Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Page 10
10 Fréttir 14. janúar 2013 Mánudagur
n Langur afbrotaferill Stefáns Loga Sívarssonar nær aftur til ársins 1992 n Dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir hrottafengna nauðgun
S
tefán Logi Sívarsson var á
föstudag dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir að hafa nauðg-
að tæplega nítján ára stúlku
í nóvember 2011. Hann
hafði ásamt öðrum manni, Þor-
steini Birgissyni, þvingað stúlkuna
til samfara og munnmaka. Í dómn-
um segir að brot þeirra sé alvarlegt
og háttsemi þeirra sérlega niður-
lægjandi fyrir stúlkuna. Athæfið hef-
ur haft mikil áhrif á líf stúlkunnar og
andlega líðan hennar, en hún hef-
ur glímt við áfallastreituröskun og
þunglyndi og átt mjög erfitt. Hún var
hrædd við mennina og óttaslegin.
Sálfræðingur hennar telur óvíst að
hún nái sér.
Drógu hana inn í bíl
Stefán hafði áreitt stúlkuna um
nokkurn tíma. Hún hafði kynnst
honum í söluturni þar sem hún
vann og hann hafði vanið komur
sínar. Hún segir sér hafa staðið ógn
af honum en látið hann hafa síma-
númer sitt þegar hann bað um það.
Í kjölfarið hafi hann hringt mjög
oft í hana og sent henni oft skila-
boð. Meðal annars hafi hún talað
um það við vinnufélaga sína að
henni fyndist þetta ekki í lagi. Stúlk-
an hafði fengið vin sinn til að segja
við Stefán að hann væri kærastinn
hennar til þess að reyna að draga úr
áreitinu. Það bar ekki árangur og fór
svo að konan sagði Stefáni hvar hún
var eitt kvöldið. Þá hafði hún ver-
ið að leita sér að fari heim úr bæn-
um. Hún sendi skilaboð úr síma
sínum til hans og bað um far en seg-
ir þó að skilaboðin hafi verið ætl-
uð öðrum og hafi fyrir misskilning
verið send Stefáni. Þangað mættu
Stefán og Þorsteinn og drógu stúlk-
una inn í bíl sinn þar sem hún var
fyrir utan veitingastað við Hlemm.
Þeir óku svo með stúlkuna heim til
Þorsteins og báru hana inn. Stefán
tók hana úr fötunum og byrjaði
að nauðga henni og bauð svo Þor-
steini að vera með. Í framhaldinu
skiptust þeir á að nauðga henni og
neyða hana til munnmaka og héldu
höndum hennar niðri. Stúlkan grét
á meðan og bað þá um að hætta.
Eftir að þeir höfðu lokið sér af báru
þeir hana aftur út og keyrðu hana í
íbúð á Laugavegi þar sem hún kom
hálfklædd, grátandi og skjálfandi
í miklu uppnámi til vinafólks síns.
Svo miklu uppnámi að hún gat ekki
tjáð sig fyrst um sinn. Bæði Stefán
og Þorsteinn neituðu sök og sögðu
kynmökin hafa verið með hennar
samþykki. Framburður þeirra þótti
ótrúverðugur.
Réðust á móður á Eiðistorgi
Brotaferill Stefáns Loga er langur og
hrottalegur en þetta er í fyrsta sinn
sem hann er dæmdur fyrir nauðg-
un. Stefán og bróðir hans, Kristján
Markús, voru kallaðir Skeljagranda-
bræður í umfjöllun fjölmiðla um
ofbeldisverk þeirra en viðurnefnið
er skírskotun til þess að þeir mis-
þyrmdu manni á heimili sínu á
Skeljagranda þar sem Stefán er enn
skráður til heimilis. Brotasaga þeirra
er löng en faðir þeirra er síbrota-
maðurinn Sívar Sturla Bragason
sem hlotið hefur á annan tug refsi-
dóma.
Lögregla hafði fyrst afskipti af
bræðrunum árið 1992 en þá voru
þeir 11 og 12 ára. Var það vegna
þess að bræðurnir höfðu ráðist á
unga móður og gengið harkalega í
skrokk á henni í verslunarkjarnan-
um á Eiðistorgi. Móðirin hafði reynt
að vernda börn sín gegn bræðr-
unum sem höfðu hitt þau þar sem
þau héldu tombólu á staðnum.
Bræðurnir höfðu stolið afrakstri
tombólunnar og hrækt á borð sem
börnin höfðu til afnota. Þetta var í
fyrsta skipti sem lögregla hafði af-
skipti af þeim bræðrum en ekki það
síðasta. Þegar Stefán Logi var 16 ára
eða árið 1997 kom upp annað atvik
á Eiðistorgi. Þá réðst hann á starfs-
mann Rauða ljónsins á Eiðistorgi
sem var að loka barnum. Hann kýldi
manninn ítrekað og stal af honum
farsíma. Áramótin þar á eftir réðust
bræðurnir á mann á sextugsaldri á
áramótabrennu á Ægissíðu og veittu
honum töluverða áverka.
Skildu fórnarlambið eftir í blóði
sínu
Árið 1998 fengu bræðurnir dóm fyr-
ir sex innbrot. Í apríl það sama ár
réðust bræðurnir á mann í Hvera-
gerði. Stefán kýldi svo tönn úr
manni við meðferðarstöðina Vog
það sama ár. Árið 2002 voru bræð-
urnir dæmdir í fangelsi fyrir stór-
fellda líkamsárás á mann á heimili
þeirra á Skeljagranda. Þeir gengu
hrottalega í skrokk á manninum,
báru hann svo út og skildu hann eft-
ir við leikskólalóð í nágrenni heimil-
is þeirra þar sem þeir héldu að hann
væri látinn. Árásin þótti sérlega
hrottaleg en fórnarlambið hlaut tólf
stungu- og skurðsár í andliti og á lík-
ama, gat á vinstra eyra, sem Stefán
Logi veitti honum með beltisgat-
ara, brot í ennisbeini og nefrót, fjóra
skurði á höfði, blóðsöfnun undir
höfuðleðri og lífshættulega blæð-
ingu milli heilahimna. Stefán Logi
hlaut fyrir þá líkamsárás tveggja ára
fangelsi og bróðir hans Kristján þrjú
og hálft ár.
Ógnaði með risaöxi
Árið á eftir, í nóvember 2003, slapp
Stefán út á reynslulausn eftir að
hafa afplánað tvo þriðju tveggja ára
dóms. Nokkrum mánuðum seinna
eða í apríl 2004 var hann handtek-
inn fyrir líkamsárás á ungan dreng
á heimili sínu á Skeljagranda. Í um-
fjöllun DV um málið 2004 sagði
móðir drengsins hann hafa verið
mjög kvalinn eftir árásina en miltað
í honum sprakk meðal annars.
Móðirin sagði í samtali við DV á
þeim tíma að hún hafi ekki vitað af
því að sonur hennar þekkti Stefán
en hann hafi farið til hans til þess að
spyrja hvort hann gæti selt sér kóka-
ín. „Ég vissi bara að hann [Stefán]
hefði verið brunandi um allan bæ
bjóðandi kókaín. Ég held að sonur
minn hafi farið þangað til að spyrja
hann og hann bara rændi hann og
barði,“ sagði hún. Fyrir dómi lýsti
fórnarlambið atvikinu á þennan
hátt: „Hann náði í risaöxi fyrir aft-
an sófann og ógnaði mér. Þetta leit
út eins og grín en ég vissi hvað hann
hafði gert í fortíðinni og vissi ekki
hvað ég átti að gera.“ Síðan sagði
hann Stefán hafa tekið um axlirnar á
honum og sagst ætla að henda hon-
um fram af svölunum. Hann hafi
reynt að rífa sig lausan frá Stefáni og
þá hafi augu Stefáns orðið brjálæð-
isleg. Stefán hafi slegið hann á kjaft-
inn og aftur í magann eftir að hann
féll á sófann. Að lokum segir hann
Stefán hafa sparkað í magann á sér
þar sem hann lá í gólfinu. Árásin
átti sér stað á heimili Stefáns Loga
þar sem þeir tveir og annar maður
voru að neyta fíkniefna. Drengurinn
hlaut við árásina lífshættuleg inn-
vortis meiðsl.
„Ég legg ekki hendur á
kvenfólk“
Stefán var handtekinn vegna líkams-
árásarinnar en sleppt að loknum yf-
irheyrslum. Hann var hins vegar
Löng afbrotasaga skeLjagrandabróður
Þorsteinn
Birgisson
Hinn maðurinn sem dæmdur var ásamt
Stefáni fyrir nauðgun á 19 ára stúlku
heitir Þorsteinn og er fæddur í maí 1988
og verður því 25 ára á árinu. Hann hefur
frá árinu 2005 sex sinnum gengist undir
sektarrefsingu vegna umferðar-, áfengis-
og fíkniefnalagabrota. Árið 2007 var
hann dæmdur til skilorðsbundinnar
fangelsisrefsingar vegna líkamsárásar og
eignaspjalla. Þá hlaut hann tíu mánaða
fangelsisdóm vegna fíkniefnalagabrots
30. mars 2012. Refsins hans í málinu var
því ákveðin sem hegningarauki, sbr. 78 gr.
almennra hegningarlaga.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Ég legg ekki
hendur á
kvenfólk
Á reynslulausn Árið 2004 var Stefán kærður fyrir þrjá líkamsárásir á þremur dögum, þá
var hann á reynslulausn.
Vill leysa málið
Uppsagnir hjúkrunarfræðinga
við Landspítala taka í gildi þann
1. mars næstkomandi en tæp-
lega tuttugu prósent hjúkrunar-
fræðinga á sjúkrahúsinu hafa sagt
upp störfum. Björn Zoëga, forstjóri
Landspítalans, gæti nýtt sér heim-
ild um framlengingu uppsagnar-
frests en kveðst ekki ætla að gera
það heldur leysa málið. „Við viljum
ekki auka á óvissuna. Við viljum
leysa þetta mál sem fyrst og sem
best,“ sagði Björn í útvarpsþættin-
um Sprengisandi á sunnudag.
Björn segir að Landspítalinn sé
gott sjúkrahús og að það sé krafta-
verki líkast að starfsemi innan
veggja hans hans sé jafn öflug og
raun ber vitni í ljósi niðurskurðar.
Veitti innbrots-
þjófi áverka
Lögregla fékk á föstudagskvöld
tilkynningu um aðila sem var
að brjóta sér leið inn í íbúðar-
húsnæði í Grafarvogi. Húsráð-
andi var heima og þegar að hann
opnaði dyrnar að heimili sínu
ruddist innbrotsþjófurinn inn á
heimilið. Þá réðst húsráðandi að
innbrotsþjófnum og fór það svo
að nú er það húsráðandinn sem
grunaður er um að hafa ráðist á
innbrotsþjófinn og veitt honum
áverka með hnífi. Innbrotsþjófur-
inn var fluttur á slysadeild til að-
hlynningar en húsráðandinn var
vistaður í fangageymslu.
Úrillur farþegi
Leigubílstjóri þurfti að kalla eftir
aðstoð lögreglu til þess að vekja
farþega hjá sér aðfaranótt laugar-
dags. Rétt um klukkan fjögur um
nóttina lenti leigubílstjóri í vand-
ræðum með að losna við farþega
sem steinsvaf í bílnum. Ekkert
gekk að koma manninum út úr
bifreiðinni og þegar lögreglu-
menn bar að brást maðurinn
afar illa við og segir í dagbók lög-
reglunnar að lögreglumenn hafði
þurft að beita hann tökum og
varnarúða til að ná honum út úr
bifreiðinni. Farþeginn úrilli var
vistaður í fangageymslu þar til
ástand hans lagaðist.