Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Page 12
12 Erlent 14. janúar 2013 Mánudagur
Fær ekki sjálfsvígsaðstoð
n Marie Fleming frá Írlandi þjáist af MS-sjúkdómnum og vill deyja
D
ómstóll í Dublin á Írlandi hefur
kveðið upp þann úrskurð að
Marie Fleming, 59 ára írsk kona
sem þjáist af MS-sjúkdómnum
og er verulega fötluð, geti ekki fengið
aðstoð við að binda endi á líf sitt. Mál
Marie er það fyrsta sinnar tegundar
sem kemur til kasta dómstóla í
landinu. Marie, sem er fyrrverandi
háskólakennari, leitaði til dómstóla
fyrir skemmstu og vildi fá úrskurð um
það hvort lífsförunautur hennar til 18
ára mætti aðstoða hana við að fremja
sjálfsvíg án þess að eiga á hættu að fá
fangelsisdóm.
Málið hefur vakið mikla athygli
á Írlandi og víðar. Á Bretlandseyj-
um hafa dómstólar í þrígang hafnað
sambæri legum beiðnum frá mikið
veikum einstaklingum með tiltölu-
lega stuttu millibili. Einu ríkin sem
leyfa svokallaða sjálfsvígsaðstoð eru
Evrópulöndin Belgía, Lúxemborg,
Holland og Sviss.
Einn dómaranna í málinu, Nicholas
Kearns, sagði þegar úrskurðurinn var
kveðinn upp að það hefði verið erfitt
að komast að niðurstöðu. Marie væri
þjökuð vegna ólæknandi sjúkdóms en
engu að síður myndi það að líkindum
hafa of víðtæk áhrif ef úrskurðurinn
hefði farið eins og hún óskaði.
Eins einkennilega og það hljómar þá
voru sjálfsvíg á Írlandi úrskurðuð lögleg
árið 1993 en einstaklingur sem aðstoð-
ar annan við sjálfsvíg gæti átt yfir höfði
sér 14 ára fangelsi. Lögmaður Fleming
sagði við fjölmiðla eftir að úrskurðinn
var kveðinn upp að skjólstæðingur sinn
væri miður sín yfir útkomunni en þakk-
aði þó fyrir þann stuðning sem fjöl-
margir höfðu sýnt henni. n
Elliglöp tengjast
óbeinum
reykingum
Svo virðist vera sem tengsl séu á
milli elliglapa og óbeinna reyk-
inga, samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar sem vísindamenn við
Anhui-læknaháskólann í Kína
og King‘s College-háskólann í
London stóðu fyrir. Breska blaðið
Daily Mail fjallaði um niðurstöður
rannsóknarinnar á dögunum og
þar kemur fram að rannsóknin sé
sú fyrsta sem sýnir fram á þessi
tengsl. Rannsóknin var fram-
kvæmd á sex þúsund einstakling-
um yfir sextugt úr fimm kínversk-
um héruðum. Rannsóknin hófst
árið 2001 og voru þátttakendur
skoðaðir með reglulegu milli-
bili allt til ársins 2008. Þeir sem
bjuggu við miklar óbeinar reyk-
ingar voru líklegri en aðrir til að
þjást af elliglöpum undir lok rann-
sóknarinnar.
Krókódíll gætti
eiturlyfjanna
Óvenjuleg sjón blasti við lög-
reglumönnum sem fóru í húsleit í
Castro-dalnum í Kaliforníu vegna
gruns um fíkniefnamisferli. Mik-
ið magn af marijúana fannst í litl-
um tanki í bakgarði hússins og
þar ofan í var krókódíll sem gætti
fíkniefnanna. Krókódíllinn var
rúmlega einn og hálfur metri að
lengd en umrædd tegund finnst
aðallega í Mið- og Suður-Ameríku.
„Við erum vanari því að sjá
varðhunda þegar við förum í hús-
leit vegna gruns um dópmisferli.
Það er ekki á hverjum degi sem við
sjáum krókódíla,“ segir J. D. Nel-
son, yfirmaður lögreglunnar. Einn
maður var handtekinn í tengslum
við málið. Krókódíllinn var fluttur
í dýragarð þar sem hann drapst
skömmu síðar.
Ótrúlegur
sigurvilji
Bretinn Matthew Clark hugsaði
sér gott til glóðarinnar þegar
hann ákvað að taka þátt í keppni
um hver gæti veitt stærsta fiskinn.
Reglur keppninnar voru einfaldar;
viðkomandi varð að veiða fiskinn
sjálfur og úr sjó. Sá sem veiddi
stærsta fiskinn átti svo að fá 800
pund, eða 165 þúsund krónur, í
verðlaun. Clark, sem er 29 ára,
ákvað að fara auðveldu leiðina og
freista þess að vinna þannig. Hann
braust inn sædýrasafn í Guernsey
og náði sér í stóran og myndar-
legan aborra (e. bass). Clark fór
með fiskinn til dómnefndar og fór
svo að hann vann keppnina.
En upp komast svik um síðir.
Annar keppandi bar kennsl á fisk-
inn sem Clark stal og tilkynnti
málið til lögreglu. Clark var loks
dæmdur í síðustu viku til 100
klukkustunda samfélagsþjónustu
fyrir innbrotið.
Vonsvikin Lögmaður Marie sagði að hún væri vonsvikin vegna niðurstöðu dómsins.
Helmingi allra mat-
væla hent í ruslið
n Greint frá gríðarlegri sóun á mat í nýrri breskri skýrslu
N
æstum helmingur allra
þeirra matvæla sem fram-
leidd eru í heiminum – um
það bil tveir milljarðar tonna
– enda á ruslahaugunum
ár hvert. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu frá Stofnun vélaverkfræðinga
í Bretlandi (Institution of Mechanical
Engineers (IME)) sem birt var í síð-
ustu viku. Breska blaðið Guardian
fjallaði um málið á dögunum.
Ýmsar ástæður
Í niðurstöðum skýrslunnar kemur
fram að ástæðurnar séu margþættar.
Á meðal þess sem nefnt er í skýrsl-
unni er að oft séu kröfurnar um síð-
asta söludag of strangar. Það geri það
að verkum að fólk hendi mat sem sé
í fullkomnu lagi. Þá bjóðist neytend-
um oftar en ekki alls kyns tilboð eins
og „tveir fyrir einn“ sem leiði til þess
að fólk kaupi meira en það þarf.
Í niðurstöðunum kemur jafn-
framt fram að mislukkaður landbún-
aður, lélegir innviðir í matvælafram-
leiðslu og slæmar geymsluaðferðir
eigi sinn þátt í að öllu þessu magni af
mat sé hent á haugana. Þá hafi kröf-
ur Vesturlandabúa um fullkomið
hreinlæti í matvælaframleiðslu sitt
að segja en miklum hluta matvæl-
anna er hent af matvælafyrirtækj-
unum sjálfum þar sem þau standast
ekki ströngustu kröfur.
Helmingi matvæla í Evrópu hent
Í ljósi mannfjöldaspár Sameinuðu
þjóðanna um að í lok aldarinnar
þurfi jörðin að sjá fyrir níu milljörð-
um manna telur Stofnun vélaverk-
fræðinga í Bretlandi að nauðsynlegt
sé að grípa til aðgerða nú þegar.
Í skýrslu IME sem ber heitið
„Global Food; Waste Not, Want Not“
er bent á að auðlindir jarðarinnar
eigi undir högg að sækja, þar á með-
al landið sjálft, matvælin sem ræktuð
eru á því, vatnið og orkan. Þar kem-
ur fram að á bilinu 30–50 prósent
allra þeirra matvæla sem framleidd
séu – á bilinu 1,2–2 milljarðar tonna
– komist aldrei á matardiskana sjálfa.
30 prósent af öllu grænmeti í
Bretlandi fer á ruslahaugana áður en
það svo mikið sem kemst í verslanir
þar sem það mætir ekki ströngustu
gæðakröfum. Þá henda neytendur
í Evrópu og í Bandaríkjunum helm-
ingi allra matvæla í ruslið.
Ferskvatn til spillis
Í skýrslunni kemur enn fremur
fram að 550 milljarðar rúmmetra af
ferskvatni fari árlega til spillis vegna
þessarar sóunar um allan heim.
Vatnið sé notað til þess að rækta mat-
væli sem skili sér aldrei til neytenda.
Þá kemur fram að kjötframleiðsla sé
sérstaklega vatnsfrek, framleiðsla á
kílói af kjöti þarfnist 20–50 sinnum
meira vatns en til framleiðslu á kílói
af grænmeti.
Í umfjöllun Guardian er greint frá
því að ef þróuninni verði ekki snúið
við muni mannkynið þurfa um það
bil þrisvar sinnum meira ferskvatn
árið 2050 en í dag. Það muni leiða til
vatnsskorts um allan heim. Í niður-
stöðum í skýrslu IME kemur fram að
með réttu aðferðunum sé hægt að
koma í veg fyrir sóun á landsvæði,
matvælum og vatni. Ef farið verði
að tillögum samtakanna verði til að
mynda hægt að framleiða 60–100
prósent meira af matvælum á sífellt
minna landsvæði.
Spornað við sóun
Tim Fox, yfirmaður orku- og um-
hverfismála hjá IME, sagði í viðtali
við Guardian að það væri sláandi
hversu miklum mat væri sóað úti
um allan heim. „Þessi matur hefði
getað verið nýttur til þess að fæða
sífellt fjölgandi íbúa heimsins – rétt
eins og þá sem lifa við hungur í dag.“
Þá sagði hann einnig að um væri að
ræða óþarfa sóun á landsvæði, vatni
og orkugjöfum sem notaðir væru til
framleiðslu og dreifingar á mat.
Til þess að koma í veg fyrir áfram-
haldandi sóun þurfa ríkisstjórnir,
samtök og Sameinuðu þjóðirnar að
taka sig á og „vinna saman til þess að
breyta hugarfari fólks varðandi sóun
og sporna við henni í starfi bænda,
matvælaframleiðenda, verslana og
neytenda,“ segir í skýrslu IME. n
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
„Þessi matur hefði
getað verið nýttur
til þess að fæða sífellt
fjölgandi íbúa heimsins.
Matur á haugunum Ung stúlka í Lahore í Pakistan gæðir sér á mangóávexti sem hún fann á ruslahaugunum.
Ávextir í Bandaríkjunum Ávextir í ruslagámi í Wilmington, Delaware. Gríðarmiklu
magni matvæla er árlega hent á ruslahaugana á Vesturlöndum, allt að helmingi samkvæmt
nýútkominni skýrslu.