Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.11.2015, Qupperneq 30

Fréttatíminn - 06.11.2015, Qupperneq 30
Þ etta eru Egils sögur og undirtitillinn er Á meðan ég man, og sá titill er kominn frá Tómasi Magnúsi Tómassyni, því hann man að ég man aldrei neitt,“ segir Egill Ólafs- son. „Ég skrifaði sögur í bókina hans, reyndar eftir hans minni og nú kemur Tómas og geldur með þessum líka fína undirtitli á þessa bók. Ég hef löngum verið að skrifa hjá mér gamlar sögur,“ segir Egill. „Sér- staklega sögur sem pabbi sagði mér og ég heyrði hann segja öðrum, hann var ekta fínn sagnamaður. Það voru sumpart sögur úr minni frumbernsku og fyrir mína tíð. Þær rata nú ekki margar í bókina en sumar eru þarna og ég er ekki frá því að stíllinn sé frá þeim gamla kominn. Við Páll Valsson höfum skrifað þessa bók í sam- einingu. Páll heldur utan um sagnfræðina og feril- inn, fléttar við framvinduna sögu langömmu minnar, Sigríðar Jónsdóttur, og varðar þráðinn með kunnug- legum staðreyndum úr lífi mínu og þjóðar. Ég spinn svo áfram með frásögnum af atburðum, sérstæðum og minnisstæðum karakterum, samverkamönnum, sam- tíðarmönnum og ídólum. Segi af mínum nánustu og kærustu, fjarskyldir ættingjar eru þarna og skávensl- aðir og ekki síst segi ég af sterkum konum í mínu lífi. Móður mína, Margréti Erlu, nefni ég auðvitað fyrst í því tilviki. Bókinni má lýsa sem litlum mósaíkmynd- um á festi tímans sem er bláþráðurinn. Ég reyni að ná utan um tíðaranda og sviðsetja minningar. Ég trúi því að við höfum þörf fyrir að spegla okkur í sögum ann- arra til að fá botn í eigið líf, viðmið í eigið líf, til að stilla af kompásinn svo för okkar megi halda áfram. Þegar best lætur getur góð saga orðið til þess að maður gangi hreinlega í endurnýjun lífdaga. Auðvitað er það fyrst og fremst mín sýn á tilveruna, sem kemur fram í bók- inni og meðvitað færi ég í stílinn þegar sveiflan verður mest, en Páll sér um að kúrsinn sé í lagi, en ég fæ að búa til veður og magna upp mennskuna.“ Flugmiðanum skilað Egill Ólafsson hefur víða komið við á löngum ferli og varla hægt að stíga niður fæti á einhverju sviði sem Egill hefur ekki í það minnsta daðrað við. „Sigurbjörg Þrastardóttir sagði uppi á Skaga um daginn, að ef margmiðlun ætti við í einhverjum til- fella, þá ætti hún við mig,“ segir hann. „Ég hef dreift mér ansi víða, skulum við segja, en að mestu dvalið við tónlistina samt. Ég var um tíma að búa til músík í leikhúsunum og áttaði mig ekki á því fyrr en nýverið að ég hef samið tónlist við um 25 leiksýningar. Ég kom svo bakdyramegin að leiklistinni, ef svo má segja,“ segir Egill. „Ég man að ég var munstraður fyrst inn í leikhúsið sem tónlistarmaður og áður en ég vissi af var ég farinn að leika líka, gjarnan hlutverk tengd músíkflutningi. Sveinn Einarsson réð mig þarna fyrst í Gullna hliðið og svo lék ég fleiri hlutverk á sviði í fram- haldi af því. Í kjölfarið kom svo íslenska kvikmynda- vorið,“ segir Egill og heldur áfram. „Það hagaði þannig til að leiklistarnám lagðist af um tíma á landinu. Og þá fannst kvikmyndaleikstjórum vanta unga leikara í bíó- myndir, ég hagnaðist á því. Þjóðleikhússkólinn hætti og stuttu seinna hóf SÁL skólinn göngu sína. Þannig liðu nokkur ár án þess að ungir leikarar útskrifuðust. Ég var alltaf eins og grár köttur í kringum SÁL skól- ann. Margir af mínum vinum voru þar og ég aðstoðaði við músík ásamt Valla Guðjóns í nemendauppfæslum skólans. Það var einmitt á Jólaballi í SÁL skólanum sem ég hitti Tinnu.“ „Ég var í tónlistarskólanum á þessum tíma og hafði reyndar tekið stefnuna á Mílanó og var kominn með farseðilinn í hendurnar til borgar söngsins, en þá skall á með Spilverki þjóðanna,“ segir Egill. „Löngunin að gera alvöru úr þeirri tónsköpun sem við vorum að fást við varð yfirsterkari og á endanum lagði ég bara inn miðann hjá Flugfélaginu og skrifaði bréf til skólans um að ég mundi líklega koma að ári – sem ekki varð.“ Heldurðu að þú hefðir náð langt sem óperusöngvari? „Ég held nú ekki,“ segir Egill. Langþráður draumur listahjóna Tónlistarmaðurinn Egill Ólafsson stendur á ákveðnum tímamótum. Í nýútkominni bók sem nefnist Egils sögur – á meðan ég man, segir Egill sögur frá lífshlaupi sínu, bæði frá bernsku og ferlinum sem spannar um 40 ár, og af nógu er að taka. Egill hefur drepið niður fæti á mörgum sviðum listarinnar og fáir ís- lenskir listamenn sem hafa tileinkað sér jafn marga stíla og stefnur og hann hefur gert. Hann stefndi á óperusöng á unglingsárum og leiklistin togaði fast í hann á sínum tíma, en alltaf var það músíkin sem var sterkust í hans lífi. Egill sér framtíðina fyrir sér á báti með Tinnu, eiginkonu sinni, og á síðasta ári dvöldu þau um þrjá mánuði á hafi úti. „Ég ætla samt að vera svolítið ánægður með mig og segja að ég hefði örugglega haft margt í það, en röddin hefur allar götur verið lýrísk, og þannig raddir eiga oft erfiðar um vik í óperunni, held ég.“ Með allt á hreinu blár skuggi Leiklistin er harður húsbóndi og tónlistin er það líka og Egill segir að um tíma hafi verið erfitt að reiða sig á gyðjurnar tvær. Hann segir frá því í bók sinni að það hafi verið mikilvægt augnablik í hans lífi þegar hann áttaði sig á því að hann þyrfti að velja á milli. „Ég var farinn að fá stærri hlutverk og á einum tíma- punkti er ég farinn að vinna flotta rullu í Ríkharði þriðja í Þjóðleikhúsinu,“ segir hann. „Þá skall á með einhverjum heimsfrægðardraumum hjá Stuðmönn- um og ég hætti í sýningunni. Þetta er bókstaflega árið 1986 þegar Strax fer til Kína. Meikþráin náði ákveðnu hástigi og það átti bara að kýla á þetta,“ seg- ir hann. „Við vorum sem betur fer bara rétt grúppa á röngum tíma, eða röng grúppa á réttum tíma, þannig að meikið fór fyrir lítið. Ég hef oft velt því fyrir mér og kem inn á það í bókinni, þessari leynd sem fylgdi Stuðmönnum lengi vel. Í gamla daga, fyrir okkar tíma, þegar músíkfólk var að semja dægurlög og dægurlaga- texta þá var ekki óalgengt að höfundar kæmu fram undir uppdiktuðu höfundarnafni. Ástæð- an var gjarnan að það fylgdi því skömm að fást við dægurtónlist,“ segir Egill. „Ég er ekkert frá því að þetta hafi líka verið uppi á teningnum í Stuðmönnum, þegar hugmyndin kom upp um höfundarnöfn. Stuðmenn ætluðu sér e.t.v. annan vettvang í lífinu þegar þetta var, 1975, og því gat verið heppilegt að leggja ekki nafn sitt við það hopp og hí. Svo gerist auðvitað þessi íslenski „suksé“ og á einni nóttu verða Stuðmenn lands- frægir. Ég hafði þá nokkrum árum áður verið viss um að líf mitt ætti að snúast um músík og ekkert annað og þegar ég byrjaði í Tónlistar- skólanum 1970, fylgdi því feginleiki að vera kominn á réttan stað – en svo sóttu á efasemdir eins og oft gerist hjá ungum mönnum.“ Með allt á hreinu er ein vinsælasta kvik- mynd íslenskrar kvikmyndasögu og tónlistin er innprentuð í alla Íslendinga á öllum aldri. Því verður ekki lýst með orðum þegar maður er kominn út á sjó og búinn að slökkva á vélinni. Vindurinn er í segl- unum og maður líður hljóðlaust um hafið, og stefnan getur verið hver sem er, hvert sem hugurinn leitar. Framhald á næstu opnu „Mér líður afskap- lega vel að sjá alla þessa grósku en það kitlar mann alltaf að vera með. Allt hefur sinn tíma í þessu og það er ómögulegt að vita hvaða skref maður tekur næst.“ Ljósmynd/Hari 30 viðtal Helgin 6.-8. nóvember 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.