Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Síða 16
16 Neytendur 14. janúar 2013 Mánudagur
Algengt verð 249,7 kr. 258,5 kr.
Allar stöðvar 249,5 kr. 258,3 kr.
Allar stöðvar 249,4 kr. 258,2 kr.
Algengt verð 249,7 kr. 258,5 kr.
Algengt verð 251,9 kr. 258,6 kr.
Allar stöðvar 249,5 kr. 258,3 kr.
Eldsneytisverð 13. jan.
Bensín Dísilolía
Fékk rúmið á
tilboðsverði
n Lofið fær Rúmfatalagerinn en
hæstánægður viðskiptavinur sendi
þetta: „ Rétt fyrir jól sá ég rúm á
rosalega góðu tilboði og fór í búð
ina nokkrum dögum síðar. Þá fékk
ég þær upplýsingar að tilboðið
hefði runnið út í daginn áður. Þeir
voru tveir afgreiðslumennirnir og
annar sagði við þann sem afgreiddi
mig: „við reddum þessu svona“ og
með því fékk ég þetta rúm á til
boðinu sem rann út
daginn áður. Þannig
sparaði ég í kringum
30 þúsund krónur. Þetta
er eitthvað sem
maður kallar
jólaanda og mér
finnst þeir eiga
hrós skilið!“
Fékk ekki
vatnsglas
n Lastið fær Sambíó í Egilshöll
en bíógestur vildi koma eftirfar
andi á framfæri: „Ég fór þangað
um daginn með frúnni, móður og
föður systur. Við borguðum okkur
inn og keyptum popp og kók.
Heildarupphæðin var um 7.000
krónur að mig minnir. Í hléi ákváð
um við frúin, sem er komin átta
mánuði á leið, að fá okkur ferskt
loft og á leið inn aftur bað hún um
vatnsglas í sjoppunni. Það var ekki
hægt þar sem vatnsglas kostar 20
krónur og við vorum
ekki með veskin á
okkur. Ég spurði
hvort ég mætti ekki
hlaupa með pen
inginn til þeirra
eftir sýninguna en
mér var ekki treyst
til þess. Mér fannst ansi
gróft að neita ófrískri konu
um vatnsglas.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
n Útsölurnar eru í fullum gangi n Víða er 70 prósenta afsláttur af verði
Ekki missa af
útsölunum
Þetta þarf að
hafa í huga
Nú þegar útsöluauglýsingar
dynja á okkur er gott að hafa
nokkur atriði í huga. Fyrir nokkru
leitaði DV til Þórunnar Önnu
Árnadóttur, sviðsstjóri neytenda
réttarsviðs hjá Neytendastofu, til
fá nokkra punkta sem tengjast út
sölum og hvað neytendur ættu að
hafa í huga.
1 Vara sem er auglýst á útsölu verður að hafa verið seld á
tilgreindu fyrra verði áður. Það má
því ekki setja vöru á útsölu eða til
boð nema um raunverulegan af
slátt sé að ræða.
2 Mikilvægt er að horfa ekki eingöngu á prósentu
afsláttinn heldur verðið líka.
3 Mikilvægt er að vanda valið því skila og skiptireglur
gilda almennt ekki á útsölum.
4 Mikilvægt er að athuga hvort réttur afsláttur skili sér þegar
komið er að því að borga?
5 Vara má ekki vera á útsölu lengur en í sex vikur. Eftir það
er útsöluverðið venjulegt verð.
Útsölureglur
Neytendasamtökin
minna neytendur
á reglur sem fyrir
tæki verða að
fylgja við útsölur.
Ein þeirra er að
ef vara er auglýst á
tilboði eða útsölu verður hún að
hafa verið í boði á „venjulegu“
verði áður. Ekki má skella til
boðsmiða á vöru nema um raun
verulegt tilboð sé að ræða. „Ef
vara hefur verið seld á lækkuðu
verði í sex vikur má ekki lengur
tala um lækkað verð eða afslátt.
Ef seljandi auglýsir lækkað verð
verður hann að geta sýnt fram á
að verðið hafi verið hærra áður.
Ekki má tala um rýmingarsölu
nema verslun hætti eða að sölu
á ákveðnum vöruflokki sé hætt,“
segir á ns.is. Enn fremur segir að
ekki megi nota orð eins og gjöf eða
ókeypis þegar kaupauki fylgi vöru.
H
úsgögn, fatnað, bækur og
leikföng má nú fá á marg
falt lægra verði en fyr
ir jól því janúarútsölurnar
standa sem hæst um þessar
mundir. DV hefur tekið saman upp
lýsingar um nokkrar af þeim verslun
um sem bjóða nú upp á vörur á af
slætti en þar má nú gera góð kaup.
Búast má við því að verslanir lækki
verðið enn frekar eftir því sem líður á
mánuðinn en tekið skal fram að list
inn er að sjálfsögðu ekki tæmandi.
eymundsson
Hafir þú ekki fengið bókina sem þú
óskaðir þér í jólagjöf þá bjóða flestar
bókaverslanir upp á útsölur núna.
Sem dæmi má nefna að Eymunds
son auglýsir allt að 50 prósenta af
slátt af nýjum bókum.
Húsgagnahöllin
Verslunin hóf útsölu sína fyrir helgi
og auglýsir nú „Risa útsölu“. Þar má
finna hin ýmsu húsgögn og smávöru
á allt að 60 prósenta afslætti.
svefn og heilsa
Verslunin selur rúm, svefnsófa og
ýmislegt annað sem viðkemur svefni,
svo sem sængur, kodda og sængur
ver. Þar er nú boðið upp á 20 til 70
prósenta afslátt.
Rúmfatalagerinn
Það er í rauninni hægt að fá flest milli
himins og jarðar í Rúmfatalagernum.
Nú er auglýst að hægt sé að spara allt
að 63 prósentum þar.
Blómaval
Nú stendur yfir rýmingarsala á
jólavörum í Blómavali og fást þær á
30 til 70 prósenta afslætti.
smáralind og Kringlan
Fjörug og flott útsala ku vera í Smára
lindinni. Þar getur þú almennt átt
von á fá 20 til 70 prósenta afslátt
þegar þú verslar. Svipaða sögu er að
segja um Kringluna þar sem útsalan
hófst 3. janúar.
Hagkaup
Allar útsöluvörur í Hagkaupum eru
nú á verðbilinu 500 til 4.000 krónur
en útsalan nær til flestra vöruflokka.
Húsasmiðjan
Á janúarútsölu Húsasmiðjunnar eru
útsöluvörur á 15 til 70 prósenta af
slætti. Þetta gildir ekki um þær vörur
sem eru merktar Lægsta lága verð
Húsasmiðjunnar.
BYKo
BYKO auglýsir lagerhreinsun þar
sem allt á að seljast. Útsalan stendur
yfir dagana 4. til 15. janúar.
Gyllti kötturinn
Flestar fataverslanir erum með vörur
á útsölu en þar má nefna Gyllta kött
inn. Þar hafa skór til dæmis verið
með 50 prósent afslátt.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Útsölur Langflestar verslanir
auglýsa útsölur í janúar.
MYnD PRessPHoTos.BiZ
MYnD PRessPHoTos.BiZ
MYnD PRessPHoTos.BiZ