Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2013, Síða 13
F
lóttamannastofnun Sam
einuðu þjóðanna tilkynnti í
síðustu viku að fjöldi flótta
manna sem flúið hafa ofbeldið
í landinu hefði náð einni millj
ón. Þetta er þvert á fyrri spár stofn
unarinnar sem gerðu ráð fyrir því að
fjöldinn næði einni milljón í júní í
sumar. Fjöldinn þykir gefa til kynna
hversu graf alvarlegt ástandið er í Sýr
landi.
Breska blaðið Guardian fjallaði um
stöðu mála í Sýrlandi á dögunum. Nú,
þegar tvö ár eru liðin frá því að ófriður
inn hófst, virðist aukin harka vera að
færast í stríðandi fylkingar uppreisnar
manna og stjórnarhers Sýrlands.
Talið er að fjórar milljónir manna, að
minnsta kosti helmingur þeirra börn,
þurfi á mannúðaraðstoð að halda. Og í
nágrannaríkjunum Jórdaníu, Líbanon,
Tyrklandi, Írak og Egyptalandi – sem
flestir flóttamenn hafa farið til – eigi
yfirvöld og hjálparstofnanir á borð
við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna,
UNICEF, í stökustu vandræðum með
að aðstoða allan þennan fjölda.
Þúsund á einni nóttu
Talið er að um sjö þúsund flóttamenn
fari frá Sýrlandi á degi hverjum að
meðaltali. Aðfaranótt miðvikudags í
síðustu viku voru fréttamenn á vegum
breska ríkisútvarpsins, BBC, staddir á
landamærum Sýrlands og Jórdaníu.
Þá nótt töldu þeir fjölda flóttamanna
sem lögðu leið sína yfir landamærin.
Áður en nóttin var úti höfðu þúsund
manns streymt yfir í leit að betra og
öruggara lífi í Jórdaníu. Flestir flótta
menn reyna að komast frá Sýrlandi í
skjóli nætur og hafa oft lagt á sig langt
ferðalag. „Margir hafa orðið fyrir ást
vinamissi og orðið vitni að hörmulegu
ofbeldi. Sumir þessara flóttamanna
þjást af lungnabólgu og öndunar
færasýkingum. Mér fannst sérstaklega
átakanlegt að heyra sumar sögurnar
frá börnunum. Þau höfðu falið sig í
kjöllurum á meðan heimilum þeirra
var rústað. Ekkert annað var í stöðunni
fyrir þessi börn og fjölskyldur þeirra
en að yfirgefa landið,“ segir David Bell,
fréttaritari Guardian, sem hefur fylgst
með gangi mála undanfarin misseri.
Líf þúsunda í hættu
Það er ekki bara ástandið í Sýrlandi
sem vekur ugg meðal ráðamanna
víða heldur hvernig eigi að aðstoða
allan þennan fjölda flóttamanna. Að
minnsta kosti tvær milljónir manna
eru á vergangi í Sýrlandi og hafast
margir við í byggingum sem hafa ver
ið sprengdar í loft upp. Engin póli
tísk lausn er í sjónmáli í Sýrlandi og
ekki útséð með það hvernig stemma
má stigu við flóttamannastraumnum.
Fjár munir sem Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna hefur yfir að ráða til að að
stoða flóttamennina eru að verða upp
urnir og áður en langt um líður munu
samtökin ekki geta aðstoðað alla sem
eru hjálpar þurfi. Þetta þýðir að líf þús
unda barna er í hættu. n
50 mílur
50 km
Heimild: Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna tilkynnti á miðvikudag að
öldi flóttamanna frá Sýrlandi hefði náð einni milljón.
Flóttamannastraumurinn frá Sýrlandi
Aleppo
Deir al-Zor
S Ý R L A N D
Damaskus
ÍSRAEL SÁDÍ-ARABÍA
Gólan-hæðir
Flóttamannabúðir Landamæraeftirlit Barátta
Tyrkland
185,205
(1. mars)
Írak
106,697
(5. mars)Líbanon
332,297
(5. mars)
Jórdanía
324,543
(6. mars)
Egyptaland
43,531
(5. mars)
Þessu til
viðbótar hafa
8.262 flótta-
menn farið til
Afríku.
Fjöldi sýrlenskra
flóttamanna
Svæði flótta-
manna
Stöðugir
bardagar
Ófriðarsvæði
Svæði uppreisnarmanna
Ein milljón
á vErgangi
Erlent 13Mánudagur 11. mars 2013
Óvenjulegt
maraþon
Tæplega hundrað og fimmtíu
hlauparar frá öllum heimshornum
tóku fyrir skemmstu þátt í mara
þonhlaupi í Síberíu. Það er ekki
fyrir hvern sem er að taka þátt
í hlaupinu enda fimbulkuldi á
svæðinu auk þess sem hlaup
ið er yfir hið ísilagða stöðuvatn
Baikal. Baikalvatn er stærsta og
dýpsta stöðuvatn í heimi en ekki
er óalgengt að frost á þessum
árstíma fari upp undir 30 gráð
ur. Fjölmargir breskir hlauparar
tóku þátt í hlaupinu en vegna að
stæðna í hlaupinu tekur allra bestu
hlauparana allt að fjórum klukku
stundum að ljúka við hlaupið.
„Mér fannst venjulegt maraþon
hlaup vera frekar leiðinlegt þannig
að ég ákvað að koma hingað og
taka þátt,“ segir Alex Teddy frá
Oxford í Bretlandi sem tók þátt í
hlaupinu í fyrsta skipti nú á dögun
um. Það var Rússinn Sergei Kalas
hnikov sem kom fyrstur í mark að
þessu sinni eftir þrjár klukkustund
ir og sjö mínútur.
Kom niður
eftir 451 dag
Umhverfisverndarsinninn
Miranda Gibson, sem hefur hafst
við uppi í tré í skógi í Tansaníu í 15
mánuði, þurfti að játa sig sigraða á
dögunum vegna skógarelda. Gib
son, sem er 31 árs, byggði sér kofa
í trénu í desember 2011 en tréð
sem um ræðir er 60 metra hátt.
Með þessu vildi hún mótmæla
skógarhöggi í skóginum sem er í
Styxdalnum og vekja fólk til um
hugsunar um áhrif skógarhöggs.
Gibson hefur vakið mikla
athygli fyrir baráttu sína og fékk
hún höfðinglegar móttökur frá
umhverfisverndarsinnum sem
biðu hennar þegar hún kom niður
úr trénu. Sem fyrr segir var henni
ekki óhætt lengur uppi í trénu
vegna skógarelda og mikils reyks
sem lagði frá eldunum.
Atvinnuleysi
minnkar mikið
Atvinnuleysi í Bandaríkjunum
hefur ekki verið jafn lítið í fjögur
ár. Samkvæmt nýjum tölum urðu
236 þúsund ný störf til í febrú
armánuði og mældist atvinnu
leysi í lok mánaðarins 7,7 prósent
miðað við 7,9 prósent í lok jan
úarmánaðar. Þessar tölur koma
nokkuð á óvart enda höfðu hag
deildir bandarískra banka á Wall
Street gefið út spár sem gerðu ráð
fyrir meira atvinnuleysi. Sam
kvæmt frétt breska blaðsins Tel
egraph fengu flestir störf í verslun,
þjónustu og byggingageiranum í
febrúar mánuði. Atvinnuleysi hef
ur ekki verið jafn lítið síðan í des
ember 2008, eða skömmu eftir að
fjármálakreppan skall á.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Flóttamenn Sawssan Abdelwahab, sem flúði Sýrland, er ein millj-
ónar flóttamanna sem hafa yfirgefið Sýrland. Hún sést hér ganga
með börnum sínum í flóttamannabúðum í Tyrklandi. Mynd ReuteRs
n Milljón manns hefur flúið ástandið í Sýrlandi n Óttast um framtíðina
lótt mannastraumurinn
„Margir hafa orðið fyrir
ástvinamissi og orðið
vitni að hörmulegu ofbeldi