Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2013, Síða 20
S
um tölfræði er sannarlega
með Börsungum fyrir seinni
leik liðsins í sextán liða úr-
slitum Meistaradeildar
Evrópu þegar Katalónarnir
taka á móti AC Milan og það með tvö
mörk í mínus frá fyrri leiknum. Það
er að segja að Barcelona hefur ekki
tapað neinum úrslita- eða útsláttar-
leik á Nou Camp í Meistaradeildinni
í heil þrjú ár.
En það er önnur hlið á þessum
sama peningi; ekki eitt einasta fé-
lagslið hefur komist áfram eftir að
hafa lent 2–0 undir eftir fyrri leikinn.
Mikinn vind þarf í seglin
Það er því öllum ljóst að verulega er
á brattann að sækja fyrir heimamenn
í Barcelona gegn AC Milan eftir út-
reiðina á Ítalíu en sá leikur var upp-
hafið að afskaplega undarlegu skeiði
hjá Spánverjunum sem fram að þeim
leik höfðu leikið því sem næst öll lið,
bæði heima og í Meistaradeildinni,
mjög grátt og farið létt með að margra
mati. Það er að segja ef frá er talið
óvænt tap fyrir Celtic í Skotlandi sem
voru einhver ósanngjörnustu úrslit
í boltanum í langan tíma að margra
mati.
Sár söknuður
Í kjölfar 2–0 tapsins fyrir merkilega
fersku Milan-liði Berlusconis var sem
leikmenn Barca hefðu rekist á vegg og
áttað sig á að þeir væru ekki ósigrandi
afl. Í kjölfarið vann Barcelona nauman
2–1 sigur á Sevilla í deildinni og tapaði
tvisvar í röð fyrir erkifjendum sínum í
Real Madrid. Fyrst 1–3 tap á heimavelli
í Konungsbikarnum og helgina eftir
2–1 í Madrid.
Leikmenn liðsins voru þögulir fyrst
um sinn enda ekki haft stórar ástæður
til kvartana í langan tíma en að því
kom að nokkrir þeirra sögðu söknuð
eftir aðalþjálfara liðsins hafa sitt að
segja. Bæði Iniesta og Pique sögðu
að liðið væri ekki alveg í takti meðan
Tito Vilanova væri fjarverandi vegna
veikinda.
Fjarstýring gegn Mílanó
Í ljósi þess að Vilanova fjarstýrði liði
sínu gegnum farsíma um helgina í 2–0
sigri gegn botnliði Deportivo virðist
það skipta máli enda mátti sjá meiri
gleði í leik liðsins nú en undanfarið
jafnvel þó margir lykilmenn hafi verið
hvíldir. Það var líka ákvörðun Vilanova,
sem er að jafna sig eftir skurð aðgerð í
New York, hverjir léku þann leik.
Hann mun sömuleiðis fjarstýra
sínum mönnum annað kvöld gegn
Mílanó samkvæmt spænskum
miðlum en hann er þó ekki nógu
hress enn til að ferðast og enn óvíst
hvenær nákvæmlega hann sést stjórna
Börsungum á nýjan leik í eigin skinni.
Liðin hafa mæst sextán sinnum
og í þeim hafa Spánverjarnir haft
sigur sex sinnum en Ítalirnir í fimm
skipti. n
Endastöð
fyrir BarcElona
20 Sport 11. mars 2013 Mánudagur
n Nýr samningur gæti haft þau áhrif að Ronaldo spili aftur undir stjórn Ferguson
Á
þessu stigi er það aðeins sterkur
orðrómur en ekki er talið með
öllu útilokað að Cristiano Ron-
aldo muni í nánustu framtíð
enn og aftur klæðast búningi síns
gamla félags Manchester United.
Stutt er síðan Alex Ferguson,
stjóri liðsins, var spurður um hugs-
anlega endurkomu stjörnunnar til
Manchester en Skotinn sagði það af
og frá jafnvel þó ekki vantaði áhug-
ann af sinni hálfu. Ronaldo væri stór-
kostlegur leikmaður og enginn vafi
léki á áhuganum. Hins vegar væri
það fjarska fráleitt enda laun Ron-
aldo gríðarlega há og verðmiðinn
langt umfram getu United.
Sömuleiðis þykir víst að Ronaldo
sjálfum þyki ekki leiðinlegt að spila á
ný í búningi United. Hann var hrærð-
ur yfir móttökunum fyrir skömmu
þegar hann snéri aftur á Old Traf-
ford í búningi Real Madrid og eng-
um dylst að ánægja hans í Madrid er
blendin.
Sagan segir að sportvörufram-
leiðandinn Nike hafi mikinn áhuga
að koma Ronaldo aftur í búning með
merki fyrirtækisins og framund-
an eru samningaviðræður Nike
og Manchester United um áfram-
haldandi samstarf. Sömuleiðis er
Ronaldo að detta inn í síðustu tvö
árin af samningi sínum við Spán-
verjana og Real þarf að endurnýja
fljótlega eigi þeir ekki að missa leik-
manninn sem er vitaskuld eftirsóttur
af fjölda félaga.
Hugmyndin gengur þannig út á
að samningur Nike við United verði
þannig úr garði gerður að þeir greiði
hluta af kaupverði Ronaldo frá Real
og jafnvel hluta af launum hans
sömuleiðis á móti enska liðinu.
Er þetta sagt mögulegt en ekki
endilega líklegt en það þarf þá að
gerast áður en Ronaldo fellst á nýjan
samning á Spáni. n
Hvar er gamli
Fabregas?
Varaþjálfari Barcelona, Jordi
Roura, þurfti að gera svo vel og
verja val Cesc Fabregas í lið sitt
um helgina gegn Deportivo fyrir
katalónskum blaðamönnum sem
komnir eru á þá skoðun að hann
sé einfaldlega ekki að leika nógu
vel til að verðskulda sæti í liðinu.
Roura sagði alla ánægða með
kappann en það fer vart fram hjá
þeim er muna eftir honum í að-
alhlutverki hjá Arsenal að hann
hefur aldrei náð sama takti hjá
Barcelona. Honum til varnar er
hann þó yfirleitt að spila annað
hlutverk og honum er þvælt tölu-
vert milli staða á vellinum.
Funheitur Tevez
Ef hann leikur alltaf svona vel eftir
að hafa lent upp á kant við lög-
regluna má hann falla oftar í þá
gryfju, sagði stjóri Manchester
City í gríni eftir 5–0 stórsigur sinna
manna á Barnsley í átta-liða úr-
slitum ensku bikarkeppninnar um
helgina. Þar var Mancini að tala
um Carlos Tevez sem fór á kost-
um, skoraði þrennu og lagði upp
hin tvö mörk liðsins. Fyrr í síð-
ustu viku var Argentínumaðurinn
handtekinn vegna gruns um að
hafa ekið bíl án leyfis en skírteinið
missti hann fyrir nokkru.
Sæll eftir
stífa meðferð
Fyrrverandi knattspyrnusnillingur-
inn Paul Gascoigne er kominn
heim á ný eftir stífa mánaðarlanga
áfengismeðferð í Bandaríkjunum
en kappinn var kominn að fótum
fram í byrjun ársins og drakk þá
svo stíft og mikið að vinir og vanda-
menn óttuðust um líf hans. Sjálfur
segist hann staðráðinn í að vinna
bug á áfengisdjöflum sínum og
gengur bærilega. En það er reyndar
er ekki í fyrsta skipti sem kappinn
segir það.
Casillas nýtur
stuðnings
Það kemur eflaust einhverjum
spánskt fyrir sjónir að sú liðs-
treyja Real Madrid sem best selst
að frátalinni treyju Ronaldo er
peysa markvarðarins Iker Casillas.
Casillas-treyjur seljast í bílförm-
um í verslunum félagsins og eru
þeir tveir langvinsælastir meðal
aðdáenda. Aðrir hverra peysur
seljast vel eru Sergio Ramos og
Mesut Özil. Casillas er óðum að
ná sér eftir meiðsli og ætti að hirða
markmannsstöðuna af Diego
Lopez fljótt og örugglega.
Cristiano aftur
til Englands
Orðrómur á kreiki
um að verið sé
að véla um að fá
hann aftur.
n Duga Messi og 90 þúsund öskrandi aðdáendur til að fleyta Barca áfram?
Meistaradeildin
Mörk alls
Barcelona 11 / AC Milan 7
Alls skot á mark
Barcelona 61 / AC Milan 46
Alls brot
Barcelona 46 / AC Milan 78
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Á skítugum skónum Börsungar steinlágu í Mílanó gegn frískum heimamönnum sem
aldrei gáfu færi.
Útilokar ekki að spila aftur fyrir United
Bjargvætturinn Öll met eru lítils virði, segir Leo Messi, ef lið hans fellur út í 16 liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar.