Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2013, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2013, Page 23
Viðtal 23Mánudagur 7. janúar 2013 „Endurmet líf mitt“ n Jónas Hvannberg fagnar stórum áföngum í skugga krabbameins n Mikilvægt að njóta hvers dags É g á mikið af góðum vinum sem hugsa vel til mín,“ segir Jónas Hvannberg, sérfræðingur í bæklunarlækningum, sem fagnaði 35 ára afmæli sínu hér á landi þann 5. janúar í skugga krabbameins. Hann er búsettur í Gautaborg í Svíþjóð ásamt sambýlis­ konu sinni, Anniku Wiel Fredén, en þau komu til Íslands í vikufrí yfir ára­ mótin. Vinir Jónasar nýttu tækifærið og blésu til veglegrar veislu fyrir hann í tilefni afmælisins. Jónas fagnaði einnig öðrum áfanga nýlega, en um áramótin fékk hann sérfræðingsréttindi sín í bækl­ unarlækningum. Það var því í raun tvöfalt tilefni til veisluhalda á laugar­ daginn. „Þetta er áfangi sem maður vinnur að lengi. Það kom aldrei til greina að láta veikindin trufla þann gang.“ Greindist með ristilkrabbamein Jónas, sem er læknir á Mölndals­ sjúkrahúsinu í Gautaborg, greindist með krabbamein í ristli í lok mars í fyrra. Þá hafði hann verið bæði orku­ og lystarlaus í tvo til þrjá mánuði og var farinn að léttast. Hann gerði sér grein fyrir því að eitthvað var að og bað samstarfsfélaga sinn á sjúkra­ húsinu að panta fyrir sig tölvusneið­ mynd af kviðarholinu. Í ljós kom að í lifrinni var töluvert af mein­ vörpum. Hann var því lagður inn á sjúkrahúsið strax í kjölfarið og fór í fjölmargar rannsóknir áður en í ljós kom að upprunalega æxlið var stað­ sett í ristlinum. „Þetta var komið á alvarlegt stig og ekki var mögulegt að framkvæma skurðaðgerð. Þannig að undanfarna mánuði hef ég gengist undir lyfja­ meðferð,“ segir Jónas. Honum var auðvitað brugðið við þessar fréttir en það er fremur óalgengt að svo ungt fólk fái ristilkrabbamein. „Maður á ekki von á að vera sleginn niður með þessu á þessum aldri.“ Kynntust í Brasilíu Líf Jónasar tók töluverðum breyting­ um í kjölfar greiningarinnar en hann og Annika höfðu þá aðeins ver­ ið saman í fjóra mánuði. Áfallið var ekki síður mikið fyrir hana en eftir að Jónas veiktist tóku þau ákvörðun um hún flytti inn til hans. Annika er fyrrverandi landsliðskona sænska landsliðsins í handknattleik en það var einmitt í handboltinn sem leiddi þau saman. Þau kynntust á heimsmeistara­ móti kvenna í Brasilíu þegar Jónas var læknir sænska landsliðsins. „Þeirra árangur á HM í Brasilíu var undir væntingum þannig að við ákváðum ásamt einum félaga okk­ ar úr starfsliði landsliðsins að verða eftir í Brasilíu, skoða okkur um og fara í eins konar „road trip“, en kom­ um út úr því sem par. Hún hefur virki­ lega verið stoð mín og stytta í þessum veikindum,“ segir Jónas einlægur. Nýtur hvers dags Jónas segist hafa endurmetið líf sitt í kjölfarið á greiningu krabbameins­ ins: „Ég endurmet líf mitt þegar ég stend frammi fyrir þessu. Maður sér hvað maður hefur og hvað maður er þó heppinn að mörgu leyti. Hvað maður á góða að, góða fjölskyldu og góða vini sem hafa staðið með manni og hugsað til manns. Það er ótrúlega dýrmætt og mestu verðmætin eru að eiga góða vini og fjölskyldu.“ Eftir að Jónas veiktist fór hann einnig að forgangsraða hlutunum öðruvísi en áður og ákvað að setja fjölskyldu og vini í fyrsta sæti. „Mér fannst ég verða að passa upp á hvern dag og njóta þess sem hann hefur upp á að bjóða. Það er mikilvægt að gleðjast yfir því sem ég geri sjálfur og yfir því sem aðrir gera vel. Það er svo mikilvægt að vera glaður yfir því litla sem fer svo gjarnan framhjá manni í hversdagslífinu. Oft er maður að flýta sér á næsta stað eða bíða eftir ein­ hverju en ég hætti því.“ Jónas segist þó vissulega skipu­ leggja ýmislegt fram í tímann en reynir engu að síður að njóta þess sem hver dagur hefur upp á að bjóða. Fastir punktar nauðsynlegir Þrátt fyrir að líf Jónasar hafi vissu­ lega tekið miklum breytingum eftir að hann greindist með krabbamein hefur hann reynt að halda sínu striki. Hann er í 50 prósenta starfi á sjúkra­ húsinu þar sem hann fer yfir meint mistök sem eiga sér stað og umkvört­ unarefni sem berast bæklunarskurð­ deildinni. Jónas segir að það hafi aldrei neitt annað komið til greina hjá sér en að halda áfram að lifa reglubundnu lífi. „Það kom aldrei neitt annað til greina en að halda áfram. Það er svo auðvelt að falla í þá gryfju að snúa sólarhringnum við, horfa á sjónvarp­ ið á nóttunni og sofa á daginn. Bíða eftir því að konan komi heim. En það er sóun á lífinu og tímanum sem maður hefur. Maður verður að hafa fasta punkta.“ Mikilvægt að fara sáttur að sofa Það er einkennandi hvað Jónas er jákvæður þrátt fyrir veikindin. Fyrir hann þýðir ekkert annað og þannig segist hann njóta lífsins miklu betur. „Maður getur notið lífsins meira á einni viku en einu ári ef maður athugar að njóta hlutanna og vera ekki neikvæður. Maður á að passa sig á því líka þó maður eigi ekki við veik­ indi að stríða. Maður getur veikst á morgun eða eitthvað komið fyrir. Það er afar mikilvægt að reyna að vera já­ kvæður í lífinu öllu og að geta farið sáttur að sofa á hverju kvöldi. Að hafa notið dagsins og gert eitthvað úr honum,“ segir Jónas sem finnst allt of oft einblínt á alla neikvæðu hlutina í þjóðfélaginu í stað þeirra jákvæðu. Gott starf unnið á Landspítalanum Jónas fékk örlítið bakslag í veik­ indum sínum þegar hann kom til landsins yfir hátíðarnar og þurfti að leggjast inn á krabbameinsdeild Land spítalans þar sem hann segist hafa fengið frábæra umönnun. „Það var virkilega vel að öllu staðið á krabbameinsdeildinni og á Landspítalanum. Það var með ólíkindum hvað var hugsað vel um mann. Í allri þessari neikvæðu umræðu um heilbrigðiskerfið þá gleymist hversu mikið og gott starf er þar unnið,“ segir Jónas að lokum. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Viðtal „Þetta var komið á alvarlegt stig og ekki var mögulegt að framkvæma skurðaðgerð Reynir að njóta hvers dags Jónas og Annika sjást hér saman. Hann segist hafa endurmetið líf sitt í kjölfar krabbameinsgrein- ingarinnar og reyni að njóta hvers dags til hins ýtrasta. MyNd siGtRyGGuR aRi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.