Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2013, Qupperneq 16
Hafðu stjórn á eigin fjármálum
n Þjálfaðu þig upp í að vera skynsamur neytandi
Þ
að er alltaf skynsamlegt að
vera meðvitaður þegar kemur
að fjármálum, hver sem inn
koman er. Gott fjármálalæsi
er stór hluti af því að hafa stjórn á
eigin lífi.
Fyrsta skrefið í því að hafa yfir
sýn yfir fjármálin er að fylgjast með
eyðslunni. Skrá niður öll útgjöld
og sjá þannig á hvaða sviðum hægt
er að skera niður. Margir sem eyða
peningum í óþarfa gera sér illa grein
fyrir því. Það kemur oft glögglega
í ljós þegar farið er að skrá niður
eyðsluna.
Ef þú átt varasjóð í banka gættu
þess þá að þú ávaxtir aurinn með
því að velja rétta reikninginn. Veldu
reikning með háum vöxum og fáðu
helst óháðan fjármálaráðgjafa til að
ráðleggja þér í þeim efnum. Lestu
engu að síður vel alla skilmála bank
ans varðandi reikninginn.
Þjálfaðu þig upp að vera skyn
samur neytandi. Berðu saman verð
í verslunum og á vöruflokkum áður
en þú heldur af stað í verslunarleið
angur.
Skráðu þig í greiðsluþjónustu hjá
bankanum þínum og láttu dreifa
stærri útgjöldum yfir árið. Þannig
haldast útgjöldin frekar jöfn allt árið
og þú getur skipulagt fjármálin betur.
Það gefur þér jafnvel tækifæri til að
leggja eitthvað til hliðar í varasjóð
sem gæti komið sér vel síðar. Annað
hvort þegar óvænt útgjöld koma upp
eða þegar þú vilt einfaldlega gera vel
við þig. n
Algengt verð 256,8 kr. 255,6 kr.
Algengt verð 256,6 kr. 255,4 kr.
Höfuðborgarsv. 256,5 kr. 255,3 kr.
Algengt verð 256,8 kr. 255,6 kr.
Algengt verð 258,9 kr. 255,6 kr.
Melabraut 256,6 kr. 255,4 kr.
Eldsneytisverð 10. mars
Bensín Dísilolía
Fékk nýtt rúm
sent heim
n Lofið fær verslunin Svefn og
heilsa en viðskiptavinur er hæst
ánægður með þá þjónustu sem
hann fékk. „Ég keypti rúm hjá
þeim í fyrra á 150.000 krónur og
er því búinn að eiga það í um
það bil ár. Yfirdýnan hefur alltaf
verið hálf skrítin og það kom að
því að ég prófaði að kvarta yfir
henni. Ég sendi myndir af henni
í gærkvöldi og sýndi hvað var að.
Verslunarstjórinn sendi mér svar
í morgun að hún vildi láta mig fá
nýtt rúm og spurði hvort ég gæti
tekið við því í dag eða á morgun.
Ég sagðist geta tekið við því í dag
og það stóðst. Rúmið var komið
heim og inn í herbergi
daginn eftir að ég sendi
kvörtunina. Ég er eigin
lega enn að ná því hvað
þetta gekk fljótt
fyrir sig og var
nákvæmlega
ekkert vesen.“
Engin máltíð
mánaðarins
n Lastið fær American Style fyrir
að hætta með máltíð mánaðar
ins. Viðskiptavinur hafði haft sam
band og lýst yfir óánægju sinni
með þessa ákvörðun. Hann hafi
stundum lítið á milli handanna en
hafi þó leyft sér í eitt og eitt skipti
að lyfta sér upp og kíkja á Stælinn.
Hann hafi orðið fyrir
vonbrigðum þegar
hann áttaði sig á
þessu.
DV hafði sam
band við Amer
ican Style sem
þakkaði fyrir
ábendinguna. „Það er
aldrei að vita nema mál
tíð mánaðarins verði aft
ur á boðstólum.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
Fylgstu með eyðslunni Margir eyða í
óþarfa án þess að gera sér grein fyrir því.
Unnar kjötvörUr
erU hættUlegar
n Stoðum rennt undir fyrri niðurstöður n Mataræði okkar hefur batnað
Þ
etta er í sjálfu sér enginn
nýr sannleikur. Það er
búið að sýna fram á þetta
áður svo þessi rannsókn
styður bara enn frekar við
þá þekkingu, segir Ólafur G. Sæ
mundsson næringarfræðingur
inntur eftir viðbrögðum við rann
sókn á tengslum milli unninna
kjötvara og hjartasjúkdóma og
krabbameins.
Öfgakenndar mælieiningar
Rannsóknin náði til hálfrar millj
ónar manna í tíu Evrópulöndum
sem fylgst var með í þrettán ár.
Niðurstöður hennar sýna að fólk
sem borðaði mikið af unnum kjöt
vörum eða meira en 160 grömm á
dag var í 44 prósenta meiri hættu
á að deyja á þeim árum sem rann
sóknin stóð en þeir sem borðuðu
að hámarki 20 grömm á dag.
„Ég hjó samt eftir því hvað það
var miðað við svakalega mikla
neyslu eða rúm 150 grömm á
dag. Ég get ekki ímyndað mér að
við séum að borða svona mikið.
Ég þekki alla vega ekki einn ein
asta einstakling sem borðar svona
mikið af unnum kjötvörum reglu
bundið,“ segir Ólafur og bendir á
að þetta magn samsvari þremur
pylsum á dag. Honum finnist því
mælieiningarnar öfgakenndar.
í lagi að fá sér pylsu öðru hvoru
Það sem gerir unnar kjötvörur svo
slæmar er hið mikla magn salts og
harðrar fitu og eins og Ólafur nefn
ir þá eru sterk tengsl á milli salt
neyslu og hækkandi blóðþrýstings.
Einnig hafi menn talið að neysla
á harðri fitu hafi neikvæð áhrif á
kólesterólbúskap líkamans. Hann
ítrekaði þá að í þessari rannsókn
væri miðað við mjög mikla neyslu
á þessum vörum og segir jafnframt
að neyslan hafi verið miklu meiri
hér áður fyrr. „Á margan hátt hefur
mataræði okkar batnað stórlega,
þó það megi gera betur á ýmsum
sviðum. Við vitum að mikil neysla
á þessum mat hefur slæm áhrif en
það er engin ástæða til að sneiða
hjá þessum mat algjörlega. Hér á
við hinn gullni meðalvegur eins
og í svo mörgu öðru. Við þurfum
heldur ekki að vera með samvisku
bit yfir því að setja skinku á brauð
barna okkar eða fá okkur pylsu
öðru hvoru.“
allur matur unninn að
einhverju leyti
Ólafur telur erfitt að skilgreina
nákvæmlega hvaða matvörur er
unnar. „Ef þú færð þér til dæmis
grænmetisrétt þá getur verið tölu
vert salt í honum og um leið og
þú steikir fisk eða stráir salti yfir
soðna eggið þá ertu kominn með
unnin matvæli að einhverju leyti.“
Það er því ekki hægt að sneiða hjá
öllum unnum matvælum en fólk
sé hvatt til að halda neyslu á mikið
unnum mat í lágmarki. n
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Á heimasíðu World Cancer Research Fund
er teknar saman upplýsingar um af hvaða
matvælum við ættum að borða mest og
hvaða matartegundir við ættum að forð
ast, viljum við viðhalda heilbrigði og kom
ast hjá því að fá krabbamein. Þar er fjallað
um að nær allur matur sem við borðum hafi
verið unninn á einhvern hátt. Það sé gert til
að hann sé tilbúnari til matreiðslu eða til að
láta hann líta betur út. Þegar talað er um að
halda sig frá unnum matvælum er því átt
við mat sem er verksmiðjuframleiddur eða
mikið unninn, eins og snakk, kex, kökur og
skyndibitar svo sem hamborgarar, franskar
kartöflur og djúpsteiktur kjúklingur. Eins er
átt við þau matvæli sem hafa verið unnin
á sérstakan hátt til að auka geymsluþol
þeirra. Slíkar aðferðir eru til dæmis reyking,
söltun eða viðbætt rotvarnarefni. Mat
vörur sem tilheyra þessum flokki eru meðal
annarra skinka, beikon, spægipylsa, pylsur
og bjúgu.
Þegar slík matvæli eru unnin missa
þau mikið af vökva, trefjum og næringar
efnum og í stað þeirra eru aukafita, sykur
og salt sett í þau. Þetta veldur því að
matvælin verða orkuríkari og næringar
efnasnauðari. Þar af leiðandi getur lítið
magn af þeim verið hitaeiningaríkt án þess
að vera mettandi. Hollasti maturinn er
því sá sem minnst hefur verið átt við og er
minnst unninn.
Nær allur matur unninn
Álegg Rannsakendur segja að pylsur,
skinka og beikon og aðrar unnar matvörur
virðist auka hættuna á ótímabærum dauða.
Gullni meðalvegurinn Ólafur segir að
það sé í lagi að neyta unninna kjötvara i hófi.
Unnar matvörur Það get
ur borgað sig að stilla neyslu
á unnum kjötvörum í hóf.
16 Neytendur 11. mars 2013 Mánudagur