Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Page 2
Í
nóvember árið 2005 eignaðist
Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöf-
undur og aðstoðarforstjóri Time-
Warner- fjölmiðlasamsteypunnar,
17 prósenta hlut í Árvakri, útgáfu-
félagi Morgunblaðsins. Var tilkynnt
um viðskiptin á sama tíma og fjár-
festingarbankinn Straumur-Burða-
rás keypti 17 prósenta hlut í Árvakri
í gegnum félagið MGM ehf. Settist
Ragnhildur Geirsdóttir í stjórn Árvak-
urs fyrir hönd Forsíðu ehf. sem hélt
utan um hlut Ólafs Jóhanns. Hún
hafði þá mánuði áður hætt nokkuð
skyndilega sem forstjóri FL Group
en Hannes Smárason tók við starfi
hennar.
Seljandi hlutarins til Ólafs Jóhanns
var félag í eigu Huldu Valtýsdóttur
og dætra hennar. Valtýr Stefánsson,
faðir Huldu, var ritstjóri Morgun-
blaðsins í nærri 40 ár frá 1924 og þar
til hann lést árið 1963 og jafnframt
stór eigandi blaðsins. Því hefur verið
haldið fram að feðgarnir Björgólfur
Guðmundsson og Björgólfur Thor
hafi fengið Ólaf Jóhann til að kaupa
hlutinn í Árvakri. Hefur því einnig
verið haldið fram að hann hafi fengið
greidda þóknun fyrir að halda utan
um hlutinn sem félag Björgólfs Guð-
mundssonar keypti síðar af honum í
ársbyrjun 2008. Í samtali við DV vísar
Ólafur Jóhann þessum ásökunum á
bug.
Dylgjur um tengsl
Björgólfsfeðga
„Ég stóð við allt mitt sem snýr að
kaupunum að mínum hlut í Árvakri.
Frumkvæðið að kaupunum hafði fjöl-
skylda Huldu Valtýsdóttur sem kom
að máli við mig. Dylgjur um þessa
meintu aðkomu Björgólfsfeðga eru
því út í hött,“ segir Ólafur Jóhann. Til
stuðnings þeim orðum leggur hann
áherslu á að Ragnhildur Geirsdóttir
hafi setið í stjórn Árvakurs fyrir sína
hönd. Það sé fjarri sannleikanum að
hún hafi setið þar í umboði einhvers
annars og tekið ákvarðanir sem ekki
voru í umboði hans sjálfs og sam-
kvæmt hennar eigin sannfæringu og
félaginu fyrir bestu. Fjölskylda Huldu
Valtýsdóttur staðfesti í samtali við
DV að hún hafi komið að máli við
Ólaf Jóhann um möguleg kaup á hlut
hennar í Árvakri árið 2005.
Ein ástæða þess að fjölskyldan fór
að leita að kaupanda að 17 prósenta
hlut sínum voru ný fjölmiðlalög sem
voru í undirbúningi en var síðar synj-
að staðfestingar af for setanum árið
2004. Þau lög hefðu haft það í för með
sér að eignarhlutur fjölskyldunnar
hefði farið yfir þau eignamörk sem
sett voru fram í frumvarpinu. Því hafi
verið farið af stað með sölu hlutar
fjölskyldunnar og haft samband við
Ólaf Jóhann sem hafi þekkt vel til
fjölskyldunnar.
Landsbankinn lánaði fyrir
kaupunum
Samkvæmt ársreikningi Forsíðu
fyrir árið 2005 kemur fram að félagið
hafi fengið 655 milljóna króna lán
sem var á gjalddaga í febrúar 2007.
Landsbankinn veitti umrætt lán. Í
ársreikningi félagsins ári síðar virðist
sem lánið hafi verið framlengt til
desember 2007. Í ársreikningi fé-
lagsins fyrir árið 2005 kemur fram að
þá í árslok hafi eigið fé Forsíðu verið
orðið neikvætt um 12 milljónir króna
sem skýrist af fjármagnskostnaði
vegna lánsins frá Landsbankanum.
Á þessum tíma var hlutafé félagsins
einungis 500 þúsund krónur sem var
lágmarksupphæð samkvæmt lögum.
Forsíða jók síðan hlutafé sitt í 100
milljónir króna á stjórnarfundi sem
haldinn var í maí 2006. Á þeim fundi
var einnig ákveðið að Ólafur Jóhann
yrði eigandi að 60 prósenta hlut í fé-
laginu í eigin nafni en 40 prósenta
hlutur yrði í eigu félagsins Eldoris
Corp. sem skráð er í Lúxemborg en
með heimili á Tortóla. Tekið skal
fram að Ólafur Jóhann hafði veitt
umboð fyrir þessum ákvörðunum í
nóvember 2005 á sama tíma og til-
kynnt var um kaup Forsíðu á hlutn-
um í Árvakri. Þá kemur einnig fram
í umboðinu að Eldoris Corp. geri
gagnkvæman kaup- og sölurétt á 60
prósenta hlut Ólafs Jóhanns í For-
síðu.
Ólafur Jóhann segist aðspurður
telja að það hafi verið hluti af
samkomulaginu við Landsbankann
að bankinn yrði minnihlutahluta-
eigandi í Forsíðu með 40 prósenta
hlut sem aflandsfélagið Eldoris Corp.
hélt utan um. Árið 2006 tapaði For-
síða 110 milljónum króna sem skýrist
af fjármagnskostnaði félagsins það ár.
Tapaði ekki á fjárfestingunni
Í byrjun árs 2008 var tilkynnt að
Ólafur Jóhann hefði selt hlut sinn í
Árvakri. Kaupandinn að hlut For-
síðu ehf. var félagið Ólafsfell ehf. sem
þá var í eigu Björgólfs Guðmunds-
sonar. Fyrir kaupin átti Ólafsfell 16,8
prósenta hlut í Árvakri en eftir kaup-
in var Björgólfur kominn með 33,5
prósenta hlut. Ólafur Jóhann segist
ekki hafa tapað á sölunni á hlutnum
í Árvakri til félags Björgólfs. Þess skal
getið að árið 2006 tapaði Árvakur 653
milljónum króna og árið 2007 tapaði
félagið 210 milljónum króna. „Það
var einfaldlega kominn sá tími sem
ég hafði ætlað mér að vera þarna,“
hafði Fréttablaðið eftir Ólafi Jóhanni
árið 2008 vegna sölunnar á hlutnum
í Árvakri. Samkvæmt skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis skuldaði
Forsíða Landsbankanum 720 millj-
ónir króna í október 2008.
Árvakur í þrot stuttu síðar
Það sem gerðist síðar með Árvakur
þekkja flestir nokkuð vel. Við fall ís-
lenska bankakerfisins í október 2008
hækkuðu erlend lán félagsins mikið.
Skilaði útgáfufélagið 2,9 milljarða
króna tapi árið 2008. Hækkuðu skuldir
félagsins úr 3,2 milljörðum króna 2007
í nærri sex milljarða króna í árslok
2008. Var eigið fé Árvakurs þá orðið
neikvætt um tvo milljarða króna. Virð-
ist sem Ólafur Jóhann hafi líklega verið
heppinn að losna við hlut sinn í út-
gáfufélaginu á fyrri hluta árs 2008.
Í mars árið 2009 var tilkynnt að
félagið Þórsmörk ehf. hefði keypt
neitar
aÐKOMU
BJÖrGÓLFa
n Ólafur Jóhann keypti 17% í Árvakri árið 2005 n Fékk lán hjá Landsbankanum
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar annas@dv.is
Forsíða gjaldþrota eftir kaup Björgólfs Björgólfur Guðmundsson keypti félagið Forsíðu ehf. af Ólafi Jóhanni í upphafi árs 2008. Ári
síðar var félagið úrskurðað gjaldþrota. Fundust litlar sem engar eignir í þrotabúinu en félagið skuldaði Landsbankanum 720 milljónir króna
við fall bankans. „Af minni hálfu
voru þessi
viðskipti fullkomlega
eðlileg og var komið
fram við alla málsaðilja
af fullum heilindum.
Ólafur Jóhann Ólafsson
2 Fréttir 13. mars 2013 Miðvikudagur „Dylgjur um
þessa meintu
aðkomu Björgólfsfeðga
eru því út í hött
Tapaði ekki
Ólafur Jóhann Ólafsson,
rithöfundur og aðstoðar-
forstjóri Time-Warner-
fjölmiðlasamsteypunn-
ar, segist ekki hafa tapað
á kaupum á 17 prósenta
hlut í Árvakri.
Safna
hljóðfærum
Sett hefur verið af stað söfnun á
hljóðfærum og fjármunum í þágu
íbúa Kulusuk á Grænlandi, en tón-
listarhús bæjarins brann til ösku í
fárviðri um helgina. Í fréttatilkynn-
ingu frá aðstandendum söfnunar-
innar, kemur fram að þetta sé mikill
skaði fyrir lítið samfélag, enda var
tónlistarhúsið hjarta bæjarins, þar
sem tónlist og söngur ómaði frá
morgni til kvölds. „Mikið af hljóð-
færum og tæknibúnaði glataðist í
brunanum, og því eru vinir Græn-
lands hvattir til að leggja sitt af
mörkum.Tekið er við hljóðfærum í
Tónastöðinni, Skipholti 50d, og við
fjárframlögum á söfnunarreikningi
Kalak, vinafélags Íslands og Græn-
lands. Reikningsnúmerið er 0322-
26-002082, kennitala 4303942239.“
Metálag á
raforkukerfinu
Raforkunotkun á Íslandi var í sögu-
legu hámarki í síðustu viku en alla
vikuna var óvenjulega mikið álag
á raforkukerfi landsins. Gripið
var til skömmtunar á skerðanlegu
afli á Austurlandi til að tryggja
afhendingaröryggi. Álagið náði
hámarki í óveðrinu rétt fyrir há-
degi síðastliðinn miðvikudag en þá
mældist fimm mínútna afltoppur
2.222 MW en það er í fyrsta skipti
sem afltoppur mælist yfir 2.200
MW. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá Landsneti. „Algengast er að
álagstoppur hvers árs sé á köldum
degi, seint í desember, þegar raflýs-
ing er í hámarki og mikil umsvif eru
í verslun og þjónustu. Undanfarið
hefur álag á kerfið hins vegar haldið
áfram að aukast frá áramótum og
náði hámarki sem fyrr segir um
miðja síðustu viku þegar það mæld-
ist um 40 MW hærra en í desember
síðastliðnum en þá hafði ekki áður
mælst meira álag á kerfið,“ segir í til-
kynningunni. Skýringuna á álaginu
má rekja að hluta til aukinnar raf-
orkunotkunar hjá fiskvinnslufyrir-
tæki á Austurlandi þar sem loðnu-
bræðslur hafa verið í fullum rekstri.
Krefjast
afsökunar-
beiðni frá RÚV
Stjórn Blaðaljósmyndarafélags Ís-
lands krefst þess að ljósmyndari
365 verði beðinn afsökunar á því
að gengið hafi verið fram af offorsi
gegn honum á bikarúrslitaleik í
handknattleik á sunnudag. Ljós-
myndaranum var ýtt af vellinum
af íþróttastjóra RÚV eftir leikinn.
Ástæðan sem var gefin var að nýjar
verklagsreglur hefðu tekið gildi
varðandi störf fjölmiðla. „Það er
fráleitt að setja nýjar verklagsregl-
ur á kappleikjum í handbolta án
þess að kynna þær fyrirfram og að
þær séu þess eðlis að fjölmiðlar
geti ekki sinnt eðlilegri fréttaöflun,“
segir í ályktun stjórnarinnar.