Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Side 2
2 Fréttir 14. janúar 2013 Mánudagur
Styttist í suðurpólinn
n Vilborg Arna á um 75 kílómetra eftir af 1.140 n Farin að huga að heimkomunni
E
ftir 55 daga ferðalag styttist í
að Vilborg Arna Gissurardóttir
nái á suðurpólinn. Hún á nú
um 75 kílómetra eftir af 1.140
kílómetra ferðalagi á jöklinum. Þann
10. janúar náði hún þeim áfanga að
skíða inn á síðustu breiddargráðuna
og var þar að auki búin að rjúfa 1.000
kílómetra múrinn.
Ferðin hefur verið löng og ströng
og Vilborg er farin að finna fyrir veru
legri þreytu. Hins vegar kemur ekki
annað til greina en að klára ferðina,
þrátt fyrir snjóþunga og lélegt færi
sem gerir það að verkum að erfiðara
er að draga búnaðinn og Vilborg fer
hægar yfir en ráðgert var. Aðstæður
á pólnum eru verri en oft áður, skafl
arnir eru stærri og ná yfir stærra
svæði. Engu að síður hefur gangan
almennt gengið vel og tíminn hefur
liðið hratt, enda hefur hún varla
stoppað frá morgni til kvölds.
Hægt er að fylgjast með ferðum
Vilborgar Örnu á netinu. Í blogg
færslu frá því á sunnudag segist hún
hafa vaknað í snjókomu og vindi.
„En mér til mikillar gleði fór sólin að
skína og svo kom logn. Þögnin var al
veg mögnuð og fegurðin líka.“
Hún hafði gengið um 20 kílómetra
þann dag og gerði ráð fyrir að ganga
svipaðar vegalengdir næstu daga.
„Það er enn mjög fjarri mér að það
styttist í annan endann … kannski
bara orðin heimakær á jökli,“ skrif
aði Vilborg Arna sem var þó farin að
hlakka til þess að koma heim.
„Ég veit ekkert hvað bíður mín
þar sem ég bæði sagði upp vinnu og
íbúð fyrir þetta verkefni. Það eru því
spennandi tímar framundan.“ n
Kastljós bauð Karli
vigni sálfræðiaðstoð
n Karl Vignir mun hafa hótað að svipta sig lífi í kjölfar játninganna
K
astljósmenn höfðu milli
göngu um að barnaníð
ingurinn Karl Vignir Þor
steinsson fengi bæði viðtal
við prest og sálfræðiaðstoð
eftir að hann játaði fyrir þeim að
hafa beitt tugi barna kynferðislegu
ofbeldi, samkvæmt heimildum DV.
Játningarnar voru teknar upp á
falda myndavél og birtar í Kastljósi
í síðustu viku. Heimildirnar herma
að Karl Vignir hafi hótað að svipta
sig lífi í kjölfar játninganna. Hvort
hann nýtti sér þá aðstoð sem Kast
ljós bauð honum er þó ekki vitað.
DV hafði samband við Sigmar
Guðmundsson, ritstjóra Kastljóss,
sem vildi ekki tjá sig um málið.
Framdi sjálfsvíg áður
en blaðið kom út
Svo virðist sem kastljós hafi viljað
hafa vaðið fyrir neðan sig vegna
umfjöllunarinnar um Karl Vigni.
Margir muna eflaust eftir því þegar
kennarinn Gísli Hjartarson svipti
sig lífi á Ísafirði eftir að tveir menn
kærðu hann fyrir kynferðislegt of
beldi sem þeir sögðu hann hafa
beitt þá á heimili hans þegar þeir
voru unglingar. DV fjallaði um
málið 10. janúar 2006, en áður en
blaðið kom út framdi Gísli sjálfs
víg. Rannsókn málsins var því
hætt en tveimur árum síðar fengu
mennirnir úthlutað hæstu mögu
legu skaðabótum frá Bótanefnd
ríkisins. Í úrskurði nefndarinnar
sagði að unnt væri að slá því föstu
að umsækjendurnir hefði verið
misnotaðir kynferðislega.
Deilt var um það hvort Gísli
hefði séð forsíðuna áður en hann
fyrirfór sér en óeirðaalda reis gegn
DV eftir birtingu fréttarinnar. Á
tveimur dögum skrifuðu 32 þús
und manns undir undirskriftalista
þar sem ritstjórnar stefnu blaðsins
var mótmælt og þess krafist að
henni yrði breytt.
Nýjustu brotin
líklega ekki fyrnd
Í kjölfar umfjöllunar Kastljóss
um brot Karls Vignis bárust lög
reglunni ábendingar um ný brot
sem ekki voru fyrnd og var þess
krafist að brugðist yrði strax við.
Hann var því færður til yfirheyrslu
og í kjölfarið hnepptur í tveggja
vikna gæsluvarðhald.
Miðað við frásagnir fórnar
lamba Karls Vignis spannar brota
saga hans rúmlega hálfa öld og
mörg brotanna því fyrnd. Á upp
tökum Kastljóss segist hann telja
að það séu allavega þrjú ár síðan
hann braut á barni síðast. Greint
hefur verið frá því að fimm aðilar,
í það minnsta, hafi kært Karl Vigni
vegna brota sem ekki eru fyrnd.
Þess má geta að áður en lögum um
kynferðisbrot var breytt árið 2007
fyrntust kynferðisbrot gegn börn
um yngri en átján ára á tíu árum.
Eftir breytinguna fyrnast slík brot
ekki.
Segist eiga stuðningsmenn
Í viðtali við DV á þriðjudag sagðist
Karl Vignir hafa farið í meðferð við
barnagirnd. „Það var bara ljómandi
meðferð og miklir umræðuþættir
þar sem mér var bent á ýmsa hluti
og ég bý að því ennþá. Þetta breyttist
við þessa aðstoð sem ég fékk, þetta
breyttist við það þótt það trúi því
enginn.“
Hann sagðist vita að þetta væri
rangt en vildi ekki að fjallað yrði um
hann fjölmiðlum, það myndi ekki
hjálpa honum. „Ég skila mínum
málum á réttan stað. Ég játa auð
vitað öll mín brot, ég geri það. Ég
hitti lögregluna í dag.“ Þá kvaðst Karl
Vignir eiga stuðningsmenn í ýmsum
hópum þar sem hann kæmi hreint
fram og viðurkenndi að hafa gert
rangt.
Björgvin Björgvinsson, aðstoðar
yfirlögreglumaður á höfuðborgar
svæðinu, vildi í samtali við DV ekki
tjá sig um það að svo stöddu hvort
Karl Vignir hefði játað á sig einhver
brot sem ekki væru fyrnd. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Bauðst aðstoð
Ekki er ljóst hvort Karl
Vignir nýtti sér þá
aðstoð sem Kastljós-
menn buðu honum.
MyNd Sigtryggur Ari
Sleginn með
glasi í andlitið
Mikill erill var hjá lögreglu á
laugardagskvöld og fram eftir
nóttu. Rétt eftir klukkan þrjú að
faranótt sunnudags barst lög
reglu tilkynning um líkamsárás á
skemmtistað í miðborginni. Þar
hafði maður verið sleginn með
glasi í andlitið. Ekki er vitað um
líðan hans. Stuttu seinna barst
önnur tilkynning um líkamsárás
á öðrum skemmtistað í mið
borginni en þar hafði maður ver
ið skallaður. Árásarmaðurinn var
handtekinn en sá sem varð fyrir
árásinni var sendur á slysadeild
þar sem gert var að sárum hans.
Stolið í búnings-
herbergi
Óprúttnir þjófar fóru ránshendi
um búningsherbergi drengja
í íþróttaaðstöðu í austurbæ
Reykjavíkur á laugardagskvöld.
Bæði yfirhafnir og aðrir munir
hurfu, en lögregla rannsakar
málið. Þá var einnig brotist inn
í skóla í Kópavogi en ekki ligg
ur fyrir hversu miklu var stolið,
en miklar skemmdir voru unnar.
Meðal annarra verka lögreglunn
ar þetta kvöldið var meðal
annars að slökkva eld sem hafði
komið upp í bifreið við Smára
lind. Lögreglumenn náðu að
slökkva eldinn áður en slökkvilið
kom á vettvang. Slökkviliðsmenn
gulltryggðu svo að allur eldur
hefði verið slökktur. Eldur kom
einnig upp á Tryggvagötu, en þar
kviknaði í út frá kertum.
Noti tálbeitur
Lögreglan á að geta notast við
tálbeitur í baráttu sinni við
barnaníðinga. Þetta sagði for
maður nýs samráðshóps um
viðbrögð við kynferðis ofbeldi,
Ágúst Ólafur Ágústsson, í
samtali við fréttastofu RÚV á
laugardagskvöld. „Þetta er nýr
veruleiki sem blasir við okkur og
við þurfum að átta okkur á þeim
aðferðum sem gerendur í þess
um málum beita og við þurfum
að vera framsækin því lögreglan
þarf að hafa þau úrræði sem
nauðsynleg eru,“ sagði Ágúst
Ólafur en hann sagði nauðsyn
legt að þeir sem nálgast börn í
annarlegum tilgangi á netinu
geti átt það á hættu að vera í
raun að tala við lögreglumann.
Hugar að heimkomu Vilborg Arna á um fjögurra daga ferðalag eftir á suðurpólinn og er
farin að velta því fyrir sér hvernig það verði að koma heim en hún sagði upp bæði vinnu og
íbúð áður en hún lagði í þennan leiðangur.