Fréttatíminn - 06.11.2015, Blaðsíða 14
sem gerðust
sendiherrar
lands og þjóðar
Teikningar/Hari
Popparinn Justin Bieber frumsýndi í vikunni nýtt myndband
sem tekið var á Íslandi. Þegar hefur myndbandið fengið yfir
tíu milljón áhorf á Youtube. Bieber þakkaði Íslandi í kynningu
á myndbandinu – rétt eins og hann gerði eftir heimsókn sína
hingað í september en hann var duglegur að segja tugmillj-
ónum aðdáenda sinna frá ævintýrum sínum hér. En Bieber
er ekki sá eini sem óumbeðinn hefur tekið að sér sendi-
herrastörf fyrir Ísland í viðtölum og á samfélagsmiðlum. Við
rifjum upp heimsóknir nokkurra stjarna sem hafa eflaust
skilað ófáum heimsóknum ferðamanna hingað í kjölfarið.
Justin
Bieber
Kom hingað í september 2015
Allt ætlaði um koll að keyra þegar Kandamaður-
inn ungi sást spóka sig á Suðurnesjum og í kjöl-
farið á Suðurlandi. Bieber greindi fylgjendum
sínum á samfélagsmiðlum frá hverju skrefi á
ferð sinni og síðar kom í ljós að hann tók upp
myndband hér. Myndbandið verður ekki kallað
annað en stórkostleg landkynning fyrir Ísland.
Beyoncé
Kom hingað í desember 2014
Poppdrottningin kom hingað ásamt bónda
sínum, rapparanum Jay Z, en þau voru að fagna
45 ára afmæli hans. Mikil leynd hvíldi yfir heim-
sókninni en þau fóru meðal annars í Bláa lónið
og gistu í lúxussumarhúsi í Úthlíð. Beyoncé birti
síðar myndir frá Íslandsheimsókninni á sam-
félagsmiðlum við mikla hrifningu aðdáenda.
Kom hingað sumarið 2012
Heimsókn Toms Cruise hingað þegar hann var
við tökur á stórmyndinni Oblivion átti sannar-
lega eftir að reynast örlagarík. Hér náðist síðasta
myndin af honum og þáverandi eiginkonu, Katie
Holmes, en fréttir af skilnaði þeirra fóru eins og
eldur í sinu. Cruise fór í ótal viðtöl til að kynna
myndina og dásamaði Ísland og íslenska sumarið.
Tom
Cruise
Ben
Stiller
Kom hingað sumarið 2012
Ben Stiller var aufúsugestur hér þegar hann tók
upp myndina The Secret Life of Walter Mitty,
heillaði landsmenn hvar sem hann kom og
talaði vel um landið við hvert tækifæri, bæði á
Twitter og í viðtölum eftir á. Íslensk náttúra var
áberandi í myndinni, sem dró að sér minnst tíu
milljónir bíógesta, og tugmilljónir sáu viðtöl við
Stiller í hinum ýmsu spjallþáttum.
Kom hingað 2012
Var hér við tökur á stórmyndinni Noah og var
duglegur að tísta á meðan dvöl hans stóð. Tróð
svo upp á þrennum tónleikum á Menningarnótt
og fregnir af afrekum hans fóru víða.
Kom hingað margoft á tíunda áratugnum
Var eins og grár köttur í miðborg Reykjavíkur
á hátindi ferils síns á tíunda áratugnum ásamt
félögum sínum í hljómsveitinn Blur. Keypti hlut í
Kaffibarnum og hús í Grafarvogi. Talaði iðulega
um ævintýralandið Ísland í viðtölum á þessum
tíma.
Russell
Crowe
Damon
Albarn
Fylgjendur á samfélagsmiðlum í milljónum
Fylgjendur á samfélagsmiðlum í milljónum
Fylgjendur á samfélagsmiðlum í milljónum
Fylgjendur á samfélagsmiðlum í milljónum
Fylgjendur á samfélagsmiðlum í milljónum
3
73 64
5
69 43 14 50
1,8
10
14 úttekt Helgin 6.-8. nóvember 2015
Havarti er einn þekktasti ostur Dana en hér á landi hófst
framleiðsla á honum árið 1987. Ostinum var upphaflega
gefið nafnið Jöklaostur en því var breytt. Havarti varð til
um miðja 19. öld hjá hinni frægu dönsku ostagerðarkonu,
Hanne Nielsen. Havarti er mildur, ljúfur og eilítið
smjörkenndur ostur sem verður skarpari með aldrinum
og er með vott af heslihnetubragði. Frábær ostur með
fordrykknum eða á desertbakka með mjúkum döðlum og
eplum.
HAVARTI
FJÖLHÆFUR
www.odalsostar.is