Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Page 18
18 Lífsstíll 14. janúar 2013 Mánudagur
5 ómissandi ilmolíur
n Gott að eiga á heimilinu
1 Lavender Lavender-olían hefur sterkan keim með vott af sætleika. Ilmurinn er talinn hafa
róandi áhrif og kvíðnir og áhyggju-
fullir ættu að eiga hana til. Þá er hún
græðandi og vinnur á móti sýkingum
og verkjum. Það má til að mynda nota
lavender-olíu á minniháttar bruna-
sár, skordýrabit og væga vöðvabólgu.
Sumir nota lavender til þvotta og sér í
lagi þeir sem glíma við ofnæmi.
2 Piparmynta Piparmyntu-olían er mjög sæt en örvandi.
Hún er sérstaklega nytsamleg þegar
kemur að því að róa meltingu og
dugar vel á höfuðverki, mígreni og
sára vöðva.
Gott ráð við höfuðverk er að
nudda piparmyntuolíu á enni við
hárrótina. Við vöðvabólgu er gott að
blanda piparmyntuolíunni við vín-
berjasteinaolíu og nudda á vöðvann.
3 Eucalyptus-olía Þessi olía er einstaklega hressandi og
ilmurinn er kröftugur. Olían er mikið
notuð til lækninga, hún er bakteríu-
drepandi, virkar á móti sveppasýk-
ingum og bólgum. Hún er líka notuð
við vandamálum í öndunarvegi, svo
sem astma.
4 Sítróna Uppörvandi og ferskur ilmur, sítrónuolía er
bakteríudrepandi og virkar einnig á
móti sveppum. Þeir sem eru haldn-
ir síþreytu ættu að prófa að nota
sítrónuolíu, nudda henni á bringu
og háls og sjá hvort það hefur ekki
einhver góð áhrif.
5 Tea Tree-olía Afar vinsæl til óhefðbundinna lækninga og mikið notuð gegn bólum og feitri
húð og gott að nota á minniháttar
sár án þess að erta.
B
orðaðu eins og kóngur
á morgnana en betlari á
kvöldin, segja sumir. Flestir
neyta sætinda í hófi. En hvað
ef í boði væri að fá sér eftirrétt
í morgunverð? Og það þótt að verið sé
að passa línurnar?
Dr. Daniela Jakubowicz í Tel Aviv-
háskóla og samstarfsmenn hennar
í Wolfson-læknastöðinni, fram-
kvæmdu rannsókn þar sem kannað
var hvort sætindi borðuð snemma
dags hafi gagnleg áhrif.
„Markmið megrunar ætti ekki
eingöngu að vera þyngdartap held-
ur líka að koma í veg fyrir hungur
og löngun í sætindi, og þannig fyrir-
byggja þyngdaraukningu á ný,“ segir
dr. Daniela.
Stór morgunverður og lítill
morgunverður
Í rannsókninni tóku 193 karlmenn
og konur þátt. Öll voru í ofþyngd en
ekkert þeirra þjáðist af sykursýki.
Þeim var skipt í tvo hópa. Karlmenn
borðuðu 1.600 kaloríur á dag og kon-
ur borðuðu 1.400 kaloríur á dag. Ef
konurnar eru teknar sem dæmi þá
borðaði einn kvennahópurinn 300
kaloríur í morgunmat, 500 kaloríur í
hádeginu og 600 kaloríur í kvöldmat
– sem sé magran morgunverð. Hinn
hópurinn sneri þessu við, 600 kalo-
ríur í morgunmat, 500 í hádegismat
og 300 á kvöldin.
Þær sem fengu sér kaloríusnauð-
an morgunverð, fengu 30 grömm af
próteini og 10 grömm af kolvetni,
seinni hópurinn fékk hins vegar 45
grömm af próteini, 60 grömm af kol-
vetni og eftirrétt, súkkulaði, kleinu-
hring eða kökusneið.
Sælkerar héldu áfram að léttast
Eftir fjóra mánuði höfðu meðlimir
beggja hópanna misst 13–15 kíló og
enginn munur fannst á milli hópanna.
Næstu fjóra mánuðina fór þó hópur-
inn sem borðaði minni morgunmat
að bæta á sig þyngd aftur. Þeir sem
fengu sér kökusneið eða kleinuhring
í morgunmat héldu hins vegar áfram
að léttast.
Á fjögurra mánaða tímabili
bættu meðlimir í magra morgun-
verðarhópnum á sig aftur að meðal-
tali 9–10 kílóum. Meðan sælkerarnir
misstu að meðaltali 15 kíló í viðbót.
Daniela tekur fram að skipting á
milli próteina og kolvetna skipti máli,
en segist sjálf halda að eftirrétturinn
hafi gert það að verkum að löngun í
sætindi og óhollustu varð minni.
Í mælingum kom einnig fram að
hormón þau sem vekja hungur, svo-
kallað ghrelín, var 42,5 prósentum
minna hjá sælkerum en þeim í magra
morgunverðarhópnum.
Dr. Daniela tekur einnig fram að
niðurstöður rannsóknarinnar gefi
ekki ástæðu til þess að skipta út holl-
um morgunverði fyrir kleinuhring.
Helst hafði áhrif, rétt blanda próteina,
kolvetna, fitu og þess að fá að neyta
örlítilla sætinda.
Rannsóknin gagnrýnd
Margir hafa orðið til að gagnrýna
rannsóknina. Lisa Young, prófessor
við New York-háskólann, bendir á
veruleika matarfíkla sem geti alls
ekki fengið sér aðeins einn eftirrétt.
Einn eftirréttur kalli á annan. Þá
segir Lauren Graf næringarfræðing-
ur varasamt að hvetja fólk til þess að
borða fæðu fulla af transfitu.
„Samvirkni próteina og kolvetna
hefur skipt mestu máli, en þú verð-
ur að gæta að gæðum fæðunnar sem
neytt er,“ segir Lauren. „Þú vilt ekki
hvetja fólk til þess að borða mikið af
mat sem inniheldur transfitu, eins og
raunin er með kleinuhringi, smákök-
ur og kökur.“ n
Eftirréttir góðir
á morgnana
n Sætindi á morgnanna geta haldið hungurhormónum niðri
Gleðifréttir Ísraelsk rannsókn
gefur til kynna að það sé til góða að
fá sér eitthvað sætt á morgnana.
„Þú verður
að gæta að
gæðum fæðunnar
sem neytt er
Sætir morguneftirréttir
Banana- og perumús
með dökku súkkulaði
Fyrir einn
n 1 þroskuð pera
n 1 þroskaður banani
n Rifið dökkt súkkulaði
Þeytið banana og peru saman í blandara
eða með töfrasprota, þar til blandan fær
á sig áferð búðings. Dreifið dökku rifnu
súkkulaði yfir.
Hráfæðis-
súkkulaðikaka
16 kökubitar
Innihald
n 1/2 bolli hunang
n 1/4 bolli kókosolía
n 1/4 bolli möndlusmjör
n 1/4 tsk. sjávarsalt
n 1 tsk. vanilludropar
n 1 tsk. kanill
n 1/2 bolli saxaðar möndlur
n 1/2 bolli saxaðar valhnetur
n 1/2 bolli dökkt súkkulaði
n Lófafylli af sólblómafræjum
n Lófafylli af graskersfræjum
n Lófafylli af goji-berjum
n 1 bolli hafragrjón
Aðferð
n Hitið saman hunang, kókosolíu,
möndlusmjör, sjávarsalt, vanillu og kanil
við lágan hita.
n Blandið saman söxuðum möndlum,
valhnetum, dökku súkkulaði, sólblóma-
fræjum, graskersfræjum, goji-berjum og
hafragrjónum.
n Hrærið saman blautum innihaldsefnum
við þau þurru. Þrýstið í stórt mót og kælið.
Skerið í 16 bita.
Góðar olíur Olíur geta aukið vellíð-
an og gott að eiga þær til að bera á
minniháttar sár eða sýkingar.
Dragtirnar
vinsælar í vor
Íslenskar píur þurfa ekki að hafa
áhyggjur af tískuvitundinni í
sumar þrátt fyrir að hér verði ekki
jafn heitt og víðast hvar annars
staðar í Evrópu og því flesta daga
ótækt að spranga um í sumarkjól-
um. Það þarf nefnilega engum að
verða kalt í drögtunum sem virð-
ast vera allsráðandi á tískupöll-
unum og verða hvað vinsælastar
þegar tekur að vora samkvæmt
tískuspekúlöntunum á style.com.
Besta
bloggið
A Beautiful Mess var valið vin-
sælasta „gerðu það sjálfur“ eða
DIY-bloggið árið 2012 af lesendum
Apartment Therapy en þar er að
finna leiðbeiningar er varða nán-
ast allt er viðkemur daglegu lífi,
hár, förðun og fegurð, tísku, föt og
breytingar á þeim, hönnun, ljós-
myndir og föndur og meira að
segja uppskriftir að alls kyns rétt-
um, gómsætum réttum. Sumar
uppskriftirnar eru ofureinfaldar
eins og þessi uppskrift að míní-
bananasplitti, sem er fyrir fjóra:
Skerðu banana í fjóra hluta og
settu í fjórar skálar. Settu litlar kúl-
ur af vanillu-, súkkulaði- og jarðar-
berja ís í skálarnar og dreyptu
karamellusósu, súkkulaði- eða
jarðarberjasírópi yfir.
Dior
Saint
Laurent
Mary
Katrantzou Mulberry