Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.11.2015, Síða 38

Fréttatíminn - 06.11.2015, Síða 38
Hún velktist ekki í vafa um hversu mikilvægt það væri að kynnast rétta fólkinu sem gæti hjálpað henni að komast í sambönd við söfn, gallerí og listaverkasala og skrifar til vin- konu sinnar: „Allt hjálpar mér við að koma mér á framfæri og kynnast fólki. Það er skrifað um verkin mín, sjálfa mig og Ísland, því öllum finnst uppruni minn svo spennandi.“ Henn- ar er getið í bandarískum blöðum sem ungs og áhugaverðs listamanns með stuttan en glæstan feril á meg- inlandi Evrópu. Hún tekur líka upp á ýmsu til að vekja á sér athygli eins og að hlaða snjóskúlptúr af George Washington, fyrsta forseta Banda- ríkjanna, í Central Park árið 1929. Á meðan hélt félagi hennar á frímerki með mynd af forsetanum sem Nína hafði að fyrirmynd. Næsta dag birti dagblað ljósmynd af sköpuninni og í lok pistilsins var sagt frá því að lista- konan hafi fengið fjölmargar pant- anir í kjölfarið. Á meðan hún bjó í New York hélt Nína nokkrar einkasýningar, bæði í New York og í nágrenni, svo sem á Rhode Island. Fyrsta sýningin var í sýningarsalnum Art Center sem var við 56. stræti, austanmegin vorið 1926. Þetta var eftirsóttur og viðurkenndur sýningarsalur þar sem Nína sýndi meðal annars þrjú stór gifsverk sem hún hafði látið flytja frá Kaupmannahöfn og öll sýna konur: Móðurást, Bedúínakona og Kleó- patra. Móðurást var síðan komið fyr- ir í Hallargarðinum við Lækjargötu, steyptri í brons, og hinar gifsmynd- irnar eru nú í vörslu safna á Íslandi. Einnig sýndi hún minni verk sem unnin voru í Bandaríkjunum. Þar á meðal var andlitsmynd af Vilhjálmi Stefánssyni landkönnuði. Hann bjó í New York og hafði því sjálfur setið fyrir hjá Nínu. Verkið hafði Félag dansk-bandarískra kvenna pantað og gaf Alþingi Íslendinga árið 1930. Nokkur dagblöð birtu umsagnir um sýninguna og þar segir að yfir verkum listakonunnar sé klassísk- ur einfaldleiki og fögur formmótun sem sé aðlaðandi. Henni er líka talið til tekna að hafa sýnt Móðurást og Kleópötru á hinni virtu og frægu Haustsýningu í París og að augljóst sé að þau beri af, ásamt myndinni af landkönnuðinum Vilhjálmi. Leikhúskonur Um það leyti sem Nína flytur sig að Washington Square, við almennings- garðinn Washington Square Park, var hún farin að vekja athygli fyrir áhugaverð portrett og varð eftirsótt í þeirri grein. Íslendingar þekkja best myndir hennar af kvikmynda- leikurum, en fyrirsátar hennar voru af ýmsum toga, margir hátt settir og virtir þjóðfélagsþegnar. Má þar nefna rithöfunda, skáld, athafna- menn, heimskautafara, leikhús- og tónlistarfólk auk barna. Það var svo árið 1929 að Nína hélt sína næstu einkasýningu í New York, að þessu sinni í Kingore Gall- ery sem var staðsett í St. Regis hót- elinu við Fifth Avenue, númer 668. Þetta var virtur sýningarsalur og þar lögð áhersla á að kynna evrópska og bandaríska myndlist. Í viðtali af til- efni sýningarinnar segir Nína á skáldlegan hátt frá heimalandi sínu; björtum sumarnóttum, norðurljós- um, gamla bændasamfélaginu og að sjálfsögðu fæðingarsveitinni. Af þeim verkum sem hún sýndi bar mest á portrettmyndum, meðal ann- ars parmyndum af fimm elskendum sem unnar voru í marmara, en þar sló listakonan á alla strengi tilfinn- ingaskalans. Einnig gaf þar að líta portrett af tveimur þekktustu sviðs- leikkonum liðinna áratuga, Ethel Á Manhattan Þann 8. október 1925 kvaddi Nína Sæmundsson Kaupmannahöfn og sigldi til New York með farþega- skipinu Frederik VIII. Frá því að hún fór alfarin frá Reykjavík árið 1911 hafði hún búið, numið, starf- að og glímt við dauðann víða um lönd, allt frá Kaupmannahöfn til Túnisborgar. Nú var ætlun hennar að freista þess að lifa af listinni í Bandaríkjunum, nokkuð sem hún taldi útséð um að væri mögulegt í París eða Kaupmannahöfn. Sjóferðin vestur um haf stóð í tíu daga. Frederik VIII var stærsta skipið í eigu dönsku útgerðarinnar De Forenede Dampskibs-selska- ber en 935 farþegar sigldu þar á þremur farrýmum. Þegar fyrstu fréttirnar bárust af henni var hún flutt inn í íbúð á Manhattan og staðsetningin þætti ekki amaleg á nútímavísu, 66. East 83. stræti, mitt á milli breiðgatnanna Park Avenue og Madison Avenue, eða í einu eftirsóttasta íbúðarhverfi Manhattan, Upper East Side, að- eins í nokkurra mínútna göngu- fjarlægð frá almenningsgarðinum Central Park og Metropolitan lista- safninu. Þar bjó hún í um ár þang- að til að hún flutti sig neðar, eða í íbúð við Washington Square í The Village, þar sem henni fannst hún betur eiga heima. Sagan af Vikkölu Sól er lítil saga með stórt hjarta. Hún minnir á það sem við öll viljum en gleymum oft að sjá í hinu stóra og smáa ... hamingjuna! Fallegur boðskapur, fullur af góðum dyggðum og holl áminning um að kjósa að sjá hamingjuna í hverju spori. Lífið verður bjartara og skemmtilegra í gleði. Ný íslenskbarnabók „Frumleg snjöll og nauðsynleg bók. Töfrandi teikningar. - Bók sem á heima í bókahillum allra barna.“ Auður Ösp Guðmundsdóttir, blaðamaður, Pressan.is „Það er kúnst að skrifa bók sem höfðar til barna og fullorðinna, en það tekst höfundi hér listilega. Við lendum öll í mótlæti í lífinu en getum valið hvað við getum gert til þess að líða betur. Það er áminning þessarar hrífandi lesningar.“ Margrét Bárðardóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði New York 1925-1930 Nína S og villti áratugurinn í New York Um 1930 var Nína Sæmundsson þekktasti myndlistarmaður Íslendinga á alþjóðavísu. Hún var ekki komin af listafólki. Ólst upp í Fljótshlíð og fékk litla menntun en tókst að komast til Kaupmannahafnar þar sem hún bjó undir verndarvæng frænku sinnar sem studdi hana til náms. Hún þótti afburðahæfileikaríkur nemandi við Listaakademíuna, en lykkja komst á leið hennar þegar hún veiktist af berklum 1919 og varð að dvelja í rúmt ár á berkahæli í Sviss. Hún vann og dvaldi á Ítalíu, Norður-Afríku og í Frakklandi næstu árin, en árið 1925 tók hún sig til og fluttist til Bandaríkjanna þar sem hún bjó í þrjátíu ár, fyrst í New York en seinna í Hollywood. Saga Nínu hefur ekki áður verið sögð en Hrafnhildur Schram listfræðingur hefur um árabil rannsakað feril hennar og birtir afraksturinn í nýrri bók, Nína S., auk þess sem Listasafn Ís- lands sýnir nú verk Nínu. Nína skapaði eina af táknmyndum art deco-tímabilsins á Manhattan þegar hún vann samkeppni um táknmynd Waldorf Astoria hótelsins árið 1930 með verkinu Afrekshugur sem enn þann dag í dag trónir ofan við inngang bygg- ingarinnar. Alls tóku 400 listamenn þátt í keppninni og forráðamenn Waldorf Astoria nýttu sér sigur hennar til kynn- ingar á fyrirtækinu í fjölmiðlum. Fjallað var um Nínu í blöðum vítt og breitt um Bandaríkin, ekki síst í New York þar sem sigur hennar var forsíðuefni. Framhald á næstu opnu Nína í Hollywood árið 1942 með vini sínum, Cole Porter og fleiri fyrirmennum. Sam- býliskona hennar í Hollywood, Polly James, er á hvítri blússu í miðjunni. Sjálf er Nína með Fálkaorðuna í barmi. 38 bækur Helgin 6.-8. nóvember 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.