Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.11.2015, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 06.11.2015, Blaðsíða 22
í sjónvarpi Heilsutíminn er í Fréttatímanum sem kemur út á föstudögum. Sjónvarp- sþátturinn er frumsýndur á mánud- agskvöldum klukkan 20 og endursýn- dur nokkrum sinnum í vikunni. Umsjónarmaður Heilsutímans er Gígja Þórðardóttir sjúkraþjálfari. Sjónvarpsþátturinn Heilsutíminn er sýndur á mánudagskvöldum kl. 20 á Hringbraut í vetur. V ið erum bara venjulegt miðaldra fólk á Fáskrúðs-firði,“ segja hjónin Unnur Sveinsdóttir og Högni Páll Harðar- son spurð hver þau séu og hvaða ævintýramennska það sé sem hafi hrundið þeim út í fimm mánaða mótorhjólaferðalag um Mongólíu, Úsbekistan, Kirgistan, Tadsjikis- tan og fleiri lönd sem Íslendingar hafa ekki verið iðnir við að heim- sækja. „Við eigum okkur enga for- tíð í mótorhjólakeppnum, torfæru eða slíku, við erum bara að elta draumana okkar.“ Unnur er myndlistarmenntuð og vinnur sem grunnskólakennari á Reyðarfirði og Högni er mennt- aður vélstjóri og viðskiptafræðing- ur sem vinnur hjá Alcoa Fjarðaáli á Reyðarfirði. Hann hefur lengi verið heltekinn af mótorhjólabakt- eríunni og Unnur segir að hún hafi ekki átt annan kost en að taka mót- orhjólapróf 2008 til þess að halda í hann. „Ég byrjaði eiginlega bara í sjálfsvörn, var nýbúin að kynnast Högna sem er gjörsamlega forfall- inn, þannig að ég sá að til þess að láta þetta samband ganga neydd- ist ég til að taka próf. Svo reyndist þetta bara óskaplega gaman, við smullum saman þar líka.“ Þau hjón voru hvort á sínu hjóli í ferðinni og Unnur segir það ákveð- ið öryggisatriði. „Þegar fólk er saman allan sólarhringinn í marga mánuði getur kastast í kekki þannig að það er nauðsynlegt að geta farið hvort í sína áttina,“ segir hún hlæjandi. Alein úti í náttúrunni Spurð um tildrög ferðarinnar segja þau að það hafi bara verið komið að því að stækka draumana eftir sex vikna ferð um Balkan- skagann og austur til Rúmeníu árið 2010. „Þá sáum við hvað við erum fær um og hvað er hægt að gera í svona ferðum,“ segir Högni. Ferðin stóð yfir í fimm mánuði og viðkomustaðir voru fjölmargir; Mongólía, Úsbekistan, Kasakst- an, Tadsjikistan og Kirgistan auk þess sem leiðin lá til Georgíu, Armeníu, Hvíta Rússlands, Rúss- lands og fleiri landa. „Þegar mað- ur er orðinn forfallinn koma svona ögrandi staðir upp í hugann,“ segir Högni. „Fyrir þá sem stunda mótorhjólamennsku er Mongólía einna efst á þeim lista. Hún er risastór og mjög strjálbýl og fyrir borgarbúa og þá sem búa á þétt- býlli svæðum er alveg stórmerki- legt að koma á svona stað þar sem maður getur verið nánast aleinn úti í náttúrunni dag eftir dag. Svo eru það -stanlöndin sem hafa nátt- úrulega verið nánast lokuð frá hinum vestræna heimi lengi. Við vitum ekki til þess að nokkurt ís- lenskt mótorhjólafólk hafi farið þar um og það er gaman að fá að takast á við það að heimsækja svona staði.“ Spurð hvernig þeim hafi verið tekið á þessum stöðum segja þau Unnur og Högni að þau geti ekki kvartað yfir móttökunum. „Okkur var yfirleitt tekið rosalega vel,“ segir Unnur. „Fólk var mjög for- vitið og ef við stoppuðum einhvers staðar var strax kominn hópur í kringum okkur en fólk var kurteist og gestrisið, elskulegt og hjálp- samt og við hittum alveg ógrynni af góðu fólki.“ Það er eitt af því sem þessi ferðamáti gefur manni,“ skýtur Högni inn í. „Maður er rosalega opinn og berskjaldaður fyrir umhverfi og fólki. Við erum auðvitað bara tvö og aldrei neitt ógnvekjandi eins og stærri hópar mótorhjólafólks geta verið eða lokuð frá umhverfinu eins og fólk inni í bílum er. Það er eitt af því sem gerir þennan ferðamáta svo skemmtilegan.“ „Fólk gefur sig á tal við mann hvar sem er,“ segir Unnur. „Maður er ekki fyrr sestur niður með kaffi og kleinu en það er einhver kominn til að spjalla, sama þótt það sé uppi á fjalli.“ 30.600 kílómetrar Þau segja tungumálaörðugleika ekki hafa hamlað samræðum, þótt flestir töluðu ekki önnur tungumál en sín eigin. „Rússneska er töluð í flestum þessara landa, enda til- heyrðu þau flest Sovétríkjunum, og við lærðum rússneska stafrófið áður en við fórum og lærðum að segja svona grundavallarsetningar eins og: Ég tala ekki rússnesku. Það skipti reyndar engu máli þótt maður segði það, fólk hélt bara áfram að masa. Það eru mjög fáir sem tala nokkra ensku þarna, enda eru þetta ekki túristastaðir, nema þá helst Kirgistan þar er svolítill ferðamannaiðnaður, en þeir sem Tvö á mótorhjólum í fimm í mánuði Unnur Sveinsdóttir og Högni Páll Harðarson létu einn af draumum sínum rætast sumarið 2014 og fóru í fimm mánaða mótorhjólaferðalag um Mið-Asíu. Nú hafa þau gefið út bók um tiltækið og eru þegar farin að plana næstu ferð. Unnur segist hafa tekið mótorhjólaprófið í sjálfsvörn, til að halda sambandinu gangandi, en svo hafi þetta bara reynst alveg óskaplega gaman. heimsækja svona lönd eru fyrst og fremst svona sérvitringar eins og við.“ Í heild hjóluðu þau Unnur og Högni 30.600 kílómetra á þessum fimm mánuðum en þeim finnst það ekkert sérlega mikið. „Þetta dreifðist á 147 daga,“ segir Högni. „Svo það var ekkert sérlega langt sem við fórum á hverjum degi. við tókum þetta bara einn dag í einu.“ Spurð hvort þau hafi ekki lent í eftirminnilegum ævintýrum, hlæja þau og segja engan hörgul hafa verið á þeim, en þau hafi aldrei lent í neinum hættum eða vandræðum. „Þetta voru endalaus ævintýri, en við eigum engar krassandi sögur um ógnir og hættur, því miður,“ segir Högni. „Þegar þú ferðast í 21 viku í beit ertu auðvitað alltaf að takast á við eitthvað óþekkt, en heilt yfir þá er þetta gríðarlega skemmtilegt.“ Kvenlæg og öðruvísi mótor- hjólabók Unnur og Högni hafa nú gefið ferðasöguna út á bók, Vegabréf, vísakort og lyklar að hjólinu, og hún er skreytt miklum fjölda mynda úr ferðinni. Þau eru sérlega stolt af því að útgáfan hafi verið austfirsk frá a-ö. „Við tókum þá ákvörðun að gefa bókina út sjálf og vera ekkert að leita til útgefenda,“ segir Unnur. „Þannig hefðum við líka algjört ákvörðunarvald um allt sem bókinni viðkemur, gætum gert hvað sem okkur sýndist. Við fengum frábært fólk til liðs við okkur hérna fyrir austan, bókin er prentuð í Héraðsprenti á Egilsstöð- um og Ingunn Þráinsdóttir sem þar vinnur hjálpaði okkur að hanna hana. Við lögðum mikið upp úr því að hún yrði falleg sjónrænt, mikið af myndum og fallegt letur og svo framvegis. Og við erum afskaplega ánægð með hana.“ Unnur skrifar texta bókarinnar og segir hann töluvert kvenlægan og ólíkan hinum týpísku mótor- hjólabókum – hvernig sem þær nú séu. „Þetta er ferðasaga, saga af ástarsambandi, saga af því hvernig heimurinn opnast og reynist fullur af venjulegu, góðu fólki. Og þetta er saga af því hvar maður pissar á mótorhjólaferðalagi í útlöndum!“ Hvernig er að þurfa að hverfa aft- ur til venjulegs lífs eftir svona ævin- týri, er þetta ekki alveg óbærilegt? „Ég er ekki viss um að ég vilji svara þessari spurningu,“ segir Högni og hlær. „Vinnuveitendur mínir gætu lesið þetta.“ „Dagarnir eru nátt- úrulega alveg óskaplega hversdags- legir, það verður að viðurkennast,“ segir Unnur. „En við erum þegar farin að plana næstu ferð, þannig að við lifum í tilhlökkuninni.“ Friðrika Benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is Í firðinum heima í hjólatúr á brúðkaupsdaginn. 1 2 3 4 5 6 1. Á þjóðvegi 1 í Mongólíu. 2. Spákerling á markaði í Osh í Kirgistan. 3. Ungur afkomandi Gengis Kahn byrjaður að æfa reið- listirnar. 4. Mongólsk hjón í kaupstaðarferð. Frúin var ekkert allt of ánægð með áhuga karlsins á fjöðruninni í hjólinu hennar Unnar. 5. Beðið eftir morgunmatnum á veitingastað í Úsbekistan – móðirin á heimilinu skaust til nágrannanna að ná í egg. 6. Rússland kom okkur skemmtilega á óvart, landið athyglisvert og fólkið einstaklega elskulegt. 22 viðtal Helgin 6.-8. nóvember 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.