Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2013, Side 3
n Ólafur Jóhann keypti 17% í Árvakri árið 2005 n Fékk lán hjá Landsbankanum
Fréttir 3Miðvikudagur 13. mars 2013
Árvakur á tvo milljarða króna en
það er núverandi eigandi útgáfu-
félagsins. Var af því tilefni greint frá
því að að Árvakur hefði fengið þrjá
milljarða króna afskrifaða af skuld-
um sínum. Skuldaði útgáfufélagið
Íslandsbanka 3,7 milljarða króna og
Nýja Landsbankanum 900 milljónir
króna. Fengust 1,7 milljarðar króna
upp í skuldir og lögðu nýir hluthafar
félaginu til 300 milljónir króna.
Í janúar árið 2009 var Forsíða ehf.
úrskurðað gjaldþrota. Hafði Við-
skiptablaðið eftir Einari Sigurjóns-
syni hæstaréttarlögmanni, sem var
skiptastjóri félagsins, að litlar sem
engar eignir hafi fundist upp í kröf-
ur. Var einnig greint frá því í sömu
frétt að Forsíða ehf., MGM ehf. og
Ólafsfell ehf. hafi skuldað Sam-
son eignarhaldsfélagi sem var í
eigu Björgólfsfeðga um 2,5 millj-
arða króna. Þannig hafi Samson fjár-
magnað félögin sem síðan hafi lánað
Árvakri rekstrarfé eða fjárfest í félög-
um sem fóru með hlut í Árvakri.
Vilhjálmur óskaði eftir
rannsókn
Sumarið 2009 greindi Morgun-
blaðið síðan frá því að Vilhjálmur
Bjarnason, lektor við viðskipta-
fræðideild Háskóla Íslands, hefði
óskað eftir því að embætti sérstaks
saksóknara myndi rannsaka við-
skipti Landsbankans og Glitnis við
Árvakur og þá sérstaklega kaup
Björgólfs Guðmundssonar og Ólafs
Jóhanns Ólafssonar á hlutabréfum
í Árvakri.
Vildi Vilhjálmur að rannsak-
að yrði hvort kaup þeirra hafi ver-
ið fjármögnuð með lánveiting-
um frá Landsbankanum til
eignarhaldsfélaga í þeirra eigu án
nokkurra trygginga nema einung-
is með handveði í hlutabréfum
Árvakurs. Taldi Vilhjálmur að
mögulega hefði verið um umboðs-
svik að ræða þar sem Landsbank-
inn hefði einungis tekið handveð
í hlutabréfum Árvakurs án frekari
trygginga. Björgólfur var sem
kunnugt er einn af aðaleigendum
Landsbankans í gegnum félagið
Samson Holding.
„Af minni hálfu voru þessi við-
skipti fullkomlega eðlileg og var
komið fram við alla málsaðilja af
fullum heilindum,“ segir Ólafur
Jóhann um kaup sín á hlutnum í
Árvakri. Hann áréttar að enginn
hafi haft samband við sig vegna
mögulegrar rannsóknar á þessum
viðskiptum enda hafi þau verið
fullkomlega eðlileg eins og hann
orðaði það. Ekkert hefur heyrst af
mögulegri rannsókn sérstaks sak-
sóknara á þessu máli frá því að
greint var frá því sumarið 2009. n
Kaupendur Símans stóðu við allt
n Kaupverðið var lagt inn mánuði eftir að samningur var undirritaður
K
aupendur Símans stóðu að
öllu leyti við kaupsamninginn
sem gerður var við íslenska rík-
ið vegna sölu fyrirtækisins árið
2005. Þetta kemur fram í svari Katrín-
ar Júlíusdóttur, fjármála- og efnahags-
ráðherra, við fyrirspurn Margrétar
Tryggvadóttur, þingkonu Hreyfingar-
innar, um málið. „Ráðuneytinu er ekki
kunnugt um neinar vanefndir af hálfu
kaupenda. Frávik frá efni upphaflegs
kaupsamnings hafa verið með sam-
þykki ráðuneytisins,“ segir Katrín um
söluna í svarinu.
Kaupendurnir greiddu söluverðið
að fullu, samtals 66,7 milljarða króna.
Söluverðið var greitt í þremur gjald-
miðlum þann 6. september árið 2005,
mánuði eftir undirritun kaupsamn-
ingsins. Í svarinu kemur einnig fram
að kaupverðið hafi verið greitt með
34.506 milljónum íslenskra króna,
310 milljónum evra, sem jafngiltu
23.870 milljónum íslenskra króna, og
125 milljónum Bandaríkjadala, jafn-
virði 7.717 milljóna íslenskra króna.
Greiðslan var lögð í heilu lagi inn á
reikning í Seðlabankanum.
Margrét spurði einnig hvort kaup-
endur Símans hafi í einhverjum til-
fellum haldið eftir eignum án þess að
greiða fyrir þær. Katrín segir svo ekki
hafa verið. „Kaupverð samkvæmt
kaupsamningi var greitt. Kaupend-
ur greiddu fyrir allar þær eignir sem
þeir fengu afsal fyrir,“ segir hún. Í svar-
inu kemur hins vegar fram að í ein-
hverjum tilfellum hafi félagið feng-
ið tímabundið afnot af landi ríkisins
vegna starfræktra fjarskiptamannvirkja
og fjarskiptamastra á meðan þau voru
nýtt með þeim hætti. adalsteinn@dv.is
Smáframboðin að
ræða sameiningu
n Viðræður milli Dögunar og nýs framboðs Halldórs Gunnarssonar
V
iðræður á milli Dögunar
og óstofnaðs framboðs
Halldórs Gunnarssonar,
fyrrverandi sóknarprests
í Holti, hafa átt sér stað
undanfarna daga. Andrea Jóhanna
Ólafsdóttir, fyrrverandi forsetafram-
bjóðandi og frambjóðandi Dögunar,
staðfestir þetta í samtali við blaða-
mann. Hún segist vilja reyna að sam-
eina þá sem berjast fyrir aðgerðum
í þágu skuldugra heimila en Dögun
hefur sett þau mál á oddinn. Greint
var frá því um nýliðna helgi að Hall-
dór væri talsmaður hóps fólks sem
hygðist stofna sérframboð til að berj-
ast fyrir svipuðum hlutum. Ekki ligg-
ur fyrir á hvaða stigi þessar viðræður
eru en ljóst er að markmið þeirra er
sameining framboðanna tveggja.
Vilja öflugan valkost fyrir
heimilin
„Á okkur brenna náttúrulega sömu
málefnin,“ sagði Andrea Jóhanna að-
spurð um fund hennar og Halldórs.
„Við eigum í samræðum. Það sem
ég tel mjög mikilvægt í þessu máli er
að fá fólk til að sameinast frekar en
sundrast.“ Andrea vill ekki gefa upp
á hvaða stigi samræðurnar eru. „Nei,
það er erfitt að upplýsa um það á
þessari stundu. Það er mjög erfitt að
upplýsa það út í fjölmiðla hver stað-
an er,“ segir hún og bætir við: „Við
Halldór erum bæði á því að það verði
að gefa kjósendum öflugan valkost
fyrir heimilin í landinu.“
Andrea segir að þau Halldór séu
mjög sammála um marga hluti.
Nefnir hún meðal annars að stöðva
þurfi nauðungarsölur, almenna
skuldaleiðréttingu og afnám verð-
tryggingar. „Við erum sammála um
margt fleira og erum sammála um
að við viljum vinna saman. Hvernig
við förum að því er úrlausnarefnið
sem við erum að vinna í,“ segir hún
og ítrekar að samræðurnar séu ekki
formlegar heldur sé um þreifingar að
ræða.
Í framboði til að vinna með
Framsókn
Framboð Halldórs í Holti er óstofnað
og vildi hann ekki gefa neitt upp um
hverjir stæðu að því með honum í
samtali við blaðamann. Hann vildi
heldur ekki ræða um fund sinn og
Andreu þegar eftir því var leitað.
Halldór sagði í viðtali í Silfri Egils á
sunnudag að framboðið sem hann
færi fyrir hefði það eitt að markmiði
að vinna með Framsóknarflokknum
að loknum kosningum. „Því hann
einn hefur þorað að setja fram
áherslu um það að þessi mál séu í
forgrunni,“ sagði hann í viðtalinu.
Þær upplýsingar sem Halldór
hefur þó gefið um þetta óstofnaða
framboð ríma ágætlega við kjarna-
stefnu Dögunar, þrátt fyrir að hann
hafi sérstaklega minnst á Framsókn.
Allir þrír flokkarnir vilja að skuldir
heimilanna, sem hækkuðu mikið í
hruninu, verði færðar niður og eru á
móti verðtryggingunni.
Dögun mynduð úr nokkrum
flokkum
Dögun var stofnaður á grunni
þriggja mismunandi flokka fyrr í
vetur. Í Dögun sameinuðust Hreyf-
ingin og Borgarahreyfingin á ný auk
Frjálslynda flokksins. Ef af verð-
ur sameiningu Dögunar og óstofn-
aðs framboðs Halldórs verður
flokkurinn því orðinn samsteypa
fjögurra mismunandi framboða.
Segja má að flokkurinn hafi ver-
ið myndaður um aðgerðir í þágu
skuldsettra heimila og til að tryggja
stjórnarskrárbreytingum farveg.
Stór hluti af þeim sem hafa verið í
forvarðarsveit flokksins tóku þátt
í starfi Hagsmunasamtaka heimil-
anna, en Andrea gegndi einmitt for-
mennsku í þeim samtökum.
Þetta endurspeglar grunnstefna
flokksins einnig. „Leysa verður
skuldavanda heimilanna með rót-
tækum hætti og bæta aðstöðumun
almennings gagnvart fjármála-
valdinu,“ segir til að mynda í einum
af sex atriðum í kjarnastefnu flokks-
ins. Flokkurinn berst fyrir tafarlausu
afnámi verðtryggingar á neytenda-
lánum og almennri niðurfærslu
húsnæðislána. n
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Samræður Andrea Jóhanna staðfestir að
hún hafi átt samtöl við Halldór. Skilja má
orð hennar sem svo að sameining standi
fyrir dyrum, þó óljóst sé hver staða þeirra
viðræðna er. MynD Sigtryggur Ari
„Á okkur brenna
náttúrulega
sömu málefnin
Allt á huldu Litlar sem engar upp
lýsingar liggja fyrir um fyrirhugað
framboð Halldórs í Holti. Hann vill ekki
gefa upp hverjir starfa með honum að
stofnun framboðsins. MynD Sigtryggur Ari
Lagt inn á reikning Peningarnir sem fengust með sölu Símans voru lagðir inn á reikning í
Seðlabankanum. MynD Sigtryggur Ari