Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Blaðsíða 9
haldinn barnagirnd og sagði meðal
annars: „Það hefur aldrei nokkurn
tímann, nokkurt barn eða unglingur
og reyndar ekki kona heldur, aldrei
sagt við mig, stoppaðu, hættu, ekki
gera þetta, má ekki gera þetta eða
nokkuð í þá áttina, aldrei nokkurn
tímann.“
Í viðtalinu sagði Gunnar einnig að
ein stúlka, sem var vön því að koma
í helgardvöl á fósturheimilið, hefði
hætt því og útilokaði ekki að ástæðan
gæti verið sú að hann hefði „gert eða
sagt eitthvað“. Hann hefði eitthvað
farið að „stríða henni,“ eins og hann
orðaði það.
Orð á móti orði
Samkvæmt Braga hafa Barnaverndar-
stofu borist allmargar ábendingar um
að Gunnar hafi sést á eða við fóstur-
heimilið undanfarið tvö og hálft ár.
Strax eftir fyrstu ábendinguna hafi
fósturforeldrarnir fengið skýr fyr-
irmæli um að Gunnari væri algjör-
lega óheimilt að koma inn á heimil-
ið eða umgangast fósturbörnin með
nokkrum hætti. Jafnframt var þeim
barnaverndarnefndum sem vistað
hafa börn á heimilinu tilkynnt um
þetta skriflega og tilmælum beint til
þeirra um að ræða við öll börn sem
voru á heimilinu á þeirra vegum.
„Þetta var allt saman gert en það kom
ekki í ljós að það hefði eitthvað komið
upp á. Síðan hafa þessar ábendingar
borist reglulega og jafnan hefur
Barnaverndarstofa brugðist við, rit-
að fósturforeldrunum bréf, kallað
þá hingað á fund og farið yfir mál-
ið. Aldrei hefur komið fram grunur
eða ábending um að eitthvað tiltekið
barn á heimilinu hafi sætt ofbeldi eða
áreiti af hálfu Gunnars. Við höfum
bara fengið almennar ábendingar
um að hann hafi sést í nágrenni við
heimilið og þar hefur staðið orð á
móti orði, fósturforeldrarnir hafna
því og kveðjast hafa farið eftir fyrir-
mælum okkar í einu og öllu.“
Ekki er vitað að svo stöddu hvort
hin meintu brot sem nú eru til rann-
sóknar tengist þeim börnum sem nú
dvelja á heimilinu. Að sögn Braga
hefur verið fylgst grannt með heim-
ilinu en hann segist ekki geta svarað
því hvort handtakan tengist með
einhverjum hætti heimsóknum
Gunnars á fósturheimilið á sínum
tíma. „Ég get ekki svarað því þar sem
málið er á viðkvæmu stigi. Lögreglan
er að rannsaka málið og börnin hafa
ekki einu sinni mætt í skýrslutökur.
Það eina sem ég get sagt er að málið
varðar ekki barn sem er núna á heim-
ilinu,“ sagði Bragi.
Kvartaði undan rógburði
Húsfreyjan á heimilinu gat heldur
ekki veitt upplýsingar um málið. Hún
kvaðst aðeins vita að Gunnar hefði
verið handtekinn en sagðist í samtali
við DV ekkert hafa um hann að segja.
„Þessi maður kemur ekki inn á mitt
fósturheimili,“ sagði hún og brást illa
við er hún var spurð út í vitnisburð
bæjarbúa sem sögðu Gunnar hafa
haldið áfram að venja komur sínar á
fósturheimilið. Kvartaði hún undan
rógburði og sagðist ekkert skilja af
hverju þannig væri talað um hana og
starfsemi þeirra hjóna. „Við skiljum
ekki þessar aðdróttanir í þessu sveita-
félagi,“ sagði hún og benti blaðamanni
á að tala við bæjarbúa. „Ég hef ekkert
samband við þetta fólk hérna. En ég
ætla ekki að tala við nein blöð heldur,“
sagði hún og kvaddi.
Eins og Bragi benti á þá hefðu
ekki fleiri börn verið vistuð á heimil-
inu ef komið hefði í ljós að þau hjón-
in hefðu ekki farið að fyrirmælum
Barnaverndarstofu. „Ef fósturforeldr-
ar brjóta reglur mælir Barnaverndar-
stofa ekki lengur með fósturheimil-
inu við barnaverndarnefndirnar og
þar með verður sjálfkrafa stopp á vist
þar.
Varðandi þau börn sem eru þegar
vistuð á heimilinu þá verður að meta
hvert tilvik fyrir sig. Við getum ekki
gengið inn í þetta eins og fílar í postu-
línsbúð. Við erum að tala um við-
kvæmar sálir, barnssálir sem geta
fengið mikið áfall við að vera á ný að-
skilin frá sínum uppalendum, sér-
staklega ef börnin hafa verið lengi á
fósturheimilinu og eru jafnvel farin
að líta á fósturforeldrana sem sína
foreldra.
Í okkar athugunum hefur heldur
ekkert komið fram sem gefur til-
efni til þess að taka börn af heimil-
inu eða grípa til annarra rótækra að-
gerða. Fólk verður að treysta því að
hvorki Barnaverndarstofa né barna-
verndarnefndir hér á landi hafa
áhuga á að vista börn þar sem þau
eiga hættu á að vera misnotuð. Fólk
verður að treysta því.“
Mega ekki nálgast níðinginn
Auk þess að vera með börn bæði í
skammtíma- og langtímafóstri eru
fósturforeldrarnir einnig stuðnings-
foreldrar og taka við börnum í sum-
ardvöl. Bragi segir að á vegum barna-
verndarnefnda hafi engin ung börn og
engar stelpur verið send á heimilið eft-
ir að upp komst að Gunnar býr í næsta
nágrenni, aðeins stálpaðir drengir.
„Eftir að hafa farið í gegnum öll
viðbrögð Barnaverndarstofu og
barnaverndarnefndanna er ég sann-
færður um að þar er enga brotalöm að
finna. Á meðan það eru ekki til staðar
ítarlegri lagaákvæði sem kveða á um
eftirlit með dæmdum kynferðisbrota-
mönnum þá tel ég að allt hafi verið
gert sem hægt hafi verið að gera til að
vernda börnin á þessu heimili.
Grundvallarreglan í allri stjórn-
sýslu er lögmætisreglan, sem þýðir
að við megum ekki grípa til aðgerða
ef ekki er fyrir hendi lagaheim-
ild fyrir þeim. Allar okkar aðgerð-
ir verða að byggja á lagaheimildum.
Við getum haft eftirlit með fóstur-
heimilum og fósturbörnum og líð-
an þeirra en við höfum engin tök á
að nálgast dæmdan brotamann eft-
ir að hann hefur lokið sinni afplán-
un. Barnaverndaryfirvöld geta ekki
haft áhrif á það hvar dæmdur barn-
aníðingur tekur sér búsetu. Við höf-
um engar heimildir til þess að nálg-
ast hann, krefja hann sagna um ferðir
sínar, setja honum skilyrði eða reyna
að áhrif á hans háttsemi. Það þyrftu
að vera lagaheimildir sem heimiluðu
slík afskipti.“
Eftirlitskerfi er nauðsynlegt
Bragi segir tímabært að gera
bragarbætur á þessu kerfi þar
sem Ísland hafi fullgilt Lanzerote-
samning Evrópuráðsins um vernd
barna gegn kynferðisofbeldi frá ár-
inu 2007 en fullgildingin tekur gildi
þann 1. janúar 2014. „Þar er kveðið
á um að fullorðnum kynferðis-
brotamönnum og þeim sem eru
haldnir barnagirnd eigi að standa
meðferð til boða, þeir eigi að geta
fengið aðstoð og jafnvel áður en
þeir brjóta af sér. Það þýðir að við
þurfum að gera endurbætur á okk-
ar kerfi. Það er líka mjög mikil-
vægt að koma á eftir litskerfi með
dæmdum kynferðisbrotamönnum
sem hafa brotið af sér. Þetta er ekki
mjög stór hópur manna sem við
erum að tala um í íslensku samfé-
lagi. Við erum kannski að tala um
tíu manns sem þarf að hafa eftirlit
með. Við þurfum að taka þetta ver-
kefni alvarlega og beita öllum úr-
ræðum sem við búum yfir til þess
að takmarka hættuna sem stafar af
þessum einstaklingum.“ n
„Þeir eru gangandi tímasprengjur“
Fréttir 9Mánudagur 14. janúar 2013
n Samfélag í afneitun brást börnunum n Barnaverndarnefnd má ekki nálgast dæmda níðinga n Brýnt að bæta úrræði og herða eftirlit
Situr í gæsluvarðhaldi Gunnar Jakobsson er grunaður um kynferðisbrot gegn þremur
börnum. Í fyrra sagði hann: „Það hefur aldrei nokkurn tímann, nokkurt barn eða unglingur og
reyndar ekki kona heldur, aldrei sagt við mig, stoppaðu, hættu, ekki gera þetta.“
Fimm kærðu Karl Vignir var færður í
gæsluvarðhald í síðustu.Fimm brot sem ekki
eru fyrnd hafa verið kærð til lögreglu en von
er á fleiri kærum í vikunni. „Á meðan það eru ekki til staðar ítarlegri laga-
ákvæði sem kveða á um eftirlit með dæmd-
um kynferðisbrotamönnum þá tel ég að allt hafi verið
gert sem hægt hafi verið að gera til að vernda börnin
á þessu heimili.