Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.11.2015, Page 44

Fréttatíminn - 06.11.2015, Page 44
44 bílar Helgin 6.-8. nóvember 2015  ReynsluakstuR MeRcedes Benz Glc Laglegur lúxusjeppi Chevrolet Spark Bensín | Beinskiptur | Skráður: 12/2012 Ekinn: 14.000 km. Verð: 1.590.000 kr. Chevrolet Aveo Bensín | Sjálfskiptur | Skráður: 11/2011 Ekinn: 39.000 km. Verð: 1.990.000 kr. Peugeot 2008 Bensín | Sjálskiptur | Skráður: 8/2014 Ekinn: 24.000 km. Verð: 2.990.000 kr. Audi A4 2,0 TDI Avant Dísel | Sjálfskiptur | Skráður: 6/2013 Ekinn: 58.000 km. Verð: 4.590.000 kr. H öfðabakki V agnhöfði Dvergshöfði Hamarshöfði Smiðshöfði Stórhöfði Hyrjarhöfði Funahöfði Tangarhöfði Bíldshöfði VIÐ ERU M HÉR Þú finnur fleiri notaða á benni.is Reykjavík Vagnhöfða 27 Sími: 590 2035 Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Opnunartímar: Virka daga 10-18 JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Sportjeppinn GLC er nýjasta afurð lúxusbílaframleiðandans Mercedes Benz. GLC leysir GLK af hólmi, sem kom lúxussportj- eppanum á kortið fyrir 7 árum. GLC einkennist af fallegri hönnun og er afar þægilegur í akstri. Hann er búinn allri nýjustu tækni en stjórnborðið getur þó verið heldur flókið, jafnvel fyrir alvana tæknigúrúa. l yklarnir af GLC sportjepp­anum voru afhentir blaða­manni á fyrsta degi vetrar og það var því viðeigandi að seinna um kvöldið féllu fyrstu snjókorn vetrar­ ins. Sportjeppinn GLC er nýjasta afurð Mercedes Benz og tekur við af GLK sportjeppanum, sem kom á markað árið 2008. Forveri GLC kom lúxussportjeppanum á kortið og það er óhætt að fullyrða að lúxusinn hafi aukist með árunum, bæði þegar kemur að hönnun og aksturseigin­ leikum. GLC er fal lega hannaður og með mun straum línu lagaðri og sport legri lín ur en GLK. Kassalaga hönnunin er hvergi sjáanleg og verður líklega ekki saknað. Inn an­ rýmið er einnig fal legt og rúmgott og það fer afar vel um bæði bílstjóra og farþega. Það er þó eitt við hönnunina sem vekur athygli, en það er eins konar borð sem staðsett er milli bílstjórasætis og far­ þegasætis. Skrifborð er líklega rétt lýs­ ing, svo stórt er rýmið, en undir því hefur tveimur ógnarstórum drykkjarstæðum verið komið fyrir. Setja má spurninga­ merki við notagildi þessa rýmis, en það kemur kannski ekki að sök þar sem nóg er af slíku í bílnum. Minni eldsneytisneysla GLC er umhverfisvænni en forverinn, en eldsneytis eyðslan lækk ar að meðaltali um 19% miðað við fyrri gerð. GLC er einnig með níu þrepa sjálf skipt ingu sem staðal­ búnað í öll um gerðum og mun hann einnig koma í Plug­in Hybrid út færslu með tvinn­ aflrás og þar fer sam an mik il spar neytni og af kasta geta. Vél in er auk þess búin Stop & Go­ádrepi búnaði líkt og flestir nýir bíl ar í dag. Þannig er eldsneytisneyslan minnkuð enn frekar. Óþarflega tækniflókinn? Tæknilega séð hefur GLC allt til alls, en það truflaði þó örlítið að skjárinn er ekki snertiskjár, heldur þarf ökumaður að not­ ast við eins konar snertimús sem staðsett er milli sætanna. Kannski er það frekt að krefjast þess að allir skjáir séu snert­ iskjáir, en þar sem blaðamaður stóð sig nokkrum sinnum að því að pota í skjáinn í stað þess að nota músina er spurning hvort þýski lúxusbílaframleiðandinn ætti ekki að hugsa um ökumenn framtíðarinnar, sem tilheyra jú flestir, ef ekki allir, snjall­ símakynslóðinni. GLC stendur þó án efa undir nafni sem lúxussportjeppi og stóð sig afar vel í hálkunni á fyrsta vetrardegi. ­emm MeRcedes Benz Glc-class Verð frá: 8.360.000 kr. Gírkassi: 9 þrepa sjálf- skipting Afl: Bensín: 211 hestöfl Dísil: 170/240 hestöfl Eyðsla: Bensín: 7,1-6,5 L / 166-152 CO2 (g/km) Dísil: 5,5-5,0 L / 143-129 CO2 (g/km) Bílar í svipuðum flokki: BMW X3 Audi Q5 Land Rover Disco very Sport Volvo XC60 Innanrýmið er gætt öllum þægindum og nýjustu tækni, en hann er þó ef til vill óþarflega tækniflókinn. Notast þarf við snertimús eða snúningstakka til að stjórna hinum ýmsu mögu- leikum sem bíllinn býður upp á. Snertiskjár hefði vissulega einfaldað málin, en Benz hefur hingað til ekki ákveðið að fara þá leið. Mynd/Hari. Sportjeppinn GLC er nýjasta afurð Mercedes Benz. Bíllinn er mun straumlínulagaðri en forverinn, GLK, og er hönnunin afar vel heppnuð. Mynd/Hari.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.