þá
finnst mér það ekki stór fórn.
Ég er líka „allt eða ekkert“
manneskja og finnst óþægilegt
að vera á gráu svæði. Síðustu
árin hef ég fengið mér í glas við
hátíðleg tilefni. Það hefur ver-
ið svo sjaldan að mér fannst
alveg eins gott að sleppa því
bara alveg og vera bindindis-
manneskja. Annars var þetta
engin stór ákvörðun. Ég vissi
bara að þetta var ekki það sem
ég vildi,“ segir hún og bætir við
að hún mæti skilningi hjá fólk-
inu í kringum sig. „Það virða
þetta allir. Mér finnst líka ekk-
ert mál að vera í kringum fólk
sem er að drekka og get haft
gaman af því að fara út og
hitta fólk. Það hentar mér bara
betur að gera það án þess að
drekka.
Ég hef líka aldrei skilið að
það þurfi áfengi til að hafa
það gaman. Skemmtilegustu
stundirnar í mínu lífi hafa ver-
ið áfengislausar. Bindindis-
fólk er oft talið félagsskítir en
í mínu tilfelli hefur það aldrei
verið þannig. Ég fór í gegnum
menntaskólann án þess að
drekka dropa en tók samt virk-
an þátt í félagslífinu.“
Enginn Eurovision-aðdá-
andi
Hún játar því að líklega sé hún
gömul sál. „Mamma hefur alltaf
sagt að ég sé gömul sál. Ég hef
alltaf verið að hugsa fram fyr-
ir mig og samkvæmt mömmu
svaf ég með annað augað opið
þegar ég var ung. Það hefur
alltaf reynst mér erfitt að hvíla
í núinu en ég er að læra það.
Annars er ég ekkert ólík jafn-
öldrum mínum. Ég hef kannski
alltaf verið að gera öðruvísi
hluti en ég er heppin að eiga
góða vini sem hafa tekið tillit til
þess sem ég hef verið að gera og
virt mínar lífsskoðanir. Partur af
því að eiga vini er að fagna fólki
eins og það er og virða skoðanir
þess og lífsviðhorf. Fyrir mér er
það að vera vinur.“
Hún viðurkennir að hún
beri þá von í brjósti að Euro-
vision eigi eftir að opna henni
einhverjar dyr. „Vonandi. Þetta
ævintýri hefur þegar opnað
fullt af dyrum hér heima. Mað-
ur veit samt aldrei hvað gerist
í þessari keppni. Oft lifa lögin
sem vinna ekki lengst. Mín-
ar væntingar eru þær að fólk
kunni að meta það sem við
erum að gera.
Ég er svo ánægð með Jónsa.
Hann gerir þetta þrusuvel og
nákvæmlega eins og ég sá fyrir
mér að þetta ætti að vera. Hann
hefur þennan kraft í röddinni
sem mig vantar og svo pass-
ar hann vel í þetta íslenska
karlmannlega en samt stráks-
lega hlutverk. Okkur kemur
mjög vel saman og hann veit-
ir mér mikinn stuðning. Hann
er kletturinn minn á sviðinu.
Mér finnst ég mjög örugg með
hann við hlið mér.“
Aðspurð segist hún aldrei
hafa verið svokallað „Euro-
vision-nörd“. „Þessi keppni
kemur einu sinni á ári, hvort
sem manni líkar betur eða
verr, og maður horfir alltaf á
hana. Ég er samt enginn sér-
stakur aðdáandi þótt ég hafi
skoðanir á henni. Eins og all-
ir. Að því hef ég komist,“ segir
hún brosandi.
Jafnvægi í sambandinu
Þrátt fyrir annríki passar hún
sig að eiga tíma með kærastan-
um. „Við nýtum allar samveru-
stundir sem við fáum. Hann
fylgir með í mátanir og annað
til að eiga smátíma með mér,“
segir hún og bætir við að það
sé lítill tími fyrir önnur áhuga-
mál en tónlistina og cross-
fit. „Ég lít meira á crossrit sem
lífstíl en áhugamál. En ef ég
ætti önnur áhugamál væri lík-
lega ómögulegt að sinna þeim.
Annars hef ég lúmskan áhuga
á því að gera fallegt í kringum
mig. Ætli það verði ekki helsta
áhugamálið á þessu ári, svona
eins og verkefnastaðan er
núna, að búa til fallegt heimili
með manninum mínum,“ seg-
ir hún og brosir þegar hún er
spurð hvort brúðkaup sé fram
undan. „Við eigum pottþétt
eftir að gifta okkur einhvern
tímann en ég veit ekki hvenær.
Okkur líður ofsalega vel sam-
an og við vitum nákvæmlega
hvert við stefnum. Það er mikið
frelsi að vera með manneskju
sem styður jafn fallega við bak-
ið á manni og hann gerir við
mig og við hvort við annað.
Hann á sér líka stóra
drauma og þeir taka jafn mik-
inn tíma og það sem ég er að
gera. Hann fór til dæmis á
heimsleikana í crossfit í fyrra
og varð þriðji á Evrópumeist-
aramótinu. Það er mikið jafn-
vægi í okkar sambandi og við
erum voðalega samstiga. Við
viljum til að mynda bæði fara
snemma að sofa á kvöldin
enda þurfum við á allri okk-
ar orku að halda. Kvöldun-
um eyðum við svo í vinnunni.
Hann vinnur að sínu fyrirtæki
hér í tölvunni og ég í mínu. Svo
æfum við mikið saman enda
erum við með fullkomna lík-
amsrækt hér heima.“
Hlakkar bara til
Fatnaður íslensku flytjend-
anna vekur alltaf mikið umtal
hérna heim. Líkt og allt annað
sem viðkemur íslenska hópn-
um. Greta vill lítið segja um
kjólinn nema að hún sé hæst-
ánægð með útkomuna. Enn
fremur segist hún ekki kvíða
því að stíga á svið í Bakú. „Ég
hlakka bara til. Ég hef ákveð-
ið að líta á þetta sem tónleika.
Það eru forréttindi að fá að
flytja tónlist sína fyrir fram-
an Evrópu og það í svona frá-
bærri aðstöðu. Ef maður horf-
ir á þetta þannig er útkoman
aukaatriði. Auðvitað skipt-
ir máli að vera sjálfum sér og
þjóðinni til sóma. Ég á pott-
þétt eftir að biðja bæn áður en
ég stíg á svið enda best að láta
stóra karlinn þarna uppi bara
um þetta,“ segir hún brosandi
og bætir við: „Núna skiptir
mestu máli að brynja sig. Ég
sæki líkamlegan styrk í íþrótt-
irnar og andlegan styrk í trúna
og er því með bestu mögulegu
vopnin. Við erum samt bara
mannleg og getum aldrei gert
betur en okkar besta. Atriðið
er hins vegar svo vel æft og ég
hef svo mikla trú á tónlistinni.
Það tvennt á eftir að koma
okkur langt. Ég trúi staðfast-
lega á vinnu og undirbúning
og þar höfum við staðið okkur
vel. Við höfum unnið mikið í
atriðinu og laginu. Þess vegna
er ég ekki kvíðin. Ég hlakka
bara til.“ n
„Ef ég hef fórn-
að djamminu
fyrir velgengni í tón-
listinni þá finnst mér
það ekki stór fórn.
Með bestu vopnin Greta Salóme segist vera vel vopnuð fyrir Eurovision. Hún er á kafi í crossfit og segist sækja
líkamlegan styrk í íþróttirnar. Andlega styrkinn fái hún hins vegar úr trúnni.
„Ég treysti
mér ekki
til að fara í þessa
ferð án hans
Flott par Greta og Elvar hafa verið saman í tvö ár og ætla að flytja saman í
eigin íbúð í haust. Elvar rekur eigin líkamsræktarstöð en hann er fjórum árum
yngri en Greta. Myndir Sigtryggur Ari