Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Page 23
Óvænt sambandsslit
„Ég var bara
fyllibytta“
Fólk 23Mánudagur 14. janúar 2013
Brúðkaup
í sumar
Hugmynda-
dólgurinn
Hannes
T
ónlistarmaðurinn Brynjar
Már hefur tilkynnt á Face-
book-síðu sinni að hann og
kærastan, Anna Christine
Aclipen, ætli að ganga í það
heilaga á Flórída í sumar.
Þau kynntust fyrst fyrir tíu árum
og voru saman í rúmt ár. Það var
svo ekki fyrr en tíu árum síðar sem
þau tóku upp þráðinn og hafa ver-
ið afar ástfangin síðan. Í viðtali
við DV í desember í fyrra sagðist
Brynjar elska allt við kærustuna.
„Hún er yndisleg, skemmtileg, fal-
leg og góð og með hlýtt hjarta. Við
smellum saman eins og flís við
rass.“
Á auglýsingastofunni Pipar/TBWA
var brugðið á leik. Einn starfs-
manna stofunnar birti þessa
mynd af Hannesi Friðbjarnarsyni,
tónlistarmanni og starfsmanni
auglýsingastofunnar, bundnum
og teipuðum við skrifborðsstól.
„Hugmyndadólgurinn Hannes
fékk allt í einu hugmyndakast svo
hann varð að stöðva með öllum
tiltækum ráðum!“ var undirskrift
myndarinnar.
É
g vil ekkert tjá mig um þetta.
Þetta er bara á milli mín og
hennar,“ sagði dansarinn Sig-
urður Þór Sigurðsson þegar
blaðamaður athugaði viðbrögð hans
við frétt Séð og heyrt þar sem fram
kemur að hann og Hanna Rún Ólafs-
dóttir, betur þekkt sem dansparið
Siggi og Hanna, séu hætt saman. Í
blaðinu er vitnað í Hönnu sem segir
Sigga hafa slitið trúlofuninni mjög
svo óvænt. „Hann er fyrsti kærast-
inn minn og maður er oft svo blind-
ur þegar maður er svona hrifinn. En
núna er ég sátt,“ kemur fram í blað-
inu.
Þau vöktu mikla athygli í
danskeppninni Dans dans dans
enda afar færir dansarar og urðu til
að mynda Norður-Evrópumeistarar í
suðuramerískum dönsum á Norður-
Evrópumótinu sem fram fór í nóv-
ember 2011.
Í viðtali við DV í nóvember 2011
kom fram að þau vöknuðu stundum
um miðja nótt til að taka dansspor
úr draumi. „Hann Siggi á þetta til,
hann vekur mig og við tökum sporið
því annars gleymir hann sporunum,“
sagði Hanna en fram kom í viðtalinu
að þau væru trúlofuð. „Við höfum sett
okkur það markmið að gifta okkur
þegar við höfum efni á því. Það liggur
ekkert á brúðkaupi.“ n
n Eitt dáðasta danspar þjóðarinnar hefur slitið trúlofun sinni
Dansfélagar Hvort þau Hanna og Siggi
halda áfram að dansa saman verður að
koma í ljós.
Glæsilegt par Það brá eflaust
mörgum í brún þegar þær fréttir
bárust að dansparið flotta, Hanna og
Siggi, hefði slitið trúlofun sinni.
Þ
etta var komið út í algjört
rugl. Ég var hættur að virka
í eðlilegu samfélagi og vissi
í rauninni ekki hvað eðlilegt
líf var,“ segir tónlistarmað-
urinn Steinar Fjeldsted, sem margir
muna eftir sem Steina í Quarashi.
Steinar hefur verið edrú í rúmt ár og
er það þakklátur fyrir að hafa fengið
nýtt tækifæri að hann vill segja sína
sögu í von um að hjálpa öðrum.
Fimmtudagur til sunnudags
„Ég var bara fyllibytta, ef ég á að segja
eins og er. Ég var alltaf á djamminu
og fannst það alveg ótrúlega gaman.
Vanalega fór ég á fyllerí á fimmtudegi
sem endaði svo ekki fyrr en á sunnu-
degi. Mánudagur og þriðjudagur
fóru í volæði en maður var kominn
í góðan gír á miðvikudegi. Ég hélt
að þetta væri bara eðlilegt. En það
er ekkert eðlilegt við þetta. Í dag líð-
ur mér ótrúlega vel. Það er magnað
hvernig hlutirnir breytast ef maður
hættir að drekka,“ segir Steinar sem
er virkur í AA-samtökunum.
Steinar var 15 ára þegar hann byrj-
aði að drekka áfengi og 16 ára þegar
hann var farinn að reykja hass að
staðaldri. Hann viðurkennir einnig
hafa hafa prófað flest öll eiturlyfin á
markaðinum. „Ég var hasshaus þar
til ég varð 21 árs. Þá tók Quarashi-
ævintýrið við og partíið byrjaði. Þá
gat ég ekki bara verið freðinn og fór
að drekka meira. Svo með tíman-
um missti ég stjórnina. Þetta varð að
snjóbolta sem varð alltaf stærri og
stærri. Og á endanum sprakk hann.
Mér leið ekkert vel og var orðinn vel
„sósaður“.“
Steinar hafði farið í eina og hálfa
meðferð áður en honum tókst að snúa
við blaðinu. „Ég fór fyrst inn á Vog
árið 2002 en kláraði ekki meðferðina.
Þá þurfti ég að fara til Bandaríkjanna
með hljómsveitinni og varð að fara út.
Ég datt samt ekki í það í einhverja níu
mánuði þarna úti en fór það á hnef-
anum. Það var ekki eins og ég væri að
mæta á fundi. Einhvern veginn tókst
það þrátt fyrir að það væri endalaust
mikið af bjór, áfengi og dópi í boði. En
svo þegar ég kom til Íslands aftur datt
ég strax í það.“
Míníalki
Hann segir strákunum í bandinu
ekki hafa litist á blikuna. „Þeir voru
farnir að hnippa í mig. Sjálfur hélt
ég að ég væri bara svona míníalki;
ég væri í hljómsveit og þess vegna
væri í lagi að vera alltaf fullur. En
með tímanum skiptir ekki máli
hvernig alki maður er. Maður er
bara alki. Ég var ekki heill á þessum
tíma. Fannst ég eiga ótrúlega bágt
og hélt að enginn skyldi mig. Þótt
ég sé bara búinn að vera edrú í rúmt
ár er ótrúlegt hvað hugurinn hefur
breyst. Ég sé hvað ég var í rauninni
týndur. Ég á tvo stráka og konu og
er mjög hamingjusamur. Ég, sem
hélt að venjulegt fjölskyldulíf væri
ekkert fyrir mig. Það virkaði mjög
óspennandi. Í dag veit ég að það er
það sem gefur lífinu gildi.“
Hann segist ekki óttast að falla.
„En maður verður stöðugt að vinna í
sínum málum. Maður er aldrei kom-
inn með þetta. Ég er alkóhólisti og
mun alltaf verða alkóhólisti en ég
sæki fundi og það heldur mér edrú.
Vinnan í sporunum hefur hjálpað
mér gífurlega en þetta var stórt og
erfitt skref í byrjun. Ég hélt alltaf að
það væri kjaftæði að verða edrú á
þennan hátt. Mér fannst þetta glatað
og allir í samtökunum hallærislegir.
En svo lætur maður frá sér allan
hroka enda á maður ekkert eftir.“
Meiri sköpunargáfa
Steinar hætti í Quarashi árið 2005
til að snúa sér að eigin tónlist. „Það
er voðalega erfitt að einbeita sér
að tónlistinni þegar maður er alltaf
fullur. Maður klárar ekkert verkefni,
hausinn er ekki til staðar. Í dag hef
ég metnað og áhuga á því sem ég er
að gera,“ segir hann og bætir við að
það sé tóm þvæla að tónlistarmenn
missi sköpunargáfuna þegar það
rennur af þeim. „Tónlistin er enn-
þá til staðar hjá mér og bara meira
af henni ef eitthvað er. Ég hef fengið
að heyra það að ég eigi ekki eftir að
getað skapað nema undir áhrifum en
það er bara kjaftæði. Það er til fullt af
flottri tónlist sem var búin til af edrú
fólki. Hins vegar gerir enginn góða
tónlist þegar hann er blindfullur.“ n
n Tónlistarmaðurinn Steinar Fjeldsted hefur snúið við blaðinu
Edrú Steinar datt í það á fimmtudögum og
var fullur til sunnudags. Hann segir mánu-
daga og þriðjudaga hafa verið algjört helvíti
en á miðvikudögum hafi hann verið kominn
í gírinn aftur.
MynD siGtryGGur ari
Quarashi Steinar segir Quarashi-
ævintýrið hafa verið eitt stórt partí.