Fréttatíminn - 06.11.2015, Blaðsíða 44
44 bílar Helgin 6.-8. nóvember 2015
ReynsluakstuR MeRcedes Benz Glc
Laglegur
lúxusjeppi
Chevrolet Spark
Bensín | Beinskiptur | Skráður: 12/2012
Ekinn: 14.000 km.
Verð: 1.590.000 kr.
Chevrolet Aveo
Bensín | Sjálfskiptur | Skráður: 11/2011
Ekinn: 39.000 km.
Verð: 1.990.000 kr.
Peugeot 2008
Bensín | Sjálskiptur | Skráður: 8/2014
Ekinn: 24.000 km.
Verð: 2.990.000 kr.
Audi A4 2,0 TDI Avant
Dísel | Sjálfskiptur | Skráður: 6/2013
Ekinn: 58.000 km.
Verð: 4.590.000 kr.
H
öfðabakki
V
agnhöfði
Dvergshöfði
Hamarshöfði
Smiðshöfði
Stórhöfði
Hyrjarhöfði
Funahöfði
Tangarhöfði
Bíldshöfði
VIÐ
ERU
M
HÉR
Þú finnur fleiri notaða á benni.is
Reykjavík
Vagnhöfða 27
Sími: 590 2035
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 10-18
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Sportjeppinn GLC er nýjasta afurð lúxusbílaframleiðandans
Mercedes Benz. GLC leysir GLK af hólmi, sem kom lúxussportj-
eppanum á kortið fyrir 7 árum. GLC einkennist af fallegri
hönnun og er afar þægilegur í akstri. Hann er búinn allri
nýjustu tækni en stjórnborðið getur þó verið heldur
flókið, jafnvel fyrir alvana tæknigúrúa.
l yklarnir af GLC sportjeppanum voru afhentir blaðamanni á fyrsta degi vetrar og
það var því viðeigandi að seinna um
kvöldið féllu fyrstu snjókorn vetrar
ins. Sportjeppinn GLC er nýjasta
afurð Mercedes Benz og tekur við
af GLK sportjeppanum, sem kom
á markað árið 2008. Forveri GLC
kom lúxussportjeppanum á kortið
og það er óhætt að fullyrða
að lúxusinn hafi aukist með
árunum, bæði þegar kemur
að hönnun og aksturseigin
leikum. GLC er fal lega hannaður
og með mun straum línu lagaðri og
sport legri lín ur en GLK. Kassalaga
hönnunin er hvergi sjáanleg og
verður líklega ekki saknað. Inn an
rýmið er einnig fal legt og rúmgott
og það fer afar vel um bæði bílstjóra og
farþega. Það er þó eitt við hönnunina sem
vekur athygli, en það er eins konar borð
sem staðsett er milli bílstjórasætis og far
þegasætis. Skrifborð er líklega rétt lýs
ing, svo stórt er rýmið, en undir því hefur
tveimur ógnarstórum drykkjarstæðum
verið komið fyrir. Setja má spurninga
merki við notagildi þessa rýmis, en það
kemur kannski ekki að sök þar sem nóg
er af slíku í bílnum.
Minni eldsneytisneysla
GLC er umhverfisvænni en forverinn, en
eldsneytis eyðslan lækk ar að meðaltali um
19% miðað við fyrri gerð. GLC er einnig
með níu þrepa sjálf skipt ingu sem staðal
búnað í öll um gerðum og mun hann einnig
koma í Plugin Hybrid út færslu með tvinn
aflrás og þar fer sam an mik il spar neytni
og af kasta geta. Vél in er auk þess búin
Stop & Goádrepi búnaði líkt og flestir nýir
bíl ar í dag. Þannig er eldsneytisneyslan
minnkuð enn frekar.
Óþarflega tækniflókinn?
Tæknilega séð hefur GLC allt til alls, en
það truflaði þó örlítið að skjárinn er ekki
snertiskjár, heldur þarf ökumaður að not
ast við eins konar snertimús sem staðsett
er milli sætanna. Kannski er það frekt
að krefjast þess að allir skjáir séu snert
iskjáir, en þar sem blaðamaður stóð sig
nokkrum sinnum að því að pota í skjáinn í
stað þess að nota músina er spurning hvort
þýski lúxusbílaframleiðandinn ætti ekki
að hugsa um ökumenn framtíðarinnar,
sem tilheyra jú flestir, ef ekki allir, snjall
símakynslóðinni. GLC stendur þó án efa
undir nafni sem lúxussportjeppi og stóð
sig afar vel í hálkunni á fyrsta vetrardegi.
emm
MeRcedes Benz
Glc-class
Verð frá:
8.360.000 kr.
Gírkassi:
9 þrepa sjálf-
skipting
Afl:
Bensín: 211 hestöfl
Dísil: 170/240
hestöfl
Eyðsla:
Bensín:
7,1-6,5 L / 166-152
CO2 (g/km)
Dísil:
5,5-5,0 L / 143-129
CO2 (g/km)
Bílar í svipuðum
flokki:
BMW X3
Audi Q5
Land Rover
Disco very Sport
Volvo XC60
Innanrýmið er gætt öllum
þægindum og nýjustu tækni, en
hann er þó ef til vill óþarflega
tækniflókinn. Notast þarf við
snertimús eða snúningstakka til
að stjórna hinum ýmsu mögu-
leikum sem bíllinn býður upp
á. Snertiskjár hefði vissulega
einfaldað málin, en Benz hefur
hingað til ekki ákveðið að fara
þá leið. Mynd/Hari.
Sportjeppinn GLC er
nýjasta afurð Mercedes
Benz. Bíllinn er mun
straumlínulagaðri en
forverinn, GLK, og
er hönnunin afar vel
heppnuð. Mynd/Hari.