Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Síða 20
20 Sport 14. janúar 2013 Mánudagur
Ekki með samning við nokkurt félagslið
n Neymar vísar þrálátum sögusögnum um samning við Barcelona á bug
E
kkert er hæft í þeim fregnum
að brasilíski snillingurinn
Neymar hafi gert samning
við Barcelona þess efn
is að ganga til liðs við spænsku
risana á næsta leiktímabili eða
eftir Heimsmeistara keppnina árið
2014.
Fjarska lítið hefur frést af hugs
anlegum kaupum stórliða Evrópu
á þessum skæðasta brasilíska
sóknarmanni í boltanum en talið
var víst að Neymar yrði keyptur til
Evrópu frá félagsliði sínu Santos í
janúarglugganum.
Samningur Neymar við Santos
rennur út árið 2014 og hann getur
því frjáls samið við annað félags
lið strax í sumar kæri hann sig um.
Talið var líklegt að Santos reyndi
að selja kappann áður en að því
kæmi en ekkert er í spilunum eins
og sakir standa. Þær fréttir að Börs
ungar hafi náð samningi við hann
til fjögurra ára fyrir 6,9 milljarða
króna virðast ekki eiga við rök að
styðjast.
Barcelona er ekki eina liðið sem
Neymar hefur verið orðaður við
síðustu mánuðina. Forráðamenn
PSG í Frakklandi hafa lýst áhuga
sínum og hann hefur verið tengdur
við ensk og rússnesk lið líka. Sjálf
ur hefur hann helst nefnt Spán og
hann er aðdáandi Barcelona. Það
félagslið leikur líka sóknarbolta
eins og Santos og ætti að henta
Neymar bráðvel. n
Wenger vill sjá
Fabregas aftur
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
telur ekki fráleitt að einn góðan
veðurdag snúi Cesc Fabregas aft
ur til liðsins en hann leikur sem
kunnugt er með Barcelona og
ekki annað vitað en þar sé hann
sáttur. Wenger telur hins vegar
að Spánverjinn sé svo mikill að
dáandi Arsenal og sannur að
ekki sé útilokað að hann klæð
ist treyju liðsins á nýjan leik. Það
gerist þó ekki allra næstu árin að
mati Frakkans.
Torres aftur á
fornar slóðir
Svo gæti farið að Fernando Torres
endi aftur hjá sínu gamla liði
Atlético Madrid en þar á bæ vilja
menn ólmir fá sína gömlu stjörnu
aftur. Hann hefur komið meira
við sögu hjá Chelsea undir stjórn
Rafa Benitez en aðdáendur liðsins
eru lítt hrifnir af Spánverjanum og
hafa látið þá skoðun í ljós í leikjum
liðsins að undanförnu. Á Spáni
telja menn óánægjuna næga til að
Torres íhugi vandlega að snúa aft
ur þangað sem hann er enn elsk
aður af aðdáendum Atlético.
Sonurinn
breytti Messi
Fæðing sonar í nóvember hefur
breytt lífsstíl Leo Messi til muna
að eigin sögn en hann hugsar nú
mun meira um það sem hann ger
ir utan vallar en áður. Það þýðir
að djammlíf er að mestu komið út
úr kortinu en Messi hefur reyndar
aldrei verið þekktur fyrir sérstakan
hasar á því sviðinu. Sjálfur lýsir
hann sér sem afskaplega rólegum
manni.. „Sonurinn étur, sefur og
er mjög þægilegur. Alveg eins og
pabbinn.“
Michu í spænska
landsliðið
Framherjinn Michu, sem Michael
Laudrup kom með með sér frá
Spáni til að spila fyrir Swansea,
hefur staðið sig svo vel að Daninn
telur hann eiga fullt erindi í stór
kostlegt landslið Spánar. Michu
hefur sannarlega farið á kostum
með Swansea og er meðal
markahæstu manna í ensku úr
valsdeildinni og þjálfari Spán
ar, Vicente del Bosque, sást
fylgjast með Spánverjanum í
leik Swansea um helgina. Og del
Bosque hefur alltaf haft auga fyrir
góðum leikmönnum.
Hinn frábæri Neymar Hann
er enn hjá Santos og engin tilboð
borist frá Evrópu.
Hið nýja andlit Nike í golfinu
n Rory McIlroy fær 30 milljarða fyrir fimm ára samning
R
ory McIlroy, 23 ára kylfing
ur frá NorðurÍrlandi, verð
ur næsta andlit íþróttarisans
Nike í framtíðinni og tekur
við þeim kyndli af stórstjörnunni
Tiger Woods. Sá síðarnefndi verð
ur þó áfram hjá Nike en tekjur hans
verða snöggtum minni en McIlroys.
Virði hins nýja samnings er trún
aðarmál en nokkrir fjölmiðlar telja
sig hafa vitneskju um að hann sé
upp á rúma 30 milljarða króna en
hann mun gilda næstu fimm árin.
Þetta er því hrein viðbót við
gríðarlegar tekjur McIlroys af golf
inu sjálfu og öðrum auglýsinga
samningum en hann er án efa sá
allra heitasti í golfheiminum og
á glæsta framtíð vísa haldi hann
áfram á sömu braut. Þá skemm
ir ekki að hann þykir æði góð fyr
irmynd í einu og öllu og talið víst
að nafn hans á framleiðslu Nike
geti aukið markaðshlutdeild þess
fyrirtækis mikið meira en þegar er
orðið.
Óljóst er hvort Tiger endurnýjar
samning sinn þegar þar að kemur
vegna þessa en hann fær þrátt fyr
ir allt vænar fúlgur fyrir sinn samn
ing. Það þykir þó hafa fallið mjög á
hans stjörnu sökum framhjáhalds
hans sem frægt er orðið. Þá hef
ur Tiger heldur ekki verið að gera
stórkostlega hluti í golfinu sjálfu þó
hann sé vissulega á uppleið frá sem
var í kjölfar skilnaðarmáls hans.
Rory inn, Tiger
út Nike hefur gert
stærsta samning
sinn í golfinu við
Rory McIlroy.
H
ollendingurinn Robin van
Persie vann einvígi marka
hæstu mannanna í ensku
úrvalsdeildinni í gær þegar
hann skoraði annað af
tveimur mörkum Manchester United
í 2–1 sigri gegn Liverpool. Það var
sautjánda mark hans á tímabilinu en
Luis Suarez hjá Liverpool náði ekki að
bæta við sín fimmtán mörk.
Með sigrinum halda Rauðu djöfl
arnir þægilegri stöðu á toppi ensku
úrvalsdeildarinnar með 55 stig eða
sjö stigum meira en Englandsmeist
arar Manchester City sem höfðu góð
an útisigur á Arsenal á Emiratesvell
inum en þar syrti heldur betur í álinn
hjá heimamönnum á níundu mínútu
þegar Laurent Koscielny fékk rautt
fyrir brot inni í vítateig. Edin Dzeko
lét verja frá sér spyrnuna en það kom
ekki að sök því City vann leikinn
og setti enn meiri pressu á þjálfara
Arsenal en liðið er í sjötta sæti, heilu
21 stigi á eftir Manchester United.
Einvígið sem var þó ekkert einvígi
Leikir Manchester United og Liver
pool eru ávallt miklar rimmur og sér
staklega þótti þessi merkilegur fyrir
þær sakir að markahæstu menn
deildarinnar voru þarna að mætast.
Gerðu fjölmiðlar í Bretlandi mikið úr
því einvígi en setja verður spurningar
merki við slíkt. Robin van Persie nýt
ur alltaf mikils stuðnings fram á við á
vellinum en Luis Suarez er oft og tíð
um einn í heiminum í framlínu Liver
pool og fær afar takmarkaða þjónustu.
Fyrri hálfleikurinn gegn United var
enn eitt dæmið um slíkt og fékk Su
arez almennt litla aðstoð fyrr en hinn
nýkeypti Daniel Sturridge kom inn á í
lið Liverpool í seinni hálfleik. Var það
einmitt Sturridge sem minnkaði mun
inn fyrir gestina og fékk prýðis tækifæri
til að jafna og ná stigi í blálok leiksins.
Þreyta í mannskapnum
Óvenju lítið var skorað í úrvals
deildinni þessa helgina og enduðu
fjórir leikir 0–0. Einna helst vakti
Chelsea athygli með merkilegum 0–4
útisigri á Stoke eftir að hafa legið gegn
Stoke á heimavelli fyrir viku. Sigurinn
var þó ekki mjög sannfærandi því tvö
marka Chelsea voru sjálfsmörk eins
og sama leikmannsins hjá Stoke. Leik
urinn var hörmung fyrir Jon Walters
því fyrir utan sjálfsmörkin mis notaði
hann einnig vítaspyrnu. Var þetta
fyrsta tap Stoke á heimavelli í einum
sautján leikjum. n
Næstu leikir
Chelsea - Southampton
Tottenham - Man Utd
Man City - Fulham
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is
Persie vann ein-
vígið við suarez
n United í þægilegri stöðu n Dramatík og rauð spjöld á Emirates
Persie toppar Hollendingurinn skoraði sitt tíunda mark í tíu leikjum í röð gegn Liverpool.