Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2013, Síða 3
Þ
rjú eignarhaldsfélög sem
Glitnir yfirtók eftir hrunið
2008 hafa verið tekin til
gjaldþrotaskipta. Þetta kem
ur fram í auglýsingu í Lög
birtingablaðinu. Skiptastjóri þeirra
allra er Lúðvík Örn Steinarsson. Fé
lögin heita Stapi fjárfestingafélag
ehf., Vindabúðir ehf. og Skilding
ur ehf. Lúðvík segir að stjórn félag
anna, sem stýrt er af starfsmönnum
slitastjórnar Glitnis, hafi óskað eftir
gjaldþrotaskiptunum.
Tvö fyrrnefndu félögin, Stapi og
Vindabúðir, voru hluti af fléttu sem
miðaði að því að lágmarka skaðann
af rekstrarerfiðleikum fjárfestinga
félagsins Gnúps í ársbyrjun 2008.
Skildingur er fjárfestingafélag sem
var í eigu fyrrverandi forstjóra Flug
leiða, Sigurðar Helgasonar. Það félag
var dæmt til að greiða Glitni rúman
milljarð króna í febrúar 2010. Félagið
fjárfesti meðal annars í hlutabréfum
í FL Group og skuldabréfum Mile
stone og Baugs.
Flókin flétta
Samkvæmt skýrslu rannsóknar
nefndar Alþingis var félagið Stapi
fjárfestingafélag stofnað í byrjun
árs 2008 og varð til við fjárhagslega
endurskipulagningu Gnúps. Gnúpur
átti um tíu prósenta hlut í FL Group
en þann 8. janúar 2008 tók Glitnir
yfir stjórn félagsins. Glitnir seldi síð
an bréf Gnúps í FL Group til félagsins
Fons sem var í eigu Pálma Haralds
sonar. Í stað þess fékk Glitnir bréf
í Landic Group frá Fons. Þrátt fyrir
þessi viðskipti hvíldi ennþá skuld á
hlutabréfunum sem Gnúpur hafði
átt í FL Group.
Í júlí 2008 setti Glitnir upp leik
fléttu og lánaði Stapa fjárfestingafé
lagi 16 milljarða króna. 10 milljarðar
króna af því voru til að viðhalda
láni sem Gnúpur hafði tekið fyr
ir hlutabréfum í FL Group og síð
an voru sex milljarðar nýttir til að
kaupa hlutabréf í Mosaic Fashion.
Í framhaldi af þessari leikfléttu var
Stapi seldur inn í félagið Tómas Her
mannsson (TH ehf.) sem var í eigu
Tómasar Hermannssonar, bóka
útgefanda hjá Sögum. Í Kaupþingi
var sams konar flétta búin til þegar
Kaupþingsbréf Gnúps voru seld til
fjárfestinga félagsins Giftar með láni
frá bankanum.
Með þessu náði Glitnir að
viðhalda 16 milljarða króna láni inn
an bankans án vandræða og þurfti
hvorki að gera varúðarfærslu né af
skrifa það. Samþykkt var að lána
Stapa 16,6 milljarða króna þann 2.
júlí 2008, líkt og kemur fram í fundar
gerð lánanefndar Glitnis sem birt er
hér sem aukaefni.
Þáttur Vindabúðar
Þar kemur fram að þegar búið
væri að selja Stapabréfin í Mosaic
Fashion átti Gnúpur að verða seld
ur til Brekku II sem er félag í eigu
Þórðar Más Jóhannessonar, fyrr
verandi forstjóra Gnúps. Eft
ir það átti að selja Gnúp áfram til
félagsins Vindabúða. sem var í
eigu Baldurs Odds Baldurssonar.
Baldur starfaði á þeim tíma á fyrir
tækjasviði Glitnis.
Af þessu varð þó ekki og námu
skuldir Vindabúða við Glitni tæplega
87 milljónum króna í lok árs 2011. Nú
hefur Glitnir yfirtekið bæði þessi fé
lög og sett þau í þrot.
Sá eftir viðskiptunum
Aðspurður sagði Tómas Hermanns
son, í viðtali við DV árið 2010, að
fyrir tækjasvið Glitnis hefði haft
samband við hann og kynnt hon
um fjárfestingarmöguleikann.
„Þetta var bara kynnt fyrir mér af
fyrirtækjasviðinu. Á þessum tíma
taldi ég að þetta væri hægt og ég
leit á þetta sem alvöru fjárfestingu.
Nokkrum vikum síðar sá ég allt
hrynja og þá áttaði ég mig á því að
þetta væri ekki hægt. Þá reyndi ég
líka að rifta þessum viðskiptum,“
sagði Tómas sem ekki var í neinum
persónulegum ábyrgðum út af við
skiptunum.
Þá sagðist Tómas sjá eftir við
skiptunum og að hann vildi að hann
hefði ekki tekið þátt í þeim: „Þetta er
bara of stórt dæmi … Ég vildi að ég
hefði ekki gert þetta […].
Ástríða mín er í bókaútgáfunni.
Ég vona að þetta eyðileggi ekki fyrir
mér þar.“
Stapi skuldaði Glitni tæplega 28
milljarða króna í lok árs 2011. Ljóst
er að afskrifa þarf þessar skuldir. n
Fréttir 3Mánudagur 7. janúar 2013
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Fundargerð
lánanefndar
Fundargerð lánanefndar Glitnis hf. 2.
júlí 2008 þar sem samþykkt er að veita
Stapa fjárfestingafélagi ehf. lán að fjár-
hæð 16,6 milljarðar króna til að kaupa
11,2% hlut í Mosaic Fashions ehf.
„Stapi Fjárfestingafélag (100% í eigu
Gnúps) er að kaupa Mosaic Fashion bréf
af Gnúp fyrir ISK 6 ma. Fyrir í eigu Stapa
eru Landic Property bréf að verðmæti
ISK 10 ma. sem voru fjármögnuð með
láni frá Gnúpi. Óskað er eftir því að Glitn-
ir láni Stapa ISK 16.522.516.667 til kaupa
á Mosaic bréfunum, endurfjármögnun
á láninu frá Gnúp og þeim vöxtum
sem til greiðslu eru á Gnúps láninu. Til
tryggingar láninu verða öll bréfin í eigu
Stapa, þ.e. Mosaic (4.631.596 hlutir)
og Landic (699.300.699 hlutir). Þegar
gengið hefur verið frá kaupum Stapa á
Mosaic bréfunum er hugmyndin sú að
selja félagið til TH ehf. og mun Glitnir
eiga kauprétt á Stapa. Þegar Gnúpur
verður búinn að selja Stapa Mosaic bréf-
in mun Gnúpur verða seldur til Brekku II
(félag í eigu Þórðar Más). Brekka II mun
síðan selja Gnúp áfram til Vindabúða.“
n Gagnrýnir sinnuleysi við hálkuvarnir n Ung dóttir hennar meiddist á höfði
Enginn
með lottó
Enginn hafði heppnina með sér
í fyrsta lottóútdrætti ársins en
potturinn á laugardag hljóðaði
upp á 10,7 milljónir króna. Þrír
fengu þó annan vinning, fjórar
tölur réttar auk bónustölu, og
ættu að eiga fyrir salti í grautinn
næstu vikurnar. Fær hver um sig
tæpar áttatíu þúsund krónur. Voru
miðarnir seldir í Hagkaupum í
Smáralind, Olís á Reyðarfirði en
þriðji miðinn var áskriftarmiði.
Einn var með allar fimm tölurnar
í réttri röð í Jókernum og fær hann
tvær milljónir króna í sinn hlut.
Tveir voru með fjórar tölur í réttri
röð og fær hvor vinningshafinn
tvö hundruð þúsund krónur.
Utanlandsferðir
seldust vel
Fjölmargir skelltu sér til útlanda
yfir jólin og seldust mun fleiri
ferðir hjá ÚrvalÚtsýn um ný
liðin jól en um jólin árið 2011.
Hjá ferðaskrifstofunni VITA voru
sólar landaferðir um jólin upp
seldar. Þetta kemur fram á vef
Túrista. Líklega hefur það haft sín
áhrif að hátíðardagana árið 2012
bar alla upp á virkan dag um jól og
áramót en því var öfugt farið árið
2011 þegar flesta frídaga bar upp
á helgi. Í umfjöllun Túrista kemur
fram að raunar hafi árið 2011 verið
slæmt hvað frídaga varðar því þá
lentu aðeins átta rauðir dagar á
virkum dögum. Í fyrra voru þeir
tíu en á nýju ári verða þeir hvorki
fleiri né færri en tólf talsins. Þeir
sem hyggjast eyða næstu jólum og
áramótum á sólarströnd ættu því
að bóka ferð tímanlega.
Kristinn til
liðs við Dögun
Kristinn H. Gunnarsson, fyrr
verandi alþingismaður, hefur nú
gengið til liðs við Dögun. Er þetta
fjórða stjórn
málaaflið sem
Kristinn geng
ur í en hann
var þingmaður
Alþýðubanda
lagsins, síðan
þingmaður
Framsóknar og
bauð sig síðan
fram til Alþingis á vegum Frjáls
lynda flokksins.
Það var vestfirski fréttamiðill
inn BB.is sem greindi frá þessu
en þar segir að Kristni lítist vel á
stefnumál flokksins. „Það er ófrá
gengið að ljúka efnahagsmálun
um og ég ákvað að ganga þarna
inn á þessum tímapunkti til að
koma að því að móta það, því
framboð sem ætlar að ná árangri
verður að hafa raunhæfa áætlun
í efnahagsmálum,“ segir Kristinn
við BB. Hann gefur ekki upp hvort
hann hyggist bjóða sig fram í al
þingiskosningunum í ár.
Af öðrum liðsmönnum Dögun
ar má til dæmis nefna Helgu
Þórðardóttur og stjórnlagaráðs
fulltrúana Lýð Árnason og Gísla
Tryggvason.
Tvö af leppfélögum
gliTnis gjaldþroTa
n Ein af sérstökum sögum hrunsins n Tók við 27 milljarða skuldum
Stapi skuldar meira en 25 milljarða Eignarhaldsfélagið Stapi skuldar meira en 25 millj-
arða króna. Bókaútgefandinn Tómas Hermannsson yfirtók félagið sumarið 2008 í fléttu sem
snérist um viðleitni Glitnis og Kaupþings til að lágmarka skaðann af rekstrar erfiðleikum Gnúps.
„Ég vildi
að ég hefði
ekki gert þetta
G
uðmundur Karl Arnþórsson, 46
ára Íslendingur búsettur í Kar
íbahafinu, hefur vakið heims
athygli vegna dólgslegrar hegð
unar í flugi Icelandair frá Keflavík til
New York í síðustu viku. Við komuna
til New York var Guðmundur hand
tekinn og færður á sjúkrahús vegna
áfengiseitrunar. Hann var útskrifaður
þaðan á laugardaginn og er nú frjáls
ferða sinna.
„Honum þykir sopinn vissulega
góður en þessi hegðun kemur okk
ur í opna skjöldu,“ hefur New York
Post eftir ættingja Guðmundar.
„Hann er ekki ofbeldismaður. Þetta
er ekki venjuleg hegðun hjá honum
og ég vona að það sé í lagi með
hann.“ DV náði tali af föður Guð
mundar en hann vildi ekkert tjá sig
um málið. Guðmundur dvaldist hér
á landi yfir hátíðarnar en hann hef
ur verið búsettur í Karíbahafinu um
nokkurt skeið.
Guðmundur drakk ótæpilega
í fluginu, lét öllum illum látum og
veittist að farþegum og áhöfn. Tveir
farþegar frá Gvatemala og flugstjóri á
frívakt yfirbuguðu Guðmund að lok
um og héldu honum föstum á meðan
áhöfn vélarinnar batt hann kyrfilega
niður með límbandi og plastböndum.
Lögreglan í New York mun ekki gefa
út ákæru á hendur manninum en
Icelandair hefur ekki gefið upp hvort
málshöfðun standi til. „Nei, það hefur
engin ákvörðun verið tekin um það
ennþá, við erum bara að skoða mál
ið,“ segir Guðjón Arngrímsson, upp
lýsingafulltrúi Icelandair.
Aðspurður segir Guðjón að engin
sérstök aðferð sé viðhöfð af áhöfnum
véla Icelandair þegar mál af þessu tagi
koma upp. „Það þarf bara að eiga við
hvert tilfelli fyrir sig. Þetta snýst fyrst
og fremst um að ganga úr skugga um
öryggi farþega,“ segir Guðjón.
Sigurður Líndal lagaprófessor tel
ur að ekki sé hægt að gagnrýna áhöfn
flugvélarinnar fyrir að taka of harka
lega á Guðmundi. „Almennt séð held
ég að í flugvélum, þar sem fólk er
nokkuð háð því að samfarþegar þess
hagi sér vel, verði stundum að grípa til
harkalegra ráðstafana. Þarna myndu
kannski einhver neyðarréttarsjónar
mið koma til skoðunar.“ n
Icelandair íhugar málshöfðun
n Ættingjar flugdólgsins undrandi n „Hann er ekki ofbeldismaður“
Fastur Það kann ekki góðri lukku
að stýra að binda fyrir munninn á
ofurölvuðum manni en áhafnar-
meðlimir Icelandair fylgdust vel
með Guðmundi Karli Arnþórssyni.