Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2013, Blaðsíða 21
Sport 21Mánudagur 11. mars 2013
n Kobe Bryant segir endalok ferilsins vera „í nánd“
K
örfuknattleiksstjarnan Kobe
Bryant segist ekki eiga mikið
eftir í boltanum og þess sé
skammt að bíða að tjaldið
falli hinsta sinni hvað feril hans
varði. Eitt sé þó alveg á tæru að
hans mati; hann endar ferilinn hjá
Lakers.
Bryant, sem verður 35 ára í
ágúst, var spurður út í framtíðina
í skemmtiþætti Jimmy Kimmel
og þar jánkaði hann því að körfu-
boltaferillinn yrði ekki mikið lengri
en þau sautján ár sem hann hefur
þegar gefið og þau öll á mála hjá
Los Angeles Lakers.
„Þetta hefur verið mitt erfiðasta
tímabil líkamlega. Sautján ára pakki
og allar þessar mínútur sem ég
spila, ég þarf að hafa mig mikið við
til að halda formi, ná mér eftir leiki
og vera klár í þann næsta. Nú fer
þetta allt að taka enda og ég er ótrú-
lega sáttur við að hætta í búningi
Lakers. Það verður fljótlega.“
Stjarnan er þó ekki í vafa um
að lið hans nái inn í úrslitakeppni
NBA-deildarinnar þessa leiktíðina
þrátt fyrir að gengið hafi verið lak-
ara en venjan hefur verið. Gekk
hann svo langt að lofa því að
Lakers kæmist í úrslitakeppnina.
Arfleifð Bryant verður ekki af
verri endanum þegar að loka-
stundinni kemur. Hann á fjölda
meta sem seint verða slegin. Hann
er yngsti leikmaður NBA frá upp-
hafi til að skora 30 þúsund stig
en þeim áfanga náði hann aðeins
34 ára gamall. Hann hefur ver-
ið valinn sextán sinnum í All-Star-
liðið í stjörnuleik NBA og skartar
fimm meistaratitlum með Lakers.
Þá hefur aðeins einn einasti leik-
maður skorað fleiri stig í einum og
sama leiknum en Kobe setti niður
81 stig í leik gegn liðinu Toronto
Raptors. n
Neitar að
gefast upp
Miðað við gengi Arsenal að undan-
förnu og stórt tap á heimavelli í fyrri
leik liðsins gegn Bayern í Meistara-
deild Evrópu væri stórt tekið upp
í sig að halda því fram að liðið geti
unnið útileikinn á sannfærandi hátt
og haldið áfram í átta liða úrslitin.
Það vill Arsene Wenger meina að lið
sitt geti gert á miðvikudaginn gegn
þýska liðinu sem spilað hefur glimr-
andi bolta í allan vetur og sundur-
spilaði Lundúnaliðið í fyrri leiknum.
Fáir nema gallhörðustu aðdáendur
telja það mjög líklegt ef marka má
veðbanka.
Viðreisn hjá QPR
Ekki margir hafa haft nokkra trú
á QPR þessa leiktíðina og lengi
vel virtist liðið ekkert erindi eiga í
ensku úrvalsdeildina. En nánast
á augabragði telur stjóri liðsins og
leikmenn að lukkan sé að snúast
þeim í hag og liðið eigi möguleika
á að bjarga sér frá falli. QPR hefur
nælt í sex stig í tveimur leikjum
í röð og Harry Redknapp setur
markið á fimm sigra alls til að QPR
haldi sér uppi þessa leiktíðina. Það
yrði þá ekki í fyrsta skipti sem karl-
inn gerir nokkurs konar kraftaverk.
Búið hjá
Dortmund
Tap hjá þýsku meisturunum í
Dortmund um helgina meðan
Bayern München vann sinn leik
þýðir að nú munar 20 stigum
á liðunum í fyrsta og öðru sæti
Bundesligunnar. Þó Bæjarar séu
ekki beint farnir að fagna ennþá
má eitthvað meiriháttar ganga á
ef þeir hampa ekki meistaratitlin-
um þetta árið og eiga það skilið.
Þjálfari Dortmund hins vegar þarf
að leggja höfuð í bleyti og spyrja
hvers vegna lið hans sé fjarri því
að skila sama glæsilega árangri og
á síðustu leiktíð.
Eiður að finna sig
Eiður Smári Guðjohnsen er kom-
inn á skotskó með sínu nýja liði
Club Brugge í Belgíu en hann setti
mark um helgina, annan leikinn í
röð. Markið tryggði Brugge sigur
og þrjú stig gegn Zulte Waregem.
Aðeins einn leikur er eftir í
belgísku deildinni en þá tekur
við sérstök keppni sex efstu lið-
anna um belgíska meistaratitilinn.
Ander lecht er sem stendur efst en
lið Eiðs situr í fjórða sætinu.
Kobe lýkur ferlinum hjá Lakers
n Forvitnilegar líkur sem breskir veðbankar gefa um næstu stjóra stórliðanna
S
tjóri Everton, David Moyes,
þykir langlíklegasti arftaki
Alex Ferguson í stjórastarfi
hjá Manchester United þegar
sá síðarnefndi loks ákveður að
hætta. Það er að minnsta kosti spá
veðbanka Sky sem gefur líkur á
hverjir þyki líklegastir til að taka við
hinum ýmsu knattspyrnuliðum.
Varðandi Manchester United,
þó enn sé ekki niðurneglt hvenær
Alex Ferguson segi nóg komið,
þá skýtur Moyes stærri nöfnum
á borð við Pep Guardiola og Jose
Mourinho ref fyrir rass samkvæmt
líkum sem Sky gefur.
Á listanum má reyndar sjá
ógrynni merkilegra nafna sem talin
eru koma til greina. Þar má nefna
allnokkra gamla leikmenn United
eins og Eric Cantona, Ole-Gunn-
ar Solskjær, Gary Neville og Ryan
Giggs og meira að segja finnst nafn
Roy Keane í þeirri súpu þó líkurnar
séu langsóttar eða 80 á móti 1.
David Moyes er einnig efstur á
blaði þegar kemur að því að taka
við af Arsene Wenger hjá Arsenal
en ýmis legt bendir til að Frakkinn
verði ekki mjög mikið lengur þar á
bæ. Michael Laudrup er líka talinn
nokkuð líklegur kandídat í það starf.
Sömuleiðis er skemmtileg nöfn
að finna hvað varðar eftirmann
Wenger. Ansi líklegur, með líkurn-
ar 14/1 er Dennis Bergkamp og
önnur fyrrverandi stjarna Arsenal,
Thierry Henry, kemst einnig á blað
þó líkurnar á því séu öllu minni
eða 33 á móti 1. n
David Moyes til United eða Arsenal?
Tekur Skoti við af Skota?
Moyes er talinn líklegasti kostur
til að taka við af Alex Ferguson
samkvæmt veðbönkum.
5 kylfingar sem
geta gert betur
Á
tta vikur eru til fyrsta risa-
móts í golfinu á þessu
tímabili þegar helstu og
bestu kylfingar heims mæta
til leiks á Masters-mótið í
Augusta í Georgíu sem er umdeil-
anlega það stærsta af þeim stóru.
Af því tilefni hefur dagblaðið LA
Times tekið saman lista yfir nokkra
þá kylfinga sem hingað til hafa haft
allt til brunns að bera en ekki enn
komið höndum á titil sem máli
skiptir eða hafa ekki skapgerð eða
taugar til að halda sér á toppnum
þegar þeir ná að vinna stórmót.
1 Dustin John-son - Þetta
er árið sem skera
mun úr hvort
Johnson verður
meðalmaður eða
hvort hann get-
ur enn staðið undir
miklum væntingum. Hann er ekki
sá besti af teig en fáir eru betri
að komast inn á grínin í réttum
höggafjölda. Hann getur púttað
en ekki nóg til að tryggja sigur
á tveimur risamótum þar sem
taugarnar fóru með hann.
2 Graeme McDowell - McDowell hefur reyndar einn
fínan titil á arinhillunni frá sigri
hans á Opna bandaríska mótinu
2010 en þá er það upptalið sem
hann hefur gert stórmerkilegt.
Hann hefur þann leiða ávana að
hverfa oft og tíðum lengi vel og
detta svo inn á eitt og eitt mót þar
sem hann rokkar. Hann þarf að
hysja upp um sig.
3 Ian Poulter - Þegar Poulter er í stuði standa fáir honum
á sporði í golfinu og ekki skemm-
ir fyrir að hann er þægilega laus
við stjörnustæla þó deila megi um
fatasmekkinn. Einn af fáum sem
sést reglulega brosa hvort sem er
gegnum þykkt eða þunnt en hann
þarf að fara að setja alvöru mark á
golfheiminn og vinna stóran titil.
4 Brandt Snedeker -
Enginn hefur byrj-
að árið jafn vel og
Snedeker og ekki
stóð hann sig illa
á síðasta ári heldur.
Fram til mánaðamóta hafði hann
tekið þátt í fimm mótum, unnið
eitt og endað ofar en fimmta sæti í
þeim öllum. Það er alvöru árangur
en Snedeker þarf að taka aðeins til
hendinni á risamóti.
5 Rory McIlroy - Kannski undarlegt að finna McIlroy,
besta kylfing heims á síðasta ári,
á slíkum lista, en árið hefur ver-
ið hrein hörmung fyrir kappann
og hann verið fjarri því sannfær-
andi. Fallið er jú hæst af toppnum
og hingað til á árinu er ekkert sem
bendir til að hann sé nógu góður til
að viðhalda toppsætinu í golfinu. n
n Þessir kylfingar ættu að láta að sér kveða í golfinu á árinu
Nálgast endastöð Kobe er einn allra besti leikmaður NBA-deildarinnar undanfarinn
áratug. MyNd ReuTeRS